Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Side 24
Forsíðukeppni tímarits
Hinsegin daga
Í ár héldu Hinsegin dagar í fyrsta sinn
samkeppni um forsíðu tímaritsins,
en sigurtillagan prýðir einmitt þetta
blað sem nú liggur á víð og dreif á
biðstofum, kaffihúsum og hinum ýmsu
verslunum um land allt. Markmiðið
með keppninni var að skapa vettvang
fyrir hinsegin listafólk og þeirra list. Alls
bárust keppninni 32 tillögur og má með
sanni segja að dómnefnd hafi verið sett
krefjandi verkefni að velja aðeins eina af
þeim fjölmörgu spennandi tillögum sem
bárust.
Dómnefnd var skipuð þeim David
Terrazas, yfirhönnuði hátíðar og tímarits,
Ásgeiri Helga Magnússyni, formanni
Hinsegin daga, og Sigtý Ægi Kárasyni,
hinsegin myndskreyti og hönnuði, en
Sigtýr sá um hönnun forsíðunnar 2020.
Til þess að gæta allrar sanngirni í vali
var verkum sem bárust í keppnina
skilað til dómnefndar undir nafnleynd.
Vinningstillagan hlaut verðlaun upp
á 100.000 krónur og var niðurstaða
dómnefndar kynnt í Máli og menningu
við lúðraþyt og lófatak þann 27. júní
síðastliðinn. Við fengum að forvitnast
aðeins um sigurvegara keppninnar.
Nafn, fornafn, aldur
Catherine Soffía Guðnadóttir, she/her,
23 ára
Ég er fædd og uppalin á Akranesi og
bý þar enn. Í barnaskóla var uppáhalds
greinin mín myndlist. Þegar ég fór svo
í fjölbraut var ekki boðið upp á neinar
listgreinar þannig að ég einbeitti mér að
tungumálum.
Ég útskrifast árið 2017 sem stúdent úr
Fjölbrautaskóla Vesturlands. Eftir það var
ég á krossgötum í lífinu og ætlaði í allt
aðra átt en í dag. Ég hélt í langan tíma
að ég gæti aldrei þénað af áhugamálinu
mínu sem er listin, svo kynnist ég
Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið á Akranesi
fyrir tilviljun. Hún ásamt fjölskyldu minni
segja mér að þetta sé tilgangur minn; að
skapa.
Stuðningur þeirra gerði mér kleift
að þreyta inntökupróf í fornám við
Myndlistaskólann í Reykjavík, þar sem ég
byrja í námi í haust.
Hvaða þýðingu hefur hinseginleikinn fyrir
þér?
Þegar ég hugsa um hinsegin dettur mér
svo margt í hug. Að sjálfsögðu er það
fyrst og fremst regnhlífarhugtak yfir svo
marga, heilu samfélögin af fólki sem hafa
loksins fundið sitt pláss í heiminum.
Fyrir mér er hinsegin besta uppgötvun lífs
míns, bein tenging við allt það góða í lífi
mínu. Ég glímdi lengi við mína andlegu
heilsu og fann svo að eigin óhamingja
átti beinar rætur að rekja til þröngsýni
og innri fordóma. Hinseginleiki kemur
umræðu af stað. Umræðu sem þörf er
á. Hinsegin fólk kann að hafa hátt og
er óhrætt. Þegar ég hugsa um hinsegin
hugsa ég líka um það hversu margir
sterkir hinsegin/kynsegin brautryðjendur
komu á undan mér og gerðu fólki eins og
mér kleift að vera ég sjálf.
Hvað býr að baki forsíðumyndinni?
Það sem býr að baki forsíðumyndarinnar
er að sjálfsögðu þema hátíðarinnar í ár;
Hinsegin á öllum aldri. Ég ákvað að blanda
þemanu við mína eigin hinsegin reynslu.
Það sem sést fyrir miðju myndarinnar
er eldri kona að labba með yngri stelpu.
Þetta á sem sagt að vera eldri ég og yngri
ég. Sú eldri er að fræða þá yngri um allt
það sem hún hefur komist að í lífinu.
Yngri er þröngsýn, lærir í skólanum ljót
og niðrandi orð um hinsegin fólk og kann
illa við aðra sem eru öðruvísi.
Þær ganga saman Skólavörðustíginn á
regnbogagötunni og sú eldri er að fræða
þá yngri um alla fánana og um það hvaða
fánar tilheyra hverjum.
Ég myndi segja að þær eigi gott spjall um
lífið, tali um alla erfiðleikana; að þvinga
sig til að vera „eðlileg“, skilja ekki sjálfa sig
og eiga hvergi stað í heiminum.
En líka um það góða; að kynnast nýjum
heimi í miðju samkomubanni, aflæra
allt það sem maður hélt og koma út úr
skápnum 23 ára sem samkynhneigð, eftir
erfiða og langa baráttu.
Hvernig var myndin unnin?
Myndin er unnin á skemmtilegan hátt.
Ég lærði aðeins að mála á þessu ári á
kvöldnámskeiði hjá Myndlistaskólanum
í Reykjavík. Þar kynntist ég vatnslitum
og féll algjörlega fyrir þeim. Þegar ég sá
forsíðukeppnina auglýsta á Instagram
voru tveir dagar til stefnu og ég ákvað þá
að kýla á þetta. Ég vissi strax hvað ég vildi
gera. Útfærslan var fljót að smella saman
hjá mér; ég vildi sýna sögu mína á litríkan
hátt ásamt því að sýna fjölbreytileika
hinsegin fólks og nýtti mér vatnslitina til
þess.
Ég fór til Reykjavíkur og stillti mömmu
minni og ömmu upp á Skólavörðustíg
og smellti mynd af þeim. Fór svo heim
og byrjaði strax að teikna, ég vildi hafa
alla fánana til staðar og teiknaði þá inn
líka. Eftir það málaði ég myndina og
hætti ekki fyrr en ég var sátt. Fannst
svo eitthvað vanta upp á þegar ég var
búin að mála allt saman og bætti við
regnboganum á síðustu stundu!
Hvaða þýðingu hafði það fyrir þig að
vinna forsíðukeppnina?
Þegar ég frétti að ég hefði unnið
forsíðukeppnina var ég í skýjunum! Þetta
staðfesti fyrir mig að ég gæti gert erfiða
og krefjandi hluti, ég gæti notað eitthvað
sem ég lærði fyrr á árinu og nýtt það í
verk sem mér þykir svo vænt um og segir
sögu mína og annarra. Þetta sýndi mér
líka að aðrir sjá hvað býr innra með mér,
og trú dómnefndarinnar á verki mínu
skilaði mér þessum sigri.
Við verðlaunaafhendinguna hélt ég að ég
myndi loksins trúa því að þetta hafi allt
saman gerst, en mér finnst þetta ennþá
svo ótrúlegt! Ég get hreinlega ekki beðið
eftir að sjá verkið mitt og þessa sögu
mína prýða forsíðu tímaritsins.
Hver eru næstu skref hjá þér?
Næstu skref hjá mér eru mjög spennandi.
Nokkrum tímum eftir gleðigönguna
þann 7. ágúst stíg ég upp í flugvél og
held til Ítalíu á námskeið í marmarahöggi.
Ég mun dvelja þar í þrjár vikur og kem
svo beint heim til þess að hefja nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík, í fornáminu
þar. Hver veit hvað gerist svo!
Texti: Símon O. Símonarson, hann, 47 ára