Morgunblaðið - 19.08.2021, Page 18

Morgunblaðið - 19.08.2021, Page 18
VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég er sveitabarn, frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð í Borgarfirði, fædd á Akranesi, næstelst fimm systkina,“ segir Ingibjörg Davíðsdóttir, sendi- herra Íslands í Ósló í Noregi, í upphafi spjalls, en eins og hér á eftir að koma kirfilega fram er Ingibjörg hugs- anlega virkasti sendiherra lýðveld- isins, samhliða ábyrgðarstörfum, þeg- ar kemur að tómstundum og íþróttum, þar sem sjósundið á hug hennar allan auk þess sem hún hleyp- ur, hjólar, leikur á píanó, sinnir prjónaskap af elju og ætlar að bæta við gönguskíðum næsta vetur. Ingibjörg er dóttir Davíðs Aðal- steinssonar og Guðrúnar Jónsdóttur, sem búa á Arnbjargarlæk, fædd á því herrans ári 1970, á dótturina Alex- öndru Mist, nema í listfræði við Há- skóla Íslands, og ætlaði sér reyndar aldrei í íslenska utanríkisþjónustu, en enginn má sköpum renna eins og margfrægt er orðið. „Ég ætlaði að verða íþróttaþjálfari eða íþróttakennari,“ rifjar sendiherr- ann upp af ljúfsárum æskuminningum þeirrar, sem lifað hefur nógu lengi til að vita, að til eru fræ, sem fengu þann dóm að falla í jörð án þess að verða endilega þau blóm, sem til var sáð í upphafi. Í heimavist frá sex ára til 20 „Ég byrjaði í heimavistarskóla, þannig var það í sveitinni í gamla daga, að börn voru send í heimavist- arskóla. Ég byrjaði sex ára gömul í heimavist í Varmalandsskóla í Borg- arfirði. Í framhaldi fór ég einn vetur í Reykholtsskóla í Borgarfirði til að ljúka grunnskólaprófinu þar sem ekki var hægt að ljúka því frá Varmalandi. Þá fór ég í Menntaskólann á Laug- arvatni þar sem líka var heimavist. Samantekið var ég í heimavist frá sex ára til tvítugs og fannst alltaf gaman,“ segir Ingibjörg og hláturinn kumrar í henni í lágum bordún, svo gripið sé til gamallar líkingar nóbelsskálds þjóð- arinnar. Hún ætlaði sér í kjölfar stúdents- prófs frá Menntaskólanum á Laug- arvatni í Íþróttakennaraskóla Íslands, sem þá hét og var einnig á Laugar- vatni, enda íþróttakona frá blautu barnsbeini, en örlögin gripu í taum- ana. „Það varð nú aldrei, ég innritaði mig í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands og þar uppgötvaði ég þennan brennandi áhuga sem ég hef á utanríkismálum og því að vinna að hagsmunum lands og þjóðar,“ segir sendiherrann, sem hélt í kjölfarið til framhaldsnáms í alþjóðasamskiptum í Canterbury á Englandi, borg sem miðaldarithöfundurinn Chaucer gerði ódauðlega í Kantaraborgarsögum sín- um. „Það var mjög góður tími. Ég gerði nú ekki mikið annað en að læra, lærði allan sólarhringinn þennan tíma sem ég var þar, en skólinn er góður og þarna hafa fleiri Íslendingar numið, ég er afskaplega ánægð með dvölina þarna, þetta er ægilega fallegur mið- aldabær og útskriftin var í dómkirkj- unni. Skólinn stendur uppi á hæð það- an sem horft er niður á byggðina og þarna er óskaplega gott að vera,“ rifj- ar Ingibjörg upp. Sendiherrann hefur marga fjöruna sopið, og kannski bókstaflega, þar sem eitt fjölmargra áhugamála Ingibjarg- ar er sjósund, sem hún stundar árið um kring, nú við norskar strendur þar sem sær er ekki beint hlýjastur í heimi. Kolféll fyrir sjósundi „Ég segi stundum að sjósund sé mitt jóga, sem kannski er hæpin full- yrðing þar sem ég hef ekki stundað jóga,“ játar sendiherrann glettinn. „Vinkona mín, Unnur Hansdóttir, sem vann með mér í forsætisráðuneytinu á sínum tíma, kynnti mig fyrir sjósundi á 45 ára afmælisdaginn minn árið 2015, um hávetur. Ég hélt þá að þetta yrði eitt skipti, en ég kolféll fyrir þessu sporti og hef stundað það síðan,“ segir Ingibjörg. „Sjósundi fylgir andleg og líkamleg vellíðan, sem ég á erfitt með að útskýra, en gefur mér einnig mik- inn kraft. Mér finnst sjórinn bestur þegar hann er sem kaldastur, þá er áskorunin mest, hvort tveggja and- lega og líkamlega. Maður þarf að hugsa mikið um öndunina, hlusta á lík- amann og að skynja kraftinn í sjónum er magnað,“ segir þessi íslenska val- kyrja af iðkun sinni. Spjótkast aðalgreinin „Ég er alveg klár á því, að þeir sem stunda sjósund eru hressari og skemmtilegri en gengur og gerist,“ bætir Ingibjörg við og er ekki ör- grannt um að sannleikskorn leynist, þar sem sendiherrann borgfirski er hvort tveggja viðræðugóður og stór- skemmtilegur. Auk þess að synda í Atlantshafinu er Ingibjörg hlaupagarpur, hjólar mikið, prjónar, nam píanóleik sem ung kona og tekur aðeins í gítar. „Ég er stríðin og hef alltaf verið svolítill ærslabelgur held ég, alveg frá því ég var barn, æfði til dæmis frjálsíþróttir og var mín aðalgrein spjótkast, ásamt því að vera í fótbolta, sundi og borð- tennis og fleiru, en ég hef aldrei verið í fimleikum, það er held ég of fíngert sport fyrir mig,“ segir sendiherrann og hlær. „Ég get eiginlega ekki svarað þér almennilega um hvernig gítarglamrið í mér kom til. Ég lærði á píanó sem barn og unglingur, einhver sjö eða átta ár held ég, en mig langaði líka að læra á gítar svo ég keypti mér gítar og nótnabók fyrir nokkrum árum og fór að pikka upp lög sjálf, mest sönglög, mér finnst þetta skemmtileg áskorun, en ég spila ekki beint fyrir framan fólk, þetta er mest fyrir sjálfa mig. Svo spila ég líka töluvert á píanó, ég á flyg- il heima í Garðabæ og svo er hljóðfæri hérna í sendiherrabústaðnum svo ég held mér þokkalega við,“ segir Ingi- björg. Prjónaskapinn segist hún einkum hafa frá móður sinni, sem setjist aldrei niður án þess að prjóna. „Ég byrjaði á þessu fyrir nokkrum árum og prjóna nú bara mest á sjálfa mig og dóttur mína.“ Ingibjörg hefur því augljóslega margt á prjónunum og eitt af því er að vera fulltrúi fósturjarðarinnar í Nor- egi og þangað víkur talinu því nú. „Ég hóf störf sem sendiráðsritari í utanríkisráðuneytinu á Íslandi 1999, sem er diplómatísk staða með flutn- ingsskyldu, sem táknar að maður er fluttur milli staða með nokkurra ára millibili. Maður er kannski X ár í Nor- egi, á Íslandi og einhvers staðar ann- ars staðar, yfirleitt fjögur til fimm ár á hverjum stað, en frá því eru frávik, fólk getur verið skemur og það getur verið lengur,“ útskýrir Ingibjörg. Á ferli sínum hefur hún fengist við flesta flokka utanríkismála þótt rík- astan þátt skipi þar alþjóðastofnanir, mannréttindi og mannúðar-, friðar-, öryggis- og afvopnunarmál. „Og reyndar einnig viðskiptamál, en ég hef kannski minnst verið í þró- unarmálum. Árið 2010 var ég flutt til Vínarborgar sem staðgengill sendi- herra, sem þá var sendiráð og fasta- nefnd með sjö önnur umdæmislönd. Og þar eru líka stofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna ásamt Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Það var