Morgunblaðið - 19.08.2021, Page 46

Morgunblaðið - 19.08.2021, Page 46
Pepsi Max-deild kvenna Fylkir – Selfoss.......................................... 3:4 Staðan: Valur 15 12 2 1 40:15 38 Breiðablik 15 10 1 4 49:22 31 Þróttur R. 14 6 4 4 30:25 22 Selfoss 15 6 4 5 24:22 22 Stjarnan 14 6 2 6 16:20 20 Þór/KA 15 4 6 5 16:21 18 ÍBV 14 5 1 8 21:30 16 Keflavík 14 3 3 8 13:24 12 Fylkir 14 3 3 8 16:34 12 Tindastóll 14 3 2 9 10:22 11 2. deild karla Fjarðabyggð – Kári................................... 2:0 Reynir S. – Þróttur V. ............................... 4:1 ÍR – Njarðvík............................................. 4:1 KF – Magni ................................................ 2:1 Haukar – KV.............................................. 0:1 Staðan: Þróttur V. 17 10 5 2 34:17 35 KV 17 9 4 4 31:22 31 Völsungur 16 9 3 4 37:28 30 KF 17 8 4 5 32:25 28 Njarðvík 17 6 8 3 36:22 26 ÍR 17 6 7 4 30:23 25 Magni 17 6 6 5 33:31 24 Reynir S. 17 6 5 6 34:33 23 Haukar 17 5 4 8 30:31 19 Leiknir F. 16 4 3 9 22:38 15 Kári 17 1 6 10 23:39 9 Fjarðabyggð 17 1 5 11 10:43 8 3. deild karla ÍH – Tindastóll........................................... 8:0 Víðir – Ægir ............................................... 2:3 Dalvík/Reynir – Einherji .......................... 2:1 Augnablik – KFS....................................... 0:2 Meistaradeild kvenna 1. umferð: Breiðablik – KÍ .......................................... 7:0 Gintra – Flora Tallinn ............................... 2:0 _ Breiðablik mætir Gintra í úrslitaleik um sæti í 2. umferð keppninnar 21. ágúst í Si- auliai. Bröndby - Kristianstad ............................ 0:1 - Barbára Sól Gísladóttir lék allan leikinn með Bröndby. - Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir léku allan leikinn með Kristianstad. Elísa- bet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. Bordeaux - Slavácko ................................ 2:1 - Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á sem varamaður á 80. mínútu hjá Bordeaux. _ Kristianstad mætir Bordeux í úrslitaleik um sæti í 2. umferð keppninnar 21. ágúst í Kristianstad. Apollon Limassol - Dinamo Minsk.......... 2:0 - Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék allan leik- inn með Apollon. _ Apollon mætir CSKA Moskvu eða Swan- sea í úrslitaleik um sæti í 2. umferð keppn- innar 21. ágúst í Limassol. Vålerenga - Mitrovica .............................. 5:0 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leikinn með Vålerenga. Amanda Andradóttir kom inn á sem varmaður á 61. mínútu. PAOK - Anenii Noi ................................... 6:0 - Ingunn Haraldsdóttir lék allan leikinn með PAOK. _ PAOK mætir Vålerenga í úrslitaleik um sæti í 2. umferð keppninnar 21. ágúst í Sa- lonika. SL Benfica - Kiryat Gat............................ 4:0 - Cloé Lacasse lék allan leikinn með Ben- fica. _ Benfica mætir Racing Union í úrslitaleik um sæti í 2. umferð keppninnar 21. ágúst í Zenica. Levante – Celtic ........................................ 2:1 - María Ólafsdóttir Gros lék fyrri hálfleik- inn með Celtic. _ Celtic mætir Minsk í leik um 3. sætið 21. ágúst í Þrándheimi. Meistaradeild Evrópu Umspil, fyrri leikir: Young Boys – Ferencváros ...................... 3:2 Malmö – Ludogorets ................................. 2:0 Benfica – PSV ............................................ 