Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1979, Page 50

Strandapósturinn - 01.06.1979, Page 50
Hve lengi Pjetur Eggerts var verzlunarstjóri fyrir Clausens- verzluninni er mjer ekki kunnugt um, en við tók af honum Kristján Hall tengdasonur hans. Þetta sem hjer er að framan skrifað er alt eftir minni mínu og víst er um það, að ártölin þarf vel að athuga. Þá kemur sá kaflinn í sögu Borðeyrar sem jeg ætti að geta sagt eitthvað um sem að gagni gæti komið, eins og fyrr er getið kom jeg til Borðeyrar haustið 1889. Þáverandi verzlunar- stjóri var Hendrick Chv. J. Bjerring, hann hafði tekið við verzl- uninni sumarið 1882 eftir lát Kristjáns Hall. Um alllangt skeið höfðu þá verið 2 verzlanir á Borðeyri, Clausensverzlun og Brydesverzlun. Þetta sumar áður en jeg kom höfðu verzlunarhúsin verið stækkuð að því leyti að byggð var heil hæð ofaná búð og pakk- hús, svo nú var þetta orðið mjög stór og myndarleg bygging; jeg tel víst að verzlunin hafi á þessum árum verið í töluverðum uppgangi, enda var Brydesverzlunin mikið farin að dragast saman. Lánsverzlunin var á þessum árum búin að ná hámarki sínu, ef bændur þurftu að jafna einhver viðskifti sín á milli þá var það gjört með milliskrift í kaupstaðnum sömuleiðis var það með opinber gjöld svo sem þinggjöld til prests og kirkju, alt var þetta greitt með ávísun á þann kaupmann sem skipt var við. Útistandandi skuldir við hver áramót voru miklar og vörulager þurfti ávalt að vera stór vörulager þar sem sigling kom aðeins tvisvar á ári vor og haust, einkum þurfti vörulagerinn undir veturinn að vera stór, þar sem alt var undir hafísnum komið með vorskipin. Það þurfti því sterk bein til að standast þetta og nær því ótakmarkað lánstraust. En lánstraustið hjá Bryde mun hafa verið orðið takmarkað þegar hjer var komið sögunni. Heimilismenn á Borðeyri voru aldrei margir þann tíma sem jeg dvaldi þar, þeir munu aldrei hafa farið mikið yfir 40 þegar flest var. Búsettir á Borðeyri voru haustið 1889 þegar jeg kom þangað: 48
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.