Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 22

Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 22
sem mestu í þessari viku og vonast til að ljúka uppskerustörfum fyrir aðra helgi. Þeir félagar gætu farið hraðar í uppskerustörfin en þurrk- unin ræður för. Venjulega hefur Hermann ekkert farið að huga að hálminum fyrr en langt er liðið á haust en núna getur hann rúllað fáum dögum eftir þreskingu. Hálm- urinn er vel þurr og sunnan blást- urinn lýkur verkinu á stuttum tíma. „Það er mjög gaman að eiga við þetta þegar veðrið leikur svona við okkur,“ segir Ari B. Hilmarsson, kornbóndi sem rekur þurrkstöð á Þverá í Eyjafjarðarsveit. Hann kveðst vera kominn vel á veg með þreskingu á eigin ökrum og upp- skeran líti vel út. Sýnist honum að magnið geti verið um 5 tonn á hekt- ara, það sem af er. Hann setur kornið í stórsekki og uppskeran hjá honum var 3,5 tonn eftir hektara á síðasta ári og telur að uppskeran síðustu fimm ár rétt hangi í þremur tonnum. Uppskeran í ár er með því mesta sem hér hefur sést. Hermann er þó feiminn við að ræða um Íslandsmet, segir erfitt að fá upplýsingar um það. Hann leyfir sér þó að segja að afburðagóð fyll- ing í korninu geri rúmþyngdina í uppskerunni nú líklega að Íslands- meti. Nú eru 730 kg í rúmmetra af korni af hans ökrum en í góðum ár- um fari það ekki yfir 600 kíló. Hermann þurrkar kornið á Hjalteyri í félagi við Jón Elvar Hjörleifsson á Hrafnagili og leggur það inn í Bústólpa. „Þeir segjast ekki fá svona gott korn, ekki einu sinni frá útlöndum,“ segir Her- mann Ingi. Hermann er að keppast við að ná fyllingin er svo góð að sekkir sem venjulega vega 750 kíló vega nú 950 kg. Munar þar 200 kílóum. Eyfirsk- ir bændur nota mest sexraðabygg og fá því iðulega meiri uppskeru í góðum árum en sunnlenskir bænd- ur sem nota tvíraðabygg en kornið er þó viðkvæmara fyrir veðrum. Kornrækt hefur heldur verið að aukast í Eyjafirði og eru bændur almennt farnir að huga að þresk- ingu. Ari á von á því að eftir svona ár fjölgi þeim enn frekar og aðrir bæti við sig. Bíða eftir þurrki Bessi Freyr Vésteinsson, korn- bóndi í Hofsstaðaseli í Skagafirði, hefur sömu sögu að segja og Ey- firðingar. Segir að kornið líti ein- staklega vel út, uppskeran verði mikil að gæðum og magni. Hann er byrjaður að huga að þreskingu enda haustið að nálgast. „Ég verð þó ekki rólegur strax. Haustveður geta höggvið skörð í uppskeruna,“ segir Bessi. Björgvin Þór Harðarson, svína- bóndi í Laxárdal, sem er með mikla kornakra í Gunnarsholti, segir að kornið sé ekki tilbúið ennþá enda vilji hann hafa það vel þroskað. Ekki er heldur hægt að hefja uppskerustörf á Suðurlandi vegna rigninga. Björgvin telur líklegt að hann geti hafið þreskingu eftir 20. september. „Uppskeruhorfur hafa stór- batnað, miðað við það sem var í vor. Kornið er orðið nokkuð þétt og gott og í raun og veru hefur það náð sér á strik en þó ekki að öllu leyti. Ég er bjartsýnn á að fá ríflega meðal- uppskeru,“ segir Björgvin Þór. Lakara en í fyrra Ragnar Lárusson, bóndi í Stóra- Dal í Vestur-Eyjafjallasveit, segir að kornið líti ágætlega út þar um slóðir. Sjálfur ræktar hann korn á 10 hekturum lands. Segir að kornið sé ekki alveg tilbúið en það styttist í það. „Það er seinna á ferðinni en í fyrra og nær ekki sama þroska og þá. Mjög góð skilyrði voru til rækt- unar síðasta sumar, alveg frá sán- ingu og fram eftir öllu sumri enda var metuppskera,“ segir Ragnar. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Kornþresking Tvær þreskivélar að störfum á akri Jóns Elvars Hjörleifssonar, bónda á Hrafnagili. Neðst sést til gamla húsmæðraskólans og grunnskólans á Laugalandi. Uppskera er lyginni líkust - Lítur út fyrir að kornuppskera í Eyjafirði og víðar norðanlands verði tvöfalt meiri en í meðalári - Mikil fylling gerir rúmþyngd kornsins að Íslandsmeti - Uppskera á Suðurlandi lakari en í fyrra 22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Laxárdalsbændur hafa verið að prófa ýmsa ræktun á ökrunum í Gunn- arsholti, til viðbótar aðalræktuninni sem er bygg og hveiti sem notað er í fóður fyrir svínin. Björgvin Þór Harðarson sáði kúmeni í sumar og segir að árangurinn komi í ljós á næsta ári. Hann telur fullreynt með bónda- baunir, segir of kalt fyrir þá ræktun. Hann sáði fyrir sinnepi í fyrra í sam- vinnu við býflugnabændur í Fljótshlíð en það náði ekki að þroskast. Þau ætla að reyna aftur með betra yrki. Búið er að sá vetrarhveiti fyrir næsta ár og það lítur vel út. Sömuleiðis ræktun á nepju. Þá er hann að reyna fyrir sér með ræktun á hampi, eins og margir fleiri en áhugi á þeirri ræktun hefur farið vaxandi. Vonast hann til að geta not- að hampinn til að verjast ágangi álfta á kornakrana. Hampurinn er kom- inn í einn og hálfan metra og lítur þokkalega út. Þegar þornar verða blómin klippt af og notuð í te, olíur og ýmsar afurðir. Hægt er að nota stönglana í iðnaðarvörur. „Ræktunin virðist ganga en það vantar að skoða til enda útfærsluna á vinnslu stönglanna. Erlendis eru akrarnir slegnir og uppskerunni rúllað. Svo taka aðrir við og vinna úr þessu. Slíkt kerfi er ekki til hér. Þetta er verkefni fyrir einhverja áhugasama,“ segir Björgvin. Vinnsla hampstönglanna er verkefni fyrir áhugasama TILRAUNIR MEÐ RÆKTUN ÝMISSA JURTA Kornbóndi Hermann Ingi Gunnarsson kannar gæði kornsins. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Uppskeran er með ólíkindum. Við byrjuðum að þreskja mánuði fyrr en á síðasta ári. Þroski kornsins og uppskera er lyginni líkast,“ segir Hermann Ingi Gunnarsson, bóndi á Klauf í Eyjafjarðarsveit, um kornuppskeruna. Hann getur þess að uppskeran af þeim 8-9 hekt- urum sem hann var búinn að þreskja þegar rætt var við hann sé meiri en af öllum 25 hekturunum á síðasta ári og kornið miklu betra. Hitinn í júlí og ágúst er vitaskuld skýringin á góðri kornuppskeru á Norður- og Austurlandi. Korn- bændur eru almennt að hefja korn- slátt. Hins vegar bíða bændur á Suður- og Vesturlandi eftir betra veðri og meiri þroska. Bændur þar eru bjartsýnir á þokkalega upp- skeru en varasamt er að ræða um tölur í því efni fyrr en kornið er komið í hlöðu. Plantan nýtti sólskinið „Það leit ekki vel út með kornið í vor og fram í júní. Við sáðum snemma og þar sem mikill raki var í jörðu spíraði fræið fljótt þótt kalt væri. Það var stillt veður og sól og logn. Kornið var komið upp um miðjan júní. Svo gerðist allt á einni eða tveimur vikum um mánaða- mótin júní og júlí og kornið var allt skriðið fyrstu vikuna í júlí,“ segir Hermann og getur þess að það ger- ist venjulega ekki fyrr en um miðj- an júlí. Kornið nýtti vel norðlensku sólina í sumar og Hermann segir að það hafi náð fullum þroska snemma í ágúst. Uppskeran er eftir því. Meðal- talið af því sem búið er að þreskja hjá Hermanni er 6,5 tonn á hektara og af einum akrinum komu 8 tonn. Til samanburðar má geta þess að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.