Strandapósturinn - 01.06.1979, Page 76
máttu sín, en þegar verulega út af bar var þeim um of að leysa
allra vanda. Þennan mikla snjó leysti að mestu við sól og hæg-
viðri, var það til hjálpar svo að betur rættist úr en á horfðist.
Þetta vor flutti búferlum frá Kaldrananesi að Kúvíkum
Ólafur Gunnlaugsson. Hann þótti gildur bóndi og átti hraustan
og harðgerðan fjárstofn, fór orð af að hann léti fé sitt bjarga sér
eftir föngum, þó var búið arðgott á þeirra tíma mælikvarða og
sérlega ullargott (lagðprútt). Hey átti hann ávalt næg enda
gengið rösklega að heyskap. Það sýnir að skepnur hafa gengið vel
undan hörðum vetri að fært skyldi að komast með þær alla þessa
leið. Kýr voru ekki margar en hross að því skapi fleiri. Margt
manna var í heimili, Kaldrananes mun hafa verið fólksfrek jörð.
Strax á næsta vori fækkaði að einhverju vinnufólki hjá Ólafi.
Kona Ólafs var Kristín Jónatansdóttir mesta myndarkona. Hún
hafði á yngri árum verið úti í Noregi og numið þar margt er
sveitakonur almennt fóru á mis við á þeim árum svo sem alls-
konar matreiðslu aðra en þá er að búverkum laut, hafði hún áður
en hún giftist verið ráðskona við skóla, sem þá fóru fjölgandi í
sveitunum.
Þetta fólk var öllum ókunnugt og hafði sig fyrst til að byrja
með lítið í frammi að kynnast að öðru en því er sífelldar smala-
mennskur haust og vor höfðu í för með sér því fé Ólafs sótti fast
til heiða, var þá að sjálfsögðu komið við í Kjós, hvílst og þeginn
kaffisopi. Það var ekki fyrr en veturinn 1911-12 að Sigurður
Sveinsson stjúpsonur Ólafs af fyrra hjónabandi hans gerðist
umgangskennari sem kallað var, sem var í því fólgið að koma á
bæina með nokkurra vikna millibili, setja börnunum fyrir það
sem þau áttu að læra þar til hann kæmi næst, svo hlýddi hann
yfir það sem lært hafði verið og setti fyrir að nýju. Sigurður hafði
verið á Heydalsárskólanum sem var góður alþýðu- og unglinga-
skóli þeirra tíma. Hann hafði sérstaka hæfileika til að ná því
besta úr hverju barni, mátti segja að hann kæmi öllum til nokk-
urs þroska, gerði aldrei upp á milli barna, mátulega kröfuharður
og börn sem voru greind lærðu ótrúlega mikið hjá honum miðað
við aðstæður.
Þannig hófust kynni við þetta trausta og góða fólk sem
74