Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 47

Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 47
ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Katrín Ásbjörnsdóttir, framherji Stjörnunnar, er með slitið liðband en hún var borin af velli í leik Stjörnunnar og Þórs/KA í Pepsi Max-deildinni í fótbolta á dögunum. Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar tjáði netmiðlinum Fót- bolta.net í gær að liðbandið sé slit- ið. Liðbandið er í ökklanum en Katr- ín var tækluð af Örnu Sif Ásgríms- dóttur, fyrirliða Þórs/KA. Hún slapp hins vegar við beinbrot eða beinmar að sögn Kristjáns. Ekki er ljóst hve lengi Katrín verður frá. Katrín með slit- ið liðband Morgunblaðið/Eggert Meiðsli Katrín Ásbjörnsdóttir verð- ur frá keppni í einhvern tíma. Víkingur og Valur, tvö efstu lið Pepsi Max-deildar karla í fótbolta, verða án mikilvægra leikmanna er liðin mætast á sunnudaginn kemur. Víkingur leikur án Júlíusar Magnússonar og Karls Friðleifs Gunnarssonar þar sem þeir hafa fengið fjórar áminningar hvor í deildinni í sumar. Rasmus Christi- ansen og Birkir Heimisson leika ekki með Val í leiknum þar sem þeir hafa fengið sjö gul spjöld hvor á leiktíðinni. Dusan Brkovic verður ekki með KA gegn Breiðabliki er liðin í þriðja og fjórða sæti mætast. Ljósmynd/Víkurfréttir/Hilmar Leikbann Rasmus Christiansen verður ekki með Val gegn Víkingi. Fjórir missa af toppslagnum Mallorca í tvær vikur og það gekk gríðarlega vel. Núna er ég að minnka álagið, æfingamagnið. Það er bara vonandi að undirbúning- urinn haldi áfram að ganga jafn vel og hann hefur gert,“ sagði Patrekur Andrés í samtali við Morgunblaðið. Kórónuveirufaraldurinn hefur engu breytt í undirbúningi hans þar sem Patrekur Andrés ákvað frekar að líta á björtu hliðarnar í stað þess að sýta það þegar hann gat ekki æft á hefðbundinn hátt. „Nei, veiran hef- ur ekkert breytt neinu þannig. Mað- ur finnur sér bara aðrar æfingar til að gera og það hefur bara styrkt mann frekar ef eitthvað er. Svo hef ég fengið hvíld líka, sem hefur hjálp- að. Maður bara vinnur með það sem maður hefur og það er held ég það sem hefur skilað sér í því að ég er kominn inn á mótið,“ sagði hann. Leyfir sér að dreyma Spurður um hver markmið hans á Ólympíumótinu væru sagði Patrek- ur Andrés: „Þetta er gríðarlega sterkur hópur sem ég er að keppa á móti í 400 metra hlaupinu núna. Þeir hlaupa gríðarlega hratt strákarnir í mínum flokki. Það væri gaman að komast í undanúrslit, það er svona fyrsta markmið. Svo þarf bara að sjá hvert það leiðir okkur. Miði er alltaf möguleiki, það getur allt gerst á svona móti, maður veit aldrei hvert það leiðir mann.“ Hann telur möguleika sína því góða. „Við erum fjórir í hverjum riðli og ef ég næ mínu besta hlaupi hef ég fulla trú á því að komast í undanúrslit. Þar eru átta strákar. Svo setur maður sér bara næsta markmið eftir það. Það er bara að vona það besta í rauninni.“ Komist Patrekur Andrés í undanúrslit mun hann setja sér ný markmið í kjölfar- ið. „Þá koma ný markmið og þá getur maður alveg horft á úrslitin. Maður leyfir sér að dreyma en það þarf bara að koma í ljós. Að hlaupa undir 55 sekúndum væri draumurinn, svona ef ég ætti að setja eitthvað fram,“ sagði hann að lokum í samtali við Morgunblaðið, en besti tími Pat- reks Andrésar í 400 metra hlaupi er 56,85 sekúndur, sem er Íslandsmet í hans flokki. „Maður er varla að trúa þessu“ Morgunblaðið/Unnur Karen Snöggur Patrekur Andrés keppir í 400 metra hlaupi í Tókýó. - Spretthlauparinn Patrekur Andrés Ax- elsson er á leið á sitt fyrsta Ólympíumót TÓKÝÓ 2021 Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is „Maður er varla að trúa þessu.“ Patrekur Andrés Axelsson, spretthlaupari úr FH, tekur þátt á sínu fyrsta Ólympíumóti fatlaðra þegar hann keppir í 400 metra spretthlaupi í T11-flokki blindra á mótinu í Tókýó. Hvernig leggst það í Patrek Andrés að vera að fara á sitt fyrsta Ólympíumót? „Gríðarlega vel bara. Ég er fullur tilhlökkunar. Þetta er búið að vera svolítið skrítið fyrst, maður er varla að trúa þessu en ég er bara mjög spenntur fyrir mótinu og það er von- andi að undirbúningur haldi áfram að ganga vel. Síðustu sex til átta vik- ur hafa gengið mjög vel. Ég meiddist fyrir Evrópumótið sem var í byrjun júní en er búinn að ná mér góðum af þeim og undirbún- ingurinn núna hefur gengið mjög vel. Við vorum í æfingabúðum á HM 2023 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Ég er mjög stoltur af bæði liðinu og öllum í kringum hópinn,“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í körfu- knattleik, í samtali við Morgunblaðið í gær. Ísland tryggði sér sæti í und- ankeppni HM 2023 í vikunni eftir að hafa hafnað í öðru sæti C-riðils for- keppninnar, en leikið var í Podgorica í Svartfjallalandi í vikunni. Íslenska liðið endaði með 6 stig í riðlinum en liðið tapaði tvívegis fyrir Svartfjallalandi og vann tvo mik- ilvæga sigra gegn Danmörku sem tryggðu að lokum sætið í und- ankeppninni. „Ég er mjög sáttur með það hvernig við nálguðumst þetta verk- efni og við gerðum það sem við ætl- uðum okkur að gera. Auðvitað var annað tapið gegn Svartfjallalandi svekkjandi en við grétum það ekki lengi. Við mættum inn í klefa strax eftir leik og þá fór- um við strax að einbeita okkur að öðrum leiknum gegn Danmörku. Við litum alltaf á leikina tvo við Danmörku sem þá mikilvægustu þótt það hefði auðvitað verið gaman að vinna Svartfjallaland líka. Mér fannst við hins vegar spila þetta mjög skynsamlega því það stóð alltaf til að reyna að vera sem ferskastir gegn Dönunum,“ sagði Hörður Axel. Gríðarlega mikilvægir leikir Leiðin á HM 2023, sem fram fer í Indónesíu, Japan og Filippseyjum, er flókin en íslenska liðið er á réttri leið. „Þetta er mjög sérstakt fyr- irkomulag hjá FIBA en við erum komnir í undankeppnina og það skiptir öllu máli. Það er satt best að segja erfitt að átta sig á þessu fyr- irkomulagi og í raun mætir maður bara og spilar leikina. Þetta er al- gjör grautur en maður einbeitir sér bara að því að reyna ná í sem best úrslit þar sem allir leikir skipta máli varðandi styrkleikaflokka og annað. Að sama skapi er ég mjög bjart- sýnn fyrir framhaldið og þegar allir eru með erum við á pari við liðið árið 2015 sem var besta landslið sem við höfum átt. Það eiga margir leikmenn enn þá eftir að toppa sem eru góðar fréttir fyrir okkur. Við eigum að setja stefnuna á Eurobasket 2025 því það myndi gera mikið fyrir ís- lenskan körfubolta að komast þar inn,“ sagði Hörður í samtali við Morgunblaðið. 32 lið verða í pottinum þegar dregið verður í riðla fyrir und- ankeppni HM 2023 í lok ágústsmán- aðar og verður dregið í átta fjögurra liða riðla. Til stendur að leikið verði heima og að heiman, í þremur lands- leikjagluggum; lok nóvember 2021, lok febrúar 2022 og lok júní 2022. Þrjú lið fara áfram úr hverjum riðli og þá taka við hálfgerðir milli- riðlar þar sem stigin úr fyrri riðl- unum fylgja liðunum líkt og tíðkast á stórmótum í handbolta. Alls verða milliriðlarnir fjórir, skipaðir sex lið- um, og verður leikið í ágúst 2022, nóvember 2022 og febrúar 2023. Þrjú efstu sætin í milliriðlinum gefa svo sæti á HM 2023 sem fram fer í Indónesíu, Japan