Strandapósturinn - 01.06.1967, Page 23
Minning
Sigvaldi Kristjánsson, kennari
F. 30. apríl 1906 — D. 22. júní 1966
Arið 1952, einn gráan haustdag, lagði ég leið mína vestur í
Alclaskóla, en þar skyldi vera minn starfsvettvangur á komandi
vetri. Vinnufélaga mína þekkti ég fæsta með nöfnum, hvað þá
heldur, að ég hefði af þeim náin kynni.
Þarna var mér vel tekið, svo hinn hrjúfi skrápur útskagabúans
mýktist að mun, ekki sízt þó, þegar ég varð þess var, að í
hópnum voru nokkrir gamlir skólafélagar, svo þess var kostur
að rifja upp hin glöðu æskukynni.
Ekki hafði ég lengi dvalizt þarna, þegar ég veitti athygli hóg-
vænim manni, sem jafnan lagði fátt til, þegar margir gerðust
málglaðir, en gat brosmildur og hugrór sett fram skoðanir sínar,
sem voru það vel hugsaðar, að flestir vildu mál hans heyra.
21