2:1 Evrópudeild UEFA Umspil, fyrri leikur: Celtic - AZ Alkmaar ................................. 2:0 - Albert Guðmundsson lék fyrstu 72 mín- úturnar með AZ. Danmörk B-deild: Lyngby - Fremad Amager....................... 4:2 - Sævar Atli Magnússon kom inn á sem varamaður á 83. mínútu hjá Lyngby og skoraði, Frederik Schram var ónotaður varamaður. Freyr Alexandersson þjálfar liðið. Svíþjóð Bikarkeppnin, 2. umferð: Utsikten - Häcken..................................... 1:5 - Valgeir Lunddal Friðriksson lék seinni hálfleik með Häcken en Oskar Tor Sverr- isson var ekki í leikmannahópnum. Vambol - Norrköping............................... x:x - Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn með Norrköping og skoraði, Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 52 mínúturnar en Jó- hannes Kristinn Bjarnason var ekki í leik- mannahópnum. Eskilsminne - Helsingborg ...................... 2:3 - Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Helsingborg. Husqvarna - Öster .................................... 0:3 - Alex Þór Hauksson lék allan leikinn með Öster. 4.$--3795.$ 46 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Leik ÍA og KR í Pepsi Max-deild karla í fótbolta hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að kór- ónuveirusmit greindist hjá leik- manni KR í gær. Leikurinn átti að fara fram á Akranesi á sunnudag- inn næsta klukkan 17. KR átti að æfa í dag en æfingunni var frestað vegna smitsins. Leikmaðurinn lék gegn HK í Kórnum á mánudag. Miðað við fregnir síðustu daga virðist veiran nú vera víða í knatt- spyrnuheiminum á Íslandi en smit hafa greinst hjá Víkingi í Ólafsvík, Vestra, ÍBV og KR síðustu vikur. Leikmaður KR með veiruna Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Smit Leikmaður KR greindist með kórónuveiruna á dögunum. Guðmundur Ágúst Kristjánsson komst í gegnum niðurskurðinn á Sydbank Esbjerg-mótinu í Áskor- endamótaröð Evrópu í golfi í gær. Guðmundur lék fyrsta hringinn í fyrradag á 74 höggum, þremur höggum yfir pari. Hann bætti sig um fimm högg á milli hringja því hann lék annan hringinn í gær á 69 höggum og er á samtals einu höggi yfir pari og í 25. sæti. Þeim Bjarka Péturssyni, Andra Þór Björnssyni og Haraldi Franklín Magnús tókst ekki að komast í gegnum nið- urskurðinn og eru úr leik. Guðmundur áfram í Esbjerg Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. 25 Guðmundur Ágúst hefur spilað vel í Danmörku og er í 25. sæti. FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Selfoss vann sinn fyrsta sigur í mán- uð er liðið hafði betur gegn Fylki á útivelli í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í gærkvöldi, 4:3, á Würth- vellinum í Árbænum. Brenna Lo- vera var hetja Selfoss því hún skor- aði þrennu. Sigurinn var sá fyrsti hjá Selfossi síðan liðið vann Keflavík 13. maí síðastliðinn. Með sigrinum fór Selfoss upp í 22 stig og er liðið með jafnmörg stig og Þróttur úr Reykja- vík í þriðja sæti deildarinnar. Fylkiskonur eru hins vegar í basli því liðið er áfram í fallsæti með aðeins einn sigur í síðustu sjö. „Helsti munurinn á þessum liðum var klárlega Brenna Lovera. Sú var öflug í kvöld og samvinna hennar með Caity Heap var til fyrirmyndar,“ skrifaði Þór Bæring Ólafsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Sara Dögg Ásþórsdóttir úr Fylki skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild og jafnframt sitt fyrsta mark í deildarkeppni hér á landi. _ Brenna Lovera er markahæst í deildinni með tólf mörk. Sjö marka veisla í Árbæ - Langþráður sigur Selfoss í sjö marka leik - Fylkiskonur áfram í fallsæti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Barátta Selfyssingurinn Brenna Lovera í baráttunni við Árbæinginn Kötlu Maríu Þórðardóttur á Würth-vellinum í Árbænum í gær. Í sama riðli vann Gintra frá Litháen 2:0-sigur gegn Flora Tall- inn frá Eistlandi í Siauliai þar sem Jessica Ayers og Madison Gibson skoruðu mörk litháenska liðsins. Mætir gömlu liðsfélögunum Þá leika sex Íslendingalið um sæti í 2. umferðinni en tveir Ís- lendingaslagir fara fram í úrslita- leikjum 1. umferðarinnar. Svava Rós Guðmundsdóttir mæt- ir sínum fyrrverandi liðsfélögum í Kristianstad en hún gekk til liðs við Bordeux í Frakklandi í janúar á þessu ári eftir tvö ár í herbúðum Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálf- ari Kristianstad en Sif Atladóttir er samningsbundin sænska liðinu og þá leikur Sveindís Jane Jóns- dóttir með Kristianstad á láni frá Wolfsburg. Leikurinn fer fram í Kristianstad í Svíþjóð. Þá mætir Vålerenga frá Noregi með þeim Ingibjörgu Sigurð- ardóttur og Amöndu Andradóttur innanborðs liði PAOK frá Grikk- landi í Salonika á Grikklandi en Ingunn Haraldsdóttir, fyrrverandi fyrirliði KR, leikur með PAOK. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og liðsfélagar hennar í Apollon Li- massol mæta annaðhvort CSKA frá Rússlandi eða Swansea frá Englandi í Limassol á Kýpur en blaðið var farið í prentun áður en þeim leik lauk.Þá mæta Cloé La- casse og samherjar hennar í Ben- fica Racing frá Lúxemborg í Ze- nica í Bosníu. María Catharina Ólafsdóttir Gros og liðsfélagar hennar í skoska liðinu Celtic eru hins vegar úr leik, líkt og danska úrvalsdeild- arfélagið Bröndby sem Barbára Sól Gísladóttir leikur með. Tveir Íslendingaslagir í Meistaradeildinni Morgunblaðið/Unnur Karen 2 Agla María Albertsdóttir skoraði tvö marka Breiðabliks í Litháen í gær. MEISTARADEILDIN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Breiðablik mætir Gintra frá Lithá- en í úrslitaleik um sæti í 2. umferð Meistaradeildar kvenna í knatt- spyrnu á laugardaginn kemur í Si- auliai í Litháen. Breiðablik vann 7:0-stórsigur gegn KÍ frá Færeyjum í Siauliai í gær þar sem þær Agla María Al- bertsdóttir, Karítas Tómasdóttir og Selma Sól Magnúsdóttir skor- uðu tvö mörk hver. Blikar byrjuðu leikinn rólega en eftir að Selma Sól kom Breiðabliki yfir á 28. mínútu bættu Blikar við fjórum mörkum til viðbótar í fyrri hálfleik. Selma Sól og Agla María skor- uðu svo sitt hvort markið fyrir Breiðablik í síðari hálfleik og Blik- ar fögnuðu öruggum sigri. FYLKIR – SELFOSS 3:4 0:1 Brenna Lovera 5. 0:2 Brenna Lovera 8. 1:2 Eva Rut Ástþórsdóttir 16. 1:3 Magdalena Anna Reimus 45. 2:3 Þórhildur Þórhallsdóttir 53. 2:4 Brenna Lovera 62. 3:4 Sara Dögg Ástþórsdóttir 87. MM Brenna Lovera (Selfossi) M Eva Rut Ástþórsdóttir (Fylki) Þórhildur Þórhallsdóttir (Fylki) Shannon Simon (Fylki) María Eva Eyjólfsdóttir (Fylki) Benedicte Håland (Selfossi) Magdalena Anna Reimus (Selfossi) Caity Heap (Selfossi) Emma Checker (Selfossi) Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfossi) Dómari: Birgir Þór Þrastarson – 8 Áhorfendur: Um 100. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.