Strandapósturinn - 01.06.1979, Page 29
læknishéraðið stórt, allt til Kaldbaksvíkur og norður í Skjalda—
Bjarnarvík. Þá var búseta á hverjum bæ og sumstaðar tví- og
jafnvel þribýli, en mikill var munur er læknir var búsettur í
hreppnum.
Mér er í barnsminni þegar verið var að senda mig í „kaup-
staðinn“, sem kallað var eftir ýmsu sem vantaði. Þegar fór að
halla niður af Kleifunum og til mín barst hanagalið þegar gott
var veður, þá fannst mér undursamleg veröld blasa við, bygg-
ingarnar voru meiri en orð fá lýst í huga níu ára barns og ekki
urðu vonbrigðin þegar á áfangastað var komið, Jensen afgreiddi
mig fljótt og vel og sagði alltaf við mig „þú kemur inn Sina mín
og færð eitthvað gott“ og það brást aldrei að kaffi og meðlæti var
borið fyrir mig sem ég óspart gæddi mér á. Frúin var svo góð og
hjartahlý og gjörfileiki hennar verður mér æ minnisstæður.
Það var oft sem þau hjón ásamt fleirum fengu sér reiðtúr inn í
Reykjarfjörð á sunnudögum, þá var alltaf sólskin, þau komu við
í Kjós í annarri hvorri leiðinni. Þetta eru minningar frá mínum
unglingsárum sem skjóta upp kollinum á hljóðum stundum.
Fyrstu árin tók frúin stúlkubörn til kennslu að vetrinum, hún
var vel menntuð og vildi láta gott af sér leiða, fegurri rithönd en
hún skrifaði er vart að finna og mörgum börnum gaf hún for-
skrift að þeirra tíma sið.
En skuggi lagðist yfir heimilið. Ung að árum var þessi glæsi-
lega kona þegar heilsuleysi fór að gera vart við sig svo hún naut
ekki til hlítar sinna meðfæddu hæfileika og stórhugar. Þeim
hjónum varð ekki barna auðið en tóku kjördóttur ínu, sem að
öllu var sem þeirra eigið barn og allt gert til að búa hana sem
best undir lífið. Um fermingaraldur missti fna móður sína og var
það mikið áfall bæði fyrir hana og Jensen því það var mikill
sjónarsviptir að slíkri konu. Jensen lét þó ekki staðar numið við
að mennta dóttur sína, sendi hann hana á Kvennaskóla
Reykjavíkur og lauk hún prófi þaðan, snéri svo heim aftur og
skipaði þá húsmóðursess á heimili föður síns.
Eins og fyrr er um getið höfðu sjómenn að vestan oft húsnæði
hjá Jensen á Kúvíkum. Að þessu sinni dvaldist þar Pétur Sig-
urðsson skipstjóri frá Bolungarvík ásamt skipshöfn sinni, með
27