gríðarlega fín reynsla, ég var næst flutt frá Vínarborg til sendiráðs Ís- lands í London 2014 sem staðgengill sendiherra, sem var í raun fyrsta skiptið sem ég var í hefðbundnu tví- hliða sendiráði,“ segir sendiherrann af ævintýralegum starfsferli. Þarna urðu þó nokkur straumhvörf í atvinnulífi Ingibjargar. Ráðgjafi í utanríkismálum „Þegar ég var í London bauðst mér að taka við stöðu í forsætis- ráðuneytinu á Íslandi þannig að ég flyt þangað árið 2015 og tek við stöðu ráðgjafa forsætisráðherra í utanrík- ismálum og sinnti því starfi til ársins 2018. Þar er ég fyrst hjá Sigmundi Davíð, svo hjá Sigurði Inga, Bjarna Benediktssyni og Katrínu Jak- obsdóttur, ég var reyndar styst hjá Katrínu þar sem ég var kölluð til starfa aftur í utanríkisráðuneytinu og var svo flutt í stöðu sendiherra Íslands í Ósló,“ segir Ingibjörg. „Tíminn í forsætisráðuneytinu var frábær reynsla, gríðarlega mikil vinna og mikið álag, en gefandi og skemmti- legt.“ – Hver skyldi þá hafa verið aðdrag- andinn að flutningnum til Óslóar? „Ég var skipuð sendiherra 1. janúar 2016 þegar ég var við störf í forsæt- isráðuneytinu. Það er nú þannig að þegar maður ræður sig til starfa í ut- anríkisráðuneytinu undirgengst mað- ur svokallaða flutningsskyldu, ég nátt- úrulega hef búið í ferðatösku frá sex ára aldri í heimavist þannig að ferða- töskulíf er lítið mál fyrir mig. Flutn- ingsskyldan felur í sér að þú ert flutt- ur á milli starfsstöðva utanríkisþjónustunnar með nokkurra ára millibili og það var kominn tími á flutning á mér og ég var beðin um að taka við Ósló. Sá sem ég tók við af hér í Ósló, Her- mann Ingólfsson, var frá sama tíma fluttur til Brussel og gegnir stöðu fastafulltrúa Íslands hjá Atlantshafs- bandalaginu. Ég flutti í lok júlí 2019, en afhenti Noregskonungi trún- aðarbréfið mitt 29. ágúst og þegar maður hefur afhent þjóðhöfðingja trúnaðarbréf er maður fullkomlega kominn til starfa í hlutverk sendi- herra. Þar til trúnaðarbréfið er afhent eru vissir hlutir sem maður má ekki gera í landinu,“ segir sendiherrann. Ekki greint frá í smáatriðum Um þetta ferli er ekki mikið rætt, hvernig skyldi afhending trún- aðarbréfs fara fram? „Maður mætir bara í sínu fínasta pússi með trún- aðarbréf sitt undirritað af forseta Ís- lands og afturköllunarbréf fyrir for- verann, ég sumsé afhenti konungi afturköllunarbréf fyrrnefnds Her- manns. Þessi tvö bréf afhenti ég kon- ungi í hans höll hér í Ósló,“ segir Ingi- björg. „Oft afhenda nokkrir sendiherrar á sama degi. Ég afhenti til dæmis með sendiherrum Kína, Mexíkó og Búlg- aríu. Konungshirðin sækir sendiherr- ann og ekur í höllina þar sem maður „Ég hef alltaf verið ærslabelgur“ - Sendiherra Íslands í Ósló er sveitabarn úr Borgarfirði - Fyrrverandi spjótkastari sem stundar sjósund, gítarleik, hlaup og prjónaskap - Ekki alltaf í kokteilboðum - Keyrði um þverbak í Covid Ljósmynd/NTB/Scanpix fyrir norsku konungshöllina Í konungsríkinu Ingibjörg Davíðsdóttir, sendiherra Íslands í Noregi, afhendir konungi trúnaðarbréf sitt í ágúst 2019. Við sama tækifæri funda sendiherrar með konungi, en efni þeirra funda er almennt ekki rætt opinberlega. 18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Meðgöngubelti Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Tímapantanir í síma 565 2885. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.