Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
✝
Páll Jónsson
fæddist á
Bárugötu 38 í
Reykjavik 19. júní
1957. Hann lést 10.
júlí 2021 á Alicante
á Spáni.
Páll var sonur
Jóns Bjarman, f.
13.1. 1933, d. 17.3.
2011, og Jóhönnu
Katrínar Páls-
dóttur, f. 10.2.
1933, d. 24.1. 2017. Árið 1958
flutti fjölskyldan til Lundar,
Manitoba, þar sem Jón þjónaði
sem prestur í þrjú ár. Við heim-
komuna flutti fjölskyldan að
sálfræði í San Francisco. Hann
fór seinna í sjávarútvegsfræði
við háskólann í Tromsö í Noregi
og lauk þaðan námi sem sjáv-
arútvegsfræðingur. Páll giftist
Sigurlaugu Lövdahl 2002. Þau
skildu 2006. Sonur Sigurlaugar
er Arnar Pétursson.
Gegnum ævina stundaði Páll
ýmis störf, flest tengd sjávar-
útvegi. Hann vann á frystitog-
ara við strendur Alaska, þjón-
ustaði skip í Hull fyrir Ísberg,
seldi fisk í Kína fyrir Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, rak
fiskvinnslu í Söröya í Noregi og
ferðaðist með erlenda ferða-
menn um Ísland. Síðustu ár hef-
ur hann búið á Alicante á Spáni.
Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 19. ágúst
2021, klukkan 13.
Laufási við Eyja-
fjörð þar sem Jón
gegndi prestsemb-
ætti til 1966. Þar
tóku þau að sér
systurdóttur Jóns,
Önnu Pálu Vign-
isdóttir, sem þau
seinna ættleiddu.
Síðar flutti fjöl-
skyldan til Reykja-
víkur þar sem Páll
gekk í Melaskóla
og síðan Menntaskólann við
Hamrahlíð.
Árið 1977 giftist Páll Ingi-
björgu Eyþórsdóttur. Þau
skildu 1980. Páll lagði stund á
Það varð strax tómlegra í hinu
litla samfélagi Íslendinga í Alic-
anteborg eftir að Palli féll frá. Við
Palli vorum búnir að þekkjast lít-
illega í rúm þrjátíu ár, en sam-
skiptin voru lengst af afar stopul.
Palli dvaldi löngum erlendis
vegna náms og vinnu; í Noregi,
Englandi, Kína og fleiri löndum.
Við rifjuðum upp kunningsskap
fyrir um það bil þremur árum
þegar ég fór frá París til Alicante.
Palli hafði flutt þangað rúmi ári
áður og það var gott að eiga hann
að í ókunnri borg. Hann var þá
strax orðinn hrókur í fagnaði að-
komumanna í borginni, aðallega
Breta sem áttu og eiga sér sama-
stað á litlum veitingastað í gamla
miðbæ Alicante. Sá staður fékk
heitið Pallabar. Hann átti svo
auðvelt með að eignast vini, flug-
mælskur á ensku, víðlesinn og
greindur á svo marga vísu. Hann
leysti krossgátuna í The Times
með morgunmatnum. Hann
kunni óteljandi vísur og söngva,
enda músíkalskur með óbrigðult
minni. Bretarnir báru ómælda
virðingu fyrir þekkingu hans á
verslun og viðskipti með fisk,
enda var hann hámenntaður og
reynslumikill í sjávarútvegsfræð-
um. Eins óáhugaverð og sú stúdía
öll kann að vera þeim sem ekki
hafa alist upp við fiskerí og
vinnslu, þá tókst honum alltaf að
skapa um hana spennandi og æs-
andi debatt. En Palli var ekki
ekki síst vinsæll vegna óskeikull-
ar þekkingar sinnar á enskum
fótbolta. Hún vakti mesta lukku
þegar menn söfnuðust á torgið við
Pallabar til að fylgjast með leikj-
um. Hann gat þulið upp úrslit og
liðsuppstillingar langt aftur á
liðna öld og lýst löngu liðnum at-
burðum af orðkynngi. Það var
gaman að heyra hann ausa úr
viskubrunni sínum, með djúpri
karlmannlegri en þýðri rödd,
svalur eins og norðanáttin, hver
setning meitluð, húmor og þekk-
ing samofin í frásögn af fótbolta,
fiskum og sérkennilegu fólki.
Palli hafði verið til sjós og unnið
við sjávarútveginn lungann úr
ævinni. Hann gat skýrt fyrir
manni flókin atriði eins og mútu-
mál vegna kvóta í fjarlægum
löndum á einfaldan og skýran
hátt. En það var músíkin sem
tengdi okkur fyrst og fremst sam-
an. Palli hafði sungið sinn mjúka
bassa í frægum kórum á yngri ár-
um, Hamrahlíðarkórnum og Há-
skólakórnum, hann spilaði á gítar
og kunni heila dobíu af textum og
ljóðum. Þegar ég var búinn að
finna amatörkór spænskra eldri
borgara og búinn að syngja með
honum nokkrum sinnum tókst
mér að telja Palla á að koma á
eina æfingu. Af því varð því miður
ekki. Viku síðar var skellt á út-
göngubanni á gervöllum Spáni
vegna pestarinnar og síðan hefur
sá kór ekki sungið. Nú að leiðar-
lokum minnist ég Palla með sökn-
uði og trega. Ég votta aðstand-
endum og ættingjum hans samúð
mína og segi eins og gamall þulur:
farvel og takk fyrir komuna.
Magnús R. Einarsson.
Palli Jóns var vinur minn frá
því í Sigöldu, árið var 1974. Þetta
var Þjóðhátíðarárið. Í vinnubúð-
um Landsvirkjunar eignuðumst
við marga sameiginlega vini og
samferðamenn.
Palli var kannski bráðþroska
miðað við mig. Kominn strax með
bílpróf og augastað á jeppa. Far-
inn að fá alvarlegan áhuga á kven-
fólki, söng og brennivíni. Hann
kenndi mér norðanpiltinum
margt um bókmenntir sem hann
hafði lesið og tónlist sem hann
hafði hlustað á eða lært og var það
áberandi amerískt að mestu en ég
hafði haft fordóma fyrir þeim
heimshluta af pólitískum ástæð-
um en Palli var aldrei pólitískur.
Hafði heilbrigðan leiða á öllu slíku
tali þegar það var á hugsjóna-
planinu. Palli var praktískur og
það sem hægt var að framkvæma
til gagns, helst hér og nú, var það
sem skipti máli. Palli var sigldur
maður. Fyrir utan England og
Skandinavíu bjó hann í Skotlandi,
Kaliforníu og Kína og þá ekki allt
upptalið.
Dýravinur var hann með af-
brigðum. Hann gat lifað sig inn í
dýraríkið eins og hann væri
staddur þar sjálfur. Sérstaklega
voru kettir honum hugleiknir.
Átti katta- og hundasögur á færi-
bandi. Palli eignaðist aldrei eigin
börn en hann var afar vingjarn-
legur og gott að vera barn eða
unglingur og geta leitað til hans.
Hann sá alltaf sjarmann við æsk-
una.
Ég var svo heppinn að geta
haldið sambandi við Palla árum
saman þótt stundum væru tíma-
bilin löng þegar það var lítið að
frétta, eins og frá árum hans í
Hull, en svo komu tímar þar sem
við áttum aftur mikið saman að
sælda. Hann bjó meira að segja á
heimili okkar talsvert lengi og
gekk sambúðin afar vel.
Það kom auðvitað í ljós að Palli
var mislyndur í sínu eigin sinni en
sjaldan svo það bitnaði á öðrum.
Palli held ég hafi þannig alltaf átt
vini sína áfram þótt ræktin við þá
yrði stopul á köflum.
Átti síðast símtal við hann á
Spáni fyrir hálfu ári og gat ekki
fundið annað en honum þætti
vænt um það. En svo liðu nokkrir
mánuðir og erfiðir í lífi okkar allra
og þá þessi harmafrétt af andláti
hans fyrirvaralaust. Sjálfsagt var
heilsunni að hraka og Palli ósér-
hlífinn og kvartaði helst aldrei.
Allra síst í lækna.
Palli var af kristnu fólki kom-
inn og hafði greinilega fengið gott
veganesti þaðan. Umhyggja hans
fyrir minni máttar og ósérhlífni
við hvers konar verk sem hann
tók að sér án nokkurrar tilgerðar
eða von um persónulegan frama
er líklega af þeirri rót komin. Trú-
mál voru samt aldrei á vörum
hans frekar en stjórnmálin. Hann
skeytti lítt um veraldlegan frama
og kannski ekki lagt mikið upp úr
eilífðarmálunum heldur. Ég bið
fyrir Palla vini mínum því mig
langar til að hitta hann eins og
aðra góða vegferðarmenn í
Himnaríki. Maður sér fyrir sér
lúðurþeytarana frá New Orleans
taka undir með englunum „When
the Saints Go Marching In“. Ef
við vorum ekki einmitt í þessu
jarðlífi saman á leiðinni þangað,
þá til hvers?
Gísli Ingvarsson.
Sumarið ’66 var síðasta sumar
afa okkar Palla og ömmu á
Skinnastað norður í Öxarfirði.
