Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Önnur þeirra er mun sterkari, A týpan, og hentar á erfiðum botni. Sú er framleidd af pólsku ríkisfyrirtæki sem sérhæfir sig í hergagnavinnslu. Hún er vinstra megin á mynd. Hún vigtar á landi 66 kg en ryður frá sér 58 lítrum þannig að í sjó er hún 8 kg. Málin eru: Þvermál 64,5 cm og þykkt 18 cm. Sú hægra megin, B týpan, er betur fallin til bobbingasmíði. Hann er ódýrari enda ekki sami styrkleiki. Málin á honum eru: Landþyngd 78 kg, ryður frá sér 55 lítrum þannig að í sjó vigtar hann 23 kg. Hann er 60 cm í þvermál og þykkt 19,6 cm. Hægt er að framleiða hvað stærðir, þykktir og þyngdir sem er en slíkt er ekki á lager. Útgerðarmenn, netagerðamenn og skipstjórar Höfum til taks tvær gerðir Rock-hoppara A & B S. 898-5463 „Þetta er það sem koma skal“ Snorri Snorrason, skipstjóri á Pálínu Þórunni, en hann hefur verið að nota A týpuna að undanförnu. Afurðaverð á markaði 31. ágúst 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 495,96 Þorskur, slægður 548,91 Ýsa, óslægð 313,93 Ýsa, slægð 322,92 Ufsi, óslægður 122,20 Ufsi, slægður 217,07 Gullkarfi 205,02 Blálanga, slægð 255,68 Langa, óslægð 221,60 Langa, slægð 262,45 Keila, óslægð 107,88 Keila, slægð 74,42 Steinbítur, óslægður 179,45 Steinbítur, slægður 268,58 Skötuselur, óslægður 304,00 Skötuselur, slægður 727,66 Grálúða, slægð 362,65 Skarkoli, óslægður 319,00 Skarkoli, slægður 387,92 Þykkvalúra, slægð 417,59 Langlúra, óslægð 240,81 Langlúra, slægð 221,46 Sandkoli, slægður 130,00 Gellur 1.144,65 Hámeri, óslægður 19,00 Hlýri, óslægður 274,32 Hlýri, slægður 182,49 Lúða, slægð 489,89 Lýsa, óslægð 177,44 Lýsa, slægð 158,31 Skata, slægð 35,61 Stóra brosma, slægð 68,00 Stórkjafta, slægð 180,23 Tindaskata, óslægð 4,55 Undirmálsýsa, óslægð 203,24 Undirmálsýsa, slægð 147,00 Undirmálsþorskur, óslægður 213,55 Undirmálsþorskur, slægður 230,24 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Sjávarútvegurinn hefur mjög mikla þýðingu fyrir atvinnulífið á landinu austanverðu ef marka má tölur Fiski- stofu yfir landaðan afla á fiskveiðiárinu 2020/2021, sem lauk sl. þriðjudag. Langmestum afla var landað á Aust- fjörðum og vegur uppsjávaraflinn þungt. Meðal 20 aflamestu löndunarhafna landsins má nefna Neskaupstað, Eski- fjörð, Vopnafjörð, Fáskrúðsfjörð, Þórshöfn og Seyðisfjörð. Samanlagt lönduðu skip 40% af afla Íslendinga í þessum höfnum. Þá var tæplega 73% af öllum uppsjávarafla landað í þessum höfnum og aðeins rúmum 7% af botn- fiskafla. Mesta afla var landað í Neskaup- stað. Þar var alls landað 155 þúsund tonnum, þar af voru rúmlega 139 þús- und tonn af uppsjávarfiski og 16 þús- und tonn af botnfiski. Næst á eftir fylgja Vestmannaeyjar þar sem land- að var 119 þúsund tonnum, þar af 78,5 þúsund tonnum af uppsjávarfiski og tæplega 39,5 þúsund tonnum af botn- fiski. Í 20. sæti er Akureyri en þar var landað 14.619 tonnum af fiski á fisk- veiðiárinu. Vekur athygli í tölum Fiski- stofu að raunar ættu Reykhólar á Vestfjörðum að fá sæti Akureyringa þar sem landað var 15.102 tonnum, en sá afli er nánast allur klóþang og að- eins af hrossaþara. Grindavík stærst í þorski Undirstaða íslensks sjávarútvegs hefur verið þorskurinn allt frá land- námi og var mestum þorskafla landað í Grindavíkurhöfn á fiskveiðiárinu 2020/ 2021 eða 27.687 tonnum. Þar á eftir er Siglufjörður með 24.800 tonn, svo Reykjavík með 21.805 tonn, Sauðár- krókur er síðan í fjórða sæta með 17.090 tonn og Vestmananeyjar í fimmta með 15.138 tonn af þorski. Meðal þeirra 20 hafna þar sem mestum afla var landað var landað minnst af þorski á Þórshöfn eða 1.468 tonnum en næstminnst í Vopnafirði, 