Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 34

Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 34
Jákvæð áhrif samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs S tuttu eftir að ég tók til starfa sem mennta- og menningarmálaráð- herra blossaði #églíka-byltingin upp, betur þekkt sem #metoo. Kyn- ferðisleg áreitni og ofbeldi er sam- félagsmein, og hugrakkir hópar einstaklinga stigu fram, sögðu sögur sínar og vöktu okkur öll til umhugsunar. Konur í íþróttahreyfing- unni létu einnig hávært í sér heyra, og ég boð- aði fulltrúa þeirra strax á fund til að ræða mögulegar aðgerðir til úrbóta. Í kjölfarið skipaði ég starfshóp sem vann bæði hratt og örugglega til að tryggja að raun- verulegur árangur næðist. Öryggi iðkenda og annarra þátttakenda var sett í öndvegi við alla vinnu hópsins sem taldi mikilvægt að tillög- urnar næðu einnig til æskulýðsstarfs utan skóla. Hópurinn skilaði afar greinargóðu yfirliti og gagnlegum tillögum sem við unnum áfram, og út frá þeim tillögum lagði ég síðan fram ný lög um samskiptaráð- gjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Markmiðið var að bjóða upp á öruggt umhverfi þar sem börn, unglingar og fullorðnir, óháð kyni eða stöðu að öðru leyti, geta stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað sér aðstoðar eða réttar síns vegna kynferðislegrar áreitni og ofbeldis sem þar koma upp án ótta við afleiðingarnar. Samskiptaráðgjafinn tók til starfa í fyrra og þar er öll- um ábendingum um einelti, áreitni og ofbeldi tekið alvar- lega og þær kannaðar, öll mál eru unnin eftir ákveðnu verklagi með trúnað og skilning að leiðarljósi. Auk þess getur samskiptaráðgjafi veitt fé- lögum og samtökum leiðbeiningar varðandi slík mál og gerir tillögur til úrbóta þegar við á. Á fyrsta starfsárinu fékk samskiptaráðgjafinn 24 mál á sitt borð, þar af átta tengd kynferð- islegri áreitni eða ofbeldi. Mikilvægi ráðgjaf- ans er því byrjað að sanna sig. Íþróttahreyfingin er mikilvægt afl í íslensku samfélagi. Þar fer fram öflugt starf á hverjum degi, sem styrkir og mótar einstaklinga á öll- um aldri. Forvarnargildi íþrótta- og æskulýðs- starfs er ótvírætt. Því er brýnt að til staðar séu skýrir ferlar, virk upplýsingagjöf og hlutleysi í málum af þessum toga, sem oft eru viðkvæm og flókin. Þessi lög voru tímamótaskref, sem sendu skýr skilaboð um að áreitni og ofbeldi sé ekki liðið í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Það hef- ur jafnframt glatt mig í þessu ferli hve vel forysta ÍSÍ og UMFÍ hefur unnið með okkur, og það eru allir á sömu blaðsíðunni; að uppræta þessa meinsemd og bæta um- hverfi íþrótta- og æskulýðsstarfs á Íslandi. Enn í dag er ég gríðarlega þakklát þeim þolendum sem stigið hafa fram. Þeirra hugrekki hefur skilað varanlegum breytingum sem ég er sannfærð um að muni styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf um land allt. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins. 34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kostir sem kjósendur standa frammi fyrir hafa sjaldan verið fleiri en nú, einkum þeg- ar horft er til fjölda flokka sem mælast í könnunum með menn á þingi. Í þeim könn- unum sem MMR hefur gert fyr- ir Morgunblaðið og mbl.is má sjá að líkur standa til þess að flokkarnir verði níu á næsta þingi, sem er einum meira en eiga þingmenn nú og þótti þó ýmsum nóg um. Viðbótin væri sérstakur flokkur sósíalista, svo ótrúlega sem það hljómar rúmum þremur áratugum eftir fall Berlínarmúrsins, og ekki yrði sú viðbót til að auðvelda stjórnarmyndun eða treysta stöðugleika í stjórnmálunum. Yrði niðurstaðan eins og síð- ustu kannanir benda til fengju fjórir flokkar á vinstri vængn- um, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Píratar og Sósíalistaflokkurinn samtals 25 þingmenn. Næðu þessir flokkar saman við Flokk fólksins og Viðreisn, sem er ekki fráleitt að hugsa sér miðað við að Viðreisn unir sér vel í vinstri meirihlutanum í Reykjavíkurborg, þá væru þingmennirnir komnir upp í 34. Þetta dygði því fyrir meirihluta þingmanna með Sjálfstæð- isflokk, Framsóknarflokk og Miðflokk í stjórnarandstöðu, en meirihlutinn væri afar tæpur, einkum þegar horft er til þess að um væri að ræða sex flokka stjórn. Þetta stjórn- armynstur kann að hljóma fjar- stæðukennt, en þegar horft er til stjórnarmynstursins í Reykjavík má sjá að svo er alls ekki. Fyrir fram hafa flestir kjósendur Viðreisnar í borginni eflaust talið útilokað að sá flokkur gerði sér að góðu að verða björgunarbátur sokkins samstarfs Samfylkingar, VG og Pírata. Viðreisn afsannaði það, gekk inn í samstarfið og hefur starfað þar sem hver annar vinstri flokkur svo ekki má á milli sjá hver þessara fjögurra flokka gengur lengst í þeim efnum. Afar líklegt má telja að flest- ir ef ekki allir þessir sex flokk- ar telji stjórnarsamstarf þeirra það heppilegasta eftir kosn- ingar. Með því geta þeir sam- einast um gæluverkefni hvers og eins, sama hversu vitlaus þau eru og sama hversu dýr þau yrðu skattgreiðendum. Þessu hafa borgarbúar feng- ið að kynnast með misheppn- aðri fjögurra flokka vinstri stjórn, þar sem allt hefur brugðist sem brugðist getur, og gott betur. Dettur einhverjum í hug að sex flokka bræðingi á landsvísu gengi betur? Kannanir benda til að veruleg hætta sé á pólitísku stórslysi eftir kosningar} Sex flokka vinstri stjórn? Í síðustu viku voru þrjátíu ár liðin frá því Úkra- ína lýsti yfir sjálf- stæði sínu frá Sovétríkjunum, en sú yfirlýsing reyndist einn af síðustu nögl- unum í líkkistu þeirra. Síðan hefur gengið á ýmsu í sam- skiptum Úkraínu við umheim- inn, ekki síst Rússland, en síð- ustu sjö árin hefur ríkt „vopnaður friður“ á milli ríkjanna, sem hin síðustu ár hef- ur verið haldið uppi af Minsk- vopnahléinu svonefnda. Það er ef til vill ekki tilviljun að á síðustu tveimur vikum hef- ur aftur á ný blossað upp í sam- skiptum stjórnvalda í Kænu- garði og rússneskumælandi aðskilnaðarsinna í Donetsk og Luhansk-héruðunum, sem hafa reynt að skilja sig frá Úkraínu síðan Krímdeilan hófst 2014. Mannfall hefur orðið að und- anförnu og kemur að minnsta kosti tvennt til. Hin merku tíma- mót sitja eflaust illa í mörgum Rússum, en einnig hitt, að ímynd Bandaríkjanna hefur laskast með hinu vanhugsaða brotthvarfi þeirra frá Afganist- an. Forseti Úkraínu, hélt ein- mitt í gær í op- inbera heimsókn til Bandaríkjanna og ræddi þar við Joe Biden Bandaríkja- forseta, en stuðningur úr þeirri átt skiptir æ minna máli. Eftir brotthvarfið frá Afgan- istan ríkir mikil óvissa um það hvað Biden ætlar sér í utanrík- ismálum almennt. Það er til dæmis ekki uppörvandi frá sjón- arhóli Kænugarðs, að eftir digurbarkalegar yfirlýsingar ákvað Biden