Morgunblaðið - 19.08.2021, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
FlugPlús!
Tenerife 19.900 kr.
Þessi og fleiri frábær flug- og hóteltilboð á
www.plusferdir.is
25. ágúst
Alicante 19.000 kr.26. ágúst
37.900 kr.25. ágú. – 1. sept.
29.000 kr.26. ágú. – 2. sept.
ÖNNUR LEIÐ, BEINT FLUG
BÁÐAR LEIÐIR, BEINT FLUG
ÖNNUR LEIÐ, BEINT FLUG
BÁÐAR LEIÐIR, BEINT FLUG
ÓTAL
ÓDÝR FLUG
Í ÁGÚST
STRÖNDIN
KALLAR!
Urður Egilsdóttir
Unnur Freyja Víðisdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
telur að takmarkanir innanlands
þurfi að vera í gildi á meðan Covid-19
geisar í heiminum. Þá gerir hann ráð
fyrir að örvunarskammtar verði
gefnir reglulega eða ný bóluefni og
að koma þurfi á fót reglubundnum
skimunum.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í minnisblaði sem Þórólfur
sendi Svandísi Svavarsdóttur heil-
brigðisráðherra 11. ágúst, um fram-
tíðarfyrirkomulag sóttvarnaaðgerða
innanlands og á landamærunum.
„Sjúkdómurinn er hvergi á und-
anhaldi í heim-
inum og þó að tök
náist á faraldr-
inum á Íslandi
munum við búa
við stöðuga ógn
um að veiran ber-
ist hingað til
lands og valdi hér
útbreiddri sýk-
ingu,“ ritar Þór-
ólfur í minn-
isblaðinu. Hann telur því mikilvægt
að efla áfallaþol og getu heilbrigð-
iskerfisins en í minnisblaði sem Páll
Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans, og Már Kristjánsson, yf-
irlæknir á smitsjúkdómadeild spít-
alans, skiluðu til heilbrigðisráðherra
á mánudag er því lýst að Landspít-
alinn hafi á þessum tímapunkti lítið
sem ekkert svigrúm til þess að taka á
móti óvæntum uppákomum.
Gestir sýni fram
á neikvæð próf
Þórólfur telur að fjöldatakmörk
eigi að miðast við 200 manns og að á
stærri viðburðum skuli gestir sýna
fram á neikvætt próf sem sé ekki
eldra en 24 til 48 klukkustunda gam-
alt. Þá leggur hann til áframhaldandi
eins metra nándarreglu og grímu-
skyldu við ákveðnar aðstæður. Þá
kemur fram í minnisblaðinu að sund-
og baðstaðir ættu áfram að vera opn-
ir ásamt líkamsræktarstöðvum, en
lagt er til að veitinga- og skemmti-
staðir verði ekki opnir lengur en til
kl. 23.
Í minnisblaðinu kemur einnig
fram að reglulega muni þurfa að gefa
örvunarskammta eða bólusetja með
nýjum bóluefnum. Þá þyrfti einnig
að gera leiðbeiningar um reglu-
bundnar skimanir í fyrirtækjum og á
vinnustöðum, og að slíkar skimanir
yrðu skylda þar sem viðkvæm starf-
semi fer fram svo sem á heilbrigð-
isstofnunum og hjúkrunarheimilum.
Mikilvægast telur hann vera að
tryggja landamærin og lágmarka
flutning veirunnar til landsins. Því
leggur hann til að allir farþegar verði
áfram krafðir um neikvætt Covid-
próf bæði áður en þeir fara um borð
og við komuna til landsins. Sömuleið-
is verði allir farþegar, þar á meðal
börn, skimaðir við komuna til lands-
ins. Tvöföld skimun og sóttkví gildi
áfram fyrir þá sem ekki geta fram-
vísað gildum vottorðum.
Mistök að sleppa sóttkví
Spurður um mögulegar breyt-
ingar á tilhögun sóttkvíar, sagði Þór-
ólfur í samtali við mbl.is í gær, að
hann teldi að það yrðu „meiri háttar
mistök“ að leyfa bólusettum ein-
staklingum að sleppa við sóttkví, þar
sem um 60% þeirra sem greinst hafa
í núverandi bylgju hafi verið full-
bólusett.
Það væri því ávísun á hraðari út-
breiðslu veirunnar að sleppa sóttkví
fyrir bólusetta.
2
2
5 3
0
0
4
2
6
6
2
5
72
5
93
7 9
92
1.
0
87
1.
2
0
5
1.
2
16
1.
2
3
2 1.
2
93 1.
3
5
1 1.
4
13
1.
4
34
1.
4
47
1.
3
8
5
1.
3
8
6
1.
4
3
5
1.
3
8
3
1.
3
2
8
1.
2
8
0
1.
2
9
4
1.
2
3
2
1.
17
3
1.
16
2
1.
16
1
2 5 10 7 13 10 11
38
56
78 82
95
88
71
123 123
129
124
154
86
68
109
116
151
107
119
57
105
141
84
119
130
82
64
55
103
124
Heimild: LSH
Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær
124 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
1.055 eru í skimunar-
sóttkví
2.206 einstaklingar
eru í sóttkví
2020 2021
Einstaklingar undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH kl. 15.00 í gær
150
125
100
75
50
25
0
9.812 staðfest
smit alls
Fjöldi innanlandssmita frá 28. febrúar 2020
106 100
21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18.
