Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 106

Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 106
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is En svo um leið og þú færð límmiða er eins og þú haldir á Bítl- unum í höndunum. „Fréttir sem tengjast skýrslunni um viðbrögð KSÍ við tilkynningum um kynferðisbrot hafa líklega fengið mesta athygli þessa vikuna,“ segir lögmaðurinn og aðgerðasinninn Eva Hauksdóttir. „Það sem mér finnst áhugaverðast við það mál er flötur sem fjölmiðlar telja sennilega lítt smellvænan, það er að héraðs­ dómari skuli fara fyrir nefndinni. Það var fyrirséð að hver sem nið­ urstaðan yrði myndi skýrslan vekja harðar deilur, annaðhvort ásakanir um gerendameðvirkni eða árás á réttarríkið. Dómari sem lendir í þeirri eldlínu mun aldrei geta dæmt kynferðisbrotamál héðan af án þess að verða sakaður um hlutdrægni. Kannski er tímabært að skipa nefnd til að rannsaka aukastarfa­ menningu dómara, því þetta er svo íslenskt að f lestir leiða ekki einu sinni hugann að því.“ Áhugaverðasta frétt vikunnar að mati Evu er hins vegar sú sem snýr að heimildanotkun Ásgeirs Jónssonar í nýrri bók um landnám Íslands. „Bergsveinn Birgisson var fyrstur til að færa rök fyrir því að rostungsveiðar hefðu gegnt stóru hlutverki við landnámið og stór­ furðulegt að geta hans ekki. Ef ásak­ anir um ritstuld eru tilhæfulausar, ætti fræðimaðurinn að geta borið þær af sér, en hann hefur engu svar­ að efnislega og er hættur að mæta á kynningar. Þetta er allt frekar vand­ ræðalegt.“ ■ Dómari með rautt spjald í kynferðisbrotamálum Eva Hauksdóttir, aktivisti og lög- maður. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELMKannski er tímabært að skipa nefnd til að rannsaka aukastarfa- menningu dómara. ■ Frétt vikunnar Eva Hauksdóttir Bræðurnir Arnar og Brynjar Þór Stefánssynir eru nýbyrj­ aðir að selja límmiða á Insta­ gram undir merkjum Klístur Reykjavík. Þeir hafa haft nóg að gera, enda segir Arnar alla elska góða límmiða. odduraevar@frettabladid.is Arnar Stefánsson elskar límmiða og segir drauminn hafa ræst þegar hann byrjaði að höndla með lím­ miða undir formerkjum Klístur Reykjavík. „Þetta hófst allt fyrir einum og hálfum mánuði. Það er ekki lengra síðan. Ég hef alltaf verið sjúkur í límmiða og er orðinn 30 ára gamall og áhuginn hefur ekki farið minnkandi,“ segir Arnar hlæjandi. „Svo bjó ég lengi í útlöndum og þar er náttúrlega til alvöru úrval af límmiðum,“ segir Arnar, sem hefur saknað þess hér á Íslandi. Meðal límmiða sem Arnar býður upp á eru Squid Game límmiðar, en örstutt er síðan sú þáttaröð sló í gegn. Puttinn á púlsinum „Þetta kallast einfaldlega að vera með puttann á púlsinum. Svona eiga límmiðar að vera og maður þarf að stökkva strax á gæs­ ina,“ segir Arnar. Hann segir Brynjar bróður sinn hafa verið aðeins vantrúaðri á eftirspurnina. „Það sem dró mig áfram var að reyna að sanna f yrir honum að þetta myndi virka. Hann var smá skeptísk­ ur en ég sagði bara: „Jú, víst maður! Ég er að segja þér það!“ segir Arnar léttur í bragði. Óvæntur kúnnahópur Hann segir viðskiptavina­ hópinn hafa komið sér á óvart. „Ég hélt svo að það myndu bara strákar kaupa þetta, en kúnnahópurinn minn er allt bara stelpur,“ segir Arnar en hann viti ekki hvers vegna límmiðarnir hafa slegið í gegn hjá kven­ þjóðinni. „Við höfum átt nokkrar samræður um þetta en erum litlu nær en mjög ánægðir auð­ vitað.“ „Þetta var lítil hug­ mynd fyrst og svo tók þetta við sér. Í dag er ég með þrettán pant­ anir á „stand by“ og get varla borðað kvöldmat því það er alltaf einhver að koma að sækja,“ segir Arnar hlæjandi, sem bindur vonir við það að geta einn daginn lifað á límmiða­ sölunni. „Maður þarf náttúrulega að eyða pening til að búa til pening,“ segir Arnar laufléttur. „Þetta er ekki full vinna eins og er, frekar hobbí, en ég er mjög skuldbundinn þessu og ég sé alveg fram á að ef ég myndi henda meiri pening í þetta þá gæti hann komið til baka hægt og rólega. Þetta borgar sig allavega! Ég er kannski ekki að fara að kaupa Lamborg­ hini bráðum en þetta er allavega skemmtilegt,“ segir Arnar sem unir vel við sitt þótt glæsilegur sportbíll sé ekki í sjón­ máli. Ótrúlegustu staðir Hann segir er f itt að útskýra ást sína og ann­ arra á límmiðum, en rekur þetta til frum­ hvatanna djúpt í heil­ anum. „Þetta er einhver „primal“ tilfinning þegar hlutirnir verða svona áþreifanlegir. Við horfum á Squid Game, hlustum á Bítlana og þá er engin snerting nema kannski DVD diskur. En svo um leið og þú færð límmiða er eins og þú haldir á Bítlunum í höndunum.“ Arnar bætir aðspurður við að lím­ miðar séu notaðir og þeim klístrað á ótrúlegustu staði. „Fólk er að klína þessu á tölvurnar, símana og þetta er víða.“ ■ Selja límmiða af ástríðu frekar en gróðavon Bræðurnir Brynjar og Arnar eru með puttann á púlsinum í límmiðasölunni sinni. Þar er allt í boði. MYND/AÐSEND Uppáhaldslímmiðinn „Ég fékk límmiða með Leon- ardo Da Vinci. Hann fór ekki í sölu, hann fór strax í einkasafnið. Ég elska listmuna- límmiða.“ Nú 183.675 kr. Nú 149.900 kr. Nú 8.792 kr. LICATA tungusófi Tungusófi í tveimur litum af Kentucy áklæði, koníaksbrúnum og steingráum og einnig í River 66 Graphite áklæði. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 265 x 165 x 82 cm. Fullt verð: 244.900 kr. Einstaklega fallegur og mjúkur baðsloppur. Sloppurinn er úr 100% Micro bómull og kemur í hvítum og gráum lit og stærðunum S, M, L, og XL 12.990 kr. KOLDING hægindastóll með skemli MISTRAL HOME rúmföt Stillanlegur hægindastóll með skemli. Svart, rautt eða grátt leður/PVC. Fullt verð: 169.900 kr. 140x200 cm. Bómullarsatín. Fást í mörgum fallegum litum og mynstrum. Fullt verð: 10.900 kr. PURE COMFORT Létt og þægileg fibersæng. 300 g. 140×200 cm. Má þvo á 60°c en það er hitastig sem rykmaurar þola ekki. 10.900 kr. NÚ 8.720 kr. DORMA EXCLUSIVE Létt og hlý dúnsæng. 600 g. 140 x 200 cm. 50% dúnn og 50% smáfiður. Áklæðið 100% bómull. 24.900 kr. NÚ 19.920 kr. Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. www.DORMA.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði 80 Lífið 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.