Strandapósturinn - 01.06.1979, Blaðsíða 52
Árið 1890 er að mestu leyti sama fólkið nema þá er um vetur-
inn húskennari hjá Bjerring Guðm. Emil Guðmundsson. Um
Meleyrarbæjinn er það að segja að jeg man ekki hvort búið var
að byggja hann en nokkuð er það að vorið 1891 flytur Hjörtur
Jóhannesson frá Valdasteinsstöðum að Meleyri með konu og
börn.
Ur því að jeg er birjaður á að tala um fólkið er ef til vill rjettast
að halda áfram með helstu breytingarnar sem urðu á því svæði
þetta umrædda tímabil frá 1889—1902.
Árið 1891 flutti Ólafía Theódórsdóttir heim til foreldra sinna,
hafði um tíma dvalið hjá síra Ólafi bróður Theódórs. Þetta sama
ár um sumarið, flutti Vald. Bryde ásamt konu og dóttur sinni
alfarinn frá Borðeyri til Kaupmannahafnar, en Orla Bryde varð
eftir til næsta árs, honum til aðstoðar var um haustið sendur
maður frá I.P.J. Brydesverzluninni í Reykjavík, Jón Þorsteinsson
að nafni er dvaldi þar til vorsins 1892 að verzlunin var seld
verður vikið nánar að því siðar.
Á árinu 1891 þann 1. ágúst flutti H.C.J. Bjerring frá Borðeyri
alfarinn með alt skyldulið sitt, flutti til Hafnarfjarðar. Við
verzluninni tók þá hinn nýji eigandi Richard Pjetur Riis, taldist
hann þá til heimilis á Borðeyri frá þeim tíma til ársins 1896,
hafði ráðskonu til næsta vors Valdísi Gunnarsdóttir og vinnu-
konu Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Um veturinn 1892 sigldi
hann til Hafnar en kom upp um vorið þá giftur frá Claudine A.
Chr. A. Riis 22 ára að aldri, voru þau svo búsett á Borðeyri til
ársins 1896 eins og fyrr segir.
Árið 1892 flutti Theódór Ólafsson úr sínum bæ og í Brydes-
húsið, en Konráð Th. Jóhannesson trjesmiður sem þá var giftur
Emilíu Thorarensen frá Reykjarfirði þau hjón fluttu í Theó-
dórsbæjinn og birjuðu sinn búskap þar, annars mun Konráð
hafa verið talinn til heimilis á Borðeyri árið 1891. Konráð hafði
altaf trjesmíðalærlinga. Þessir voru hjá honum sem jeg man
eftir: Jóhann Þorvarðarson, Björn Benediktsson, Sigvaldi
Björnsson, Helgi Elíasson, Bogi Thoarensen, Jóhannes Egg-
ertsson, Njáll Guðmundsson en ekki voru þeir allir samtímis.
Konráð drukknaði í Hrútafirði að vetri til, en hvaða ár það var
50