Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri ✝ Sigrún Jóns- dóttir fæddist í Reykjavík 8. des- ember 1925. Hún lést 28. júlí 2021. Faðir hennar var Jón Kristján Guð- mundur Kristjáns- son sjómaður, fæddur 7. júní 1893, í Bakkabúð, Staðastaðarsókn á Snæfellsnesi, hann fórst með M.s Goðafossi 10. nóv- ember 1944. Móðir hennar var Sólveig Jónsdóttir verkakona, fædd 21. febrúar 1898 í Langhúsum, Við- víkursveit í Skagafirði, hún lést 31. maí 1981. Systkini Rúnu voru Stella, fædd 22. september 1923, látin 16. september 1995, látinn, Sólveig, f. 1956, Sigríður, f. 1957, Kristján Rúnar, f. 1958, Stella, f. 1961, og Ragnar Frank, f. 1962. Rúna vann ýmis störf um æv- ina og þá fyrst og fremst við handverk sem hún sinnti að heiman. Hún saumaði lampa- skerma fyrir verslanir, saumaði sængurfatnað fyrir Rauða kross hótelið og hannyrðir af ýmsum toga fyrir einstaklinga. Mörg sumur vann hún á sumardval- arheimilum Rauða krossins og síðustu starfsárin sín vann hún hjá ÖBÍ í Múlabæ. Rúna fótbrotnaði 2005 og varð ófær eftir það um að búa sjálfstætt. Í kjölfarið flutti hún á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði og bjó þar síðustu sextán ár ævi sinnar. Rúna óskaði þess að útför sín færi fram í kyrrþey frá Hafn- arfjarðarkirkju og var hún gerð 11. ágúst 2021. Kristján Hans, fæddur 27. apríl 1927, látinn 18. október 2007, og Ulla, fædd 28. maí 1928, látin 26. jan- úar 1996. Sigrún eða Rúna eins og hún var kölluð gekk í Barnaskóla Austur- bæjar. Hún fékk lömunarveikina ung að árum og mótaði það líf hennar á ýmsan máta. Rúna bjó með móður sinni fram að andláti hennar, lengst af í Reykjavík. Hún flutti til Hafnarfjaðar í kringum 1990 til að vera nær bróður sínum og fjölskyldu hans. Bræðrabörn hennar eru; Jón Konráð, f. 1954, Rúna frænka er látin 95 ára að aldri. Enginn bjóst við því að hún lifði foreldra sína og öll systkini sín. Hún var lömuð eftir að hafa fengið lömunarveikina um tveggja ára aldur og var ekki spáð langlífi. En hún varð kerlinga og karla elst í báðum ættum mínum samkvæmt Íslendingabók. Síðustu ár Rúnu flettum við reglulega upp í töl- fræðinni í Íslendingabók til að fylgjast með og töldum niður dag- ana þar til hún náði því að verða allra elst. Tilefni var því til að fagna þeg- ar hún náði 95 ára aldri. Veislan varð óhefðbundin vegna heimsfar- aldursins. Haldin var rafræn veisla og upplifði Rúna undur tækninnar í óvenjulegri afmælis- veislu sinni og gapti af undrun þegar gestir staddir víðs vegar um landið og erlendis birtust á skján- um. Rúna rifjaði oft upp bernsku sína í Skuggahverfinu í Reykja- vík. Þar sem hún stelpuskottan lömuð á fótum skreið á eftir bróð- ur sínum niður að sjó frá Lind- argötunni. Við það fékk hún ljót sár sem gróf í ef þau voru ekki þrifin og iðulega var notuð græn- sápa til þess og hafði Rúna trölla- trú á þeirri sápu. Afi, pabbi Rúnu, var kyndari á M.s. Goðafossi. Hann fórst með Goðafossi í heimsstyrjöldinni síð- ari 10. nóvember 1944. Það var mikið áfall fyrir fjölskylduna sem og atburðurinn fyrir íslensku þjóðina alla. Rúna rifjaði oft upp daginn sem þau systkinin væntu föður síns frá