Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
aðeins sjö farþegar til viðbótar við
áhöfnina sem kom á vélinni til lands-
ins. Er ljóst að þar fór mikil flutn-
ingsgeta til spillis enda ætti A400M-
vélin að geta flutt hundruð ein-
staklinga milli staða ef ýtrustu leiða
er leitað. Gáfu stjórnvöld þær skýr-
ingar að óstöðugleiki á flugvellinum
hefði verið slíkur að ekki hefði tekist
að koma fleiri farþegum um borð. Í
raun hefði áhöfn vélarinnar þurft frá
að hverfa vegna ringulreiðar á svæð-
inu.
Stórveldið lætur til sín taka
Þótt fyrsti leiðangur þýska flug-
hersins inn til Afganistan hafi ekki
skilað þeim árangri sem ætlast var
til, hafa hermálayfirvöld í nokkrum
ríkjum reynt að koma á loftbrú út úr
landinu. Þannig birtist áhrifamikil
mynd innan úr flutningavél banda-
ríska flughersins, C-17, þar sem 640
manns sitja á gólfi vélarinnar sem
býr sig undir flugtak í Kabúl. Var
ekki ætlunin að flytja svo marga með
vélinni en örvæningarfullt fólk á al-
þjóðaflugvellinum braut sér leið um
borð meðan skrokkur vélarinnar tók
við. Í stað þess að reka fólkið frá
borði tók áhöfn vélarinnar ákvörðun
um að flytja það allt í öruggari heim-
kynni.
Er talið að þarna hafi flugstjórinn
farið nærri því að slá fyrra met yfir
flesta farþega um borð í einni og
sömu C-17-flutningavélinni. Árið
2013 er talið að 670 manns hafi verið
fluttir með sams konar vél þegar
neyðarflutningar fóru fram í kjölfar
þess að gríðaröflugur fellibyllur
gekk yfir Filippseyjar.
Rifjar upp magnað afrek
Náðust einnig myndir af því mikla
björgunarafreki sem vöktu mikla
eftirtekt. Þá, líkt og nú, rifjuðust upp
fyrir mörgum við þessar myndbirt-
ingar magnaðir dagar í maímánuði
1991 þegar ótrúlegir atburðir áttu
sér stað í Afríkuríkinu Eþíópíu.
Á tæplega tveggja sólarhringa
tímabili, 24. og 25. maí, fluttu ísr-
aelsk stjórnvöld með fulltingi Banda-
ríkjanna tæplega 15 þúsund eþíóp-
íska gyðinga frá heimalandinu og til
Ísraels. Var það gert í kjölfar þess að
óöld hafði magnast í landinu, allt frá
því að kommúnistar steyptu keisara
landsins árið 1975 og innleiddu trú-
ar- og gyðingfjandsamlega stefnu í
ríkinu. Eftir því sem fleiri gyðingar
flúðu land sáu hin nýju stjórnvöld
sér leik á borði og meinuðu þeim út-
göngu nema stjórnvöld í Ísrael
greiddu fyrir henni með fjármunum
eða vopnum.
Í aðdraganda atburðanna í maí
1991 tókst samkomulag milli Ísr-
aelsríkis og þáverandi stjórnarherra
í Eþíópíu um að heimila hinum fyrr-
nefndu að flytja þá 18 þúsund gyð-
inga sem eftir voru í landinu á brott.
En tímaramminn sem þeim var gef-
inn gerði verkefnið nærri óleys-
anlegt.
Söfnuðu Ísraelar saman 35 flutn-
ingaþotum, m.a. af gerðinni C-130,
Boeing 707 og 747 sem allar settu
stefnuna á Addis Ababa, höfuðborg
Eþíópu. Lá mikið á að koma sem
flestum farþegum í hverja vél.
Ljóst er að flugöryggissérfræð-
ingar Samgöngustofu hefðu ekki
heimilað einni þessara véla að taka á
loft að nýju þegar stefnan var tekin
á Ísrael.
1.086 farþegar — tveir bættust
við á miðju flugi
Ríkisflugfélagið El Al lagði sitt af
mörkum og í flotanum sem tók þátt í
aðgerðinni var Boeing 747-258C-vél
frá því sem enn í dag heldur í heims-
met sem seint verður slegið. Um
borð, á báðar hæðar vélarinnar, voru
fluttir 1.086 Eþíópar sem biðu þess
að komast til fyrirheitna landsins.