Hanna frænka og Jón komu það
sumar í heimsókn á forkunnar-
fögrum Moskowitz með nafna
minn og Önnu. Ég, heimalning-
urinn, vildi sýna Páli nafna mín-
um og frænda allar gersemar
staðarins; geitakofann, fjósið,
bláberjabrekkuna hinum megin
við þjóðbrautina norður til Kópa-
skers, og auðvitað kjallarann.
Kjallarinn á prestssetrinu var
mest spennandi. Þar voru ótelj-
andi felustaðir, kolabingur fyrir
AGA-eldavélina, gömul falleg
eldhúsinnréttingin full af fornu
og framandi dóti. Þarna voru líka
áhöld fyrir búskapinn, rekur,
hrífur, naglar og naglbítar. Sagir
stórar og smáar. Við nafni minn
tókum sagirnar niður og komum
þeim í notkun. Fyrir átta og níu
ára snáða var það mikið og erfitt
verk að saga eldhúsinnrétt-
inguna í tvo hluta. Palli Jóns kom
með þá einstaklega snjöllu hug-
mynd að draga skúffurnar út og
saga þannig, mun einfaldara.
Þegar neðsta skúffan var að
verða klár – já þetta var erfitt
verk og tók sinn tíma – kom
amma að okkur frændum og var
ekki skemmt. Held að þetta sé
eina skiptið á ævinni sem hún
hækkaði róminn, já prestsfrúin,
frú Guðrún Elísabet, var ekki
par ánægð með okkur frændur,
barnabörnin. En mikið hlógum
við Palli mörgum árum seinna að
þessu uppátæki okkar, eins vit-
laust og það var.
Páll Stefánsson.
Palla frænda þekkti ég bara af
mynd fyrstu ár mín enda bjuggu
hann og fjölskyldan í Kanada.
Mér er myndin mjög minnis-
stæð. Þau sitja saman á mynd-
inni Hanna föðursystir, Jón og
Palli og Anna. Öll svo falleg og
eitthvað svo útlensk. Þegar þau
svo fluttu heim fluttust þau í
næstu götu við okkur og reyndar
þar næstu götu við afa og ömmu.
Mér fannst alltaf miklu skemmti-
legra að fara í heimsókn til þeirra
en að fá þau í heimsókn til okkar.
Anna átti fullt af Barbí og Palli
átti alls konar framandi og flott
dót og bækur frá Ameríku. Svo
fannst mér mjög töff að heyra
Palla tala ensku. Árin liðu og
Palli flaug út í heim. Hann lærði
og starfaði víða um heim svo við
hittumst ekki oft en maður frétti
af honum í gegnum Hönnu
frænku, sem var mér svo kær.
Það er einhvern veginn þannig
að Palli var lengi og langt í burtu.
Nú er hann farinn lengst í burtu.
Blessuð sé minning Palla
frænda.
Helga I. Stefánsdóttir.
Páll Jónsson
Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir
Rúnar Geirmundsson
Sigurður Rúnarsson
Þorbergur Þórðarsson
Elís Rúnarsson
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR
frá Djúpavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Drafnarhússins og Ölduhrauns á Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir
góða umönnun.
Jóhanna Sigríður Ragnarsdóttir
Ester Lára Magnúsdóttir
Ragnar Ólafur Magnússon Edna Sólrún Falkvard Birgisd.
Jóhann Skagfjörð Magnúss. Vigdís Sigurlínudóttir
og barnabörn
Ástkær dóttir og systir,
ÞÓRA KRISTÍN BÁRÐARDÓTTIR,
Norðurbakka 17b, Hafnarfirði,
lést laugardaginn 6. mars á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut.
Bálför hefur farið fram.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
26. ágúst klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni á:
https://livestream.com/accounts/15827392/events/9805928
Bárður Sigurgeirsson Linda Björg Árnadóttir
Sigurgeir Bárðarson Harpa Björnsdóttir
Guðmundur Örn Bárðarson María Lind Baldursdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN GUÐNADÓTTIR,
Strikinu 4, Garðabæ,
lést 21. apríl.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ,
föstudaginn 20. ágúst klukkan 13.
Athöfninni verður steymt á vefnum www.streyma.is
Guðni Tyrfingsson Auður Alfreðsdóttir
Sigurður Tyrfingsson Guðlaug F. Stephensen
Þórunn J. Tyrfingsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elsku hjartans sonar míns, föður okkar,
tengdaföður, afa, bróður og mágs,
GUÐMUNDAR RINGSTED,
Álfaskeiði 70,
Hafnarfirði.
Anna Elín Ringsted
Davíð Guðmundsson Hulddís Guðbrandsdóttir
Guðbjörg V. Guðmundsdóttir Theódór Skúli Sigurðsson
Magnús Guðmundsson Julia Bakke
Anna Elín Guðmundsdóttir Ole Marselius Lillebo
barnabörn, systkini og fjölskyldur