Bandaríkjunum. Pabbi, Kristján bróðir hennar, beið komu pabba síns á bryggj- unni í Reykjavík, biðin varð löng, og síðar bárust fréttir til Reykja- víkur um að þýskur kafbátur hefði skotið Goðafoss niður, rétt undan strönd landsins. Jón, faðir þeirra, var einn af 44 sem fórust. Rúna bjó lengst af með ömmu í miðbæ Reykjavíkur. Á sunnudög- um var það fastur liður að pabbi fór með barnaskarann sinn til Reykjavíkur til að heimsækja þær mæðgur og að bjóða Rúnu í sunnudagsbíltúr. Það var fastur liður að aka niður Laugaveginn, kíkja á Austurvöll, á kæjann og enda á því að kaupa ís áður en haldið var aftur til Hafnarfjarðar þar sem mamma beið með nýbak- að bakkelsi. Við systkinin sex vorum einu börnin í fjölskyldunni en þær syst- ur, Stella og Rúna, eignuðust hvorug börn. Rúna var afar þakk- lát fyrir okkur systkinin og prísaði sig sæla að eiga okkur að. Margoft ræddi hún um hve fjölskyldunni hefði vegnað vel. Undir það síð- asta dásamaði hún hvað við hefð- um hjálpað henni mikið í gegnum tíðina og verið henni góð. En Rúna hjálpaði okkur einnig á ýms- an máta og ekki hvað síst með að gæta barna okkar systranna til skemmri tíma og dáðumst við að því hvernig hún, eins fötluð og hún var, gat komið börnunum út í barnavagn. Rúna frænka hafði ákveðið sjálf hvernig hún vildi útför sína og fært til bókar fyrir þremur árum. Mér er það afar minnisstætt þeg- ar ég fór yfir allar spurningarnar með henni og Sollu systur. Sollu þótti nóg um og vildi að við hætt- um þessu, sagði nóg komið að tala svona ýtarlega um jarðarför og komst við. Rúna hringdi síðar í mig og ræddi hve Solla hefði átt erfitt með þetta og hlógum við að því. Hún kvaddi södd lífdaga og hvíldinni fegin. Samúðarkveðjur, Sigríður Kristjánsdóttir Elsku Rúna frænka, þegar við töluðum um þig þá sögðum við alltaf Rúna frænka þó að við þekktum enga aðra Rúnu en þú varst alltaf Rúna frænka. Mínar fyrstu minningar eru frá Laug- arási þar sem þú vannst á sauma- stofunni og ég var um fjögurra ára og þú fertug. Ég hékk oft fyr- ir utan gluggann á saumastof- unni í von um að þú myndir sjá aumur á mér og taka mig inn til þín, sem þú gerðir oft með því að draga mig inn og þú huggaðir mig, straukst mér um vangann og veittir mér umhyggju og ást. Stundum gafst þú mér súkku- laðimola með því skilyrði að ég kjaftaði ekki frá, en ég stóðst ekki mátið og sagði krökkunum frá að ég hefði fengið nammi. Þú þurftir þá að svara fyrir þig að vera að dekra svona við frænku þína. Ég man líka eftir að hafa feng- ið að sofa inni í herberginu hjá þér í Laugarási, þá hafðir þú frétt af því að ég var óróleg í svefnskálanum mínum og þú bauðst til að taka mig að þér. Rifjast upp ótal stundir þar sem við spiluðum Manna saman og þú fórst með ýmsar orðagátur fyrir mig og marga lagatexta sem við sungum saman. Mér fannst gott að koma til ykkar ömmu á Leifsgötuna til að gista þar, ég tók strætó til ykkar sem var mik- ið sport. Þið dekruðuð við mig m.a. með nógu af smjöri á ýsuna og rjóma á hafragrautinn. Ég fór í sendiferðir fyrir ykkur í mjólk- urbúð, fiskbúð og í kjörbúðina á horninu, allt staðsett á Leifsgöt- unni. Þegar ég eignaðist