Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Qupperneq 17

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Qupperneq 17
Miðar hægt ILGA-Europe, samband hinsegin fólks í Evrópu og Mið-Asíu, gefur út Regnbogakort á ári hverju. Á bakvið kortið liggur mikil greiningarvinna við að greina réttarstöðu hinsegin fólks í hverju landi beggja álfanna. Samtökin ’78, Trans Ísland og Intersex Ísland aðstoða ILGA- Europe við gagnaöflun íslenska kaflans, en samhliða kortinu er gefin út ítarleg skýrsla um stöðuna, hvað megi betur fara og hvert ætti að stefna. Hvar stöndum við nú? Regnbogakortið er uppfært í maí ár hvert. Í maí 2021 fékk Ísland 52%, sem þýðir að 52% af lagalegum skilyrðum sem ILGA-Europe setur upp eru uppfyllt á Íslandi. Árið 2017 var Ísland með 47% og því höfum við bætt við okkur um eina prósentu á ári, sem er mun hægari gangur en æskilegt er. Enn er Ísland neðst á meðal Norðurlandanna þó að munurinn hafi minnkað síðustu ár. Sú bætta staða sem orðið hefur á Íslandi má að flestu leyti rekja til laga um kynrænt sjálfræði. Markmið þeirra laga er að tryggja rétt einstaklinga til þess að skilgreina kyn sitt og miða þannig að því að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar. Einnig er lögunum ætlað að standa vörð um rétt einstaklinga til líkamlegrar friðhelgi. Því miður ná lögin þó ekki að vernda allt intersex fólk, og því fær Ísland ekki einkunn fyrir það atriði. Öll atriði er hægt að sjá á heimasíðu Regnbogakortsins, rainbow-europe.org (á ensku) og á heimasíðu Samtakanna ’78, samtokin78.is (á íslensku). Stefnum fram á við Það er nóg eftir í hinsegin baráttunni og möguleikar til umbóta margir. Hér skulum við þó aðeins skoða þau atriði sem Regnbogakort ILGA-Europe tekur á og hver staðan í þeim málum er á Texti: Daníel E. Arnarsson, hann, 31 árs Íslandi. Listinn er alls ekki tæmandi en Samtökin ’78 vinna nú að skýrslu þar sem Regnbogakortið allt er greint með tilliti til þess sem mögulegt er að bæta á allra næstu misserum. Stjórnarskrá Íslands Þessi punktur snýr að mismununarkafla stjórnarskrár. Til að uppfylla skilyrði ILGA- Europe þá þarf að uppfylla að minnsta kosti eitt eftirfarandi atriða: - Að í stjórnarskrá sé grein gegn mismunun þar sem sérstaklega er tekið fram að ekki megi mismuna á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar eða kyneinkenna. - Að stjórnarskrá innihaldi almenna eða tvíræða grein gegn mismunun, en skilningur greinarinnar er sá að mismunun vegna kynhneigðar, kynvitundar eða kyneinkenna er bönnuð með greininni. Þetta verður að rökstyðja t.d. með gögnum úr undirbúningsvinnu stjórnarskrár, löggjafarsögu, lögskýringargögnum, með greinargerð eða dómaframkvæmd. - Að stjórnarskráin banni óbeint mismunun vegna kynhneigðar, kynvitundar eða kyneinkenna, t.d. með því að lýsa yfir að Mannréttindasáttmáli Evrópu sé hluti af stjórnarskránni eða hafi aðra stjórnskipulega stöðu (t.d. með yfirlýsingum stjórnvalda). Á Íslandi eru teknar fyrir nokkrar mismununarbreytur en engin þeirra snýr að kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Eins er engin tvíræð grein gegn mismunun sem hægt er að rökstyðja með lögskýringargögnum, að t.d. 65. gr. stjórnarskrárinnar skuli ná yfir mismununarbreytur er tengjast hinseginleikanum þar sem upptalning á mismununarbreytum er skýr, þ.e.: „… kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Meðferð gegn hinseginleika (conversion therapy) Meðferð við hinseginleika (e. conversion therapy) á sér nokkrar birtingarmyndir en þær tengjast því að hinsegin fólk er bælt eða því haldið niðri, jafnvel pyntað eða beitt ofbeldi í þeim tilgangi að það „hætti að vera hinsegin“. Þekktasta dæmið um þetta er „afhommun“ Gunnars í Krossinum sem bæði hann og Snorri í Betel töluðu reglulega um eða vísuðu til upp úr aldamótum. Skilyrði ILGA-Europe til að uppfylla þetta atriði nær til löggjafar og/eða stefnu sem bannar meðferð sem byggir á þeirri forsendu að kynhneigð sé geðröskun eða annars konar röskun sem hægt sé að lækna eða fjarlægja. Á Íslandi eru engin lög sem fjalla beint um þetta atriði. Þó má færa rök fyrir því að hægt væri að gera lagabreytingu á læknalögum, nr. 53/1988, en hættan er sú að þau verði þá óþarflega sértæk á nákvæmlega þessu sviði. Maltneska þingið fór þá leið að setja heildarlög um hinsegin fólk, að intersexfólki undanskildu. Í þessum lögum er til dæmis bann við þessum meðferðum mjög skýrt (Affirmation Of Sexual Orientation, Gender Identity and Gender Expression Act, nr. 567). Blóðgjafir Þessi punktur nær til þess þegar ekki er bannað með lögum, reglugerð eða stjórnsýsluákvæði að gefa blóð eða hvers konar líkamsvef á grundvelli kynhneigðar 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.