Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 88

Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 88
Nat iur antem faccus si verum eos re pere, omnis derror sum el incimendelit dolupti- um reicamagnis derro njall@frettabladid.is Það er óhætt að segja að Henn­ essey­hönnunarfyrirtækið hugsi út fyrir kassann, en þar á bæ er í smíð­ um harla óvenjulegt ökutæki. Farar­ tækið kallast Project Deep Space og er sex hjóla ofurbíll. Verður hann fjögurra sæta þar sem ökumaðurinn situr einn fremst, tveir fyrir aftan hann og síðasti farþeginn aftast fyrir miðju. Segir John Hennessey sjálfur að þessi bíll verði f ljótastur fjögurra sæta bíla í 320 km á klst. Þegar er hafin smíði á bílnum sem verður frumsýndur 2026 og er þegar búið að selja það eintak, en alls verða 105 eintök smíðuð. Hennessey hefur verið að gæla við rafdrifinn ofurbíl í nokkurn tíma en glímt við þekkt vandamál sem er að ná niður þyngd, sem gengur ekki alltaf saman við háa hestafla­ tölu raf bíla sem þurfa f leiri mót­ ora og stærri rafhlöður. Þess vegna fóru þeir þá leið að sætta sig við að bíllinn yrði yfir tvö tonn og ekki aðeins tveggja sæta. Bíllinn verður með mótor á hverju hjóli og að sögn Hennessey er ekki óalgengt að hver mótor geti skilað allt að 400 hestöflum í svona bíl. Ef slíkur mótor verður við hvert hjól verður hestaf latalan stjarnfræðileg, eða 2.400 hestöfl. Það eru fyrirtæki eins og Pennzoil, sem er í eigu Shell, og Delta, sem Cosworth á, sem eru í samstarfi við Hennessey um þróun rafmótoranna. n Sex hjóla ofurbíll frá Hennessey Bíllinn er harla óvenjulegur að sjá frá hlið, enda lengdin á við tvo smábíla. Renault­merkið setti ný við­ mið árekstrarprófa á árum áður og Laguna var fyrsti bíllinn til að fá fimm stjörnur í prófunum EuroNCAP árið 2001. Tveir bílar frá merkinu stóðu sig illa í síðustu próf­ unum og féllu af stjörnu­ himninum með látum. njall@frettabladid.is Ný útgáfa Renault Zoe fékk 0 stjörn­ ur í árekstrarprófi EuroNCAP um daginn og varð þar með þriðji bíll­ inn í sögunni til að fá þessa skamm­ arlegu einkunn. Fyrri útgáfa Zoe fékk fimm stjörnur á prófinu árið 2013 og útskýrist þessi mikli munur meðal annars af því að bíllinn hefur ekki fylgt þeim auknu kröfum sem gerðar eru til nýrra bíla í dag þegar kemur að öryggi. Það var aðallega í árekstrar­ prófi að framan og á hlið sem Zoe stóð sig illa, en öryggispúði fyrir hliðar árekstur er nú minni og veitir minni vörn en áður, sérstaklega fyrir höfuð. Í hliðarárekstrarprófi á staur hefði þriðjungur meiðsla orðið mjög alvarlegur og leitt til dauða. Einkunn fyrir öryggi fyrir fullorðna farþega er aðeins 43%, sem er sú versta í 11 ár. Auk þess vantar í Zoe öryggisbún­ að sem er orðinn staðalbúnaður í vel f lestum bílum í dag. Er þar átt við veglínuskynjara og neyðarhemlun til að mynda, en öryggisbúnaðurinn fékk aðeins 14% einkunn í prófinu sem er 61% fyrir neðan meðaltalið í prófununum. Annar bíll frá Renault fékk einnig slæma einkunn í síðustu prófunum EruoNCAP, en það var Dacia Spring EV sem væntanlegur er á næsta ári. Hann fékk aðeins eina stjörnu. Aðrir bílar stóðu sig vel eins og BMW iX sem veitir 91% vörn fyrir fullorðna farþega. Mercedes EQS stóð sig samt best af öllum, með 96% vörn fyrir fullorðna farþega n. Renault Zoe fær 0 stjörnur í árekstrarprófi EuroNCAP Renault Zoe-rafbíllinn er aðeins sá þriðji í röðinni til að fá þessa lágu einkunn, en hann stóð sig verst í árekstri frá hlið. MYND/EURONCAP njall@frettabladid.is GM Defense er deild innan GM sem sér um að hanna og smíða farar­ tæki fyrir ameríska herinn. Þar á bæ er verið að vinna að útgáfu af Hummer­rafpallbílnum til hern­ aðarnota, en hugmyndin er að nota hann sem könnunarökutæki. Skiptir þar miklu máli hversu hljóðlátur raf bíllinn er. Bíllinn verður þó ekkert líkur núverandi Hummer EV, en mun þó nota sama undirvagn, rafmótora og rafhlöðu. Búast má við bíl sem er með bryn­ vörn og brynjuðum undirvagni eins og hvert annað hernaðar­ ökutæki, auk þess sem búnaður hans verður töluvert öðruvísi. Búast má við að fyrstu gerðir hans líti dagsins ljós á næsta ári. Ákvörð­ un um framleiðslu hans fyrir her­ inn verður þó ekki tekin fyrr en um miðjan áratuginn. n Hummer EV pallbíllinn til hersins Hernaðarútgáfa rafdrifins Hummer verður eflaust talsvert frábrugðin borgaralegri útgáfu hans. Fyrri útgáfa Renault Zoe fékk fimm stjörnur á prófinu árið 2013 en munurinn útskýrist af auknum kröfum í prófununum. Ef 400 hestafla mótor verður á hverju hjóli verður hestaflatalan stjarnfræðileg, eða 2.400 hestöfl. Upplýsingar um sölustaði er að finna á glediskruddan.is glediskruddan glediskruddan Höfundar: Marit & Yrja. Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. „Ég mæli einlæglega með Gleðiskruddunni sem er frábær bók til að virkja börn í að efla vellíðan, bjartsýni og þrautseigju“ -Bryndís Jóna, Núvitundarsetrinu- BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.