Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1979, Page 117

Strandapósturinn - 01.06.1979, Page 117
jafnaði hann sig fljótt og hóf undirbúning að því að svæfa sængurkonuna og taka barnið með töngum. Gísli, bóndinn á Steinstúni var við svæfinguna og stjórnaði henni eftir fyrirsögn læknis og ljósmóður, en ljósmóðirin aðstoðaði læknirinn, sem tók barnið með töngum og gekk það eftir ástæðum bæði fljótt og vel. Þá voru liðnir um það bil þrír sólarhringar frá því móðirin veiktist. Þarna fæddist strákur er vóg 18 merkur og var 59 cm á lengd, furðu sprækur og grenjaði mikið, en lækninum varð að orði, þessi verður einhverntíma duglegur fyrst hann lifði þetta af. Nokkru eftir að fæðingin var afstaðin, versnaði veðrið, skall þá á norðan stórhríð svo læknirinn varð veðurfastur á Steinstúni í 4 daga, má segja að þar skall hurð nærri hælum, því hefði veðrið skollið fyrr á, hefðu móðir og barn látið lífið og hefði það skollið á meðan Ólafur læknir og Eyjólfur voru á heiðinni, hefðu þeir að líkindum báðir orðið úti, minnstakosti Ólafur, en Eyjólfur hefði aldrei yfirgefið hann fyrr en dauðan og þá óvíst hvort Eyjólfur hefði náð til byggða. Þegar veðrið lægði fékk Gísli á Steinstúni bát frá Hólmavík til að sækja læknirinn norður á Gjögur, en þangað var farið með hann á hestum. Meðan Ólafur læknir dvaldi veðurfastur á Steinstúni, kynnt- ist heimafólk honum betur og eftir þau kynni minntist það hans með hlýhug og þakklæti. Nóttina áður en læknirinn kom að Steinstúni, dreymdi hina verðandi móður draum, sem varð henni til mikils hugarléttis í þessum miklu þrautum hennar og fer draumurinn hér á eftir. Henni þótti hún vera komin fram í eldhús og setjast þar á stól, er var í horni við eldhúsborðið, þá sá hún að logaði ljós á kerti á eldhúsborðinu, en ljósið flökti svo mikið, að við lá að það slokn- aði, það var eins og dragsúgur léki um ljósið og gekk svo þrisvar sinnum, að það var næstum því farið af kveiknum, þá finnst henni að það megi all$ ekki slökkna svo hún bar hendina fyrir til að hlífa því og bregður fingri undir kveikinn og réttir hann við, logaði þá ljósið skært og rólega. Draumurinn var ekki lengri, en hún réði hann þannig að barnið hennar myndi lifa. Þegar hún var að vakna eftir svæfinguna, fannst henni að hún þyrði ekki að 115
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.