Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 84

Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 84
4.799 kr. Sextíu kíló af kjaftshöggum Sjálfstætt framhald verðlaunaskáldsögunnar Sextíu kíló af sólskini. Sagan hefst í Segulfirði árið 1906. Áfram vindur furðuríku ferðalagi Íslendinga út úr myrkum torfgöngum inn í raflýstar stofur. Lesandinn er hrifinn með í dans á síldarpalli, í ólgandi takti sem dunar í huganum. 5.999 kr. Veistu, ef þú vin átt Haustið 1946 fluttist Aðalheiður Hólm af landi brott með hollenskum eiginmanni sínum. Þá stóð hún á þrítugu en hafði engu að síður komið víða við sögu. Átján ára stofnaði hún Starfsstúlknafélagið Sókn sem sameinaði konur í lægstu stéttum þjóðfélagsins í baráttu þeirra fyrir mannsæmandi lífi. 4.798 kr. Sigurverkið Íslenskur úrsmiður situr í höll Danakonungs og gerir upp forna glæsiklukku. Kvöld eitt rekst sjálfur einvaldurinn, Kristján sjöundi, inn til hans. Þeir taka tal saman og svo fer að úrsmiðurinn rekur fyrir hátigninni dapurlega sögu föður síns og fóstru. 4.798 kr. Þú sérð mig ekki Snæbergsfjölskyldan er efnamikil, voldug og virt í samfélaginu. Allt virðist leika í lyndi, en þegar stórfjölskyldan sameinast í tilefni af afmæli ættföðurins á nýju hóteli á Snæfellsnesi koma brestir í ljós. Rifið er ofan af gömlum sárum og leyndarmál fortíðarinnar leita upp á yfirborðið. 3.598 kr. Meira pönk, meiri hamingja Nú er komin verslunarmannahelgi og vinkonurnar Iðunn og María Sara ákveða að halda sína eigin útihátíð. En óheppnin eltir þær á röndum svo mamma neyðist loks til að skerast í leikinn. Fyndin og fjörug saga sem endalaust kemur á óvart. 4.799 kr. Gunni Þórðar – Lífssaga Lífshlaup Gunnars Þórðar- sonar er í senn furðulegt og stórkostlegt. Fáir núlifandi íslenskir tónlistarmenn komast með tærnar þar sem hann hefur hælana. Þetta er saga um strák, kominn af veðurbitnum bændum og sjómönnum norður á Ströndum, sem kemur suður og verður undrafljótt fremsti dægur- tónlistarmaður landsins. 3.498 kr. Þín eigin ráðgáta Þín eigin ráðgáta er öðruvísi en aðrar bækur. Hér ert þú söguhetjan og stjórnar ferðinni. Einn daginn vaknarðu og ekkert er eins og áður. Allir símar eru ónýtir. Samfélagsmiðlar eru hættir að virka. Tölvuleikir hafa þurrkast út. Hvað í ósköpunum gerðist? 4.899 kr. Fegurðin ein Síðasta sýningin á söngleiknum um Fríðu og Dýrið. Anna dansari er í stuði í lokapartíinu – þar til bæði kærastinn og viðhaldið eru mættir. Hún tekur því fagnandi óvenjulegu verkefni fyrir auglýsingastofu: að fara til Tenerife og finna fallegt fólk. 4.798 kr. Sprakkar Konur á ólíkum sviðum þjóðlífsins koma víða við í spjalli um stöðu kynjanna, atvinnulífið, móðurhlutverkið og ótalmargt fleira. Brugðið er upp litríkri mynd af íslensku nútímasamfélagi, kostum þess og göllum, og rýnt í það sem enn er óunnið í jafnréttismálum. 4.999 kr. Guðni á ferð og flugi Guðni Ágústsson er annálaður sagnamaður og einn vinsælasti tækifærisræðumaður þjóðarinnar. Í hugum margra er hann enn hinn eini sanni landbúnaðarráðherra Íslands – og um leið ötull talsmaður landsbyggðarinnar. Hér fer Guðni með lesandann í ferðalag um hinar dreifðu byggðir Íslands. 