Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Side 69
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur?
Katrín Oddsdóttir, hún, 43 ára.
Hver er þín fyrsta hinsegin minning?
Þegar ég var svona 10-11 ára vildi vinkona mín stundum fara í
hlutverkaleiki þar sem hún var gaurinn og ég konan hennar. Þetta eru
mjög kómískar minningar og ég var hálf týnd alltaf í þessum leik man
ég, en hún stjórnaði ferðinni af miklu öryggi. Það fyndna er að þessi
kona lifir mjög heterónormatívu lífi í dag (að því ég best veit) en ég
hef hins vegar verið að lessast samviskusamlega síðustu áratugi.
Hver er þín helsta hinsegin fyrirmynd?
Allar þær manneskjur sem gengu á undan og þorðu að koma út og
berjast fyrir réttindum okkar hinsegin fólks á meðan fordómarnir voru
í hámarki í samfélaginu. Við eigum þessu fólki ótrúlega mikið að þakka
og ég vil senda þeim öllum ástarkveðju hér með: „Takk elsku vinir, ég
dýrka ykkur öll með tölu!“
Hvað gleymdist að segja þér þegar þú varst ungmenni?
Kannski gleymdist að segja mér að strákar gætu verið með píku og
stelpur með typpi en ég held að við höfum ekki verið komin svo
langt sem samfélag þegar ég var lítil. Ég er annars mjög heppin með
fjölskyldu. Þurfti til dæmis aldrei að koma út úr skápnum því mamma
spurði mig alltaf: „Áttu kærasta... en kærustu?“ Svo einn daginn svaraði
ég bara síðari spurningunni játandi og það varð aldrei neitt nema
gleði og ást frá mínu fólki með það. Ég er mjög þakklát fyrir þennan
stuðning fjölskyldu minnar.
Hvernig myndir þú vilja hafa elliheimilið?
Ég er þegar komin af stað í mjög mikla skipulagsvinnu um það
mál. Ég og vinkona mín ætlum að sölsa undir okkur einhvers konar
húsnæði og verða gamlar og glamorous þar saman. Við verðum
með bar, leikjaherbergi, karókísal og sundlaug svo eitthvað sé nefnt.
Mikil áhersla verður lögð á dagskrárliði eins og „leynigesturinn“,
morðgátuleiki, kvöldvökur og improv. Áhugasöm geta sent umsóknir
og þeim verður svarað samviskusamlega eftir tvo til þrjá áratugi.
GÓÐA
SKEMMTUN!
HAPPY HOUR 15-18
saetasvinid.is