Morgunblaðið - 19.08.2021, Side 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
Elsku fallega
Bára Kemp, meist-
ari minn, vinkona og
frábær kennari er
nú öll. Mikið var erf-
itt að heyra af alvarlegum veik-
indum þínum hinum megin á
hnettinum og síðar fráfalli þínu.
Manni fannst þetta ekki sann-
gjarnt þar sem þú varst svo ný-
lega hætt að vinna og ætlaðir að
njóta í botn með Herði þínum og
litlu fjölskyldunni þinni sem þú
elskaðir og naust að vera með.
Mikið hafðir þú gaman af barna-
Bára Kemp
✝
Bára Kemp
fæddist 27.
nóvember 1949.
Hún lést 1. ágúst
2021.
Útförin fór fram
18. ágúst 2021.
börnum þínum sem
þú sagðir okkur sitt-
hvað frá í Danmerk-
urferðinni góðu
sumarið 2018 í
heimsókn til Jonnu.
Það sem við erum
þakklátar hárpæj-
urnar fyrir þessa
frábæru ferð, allan
hláturinn, sam-
veruna sögurnar og
fíflaganginn. Vorum
hæstánægðar með tilkynningu
um að flugi okkar væri seinkað
um einn dag og gátum við því not-
ið lengur að vera saman. Vorum
alls ekki tilbúnar að fara heim.
Að læra háriðn hjá þér var í
einu orði sagt stórkostlegt. Frá-
bær kennari sem þú varst og
kenndir með þínu nefi eins og
maður segir, þú gast leiðbeint en
svo varð maður að finna þegar
ljósið kviknaði innra með manni
og verkefnið var komið í fullan
skilning og virkni. Sköpun, hug-
ur, líkami og hjarta varð að
tengja saman. Manni skildist vel
að hver hefði sitt handbragð og
allir væru einstakir.
Að komast í hendurnar á þér
og fá að vera í kringum þig verð
ég ávallt þakklát fyrir, við smull-
um strax saman þó þér hafi þótt
erfitt að kenna þrjóska sporð-
drekanum þínum á stundum.
Vinátta og kunningsskapur okk-
ar var ómetanlegur. Þú kenndir
okkur svo margt annað en háriðn,
vináttu, að koma fram við við-
skiptavini af virðingu og nær-
gætni, hreinskipt samskipti,
ósérhlífni og svo mætti lengi
telja.
Andinn á Hári og Snyrtingu,
gleðin, dugnaðurinn og sam-
heldnin sem náðist á þessum ár-
um var mögnuð og ekki á allra
færi að skapa slíka stemningu.
Við vorum öll í sama liði og hver
dagur ævintýri líkastur. Allt var
látið flakka og fagmennskan í
fyrirrúmi. Frumkvöðull í faginu
með Intercoiffure, sýningar og
keppnir. Maður var hvattur til að
vera með í öllu og látinn stíga út
fyrir þægindarammann, sem og
maður gerði. Ekki stóð á fífla-
ganginum hjá þér og sykurmola-
atriðinu þegar starfsfólkið kom
saman, magavöðvarnir voru vel
þjálfaðir eftir hlátur kvöldsins.
Elsku Bára, ég kveð þig með
virðingu, kærleika og þakklæti,
þín verður sárt saknað af mörg-
um en ég veit að þú ert með vara-
litinn við höndina og „lookkar“
eins alltaf og smitar alla af gleði
þinni og hlátri í sumarlandinu.
Elsku Hörður, Ingi Makan,
Heiða og börn, innilegar samúð-
arkveðjur til ykkar, megi minn-
ingin um hjartahlýja, skemmti-
lega og litríka konu ylja ykkur
um ókomin ár. Þín
Hafdís Hafsteinsdóttir.
Einn af merk-
ustu íbúum þessa
héraðs er látinn og
finnst mér erfitt að
viðurkenna slíkt. Hann hefur
verið hluti af samfélaginu í lang-
an tíma og sívakandi með ýmsan
fróðleik og sitt ótrúlega minni
um liðna atburði og sögur sem
og vísur, sem margt hverfur nú
með honum þó að sumt hafi
náðst að festa á blað.
Sigurður H.
Eiríksson
✝
Sigurður Helgi
Eiríksson
fæddist 5. nóv-
ember 1930. Hann
lést 10. ágúst 2021.
Útför Sigurðar
fór fram 18. ágúst
2021.
Hann var létt-
lyndur maður og
grínsamur og
hjálpsemi hans var
viðbrugðið sem ég
og aðrir nutum í
ríkum mæli. Hann
var einstakur við-
gerðarmaður og
leysti þar margar
gátur sem alltaf
koma upp, með ró-
legheitum og
íhygli.