14.72 tonnum. Þá var mest af ýsu landað í Vest- mannaeyjum og næstmest í Grinda- vík. Miklar vonir voru bundnar við loðnuvertíðina og var mest landað af loðnu í Vestmannaeyjum. Raðast þrjár hafnir á Austfjörðum á eftir og koma svo Hornfirðingar með fimmta mesta landaða magn af loðnu eða 5.375 tonn. Mest landað í Neskaupstað - Um 40% af öllum afla landað á Austfjörðum á fiskveiðiárinu 2020/2021 og 73% af uppsjávarafla - Mest var landað af þorski í Grindavík og ýsu í Vestmannaeyjum Landað magn í tonnum eftir höfnum fiskveiðiárið 2020/2021 Röð hafna eftir heildarmagni landaðs afla, tonn Botnfiskur Uppsjávarfiskur Skel/ krabbadýr Aðrar tegundir 20 stærstu hafnirnar samtalsLöndunarhöfn Þorskur Ýsa Ufsi Aðrar teg. Samtals Síld Loðna Kolmunni Makríll Samtals 1 Neskaupstaður 8.872 1.906 1.484 3.801 16.063 35.681 15.894 50.618 37.107 139.300 417 155.780 2 Vestmannaeyjar 15.138 7.578 7.333 9.400 39.449 12.484 22.130 22.605 21.328 78.547 26 1.226 119.248 3 Eskifjörður 2.275 527 151 360 3.313 12.723 9.258 41.638 20.953 84.572 179 88.064 4 Vopnafjörður 1.472 93 18 223 1.806 13.083 5.599 44.828 14.873 78.383 236 80.425 5 Reykjavík 21.805 4.986 13.178 25.973 65.942 3.426 2.036 4 5.466 21 386 71.815 6 Grindavík 27.687 6.203 5.806 11.130 50.826 476 51.302 7 Hornafjörður 9.094 1.480 1.126 1.064 12.764 13.588 5.375 83 9.367 28.413 54 270 41.501 8 Fáskrúðsfjörður 2.702 582 1.015 944 5.243 4.099 2.877 20.363 5.825 33.164 225 38.632 9 Siglufjörður 24.800 2.860 1.333 2.458 31.451 2.636 542 34.629 10 Þórshöfn 1.468 133 197 226 2.024 19.223 158 10.891 30.272 47 32.343 11 Sauðárkrókur 17.090 3.086 3.332 3.923 27.431 104 417 27.952 12 Seyðisfjörður 3.641 1.080 1.023 461 6.205 14 19.884 15 19.913 11 26.129 13 Ísafjörður 11.000 2.214 2.295 4.037 19.546 769 33 20.348 14 Þorlákshöfn 9.368 2.523 4.208 4.011 20.110 27 132 20.269 15 Grundarfjörður 8.725 2.418 2.036 6.175 19.354 216 237 19.807 16 Rif 14.246 2.308 389 2.451 19.394 55 19.449 17 Bolungarvík 11.730 2.510 1.236 3.286 18.762 182 18.944 18 Dalvík 12.772 1.608 1.005 1.049 16.434 15 180 16.629 19 Hafnarfjörður 6.098 2.254 3.432 3.552 15.336 649 649 326 16.311 20 Akureyri 9.564 994 674 3.362 14.594 25 14.619 Landið allt 274.809 58.601 54.692 98.392 486.494 124.396 70.726 210.605 125.476 531.203 4.321 28.804 1.050.822 Heimild: Fiskistofa Gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Haganes í Arnarfirði uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og barst Matvælastofnun tilkynning þess efnis á mánudag, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stofnunar- innar. Um 120 þúsund laxar að meðal- stærð 0,8 kíló voru í umræddri kví og er ekki vitað hvort laxar hafa strokið úr kvínni að svo stöddu. Gat- ið var á tveggja metra dýpi og um það bil tveir sinnum tveir metrar að stærð. Síðasta neðansjávareftirlit var framkvæmt 31. júlí og var nótar- pokinn þá heill. „Eftirlitsmaður Matvælastofnun- ar hefur skoðað aðstæður og við- brögð fyrirtækisins og er atvikið til meðferðar hjá stofnuninni,“ segir í tilkynningunni. Þá lagði Arnarlax út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hefði átt sér stað. „Netanna var vitjað síðdegis á mánudag og þriðjudag. Á mánudag komu tveir fiskar í netin sem reynd- ust að öllum líkindum sjóbirtingar og á þriðjudag veiddist einn lax sem var rúm 2 kg. Fiskarnir verða sendir til Hafrannsóknastofnunar til grein- ingar.“ gso@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Strandnytjar Ekki er vitað til þess að lax hafi strokið úr sjókvínni. Gat á sjókví með 120 þúsund laxa - Málinu lokið af hálfu Fiskistofu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.