börnin mín voru bíltúrarnir með þér endur- teknir eins og þegar ég var lítil stelpa, þar sem tilgangurinn var að kaupa ís og keyra um Reykjavík og rifja upp þínar æskuslóðir. Þegar þú fluttir á Stigahlíðina og Hákon var í pössun hjá þér þá klifr- aði hann upp á eldhúsbekk náði sér í hníf og sveiflaði honum, sagðist þá geta stungið alla þjófa sem myndu ráðast inn til ykkar og verja þig. Talandi um vísur þá kenndir þú Hákoni þessa vísu: „Ég heiti Gest- ur og kem frá Hæli, étið þið skít og verið þið sælir“. Hann fór með vís- una fyrir framan bekkinn sinn og fékk skammir fyrir, en við hlógum að þessu. Ég varð tíður gestur hjá þér ásamt börnum mínum þegar þú fluttir í Dofrabergið. Yrsa var einu sinni sem oftar í heimsókn hjá þér þar sem hún var komin upp á stól til að ná í styttu sem þú áttir af rjúpum eftir Guð- mund frá Miðdal. Þú varst ekki par hrifin af því og ætlaðir að skamma hana en hún svaraði með þjósti: „Pabbi minn skjótti svona og ég étti svona“ og þá gast þú ekki ann- að en skellt upp úr. Þú lagðir mikinn metnað í að halda fallegt heimili t.d. með sum- argardínum, sumarblómum, skreyttir mikið um jólin og þú varst mjög úrræðagóð í að koma því öllu í verk. Öll heimilin í fjölskyldunni eiga falleg handverk eftir þig. Þú sýndir mikla seiglu, m.a. gekkstu frá Dofraberginu upp í Háabergið og lést ekkert stoppa þig. Börnin mín hugsa hlýtt til þín, munu sakna hlýju faðmlaganna, skæra brossins, hnyttna húmors- ins, óskertrar athygli og áhugans sem þú veittir þeim ávallt. Þú skipaðir stóran sess í lífi okk- ar, við erum þakklát fyrir allar samverustundirnar okkar, hvíldu í friði, elsku Rúna frænka. Stella, Hákon, Yrsa og Styrmir. Sigrún Jónsdóttir ✝ Hlöðver Hall- grímsson fædd- ist 2. júlí 1942 í Keflavík. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafn- arfirði 4. ágúst 2021. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún María Bjarnadóttir húsmóðir, f. 19.6. 1909, d. 16.1. 1973, og Hallgrímur Ingi- berg Sigurðsson sjómaður, f. 3.10. 1909, d. 11.11. 1991. Hlöðver var næstyngstur fimm systkina. 1) Ingvar, f. 1933, giftur Guðrúnu Maríu Þorleifsdóttur. 2) Guðmundur Rúnar, f. 1936, giftur Gerðu Halldórsdóttur, d. 31.1. 2019. 3) Hrafnhildur, f. 1937, gift Garðari Jóhannessyni. 5) Jóhann Sigurður, f. 1944, giftur Grétu Ingólfsdóttur. Öll systkinin eru búsett í Kefla- vík. Hlöðver giftist eftirlifandi eiginkonu sinni Guðrúnu Núma- Díana, f. 1973, og á hún tvö börn, Aron Haraldsson, f. 2006, og Söru Haraldsdóttur, f. 2008. Dætur Hlöðvers frá fyrra hjónabandi eru tvær. 1) Sóley Ólöf, f. 1960, gift Heiðari Jóhanns- syni og eiga þau þrjú börn. a) Dav- íð Bjarni Heiðarsson, f. 1982, gift- ur Theu Dammrich og eiga þau tvö börn, Boie, f. 2019, og Lóu Malve, f. 2021. b) Arnór Heið- arsson, f. 1987, giftur Önnu Elísu Gunnarsdóttur og eiga þau tvö börn, Ársól, f. 2015, og Breka, f. 2018. c) Bjarkey Heiðarsdóttir, f. 1992, sambýlismaður Helgi Berg Halldórsson og eiga þau tvö börn, Fanneyju Hrönn, f. 2017, og Jó- hann Viðar, f. 2019. 