Fjöldi einstaklinga undir eftirliti LSH frá 21. júlí*
*Engar tölur fyrir 24.-25. júlí240 af þeim
sem eru
undir eftirliti eru börn
65 ár er
meðalaldur
innlagðra á LSH
Væg eða engin einkenni
Aukin einkenni
Alvarlegri einkenni
12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17.
Fullbólusettir
Bólusetning hafin
Óbólusettir
Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí
eftir stöðu bólusetningar*
1.161 einstaklingar
eru undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH
48 af þeim sem
eru undir eftir-
liti flokkast sem gulir*
25 sjúklingar
liggja
inni á LSHmeð
Covid-19
20 liggja inni á
bráðalegudeildum 5 sjúklingar eru
á gjörgæslu
79 hafa alls lagst inn á
LSHmeð Covid-19
í fjórðu bylgju faraldursins
Um þriðjungur
þeirra óbólusettir
Um tveir þriðju bólusettir
5 flokkast
sem
rauðir**
Um þriðjungur þeirra óbólusettir
Þrír þeirra
fullbólusettir
Tveir óbólusettir
Fjórir
gjörgæslu-
sjúklingar
eru í
öndunarvél
Engir sjúklingar
í innlögn eru
hálfbólusettir
30. júlí 2021
154 smit
*Aukin einkenni Covid-19. **Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti.
Takmarkanir ríki meðan faraldur geisar
- Sóttvarnalæknir lagði fram minnisblað um framtíðarfyrirkomulag sóttvarnaaðgerða - Segir að
koma þurfi á fót reglubundnum skimunum - Ávísun á hraðari útbreiðslu fari bólusettir ekki í sóttkví
Þórólfur
Guðnason
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Skólastjórnendur vinna eftir fyrir-
mælum stjórnvalda og reyna að
bjóða börnum upp á óskert skóla-
starf, en persónulegar smitvarnir
verða í hávegum hafðar.
Miðað við háa smittíðni er ekki
ólíklegt að upp komi smit og stórir
hópar verði skikkaðir í sóttkví í sam-
ræmi við núgildandi reglur. Ekki
liggja fyrir viðbragðsáætlanir en
skólastjórnendur segja starfsfólk
búa að reynslu frá fyrra skólaári.
Bregðast þurfi við hverju tilfelli þeg-
ar og ef það kemur upp.
Nú þegar hafa komið upp tilfelli
þar sem smit greinast á leikskólum
með þeim afleiðingum að starfsemin
leggst af, starfsfólk og börn fara í
sóttkví. Hefur það í för með sér heil-
mikið rask fyrir öll heimilin sem eiga
í hlut og vinnustaði foreldranna.
„Ég myndi vilja breyta reglum um
sóttkví hjá einkennalausum, börnum
og skólastarfsfólki. Það verður allt
komið í lás eftir eina til tvær vikur ef
við höldum óbreyttum reglum um
sóttkví. Hjúkrunarfræðingar eiga
líka börn,“ segir Jón Pétur Zimsen,
skólastjóri Melaskóla. Skólar standa
frammi fyrir því að þurfa að vega og
meta hve mikið megi skaða skóla-
kerfið til að minnka líkur á smitum
og sóttkví.
Jóhanna María Agnarsdóttir,
skólastjóri Brekkuskóla á Akureyri,
segir að ef grípa þurfi í fjarnám verði
hægt að slá því upp á einum eða
tveimur dögum án mikillar fyrir-
hafnar.
Kennsla hefst í næstu viku
Skólastarf hefst á ný eftir helgi en
grunnskólarnir eru nú á fullu að und-
irbúa kennsluna. Grunnskólinn á
Seltjarnarnesi og Brekkuskóli eru
ekki með eiginlega skólasetningu
heldur byrja þeir á einstaklingsvið-
tölum og voru byrjaðir á því fyrir-
komulagi fyrir tíma heimsfaraldurs-
ins. Brekkuskóli ætlar sér að hafa
sín viðtöl í fjarfundaformi en á Sel-
tjarnarnesi verða þau með hefð-
bundnu sniði.
Í Melaskóla í Reykjavík og Sunnu-
hlíðarskóla á Selfossi verður þó
skólasetning en foreldrar fá ekki að
vera viðstaddir og nemendum verð-
ur skipt upp í hópa sem mæta á ólík-
um tímum. Stemmning meðal starfs-
fólks er góð og tilhlökkun að taka á
móti nemendum.
„Getum ekki gert hvort
tveggja“
Borgaryfirvöld hafa hvatt skóla til
að halda hópum litlum og takmarka
þannig raskið sem kann að fylgja ef
smit greinist meðal nemenda. Á
sama tíma er gerð krafa um að skóla-
hald verði óskert. Jón Pétur Zimsen
segir þetta andstæður. „Við getum
ekki gert hvort tveggja. Þegar við
hólfum af þá skaðar það skólastarf-
ið.“ Jón Pétur bendir á að ef við höld-
um samfélaginu gangandi muni hinn
raunverulegi veldisvöxtur birtast í
fjölda þeirra sem sæta sóttkví.
Veldisvöxtur gæti orðið
í fjölda fólks í sóttkví
- Óskert skólastarf að hefjast - Vill breyttar reglur um sóttkví
Morgunblaðið/Hari
Skólastjóri Jón Pétur Zimsen
gagnrýnir reglur um sóttkví.
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI