Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 10
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
STANDUR FYRIR SKAMMTARA
Svartur eða hvítur
DROPABAKKI
RAFKNÚINN SKAMMTARI
1200 ml silfur eða hvítur
1 x KC sótthreinsifroða
1200 ml
Inniheldur Aloe Vera
og húðmýkjandi efni
ERU
SÓTTVARNIRNAR
Á HREINU Í
FYRIRTÆKINU?
Fæst í verslunum Rekstrarlands og útibúum Olís um land allt.
Pantanir í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
KIMBERLY CLARK
TILBOÐ 1
Tilboðsverð:
19.995 kr. m/vsk.
KIMBERLY CLARK
TILBOÐ 2
Tilboðsverð:
11.780 kr. m/vsk.
SÓTTHREINSISTANDAR Í ÚRVALI,
SÓTTHREINSIFROÐA FYLGIR
KC RAFKNÚINN
SKAMMTARI
1200 ml hvítur eða silfur
4 x KC SÓTTHREINSIFROÐA
1200 ml
Inniheldur Aloe Vera
og húðmýkjandi efni
Siglufjörður | Undanfarna daga
hafa staðið yfir rif á geymum og
þar með lokun á birgðastöð Olíu-
dreifingar á Siglufirði, sem reist
var 1944, og einnig á birgðastöð
Skeljungs. Tankarnir eru norð-
austanverðri Þormóðseyrinni,
skammt vestan Öldubrjóts.
Birgðastöð Olíudreifingar á
staðnum hefur ekki verið starf-
rækt um nokkurt skeið og má
segja að lokun stöðvarinnar hafi
hafist þegar félagið gaf elsta
geymi stöðvarinnar á Síldar-
minjasafnið í bænum fyrir nokkr-
um árum, en hann hefur síðan ver-
ið notaður þar sem tónlistarsalur
og vakið verðskuldaða athygli
gesta.
Þeir geymar sem eftir eru og
hafa verið rifnir núna eru smíðaðir
árin 1937 og 1946 og því komnir til
ára sinna. Síðustu árin sem stöðin
var starfrækt var eldsneyti keyrt á
hana frá Akureyri, en ekki hefur
verið landað eldsneyti frá skipi á
stöðina í nokkur ár.
Að sögn Harðar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Olíudreifingar,
eru ekki áform um endurbyggingu
stöðvarinnar þar sem stefna und-
anfarinna ára hefur verið að fækka
birgðastöðvum eins og kostur er
vegna mikils kostnaðar við rekstur
þeirra. Bættar samgöngur gera Ol-
íudreifingu kleift að fækka birgða-
stöðvum sem aftur leiði til þjóð-
hagslegs hagræðis.
Að rifi loknum tekur við hreins-
un á þeim mengaða jarðvegi sem
kann að finnast á lóð birgðastöðv-
arinnar.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Siglufjörður Verktakar hafa unnið við það síðustu daga að rífa niður gömlu olíutankana.
Olíudreifing lætur rífa gömlu
olíutankana á Siglufirði
- Olíubirgðastöð var fyrst komið upp í bænum árið 1944
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Landspítalinn og Reykjalundur
vinna nú að verklagsreglum er varða
það hvaða sjúklingum Miðgarður,
sólarhringsdeild Reykjalundar, get-
ur tekið á móti.
Til að létta undir
með Landspítal-
anum leituðu
stjórnvöld til
Reykjalundar.
Gerð var tíma-
bundin breyting á
aðalsamningi
milli Reykjalund-
ar og Sjúkra-
trygginga Íslands
til þess að spítalinn hafi meira pláss
fyrir Covid-sjúklinga. Gildir hún til
28. febrúar 2022, með starfshléi yfir
jól og áramót.
Á Miðgarði eru tólf til fjórtán legu-
rými fyrir einstaklinga sem þurfa
hjúkrun allan sólarhringinn samhliða
endurhæfingu. Verður deildin nú
nýtt fyrir sjúklinga sem flytjast beint
frá Landspítala og fyrirsjáanlegt er
að þurfi innlögn í sólarhringsþjón-
ustu í allt að sex vikur. Nýti Land-
spítali ekki þessa heimild verða laus
rými nýtt af Reykjalundi í samráði
við spítalann.
Ekki endilega Covid-sjúklingar
Á þetta að hjálpa til við útskrift-
arvanda spítalans. Því er ekki endi-
lega um Covid-19-sjúklinga að ræða
heldur frekar aðra sem styttist í að
hægt sé að útskrifa og geta nýtt sér
endurhæfingu með einhverjum
hætti. Pétur Magnússon, forstjóri
Reykjalundar, segir að með þessu
ættu ólíkar deildir Landspítalans
vonandi að geta losað um pláss og
tekið við nýjum innlögnum.
Verið er að meta hvort fjölga þurfi
starfsfólki eða færa það en Pétur
bendir á að deildin sé til og breyt-
ingin sé aðallega sú að nú muni annar
sjúklingahópur koma inn á hana en
vanalega. Um sé að ræða fjölbreytt-
ari sjúklingahóp en Reykjalundur
tekur alla jafna á móti og kemur því
til með að útvíkka starfsemina
Miðað verður við að nýta það
starfsfólk og þann búnað sem til er á
Miðgarði og taka við sjúklingum í
samræmi við það. Þeir sem þurfa
gjörgæslu eða mikla og sérhæfða að-
stoð verða ekki í þeim hópi sem flyst
yfir á Reykjalund. Ekki heldur fólk
með færni- og heilsumat sem bíður
eftir sæti á hjúkrunarheimili. Skipuð
hefur verið sérstök innlagnanefnd til
að meta hvert tilvik fyrir sig í ljósi
verklagsreglnanna sem eru í vinnslu.
„Við vonum að þetta hjálpi, margt
smátt gerir jú eitt stórt,“ segir Pétur
og bætir við að starfsfólk Reykja-
lundar sé tilbúið að leggja sitt af
mörkum í þessu erfiða ástandi. Óum-
flýjanlega verður dregið úr hefð-
bundnum innlögnum á sólarhring-
sdeildina, meðan samningurinn er í
gildi. Innlagnir á hana undanfarið
hafa þó verið takmarkaðar meðal
annars vegna heimsfaraldursins. Að
öðru leyti ætti þetta aðeins að valda
lágmarkstruflun á annarri hefðbund-
inni starfsemi. thorab@mbl.is
Reykjalundur tímabundið
svar við útskriftarvanda
- 12-14 legurými á sólarhringsdeild - Innlagnarnefnd
Morgunblaðið/Eggert
Reykjalundur Önnur starfsemi ætti ekki að verða fyrir miklu raski.Pétur Magnússon