Hann benti þá oft á, að þetta
sem við var að fást væri nú bara
gert af mönnum og nú skyldi
setjast niður og hugsa til að fá
lausn en ekki æða í eitthvað og
það brást því ekki að sú besta
fannst.
Þó að hann væri í vélavið-
gerðum mestalla ævi þá var
honum fleira til lista lagt. Þegar
gera þurfti aðgerðir á spítalan-
um sá hann um svæfingar þar í
mörg ár og tókst það með af-
brigðum vel.
Ég efast um að nokkurn tíma
hafi þekkst að vélaviðgerðar-
maður sé tekinn með í lækn-
isaðgerðir, sem eru svo ólík
störf, en það sýnir best hans
einstöku hæfileika og það traust
sem hann hafði, en til undirbún-
ings hafði hann farið á nám-
skeið.
Þegar ég var í stjórn Tónlist-
arskólans hér ásamt Ingibjörgu
konu hans og skólinn fékk Sól-
land til afnota, þá voru þau önn-
um kafin í að lagfæra hús og lóð,
nær allt í sjálfboðavinnu í frí-
tíma. Þetta var hugsjónastarf
sem sjaldgæft er að sjáist í dag.
Nú snýst allt um að fá laun og
frí fyrir.
Bletturinn er enn eitt afrekið.
Þau hjón fengu úthlutaðan rýrð-
arblett suður með veginum, sem
Siggi sagðist eiga innan gæsa-
lappa. Þar var byrjað smátt með
skrúðgarð og skógrækt, sem fá-
ir tóku eftir í byrjun en er nú
orðinn stór lystigarður og mikið
augnayndi og verður er fram
líða stundir höfuðprýði staðar-
ins og ómetanlegur íbúum.
Verðmæti þessa Edengarðs
eða vinnuframlag verður ekki
útreiknað, en hann hófst úr
engu í allt: Frá nokkrum trjá-
plöntum settum niður í grjótás
og enginn taldi að gætu þar
þrifist, í himinhá tré með gras-
flötum á milli. Þetta er algert
ævintýri.
Kæri Siggi minn, við þökkum
þér fyrir góð kynni og vináttu
alla tíð og vottum konu og af-
komendum alla samúð okkar.
Því miður töldum við okkur
ekki fært að fylgja þér í lokin
vegna þessa smithættuástands
sem er nú, en fylgjumst með
streymi frá útförinni.
Hlíf og Agnar í Hrísakoti.
Hvar sem stofninn
sterki
stefnir rétt að merki
vex af hverju verki
von og trú á fold.
Ég get ekki annað en hugsað til
þessara ljóðlína úr ljóðinu Flóinn
eftir Freystein Gunnarsson. Enn
einn stofninn er felldur úr bænda-
liði okkar Flóamanna, en að það
skuli vera nágranni minn, hann
Einar Helgi á Urriðafossi, á mað-
ur bágt með að trúa og sætta sig
við.
Milli Urriðafoss og Egilsstaða-
kots hefur alltaf verið góður vin-
skapur. Halli og mamma voru
jafnaldrar og pabbi 7 árum eldri.
Mikil og góð samskipti voru á milli
bæjanna, komið í kaffispjall og
tekið í spil. Þessum vinskap héld-
uð þið Lilja við eftir að þið tókuð
við búskap á Fossi eftir fráfall for-
eldra þinna. Svo mættir þú með
sól að morgni, hress og kátur að
vanda, til foreldra minna 1986:
Góðan daginn, Mundi minn, ég
ætla að kynna þig fyrir kærust-
unni minni, við vorum að trúlofast.
Upp frá því urðu mamma og Lilja
vinkonur þótt að 47 ár væri ald-
ursmunurinn. Þið voruð nýtekin
við búskap á Fossi og ég get
ímyndað mér að ekki hafi alltaf
staðið vel á, enda nóg að gera með
fullt hús af börnum, en þegar
Einar Helgi
Haraldsson
✝
Einar Helgi
Haraldsson
fæddist 7. apríl
1962. Hann lést 4.
ágúst 2021.
Útför Einars
Helga var gerð 18.
ágúst 2021.
mamma hringi: góð-
an dag, Lilja mín,
eigum við ekki að
fara í flatkökur eða
kleinur í dag? Þá
þýddi ekki annað en
biðja þig um að sjá
um börnin því Lauf-
ey í Kotinu ætlaði að
steikja kleinur. Þær
voru steiktar og
kaffibolli drukkinn á
eftir og kleinunum
skipt jafnt á milli.
