Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 80

Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 80
arnartomas@frettabladid.is Í bílskúr í Stangarholtinu er að finna forvitnilegan fornbókamarkað sem ber nafnið Kanínuholan. Um helgina verður sérstök aðventuopnun, þar sem úir og grúir af alls konar bókmennta- fjársjóðum. „Ég erfði mikið bókasafn eftir pabba minn, Geirlaug Magnússon, sem var ljóðskáld og mikill lestrarhestur,“ segir Móeiður Hlíf Geirlaugsdóttir. „Ég hef reynt að taka mikið inn, en þyrfti að eiga stærri fasteign til að taka við öllu svo mig langaði að f leiri myndu njóta þessara góðu bóka.“ Í safni Geirlaugs var mikið af ljóða- bókum og öðrum klassískum bókum sem Móeiði þótti miður að lægi í köss- um. „Mér datt í hug að nýta bílskúrinn undir þetta og hef verið að endurnýja hann aðeins,“ segir Móeiður, sem hefur tekið sig til við að mála og f lokka. „Hér er mikið safn af góðum bókum.“ Móeiður segir að eftirspurn sé eftir fornbókum á Íslandi. „Vinir föður míns eru miklir fasta- gestir, sem er svolítið fyndið því þeir voru alltaf að gefa hver öðrum bækur,“ segir hún. „Það eru margir sem vilja líka losa sig við bækur, sem er auðvitað gott fyrir jörðina líka. Ég lifi í voninni um að bókelskandi fólk komi og kíki á mig.“ Við tiltektina og segist Móeiður hafa fundið ýmsa gimsteina. „Það er stórt ljóðabókasafn sem er kannski það merkilegasta,“ segir hún. „Ég á tvöfalt af mörgum því pabbi var ekki mikið fyrir að lána bækur svo hann gaf mér oft önnur eintök. Svo er ég með sérstakt tilboð fyrir unga lesendur – fyrsta bókin er frí! Þetta er til að koma þeim á bragðið og gera þau háð.“ Aðventuopnunin stendur yfir milli 15 og 18 í dag og á morgun. ■ Kanínuhola fyrir fornbókaorma Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, Arnór Guðmundsson Austurvegi 5, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, fimmtudaginn 9. desember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, fimmtudaginn 16. desember kl. 14.00. Systkini hins látna. Ástkær faðir minn, sonur og bróðir, Árni Böðvarsson lést 3. nóvember sl. Útförin hefur farið fram. Dagur Árnason, foreldrar, systkini og makar. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Kristín María Guðbjartsdóttir Waage frá Stokkseyri, lengst til heimilis í Keflavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut, mánudaginn 6. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 16. desember kl. 13. Allir sem vilja fylgja henni eru velkomnir, en vegna sóttvarna þarf að sýna neikvætt Covid-19 hraðpróf við innganginn, tekið af viðurkenndum aðila og ekki eldra en 48 tíma. Laufey Waage Málfríður Waage Héðinn Waage Og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hólmfríður Stella Helga Ólafsdóttir Akurhólum 4, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 3. desember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 15. desember kl. 13.00. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á www. selfosskirkja.is. Jón Karl Róbertsson Ingveldur Sævarsdóttir Kristrún Eva Róbertsdóttir Sigurbjörg Sara Róbertsdóttir Ármann M. Ármannsson barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Kjartan Ottósson verður jarðsunginn frá Neskirkju, þriðjudaginn 14. desember kl. 13. Allir eru velkomnir í kirkjuna en vegna sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna neikvætt hraðpróf við innganginn sem er ekki eldra en 48 klst. Hraðpróf er pantað fyrirfram á covidtest.is eða testcovid.is. Guðríður Þorvalds Jónsdóttir Ottó Guðmundsson Inga Jónsdóttir Guðný Guðmundsdóttir Jóhannes Stefánsson Lárus Guðmundsson María Jóhanna Sigurðardóttir Örn Guðmundsson Ingunn Þorvarðardóttir Sigurður Guðmundsson afabörn og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Lóa Guðrún Gísladóttir áður til heimilis að Sandabraut 10, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, miðvikudaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. desember, með nánustu fjölskyldu og vinum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða fyrir góða umönnun. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Guðný Elín Geirsdóttir Garðar Geir Sigurgeirsson Valdimar Geirsson Sigríður Ellen Blumenstein Hrafnhildur Geirsdóttir Ólafur R. Guðjónsson Anna Lóa Geirsdóttir Engilbert Þorsteinsson Erla Geirsdóttir Ársæll Alfreðsson Gísli Geirsson Elín Þóra Geirsdóttir Valur Jónsson ömmubörnin Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Ásta Droplaug Björnsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði, þann 1. desember sl . Útförin hefur farið fram i kyrrþey. Hennar er sárt saknað. Guðmundur Rúnar Gestsson Helena Guðmundsdóttir Gestur Rúnar Guðmundsson Guðlaug Sif Long Sóley Ásta Gestsdóttir Olga María Long Ása Diljá Long Rúnar Steinn Arnarsson Long Ástkær móðir okkar, dóttir og systir, Jenný Bára Hörpudóttir lést á heimili sínu 4. desember sl. Útför hennar fer fram í Seljakirkju, miðvikudaginn 15. desember kl. 13. Farið er fram á neikvætt hraðpróf vegna sóttvarnareglna. Útförinni verður streymt á www.seljakirkja.is/seljasokn/streymi/. Elías Aron Árnason, Gunnlaugur Örn Árnason og Brynjar Pálmi Árnason Harpa Hrönn Gestsdóttir Runólfur Hjalti Eggertsson Henný Bára Gestsdóttir Sæmundur Halldórsson Jóhann Sigurðarson Kári Sæmundsson Aníta Runólfsdóttir Dagný Runólfsdóttir Kolbrún Kristinsdóttir Gylfi Ísarr Freyr Sigurðsson Sylvía Björg Runólfsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Matthildur Gestsdóttir Lautasmára 3, Kópavogi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 30. nóvember. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 14. desember klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á www.skjaskot.is/matthildur. Gestir eru beðnir að framvísa neikvæðu Covid-prófi sem er ekki eldra en 48 klst. við innganginn. Þ. Björgvin Kristjánsson Kristján Björgvinsson Hrefna Gunnarsdóttir Matthildur Gunnarsdóttir Jóhann Vignir Gunnarsson Björgvin Smári Kristjánsson Iðunn Elva Ingibergsdóttir Þorgeir Örn Tryggvason Hulda Ósk Bergsteinsdóttir Gunnhildur Kristjánsdóttir Hekla Sóley, Snædís Lilja, Friðrik Hrafn og Harpa Sif Okkar ástkæri Guðmundur Skagfjörð Pálsson frá Siglufirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Friðveig Elísabet Rósadóttir Bergsveinn Jóhann Guðmundsson Páll Guðni Guðmundsson Linda Björk Brynjólfsdóttir Kristín Lena Pálsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, Sigmundur Tómasson Sóleyjarima 9, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 2. desember. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju, þriðjudaginn 14. desember klukkan 13.00. Allir eru velkomnir í kirkjuna en verða að sýna fram á neikvætt hraðpróf við innganginn, ekki eldra en 48 klst. Hraðpróf eru pöntuð fyrir fram á hradprof.covid.is. Streymt verður frá athöfninni á: https://www.youtube. com/channel/UCLoNRDNgtA4a6tgIEywDCGw Anna Sigríður Ólafsdóttir Jensen Ólafur Sigmundsson Margrét Sigmundsdóttir Árni Viðar Sveinsson Tómas Jón Sigmundsson Inga Dóra Björnsdóttir afabörn og langafabörn. Í Kanínuholunni við Stangarholt 10 er að finna veglegt safn af klassískum bókum. Ég lifi í voninni um að bókelskandi fólk komi og kíki á mig. 54 Tímamót 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.