2) Bjarney Kristín, f. 1963, og á hún þrjú börn. a) Guðrún Sif Pétursdóttir, f. 1988, og á hún tvö börn, Ólaf Loga, f. 2016, og Ingibjörgu Rún, f. 2018. b) Sigrún Inga Ólafsdóttir, f. 1991, gift Mortaza Ghanbarzehi og eiga þau einn son, Amir Frey, f. 2017. c) Erna Rún Ólafsdóttir, f. 1998, sambýlismaður Sigurður Stefánsson. Útförin fer fram í dag, 19. ágúst 2021, frá Keflavíkurkirkju kl. 13. Streymt verður frá útförinni. virkan hlekk má finna á: https://mbl.is/andlat dóttur 16. mars 1967. Foreldrar hennar voru Marta María Þorbjarnar- dóttir, f. 16.3. 1914, d. 26.11. 2001, og Númi Þorbergsson, f. 4.11. 1911, d. 19.12. 1999. Hlöðver og Guð- rún eignuðust þrjár dætur. 1) Ásdís, f. 1965, og á hún tvö börn, Kára Má Ásdísarson, f. 1991, sambýlismaður Ingvar Á. Arnþórsson, og Höllu Maríu Reynisdóttur, f. 1995, og á hún einn son, Tind Ósman Esrason, f. 2016. 2) Sædís Hlöðversdóttir, f. 1967, gift Eggerti Karvelssyni og eiga þau þrjú börn; Hlöðver Egg- ertsson, f. 1989, sambýliskona Pauline Mattson; Guðrún Björg Eggertsdóttir, f. 1991, sambýlis- maður Torfi Bryngeirsson og eiga þau eina dóttur, Sædísi Ölmu, f. 2021; Sólveig, f. 1996, sambýlis- maður Johann Óli Rainersson. 3) Þegar bróðir og vinur deyr þá kemur það við mann. Hlölli bróðir var sjómaður alla tíð og gat gengið í öll störf um borð. Hann var góður mat- sveinn svo eitthvað sé nefnt. Við Hlölli bróðir vorum mikið saman á sjó og gott var að hafa hann með sér í áhöfn. Hann var mjög ljúfur, ekki skaplaus en fór vel með það. Hlölli bróðir barðist við veikindi sín alltof lengi. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég votta Guðrúnu og dætrum þeirra samúð mína. Ég kveð Hlölla bróður með söknuði. Minning um góðan mann lif- ir. Farðu í friði vinur minn kær Faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær Aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hafðu kærar þakkir fyrir allt, þinn bróðir, Rúnar. Hlöðver Hallgrímsson Allt er blessað og friðsælt. Þú ert farin á vit feðranna – frjáls úr þreyttum líkama þínum. Elsku, kæra fósturmóðir mín – sátt við þinn Guð og menn. „Ég er eins tilbúin og mögulegt er – til Hinstu Ferðar,“ svaraðir þú okkur ástvinum þínum. Drottinn er þinn hirðir og á grænum grundum treysti ég að hann lofi þér að hvílast – leiðir þig að vötnum þar sem þú mátt næðis njóta. Unnur Jónsdóttir ✝ Unnur Jóns- dóttir fæddist 27. október 1918. Hún lést 26. júlí 2021. Unnur var jarð- sungin 13. ágúst 2021. Tómarúm hefur myndast við fráfall þitt og brottför – hjarta mitt grætur af söknuði, jafnt og þakklæti. Innan um stóra sögu tilfinn- inga, gleðst ég yfir því að þú ert frjáls úr ofurþreyttum líkama og frá takmörkunum þessa heims. Ég og afkomendur mínir eigum fjarsjóð af dýrmætum minningum um þig og saga þín verður sögð áfram þeim kynslóð- um sem á eftir okkur koma. Hjartans þökk fyrir öll árin sem við fengum með þér. Þvílík ástúð á báða bóga og skil- yrðislaus væntumþykja. Við nöfn- urnar, frænkurnar, Unnurnar – svo nánar og næmar á hvor aðra alla tíð. „Því hvað er það að deyja annað en að standa nakin í blænum og hverfa inní sólskinið.