3.498 kr. ADHD: Bannað að eyðileggja Alexander Daníel Hermann Dawidsson er með ADHD en það er allt í lagi – nema þegar lífið tekur upp á því að fara á hvolf. Bannað að eyðileggja er spennandi saga um Alexander, Sóleyju bekkjarsystur hans og litríku fjölskyldurnar þeirra. 5.999 kr. Milli vonar & ótta Íslenskar ljósmæður þurftu í aldanna rás að brjótast í öllum veðrum, oft um erfiðar leiðir, til að sinna fæðandi konum sem biðu milli vonar og ótta eftir aðstoð. Þær tóku á móti börnum við alls konar aðstæður á misjafnlega búnum heimilum. 4.798 kr. Rætur – Á æskulóðum minninga og mótunar Rætur birtir nýjar hliðar á forseta sem flestir telja sig þekkja vel. Meitluð mynd, sannfærandi, hreinskilin og opinská. Hér leitar Ólafur Ragnar Grímsson upprunans og svara við fjölmörgum spurningum. Óvænt bók sem lengi verður lesin. 4.459 kr. Horfnar Það er sumarbjart og sólin skín við Kirkjubæjarklaustur. Tvær þýskar vinkonur á bakpokaferðalagi heillast af stórbrotinni náttúrunni. Undir friðsælu yfirborðinu við Klaustur leynast þó myrk leyndarmál sem stúlkurnar tvær vilja ekki vita af. 3.898 kr. Skemmtikrafturinn: Töfrabrögð, sirkusbrellur og grín Hefur þig alltaf langað til að kunna töfrabrögð? Dreymir þig um að vinna í sirkus? Eða áttu mörg systkini og finnst þú fá of litla athygli? Þá er Skemmtikrafturinn bókin fyrir þig! 4.798 kr. Bærinn brennur Árið 1828 myrti Friðrik bóndasonur í Katadal nágranna sinn, bóndann og lækninn Natan Ketilsson á Illugastöðum í Húnavatnssýslu. Ráðskona Natans, Sigríður, og vinnukona hans, Agnes, lögðu á ráðin með Friðriki. Nákvæmar yfirheyrslur eru hér raktar en þær varpa nýju ljósi á málið. 4.598 kr. Prjón er snilld! Að prjóna er ekki bara skemmtileg iðja sem gefur af sér fallegar flíkur. Prjón virkjar líka sköpunarkraftinn og veitir einstaka hugarró. Sjöfn Kristjánsdóttir prjónasnillingur tekur hér saman allar sínar bestu uppskriftir. 4.798 kr. Náhvít jörð Á hvítum vetrarmorgni finnst yfirgefinn flutningagámur í Rauðhólum við Reykjavík. Þegar hann er opnaður blasir hryllingurinn við: fimm lífvana konur sem augljóslega hafa verið fluttar í þessum gámi yfir hafið. Hvernig getur svona lagað gerst og hverjir standa að baki þessari óhæfu? 5.098 kr. Heima hjá Lækninum í eldhúsinu Heima líður okkur vel og þar eigum við okkar bestu stundir. Ástríðukokkurinn og Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr, töfrar hér fram litríkt lostæti sem aldrei fyrr. Enda á heimavelli. Lægra verð – léttari innkaup Bókaðu gleðileg jól Með því að nýta þér netverslun Nettó sparar þú þér tíma í jóla amstrinu. Nýttu tímann frekar í að lesa góða bók. Úrval bóka er mismikið eftir verslunum. Jólainnkaupin hafa aldrei verið eins leikandi létt. Þú færð jólabækurnar á netto.is 5.499 kr. Af nótnaborði náttúrunnar Það er eins og úrið hægi á sér þegar Páll á Húsafelli er sóttur heim, enda er tíminn í hans húsakynnum ekki af klukkuverki þessa heims. Ljúfmennskan ræður þar mestu, í bland við háttvísi og æðruleysi, en samfundir með listamanninum eru þeirrar náttúru að allt um hægist.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.