og á Filipps- eyjum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska liðið að komast áfram í milliriðla því sæti þar gefur íslenska liðinu einnig sæti í undankeppni Eurobasket 2025. Ef það tekst hins vegar ekki þarf liðið að fara í álíka forkeppni fyrir Eurobasket og það gerði fyrir HM 2023 og því ljóst að það er mikið undir í næstu keppnisleikjum lands- liðsins. Erfitt að átta sig á fyrirkomulaginu Ljósmynd/FIBA Sókn Hörður Axel og Sylvester Berg eigast við í leik Íslands og Danmerkur. - Karlalandsliðið í körfuknattleik er skrefi nær HM 2023 eftir góða ferð til Svartfjallalands Ég tók mjög áhugavert viðtal við Kristján Guðmundsson, þjálfara Stjörnunnar í úrvals- deild kvenna í knattspyrnu, eft- ir 0:2-tap liðsins gegn Þrótti úr Reykjavík á þriðjudaginn. Þar benti þjálfarinn á þá staðreynd að of margir góðir leikmenn hefðu yfirgefið deildina eftir síðasta sumar og gæðin væru því ekki þau sömu og áður. Það er ef til vill nóg að horfa til Íslandsmeistara Breiðabliks með ummæli Kristjáns til hlið- sjónar enda misstu Blikar fjóra algjöra lykilmenn á miðju síð- asta tímabili og eftir tímabilið. Liðið, sem fékk aðeins á sig þrjú mörk allt síðasta sumar og skoraði 66 mörk, endaði með 42 stig eftir fimmtán leiki. Á sama tíma í ár er liðið með 31 stig, 49 mörk skoruð og 22 fengin á sig. Það má þó ekki gleyma því að Þorsteinn Hall- dórsson lét af störfum til þess að taka við íslenska kvenna- landsliðinu og munar eflaust mest um brotthvarf hans. Annað lið sem lék mjög vel á síðustu leiktíð var Fylkir sem hafnaði í þriðja sæti deild- arinnar. Fylkir lauk keppni með 21 stig og markatöluna 22:29 eftir fimmtán spilaða leiki. Lið- ið missti tvo bestu leikmenn sína eftir tímabilið og situr í dag í fallsæti með 12 stig eftir fimmtán leiki, og markatöluna 13:30. Ef horft er til liðanna tíu í deildinni í ár er held ég alveg óhætt að segja sem svo að er- lendir leikmenn séu í mjög stórum hlutverkum í alla vega sex til sjö liðum. Það eru því örfá lið sem geta státað af því að vera ekki með erlendan leik- mann í lykilhlutverki. Það er auðvitað undir félög- unum komið að ákveða í hvaða átt þau vilja fara og þróast. Er markmiðið að búa til góða knattspyrnukonur eða ná í úr- slit? Það er klárlega markmiðið hjá flestum að gera hvort tveggja en það virðist ganga erfiðlega hjá mörgum. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Svíþjóð Bikarkeppnin: Vinslov - Kristianstad ......................... 28:27 - Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad. Guif - Rimbo ......................................... 42:25 - Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr- ir Guif og Daníel Freyr Ágústsson varði mark liðsins. Västerås Irsta - Skövde ...................... 31:32 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 7 mörk fyrir Skövde. Heid - Lugi............................................ 28:40 - Ásdís Þóra Ágústsdóttir lék ekki með Lugi vegna meiðsla. E(;R&:=/D Forkeppni HM Svartfjallaland – Danmörk.................. 79:67 Lokastaðan: Svartfjallaland 3 3 0 244:217 8 Ísland 4 2 2 329:308 6 Danmörk 3 0 3 211:259 4 >73G,&:=/D Knattspyrna 1. deild karla, Lengjudeildin: Grindavík: Grindavík – Þróttur R............ 18 Vivaldivöllur: Grótta – Kórdrengir..... 19.15 Framvöllur: Fram – Selfoss ................ 19.15 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Meistaravellir: KR – Víkingur R. ............ 18 Kópavogur: Augnablik – Afturelding...... 18 Kaplakrikavöllur: FH – HK ..................... 18 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.