Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 104

Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 104
Hættulegar verslanir Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur og tónlistarmaður „Er enn á lífi. Ekki heyrt lagið. Hættusvæði eru klárlega versl- anir, veitingastaðir og leigubílar. Fer stundum með heyrnartól í slíkar aðstæður.“ Góð andleg líðan Auður Jónsdóttir rithöfundur „Sko, ég hvítagaldraði þetta og hef bara ekkert heyrt Last Christmas. Mér líður alveg hreint ágætilega, satt að segja. Ég hef reyndar forðast bari, verslunar- miðstöðvar, útvarpstækið og leigubíla, sérstaklega, til að halda mér inni í leiknum, en er ekki frá því að allt þetta hafi bara haft nokkuð uppbyggjandi áhrif á and- lega líðan mína, miðað við allt og allt.“ Leikur að eldi Guðmundur Steingrímsson rithöfundur „Ég hef náð að sneiða hjá laginu. Ég hef þó leikið mér að eldinum. Fór til dæmis í Ikea. Íhugaði að hafa á mér heyrnartól þar, en tók áhættuna. Ískaldur. Eitt síðdegið fór Alexía að versla í matinn, en ekki ég. Hefði getað verið ég. Last Christmas var í Nettó, sagði hún. Ég hefði stein- drepist.“ Hatar þessa keppni Kristlín Dís Ingilínardóttir blaðakona „Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hef ég ekki heyrt svo mikið sem eina nótu af þessu ástsæla lagi í mánuðinum, líklega í fyrsta sinn á ævinni sem desembermán- uður hefur farið svona illa með mig. Það voru sérleg vonbrigði að það skaut ekki einu sinni upp kollinum þegar ég var með stillt á jólastöðina, þá þrjá daga sem ég var með bíl í láni. Áfall. Ég hata þessa keppni. Langar bara að setja George á fóninn og gleyma þessu! Allt Hunky Dory Jón Óskar myndlistarmaður „Hér er allt Hunky Dory og ég tel mig nokkuð öruggan. Ég hlusta aðallega á Rás 1 og þar ekkert jóla- popp í gangi. Svanhildur Jakobs og KK gætu þó komið aftan að mér á morgnana.“ Ekki í áhættuhópi Kara Kristel samfélagsmiðlastjarna „Ekki heyrt lagið! Amazing,“ segir Kara Kristel og bætir aðspurð við að hún sé ekki mikið að stofna sér í hættu með jólalagaspilunar- listum og þvælingi í verslunum. „Neibb, hlusta bara a true crime podköst.“ Öll uppistandandi í Whamageddon Allar aðventuhetjur Frétta- blaðsins eru enn uppistand- andi þegar tíu dagar eru liðnir af leiknum Whamageddon, sem gengur út á að komast hjá því að heyra jólalagið margrómaða og alræmda Last Christmas með Wham! frá 1. desember til jóla. toti@frettabladid.is Keppendur um víða veröld greina frá falli sínu á Facebook-síðu leiks- ins, þar sem fólk fellur unnvörpum fyrir draugum liðinna jóla, þeim George Michael og Andrew Ridge- ley. Heimskort Whamageddon er því farið að minna skuggalega á sambærilegt Covid kort. Rauðum punktum fjölgar stöðugt og ástand- ið þykir sérlega slæmt í Danmörku sem er í rjúkandi rúst og ástandið er litlu skárra í Bandaríkjunum. Eitt- hvað hefur einnig spurst af Wham- falli á Íslandi en okkar fólk, sex- menningarnir vösku, stendur enn óbugað þótt það fari misvarlega. n George Michael og Andrew Ridgeley ætla að reynast mörgum skeinuhættir og mannfallið í Whamageddon er þegar orðið mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem rapparinn Sesar A, fagnar tuttugu árum í rappbransanum um þessar mundir. Hljómsveit hans Mæðraveldið hyggur á útgáfu- tónleika rauðrar vínilplötu í tilefni tímamótanna í næsta mánuði. odduraevar@frettabladid.is Sesar A hefur lengi verið þekkt stærð í íslensku tónlistarlífi og þá helst á rappsenunni. Hann stendur á ánægjulegum tímamótum þar sem tuttugu ár eru liðin frá því hann gaf út sína fyrstu plötu, Stormurinn á eftir logninu. „Þetta eru tímamót,“ viðurkennir rapparinn, enda var um að ræða fyrstu rappplötuna sem var alfarið á íslensku. „Þarna var sveitaballatónlistin það sem allir voru að syngja og dansa við,“ útskýrir Sesar A og segir hann tímana svo sannarlega hafa breyst. „Núna er rappið komið þangað. Dóttir félaga míns er átta ára gömul og hlustar til dæmis ekki á tónlist með gítar í. Þegar ég var að alast upp var gítar í öllu og lag ekki lag ef það var ekki gæi með gítar- sóló,“ segir rapparinn. Sesar A hefur stundum verið nefndur afi íslensks hipp hopps enda frumkvöðull senunnar og eldri bróðir Erps Eyvindarsonar, þekktasta rappara landsins. „Ég var fyrst kallaður þetta þegar ég var ekki nema tvítugur. Bent kallaði mig þetta því honum fannst ég vera svo notalegur,“ segir rapparinn hlæjandi. Mæðraveldið, hljómsveit Sesars A, safnaði fyrir útgáfu nýrrar plötu á Karolina Fund en ráðist var í gerð hennar í tilefni af tímamótunum. „Hún snargekk,“ segir hann um söfnunina. „En svo hefur orðið töf á því að fá vínilplötuna í hendurnar. Við búumst við henni í næsta mán- uði og þá verður veisla og útgáfutón- leikar.“ n Afi íslensks hipp hopps í tuttugu ár Auk Sesars A er sveitin skipuð Þórdísi Claessen á bassa og Mar- gréti G. Thor- oddsen, sem syngur og leikur á hljómborð. MYND/AÐSEND Mæðraveldið boðar til veislu í næsta mánuði samhliða út- gáfu plötunnar á tuttugu ára afmæli Sesars. MYND/AÐSEND www.hei.is CPH spítalinn í Kaupmannahöfn hefur þjónustað Íslendinga varðandi liðskiptiaðgerðir og fleira. Þeir sem þurfa að bíða eftir aðgerð í 3 mánuðir eða lengur eiga rétt á að Sjúkratryggingar Íslands greiði allan kostnaði við aðgerð og ferðalag.  Nánari upplýsingar: www.hei.is/lidskipti/ Sími 8 200 725 Liðskiptiaðgerðir í Kaupmannahöfn 78 Lífið 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.