Aldrei, fyrr né síðar, hefur flugvél
flutt jafn marga einstaklinga í einu
flugi — og þó.
Á meðan vélin var á flugi, ein-
hvers staðar milli Addis Ababa og
Tel Aviv, fæddu tvær konur um
borð. Vélin sem tekið hafði á loft
með 1.086 farþega, lenti með þann
ótrúlega fjölda og tveimur betur.
Lýsingar sjónarvotta af því þegar
landgangar voru tengdir við vélina
að flugi loknu eru magnaðir. Var
engu líkara en flóð af fólki bærist út
úr vélinni.
Ljósmynd/Varnarmálaráðuneyti Ísraels
Addis Ababa Gríðarlegur fjöldi fólks var fluttur frá Eþíópíu tvo daga í maímánuði 1991.
Ljósmynd/AFP
Mannfjöldi Bandarísk herflutningavél, pökkuð af óbreyttum borgurum frá Afganistan.
Fólksflutningar í skugga ógnar
- Tugir þúsunda Afgana óska þess eins að komast frá heimalandi sínu sem er í höndum talíbana
- Örðuglega gengur að skipuleggja fólksflutningana - Staðan er ekki einsdæmi í síðari tíma sögu
Ljósmynd/theavgeeks.com
Met Engin vél, fyrr né síðar, hefur flutt jafn marga farþega í einu flugi og
Boeing 747-258C-þota El Al gerði 24. maí 1991. Enginn farþegi var bundinn.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
GÓLFMOTTUR
LION, LEOPARD,
RAINBOW, KOALA
14.990,-
Gyðingasamfélagið í Eþíópíu er
eitt hið elsta í heimi og teygir
sögu sína allt aftur til fjórðu aldar
eftir Krist. Í gegnum söguna hefur
tilvist fólksins oft verið ógnað en
staðan sem kom upp á níunda ára-
tug og í upphafi þess tíunda á ný-
liðinni öld olli því að ákveðið var
að koma því í öruggt skjól í Ísrael.
Fólksflutningar gyðinga frá öðr-
um ríkjum til Ísraels eru alla jafna
kenndir við hebreska hugtakið
„Aliyah“ sem dregið er af sögninni
sem merkir að ganga upp og í hin-
um fornu textum vísar það lang-
oftast til þess að „ganga upp til
Jerúsalem“. Í trúartextum gyð-
inga, sem mótast að mörgu leyti af
herleiðingu þeirra frá heimkynnum
þeirra fyrir botni Miðjarðarhafs,
heita þeir því að gleyma aldrei Ísr-
ael og borginni helgu, Jerúsalem.
Þá hefur páskahátíðin, sem teng-
ist í grunninn brottförinni frá
Egyptalandi, gjarnan tengst von-
inni um „næsta ár í Ísrael“. Í þess-
ari fullvissu voru vélarnar 35 send-
ar til Addis Ababa 1991.
„Næsta ár í Ísrael“
ENDURKOMAN TIL FYRIRHEITNA LANDSINS
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Á mánudagskvöldið síðasta kom
gríðarlega öflug A400M-flutn-
ingaþota þýska hersins inn til lend-
ingar á Hamid Karzai-alþjóða-
flugvellinum í Kabúl. Var það fyrsta
vélin á vegum Þjóðverja til að lenda í
landinu frá því talíbanar náðu völd-
um þar. Verkefni leiðangursins var
að koma sem flestum Þjóðverjum frá
Afganistan, en staðan í landinu er
allt annað en örugg. Hefur Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, lýst
því yfir að ríkið standi frammi fyrir
því að flytja allt að 10.000 Þjóðverja
og bandamenn þeirra frá Afganistan
á komandi dögum og vikum.
Vélin staldraði ekki lengi við og
innan tíðar þandi hún alla Ratier-
figeac-hreyfla sína til fulls og hóf sig
til lofts á ný og tók stefnuna út úr
lofthelgi Afganistans. Skömmu síðar
urðu hermálayfirvöld í Þýskalandi að
viðurkenna að um borð í vélinni voru