“ Kahlil Gi- bran/Spámaðurinn. Já, hvað er það að hætta að draga andann og frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins svo hann geti óhindrað leit- að á fund Guðs síns, aðeins sá sem drekkur af vatni þagnarinnar, þekkir hinn volduga söng. Og þeg- ar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst muntu hefja Fjall-gönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, þá muntu dansa í fyrsta sinn. Þessi dagur, þessi blíða, þessi stund og andartak. Hér og Nú í faðmi Eyjafjarðar sem skartar sínum fegurstu töfrum, sem kalla fram í sólskin í hjarta og hlýjan andvara minninga um þá konu, lærimeistara sem þú Unnur, mín elskaða Fóstra – varst mér. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Friður Guðs blessi þig. Þín vinkona og fósturdóttir að eilífu. Unnur Huld Sævarsdóttir Vopna. Þau voru yngstu systkinin af Berg- þórugötunni, Svein- berg Skapti og Ólöf Jóna, alla tíð þekkt sem Lóló! Í glaðværum fjölskylduselskap, heima hjá Skapta í Holtagerðinu, man ég hana fyrst. Hann lands- frægur stemningsmaður og hún með á nótunum í lífsgleðinni – „jolly“ á breska móðinn! (Snorri Ólafsson maður hennar, klæð- skeri, suðrænn í útliti, var öllu al- varlegri en sagan segir að hann hafi átt sínar leikrænu hliðar.) Lóló hafði líka dvalið á Eng- landi á sokkabandsárunum og öðl- Ólöf Jóna Ólafsdóttir ✝ Ólöf Jóna Ólafsdóttir, sem ávallt var köll- uð Lóló, fæddist 8. október 1929. Hún lést 2. ágúst 2021. Útför Lólóar fór fram 11. ágúst 2021. ast eitthvað „breskt“ í fari sínu og var hún þó fáguð að upplagi. Þau systkinin voru náin: „Hún Lóló systir mín er komin!“ heyrði ég Skapta oft segja með ánægju. Og hver var það nema Lóló sem heimsótti bróður sinn nær daglega á Sóltún þegar glaðir dagar voru orðnir næsta fáir. Í mínum huga var aðal Lólóar nostursemin við útlitið, óaðfinnan- legt! Kápan, hanskarnir, slæðan, og … já, hárið! Hún minnti mig gjarnan á Nancy Reagan. Þegar vinur minn einn minntist á „eleg- ant konuna sem stundum snæddi á Vitatorgi“ var bara um eina að ræða! Það má eiginlega segja að Lóló hafi verið „síðasta vel klædda konan“ á Íslandi, ef við miðum við smekk áranna eftir stríð. Í Ingólfs- og Reykjavíkurapó- teki ól hún sinn starfsaldur og mundu eldri Reykvíkingar vel eft- ir Ólöfu – gallinn er bara sá að þeir sömu eldri borgarbúar eru löngu horfnir sem og miðbæjarbragur- inn sem fylgdi þeim. Lóló var stolt af því að vera verslunarkona, eins og hún var stolt af því að geta „þjónað sam- félaginu“ með sjálfboðaliðsstarfi fyrir Rauða krossinn, í anda El- ísabetar prinsessu í heimsstyrj- öldinni síðari. Þegar ég var lítill fannst mér Lóló vera ein hlýlegasta kona sem ég vissi um og Steinn vinur minn mjög heppinn að eiga hana fyrir frænku. Meira að segja röddin var mýkri en aðrar raddir! Hún bauð okkur stundum í kaffi, síðari árin í blokkinni við Sólheima, þar sem hún var orðin ein eftir af upprunalegum íbúum. Þegar við komum upp úr lyftunni stóð hún og beið þar eftir okkur „drengjunum“. Af almennri kurt- eisi færðum við henni eitthvert smáræði og fengum í staðinn „guðlaun“; allt sem frá öðrum tíma og öðrum stað. Hennar líkar voru ekki margir fyrir og verða enn sjaldgæfari núna. Kristinn Jón Guðmundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.