Morgunblaðið - 19.08.2021, Page 19
ritar í gestabók, er raðað upp í rétta
afhendingarröð, gengur inn til kon-
ungs þegar tíminn er kominn, afhend-
ir trúnaðarbréfið og sest svo niður á
einkafundi með konungi í svona tutt-
ugu mínútur, þar sem rædd eru ýmis
mál sem sjaldnast er greint frá í smá-
atriðum,“ segir sendiherrann leyndar-
dómsfullur.
„Ég get samt sagt þér að við Har-
aldur konungur ræddum vinsamleg
tengsl landanna, sameiginlega menn-
ingu og rætur og þennan mikla vin-
skap þjóðanna. Eigi maður að bera
kveðjur gerir maður það. Ég færði
kveðju frá forseta Íslands til konungs
og reyndar einnig frá tveimur fyrrver-
andi forsetum Íslands, en þetta eru
yfirleitt ekki samtöl, sem maður
greinir frá í smáatriðum,“ segir Ingi-
björg og blaðamaður skynjar góðlát-
legt högg á handarbakið. Utan-
ríkisþjónustan er og verður sveipuð
vissri þoku.
Meginhlutverkið
hagsmunagæsla
Senn líður að lokum viðtals, enda
engin hemja að halda uppteknum
sendiherrum íslenska lýðveldisins á
snakki allan daginn. Um hvað skyldu
helstu verkefni íslenska sendiráðsins í
Ósló snúast?
„Já, það er reyndar góð spurning á
þessum tímum,“ játar sendiherrann.
„Meginhlutverkið er að sinna hags-
munagæslu Íslands og Íslendinga í
Noregi og öðrum umdæmislöndum
sendiráðsins, og í raun að framkvæma
stefnu íslenskra stjórnvalda hverju
sinni,“ segir Ingibjörg. „Almennt tök-
um við á móti fjölda Íslendinga í
hverri viku, afgreiðum umsóknir um
vegabréf, svörum fjölda fyrirspurna,
staðfestum skjöl og fleira.“
Þessar lýsingar koma illa heim og
saman við þá mynd sem margur hefur
af utanríkisþjónustunni. Eruð þið sem
sagt ekki bara alltaf í kokteilboðum?
Sendiherrann hlær dátt. „Nei, ég er
ekki alltaf í kokteilboðum, en ég skal
segja þér annað, margir halda að á
tímum Covid hafi öll starfsemi dottið
niður. Ég tók við sendiherrastöðunni í
Ósló sjö mánuðum áður en kórónu-
veirufaraldurinn skall á. Í venjulegu
árferði er borgaraþjónustuhlutverk
sendiráðsins auðvitað ofboðslega viða-
mikið. Þar keyrði um þverbak á tíma-
bili vegna útbreiðslu Covid,“ segir
Ingibjörg frá.
Lætur vel af dvölinni
Varla er þá hægt annað en að
spyrja hvernig sendiherranum sjálf-
um líði í Noregi. „Rosalega illa,“ svar-
ar hún og hlær hrossahlátri. „Nei, mér
hefur bara liðið vel. Það er gott að
vera Íslendingur í Noregi. Ég finn alls
staðar vinarþel og hlýju í garð Íslands
og Íslendinga. Ég hef aðlagast mjög
vel og hef átt alveg frábæran tíma
hérna. Það eina sem ég hef saknað,
fyrir utan að geta lítið séð fólkið mitt á
Íslandi vegna veirunnar, er hve lítið ég
hef getað ferðast um þetta fallega land
sem Noregur er, en þetta stendur allt
til bóta,“ segir ærslabelgurinn, sjó-
sundgarpurinn, spjótkastarinn, píanó-
leikarinn, prjónakonan og sendiherra
Íslands í Noregi, Ingibjörg Davíðs-
dóttir, í lok hressandi samtals. Hvort
það sé jafn hressandi og sjósund skal
reyndar ósagt látið, en hver og einn
verður líklega bara að finna það út á
eigin forsendum.
Lengri útgáfa af viðtalinu
verður birt á mbl.is.
mbl.is
Fjallganga Útivistargarpurinn Ingibjörg í ægifögru umhverfi í göngu á Snæfellsnesi.Heimsókn Erna Solberg forsætisráðherra og norrænir sendiherrar í sendiherrabústaðnum.
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
Það á ekki að koma neinum á óvart að fólk
eldist, börn fæðast og fólk verður veikt bæði á
líkama og sál. Sterkt, opinbert og gjaldfrjálst
heilbrigðiskerfi er öflugasta tækið til að
tryggja heilbrigði og öryggi fyrir okkur öll,
óháð félagslegri stöðu eða búsetu. Heilbrigði
okkar á að byggja á félagslegum forsendum en
ekki markaðsvæðingu sjúkdóma.
Ekkert stjórnmálaafl
getur skilað auðu ·
heilbrigðismál eru
kosningamál!
Heilbrigðisþjónusta · Öryggi fyrir alla
Það er nóg til