Allt af lífi iðar,
yfir fuglinn kliðar,
foss í fjarska niðar
fiskar ganga úr sjó.
Þessar línur lýsa vel hvernig
lífið gekk á Urriðafossi eftir að þið
byrjuðu búskapinn. Allt var byggt
upp, ræktuð tún og keyptar vélar.
Alltaf sami dugnaðurinn, en nóg-
ur tími til að tala við gesti. Það
voru 7 ár á milli okkar, nafni, betri
nágranna er varla hægt að óska
sér. Við vissum vel hvar lyfjaskáp-
urinn í fjósinu var hvor hjá öðrum
og gátum náð okkur í kalk í doða-
kú hvort sem var að nóttu eða
degi. Svo ef þyrfti meiri aðstoð
var maður varla búinn að leggja
frá sér símann þegar þú varst
kominn hress og úrræðagóður,
tilbúinn að ljá hjálparhönd og allt-
af hafðir þú tíma. Ég vil þakka þér
fyrir allar ánægjustundirnar sem
við áttum t.d. á söngæfingum, við
undirbúning þorrablótanna og á
spilakvöldunum. Í spilum var erf-
itt að svína á þér því þú áttir oftast
slaginn og hlóst hátt. Yndislegar
minningar, kæri nafni, þín verður
sárt saknað.
Elsku Lilja, börn og fjölskyldur
og systkini Einars Helga, við fjöl-
skylda mín í Egilsstaðakoti vott-
um ykkur, okkar dýpstu samúð.
Megi guð styrkja ykkur í þessum
sviplega missi.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Einar Hermundsson.
Það er gott að rifja upp kynni
okkar á lífsins leið. Einar var
fæddur á Urriðafossi og þar hefur
hann vaxið úr grasi í skjóli sinna
frábæru foreldra, Unnar og Har-
aldar, og systkina sinna. Einar
var hamingjumaður með sína
góðu konu, Lilju, sér við hlið og
fimm börn. Öll unnu þau að sama
markmiði, að rækta jörðina og
nýta auðlindirnar. Kristján, mað-
urinn minn, var svo lánsamur að
vera í sveit hjá Unni og Haraldi í
níu sumur, frá 7 ára aldri, sem
mótuðu hann fyrir lífstíð. Það var
einstakt að koma að Urriðafossi
og finna þá djúpu vináttu, gest-
risni, sjá hamingjuna blómstra,
vinnusemi, útsjónarsemi og
gleðina við að vinna og rækta jörð-
ina. Íslenski bóndinn í hnotskurn.
Einari var margt til lista lagt,
gleymi ég ekki þegar hann hélt
upp á afmæli Lilju á glæsilegan
hátt í hennar heimabyggð, Eyra-
bakka, án þess að hún vissi hvað
til stóð. Ekkert var til sparað, þar
flutti Einar Lilju drápu sem hann
samdi og söng til hennar, geri aðr-
ir betur. Einar var einstaklega
duglegur að styðja börnin sín í
áhugamálum þeirra. Hann var
framsýnn og búinn að stíga mik-
ilvæg skref við búskapinn svo að
næsta kynslóð gæti tekið við. Við
hjónin vottum Lilju, börnum og
fjölskyldum þeirra, systkinum
Einars og reyndar sveitungum
öllum, innilega samúð. Guð blessi
minningu Einars, þess góða og
mæta mans.
Margrét og Kristján.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Innilegar þakkir færum við fyrir sýnda
samúð og vinarhug vegna andláts og
útfarar okkar ástkæru systur, mágkonu og
frænku,
ELÍNAR HJÁLMSDÓTTUR,
sem lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn
20. júlí.
Guðbjörg Hjálmsdóttir
Guðrún María Hjálmsdóttir
Ólafína Hjálmsdóttir Guðmundur H. Sigmundsson
systkinabörn og fjölskyldur
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og
afa,
STEFÁNS MÁS INGÓLFSSONAR
kennara.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 3N
á Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka alúð og góða umönnun.
Maríanna Elísa Franzdóttir
Helga María Stefánsdóttir Edda Stefanía Levy
Stefán Már Levy Helguson
Ástvaldur Þór Levy Helguson
Ástkær faðir minn, stjúpi, tengdafaðir og afi,
ÁRNI ÓLASON,
Austurbrún 2,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 15. ágúst.
Útför hans fer fram í Fossvogskirkju
þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 15.
Valgerður Árnadóttir Karl Fannar Sævarsson
Þórunn Brandsdóttir
Benjamín Árni Ásgrímur Guðmundsson
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
" 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
(1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát