Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 34

Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 34
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Vinsælt Ansi margir sjóða sultu til vetrarins þegar fer að hausta. Rabarbarasultan hennar mömmu 1 kg af niðurskornum rabarbara 800 g sykur 1. Sett saman í pott og suðan látin koma upp, þá er lækkað vel í hitanum og sult- an soðin saman í 3-4 klst á vægum hita. 2. Mikilvægt er að hræra reglulega í sultunni og með því að sjóða hana þetta lengi verður hún þykk og dökk. 3. Þessi uppskrift myndi gefa í kringum þrjár krukkur af sultu en mamma er vön að gera úr 5 kg af rabarbara í um 15 krukkur svo þið getið leikið ykkur með magnið eftir þörfum. 4. Látið sultuna kólna aðeins í pottinum áður en hún er færð yfir á krukkur og síðan er mikilvægt að loka ekki krukkunum fyrr en hún er orðin alveg köld. Rabarbarasultan hennar mömmu Það er matarbloggarinn Berglind Hreiðarsdóttir sem á heiðurinn af þessari sultu en uppskriftin er komin frá mömmu hennar sem hefur sultað frá því elstu menn muna eftir sér. Uppskriftin er sígild og góð og ætti ekki að vefjast fyrir neinum. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Blautfóður. Fullt af blautfóðri. Fyrir hunda og ketti. Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði Myntupestó 3 msk. furuhnetur, ristaðar 1 hnefafylli myntulauf ½ hnefafylli steinselja 60-80 ml ólífuolía ½ sítróna, safi nýkreistur ½-1 tsk. sítrónubörkur, rifinn fínt 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt 1 skalottlaukur, saxaður ½ tsk. hunang u.þ.b. ½ tsk. sjávarsalt Grillað lambalæri 2 kg lambalæri, úrbeinað hnefafylli steinselja ½ hnefafylli myntulauf 1 rauðlaukur, skorinn smátt 3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt 1 ½ tsk. allrahanda krydd 1 tsk. kóríanderfræ, möluð 1 tsk. sumac-krydd ½ tsk. kanill 1 sítróna, safi nýkreistur 60 ml ólífuolía u.þ.b. 2 tsk. sjávarsalt Myntupestó 1. Setjið allt hráefni í matvinnslu- vél og maukið þar til allt hefur samlagast vel. Setjið yfir í skál og bragðbætið með salti, kælið þar til fyrir notkun. Grillað lambalæri 1. Setjið steinselju, myntu, lauk, hvítlauk, þurrkrydd, sítrónusafa og ólífuolíu í matvinnsluvél og maukið þar til myndast hefur slétt mauk. 2. Setjið lambalærið á bretti, legg- ið plastfilmu yfir kjötið og notið sléttu hliðina á kjöthamri til að slá á kjötið þar til þykkasti hlutinn hefur þynnst örlítið, þannig að það eldist jafnt. 3. Þerrið kjötið og sáldrið salti yf- ir báðar hliðar. Setjið lambalærið í stóran renniláspoka og hellið kryddleginum yfir, lokið pokanum og leggið í fat. Kælið í 2 klst. eða allt upp í sólarhring. Takið kjötið úr kæli og látið standa við stofu- hita í a.m.k. 30 mín. fyrir eldun. 4. Hitið grill og hafið á háum hita. Grillið í 2-3 mín. á hvorri hlið eða þar til kjötið hefur fengið á sig góðan lit. Lækkið undir grillinu og eldið kjötið í 15-20 mín eða þar til kjarnhitinn er í kringum 51°-54°C. 5. Takið af hitanum, leggið kjötið á bretti og látið álpappír yfir. Lát- ið hvíla í a.m.k. 10 mín. áður en það er skorið. Skerið kjötið í sneiðar og berið fram með myntu- pestói ásamt aukameðlæti að eigin vali. Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt Grillað lambalæri frá Miðjarð- arhafinu með myntupestói Hér erum við með uppskrift að lambakjöti fyrir lengra komna. Bragðtegundirnar sem hér mætast eru algjörlega einstakar og þessi veisla ætti ekki að svíkja neinn. Sælgæti Íslenskt lambakjöt er einstaklega bragðmikið og vandað kjöt. Atvinna Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.