Morgunblaðið - 02.09.2021, Page 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
ÞAÐ ER LANDSBANKI
NÝRRA TÍMA
Fyrirtækið þitt getur stofnað
til viðskipta á örfáum mínútum
í Landsbankaappinu. Þannig
færðu strax betri yfirsýn yfir fjár-
mál fyrirtækisins og reksturinn,
hvar sem þú ert.
Það tekur örfáar
mínútur að koma
í viðskipti í appinu
LANDSBANKINN. IS
Hafsteinn og Karitas
Eigendur HAF Studio
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þar sem tveir ólíkir gítarleikarar
koma saman þarf að finna milliveg
og vinna með hann. Við reynum að
gera það í þessu spili okkar. Svo er
að hafa þetta skemmtilegt, það er
mikilvægt,“ segir Reynir Hauksson
sem stuðlað hefur að útbreiðslu
flamenkó hér á landi. Hann og Björn
Thoroddsen halda saman gítar-
tónleika í kvöld, í virðingarskyni við
gítarinn, þar sem þeir fara yfir
helstu gítarslagara úr rokki, djassi
og flamenkó.
Reynir og Björn eru ekki beint á
sömu línu í tónlistinni. Reynir hefur
sérhæft sig í flamenkó og Björn er
þekktur fyrir djassgítarleik þótt
báðir séu þeir fjölhæfir. „Við eigum
kassagítarinn sameiginlegan. Björn
leikur mikið á kassagítar og kassa-
gítarinn er mínar ær og kýr,“ segir
Reynir.
Þeir eru komnir með lagalista og
þar kennir ýmissa grasa, ekki síst
flamenkó, djass og rokk. „Gítarinn
er magnað hljóðfæri, heill heimur út
af fyrir sig. Við erum að reyna að
gera þessum mikla heimi skil á ein-
um tónleikum. Það er von á kraft-
miklum tónleikum,“ segir Reynir.
Kynnir flamenkó á Íslandi
Reynir hóf fyrir þremur árum að
kynna flamenkótónlist og -dans hér
á landi. Í sumar fór hann með hljóm-
sveit og dansara og hélt tónleika á
átta stöðum á landinu og einnig
dansnámskeið í Reykjavík. Hann
segir að mæting á tónleikana og
námskeiðið hafi verið framar björt-
ustu vonum. Fullt hús hafi verið á
sumum tónleikunum en færri á öðr-
um. Einn karlmaður var í hópi 23
kvenna sem sóttu námskeiðið og
segir Reynir ánægjulegt að hann
hafi staðið við skráningu sína þótt
hann væri einn.
Tónleikar gítarleikaranna verða í
Máli og menningu á Laugavegi 18 í
kvöld, fimmtudag, og verður húsið
opnað klukkan 20.
Þarf að finna milliveg til að vinna með
- Björn Thoroddsen og Reynir Hauksson halda tónleika til heiðurs gítarnum
- Koma úr ólíkum geirum og bræða saman dagskrá úr djassi, flamenkó og rokki
Morgunblaðið/Eggert
Æfing Björn Thoroddsen og Reynir Hauksson stilla saman strengi sína í skúrnum hjá Birni í Hafnarfirði.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Samningar um rekstur hjúkrunar-
heimilisins Ísafoldar í Garðabæ
hanga nú í lausu lofti eftir að sjó-
mannadagsráð og Hrafnista sögðu
upp samstarfssamningum sínum og
Garðabæjar um rekstur heimilisins.
Heilbrigðisráðuneytið hefur falið
Sjúkratryggingum Íslands að semja
við nýjan aðila um reksturinn en
stefnt er að því að félagið Vigdís-
arholt ehf. taki yfir reksturinn um
næstu áramót, að því er greint frá í
bréfi frá Sjúkratryggingum Íslands
sem stílað var á formann sjó-
mannadagsráðs, forstjóra Hrafnistu
og bæjarstjóra Garðabæjar, 17.
ágúst sl.
Inntur eftir viðbrögðum segir
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, breytingar á rekstri
hjúkrunarheimilisins vera fagnaðar-
efni.
„Við erum auðvitað bara ánægð
með það að vera ekki lengur með
þennan rekstur enda búin að berjast
fyrir því í sex eða sjö ár,“ segir hann.
„Við reyndum þetta með fyrrverandi
heilbrigðisráðherra í mörg ár en það
fékkst ekki í gegn og kostaði okkur
700 milljónir.“
Þá segist hann vona að stjórnvöld
fari nú að „hysja upp um sig bux-
urnar“ þegar kemur að málefnum
hjúkrunarheimila í landinu.
Semja um
rekstur
Ísafoldar
- Bæjarstjóri segist
fagna breytingunum