að skera Þjóðverja úr snörunni varðandi Nord- Stream 2-jarðgasleiðsluna, en hún mun gera Rússum kleift að flytja jarðgas framhjá Úkraínu og þar með að setja enn frekari þumalskrúfur á landið. Sá ótti er því skiljanlegur, að Bandaríkja- menn muni í kjölfarið ákveða að kúpla sig út úr Krímskagadeil- unni, sér í lagi þar sem Biden- stjórnin hefur ákveðið að Kín- verjar séu hættulegri ógn við Bandaríkin en Rússar. Úkraínumenn geta því búið sig undir að samhliða minnkandi stuðningi Bandaríkjanna aukist þrýstingur enn frá aðskiln- aðarsinnum og vonir um raun- verulegan frið verði fjarlægari. Úkraínudeilan magnast á ný}Döpur teikn á lofti STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is G reint var frá því í gær að HBO Max, ein stærsta streymisveita heims, verði aðgengileg Íslendingum nú í haust. Þar með eykst enn fram- boð á sjónvarpsefni og var nú vart á valkvíða margra að bæta. Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður á RÚV og sérfræðingur um afþreyingarmenningu, segir að efni HBO eigi eft- ir að vekja áhuga margra. Hann nefnir sem dæmi að HBO hafi sýnt endurfundaþátt Friends fyrir skemmstu og hafi boðað framhald af hinum vinsælu þáttum Beðmál í borginni. Þá verði forleikur Krúnu- leikanna á dagskrá þar á bæ innan tíðar. Ýmsir konfektmolar leynast í gömlum rekkum HBO, svo sem Sopranos, West Wing og The Wire. „Fólk er ekki lengur að horfa á sjónvarp, það er bara að horfa á streymisveitur. Það á ekki bara við um stóru erlendu veiturnar heldur líka þær íslensku; Stöð 2+ og Sjón- varp Símans Premium,“ segir Freyr sem kveðst sjálfur hafa nýlega sagt upp erlendum veitum og fengið sér áskrift að Stöð 2+. Það gerði hann til að horfa á ákveðna þætti sem þar eru í boði en svo er hægur vandi að snúa dæminu við að hans sögn. Breyttur veruleiki blasir við fólki við viðtækin Óhætt er að segja að veruleik- inn sem blasir við fólki fyrir framan viðtækin sé annar í dag en fyrir nokkrum árum. Ef það hefur áhuga á að fylgjast með nýjustu þáttunum og myndunum virðist nauðsynlegt að kaupa áskrift að nokkrum veitum í senn. Fimm stórar veitur munu standa Íslendingum til boða þegar HBO Max bætist í hópinn. Fyrir voru á fleti Netflix, Amazon Prime, Viaplay og Disney+ auk þeirra ís- lensku. „Viaplay er að sækja í sig veðr- ið, ekki síst í íþróttunum,“ segir Freyr en fjallað var um breytt landslag fótboltaáhugafólks á þess- um vettvangi fyrir skemmstu. „Svo er það Disney+ sem virðist vera skylda fyrir foreldra að vera með, ekki síst þegar sú veita er farin að láta undan þrýstingi að vera með ís- lenskt efni. Amazon er að mínu viti bara svona allt í lagi veita en svo er það kóngurinn, Netflix, sem allir þekkja.“ Veitur seilast sífellt lengra Freyr segir áhugavert hvernig þróunin hafi verið í efnisframboði hjá veitunum. „Þær seilast sífellt lengra. Fyrst fóru þær að framleiða eigið efni en nú eru þær farnar að frumsýna bíómyndir. Síðasta Mar- vel-myndin, Black Widow, kom snemma inn á Disney+ en það þurfti reyndar premium-pakka til að geta horft á hana. Áhorf á veiturnar rauk upp í heimsfaraldrinum, kannski ekki eins mikið hér á landi og annars staðar þar sem fólk var bókstaflega lokað inni. En stórfyrirtækin greina breytta hegðun, fólk vill nú hafa efn- ið innan handar.“ Þessi þróun er ekki bara af hinu góða að mati Freys. „Framboðið er of mikið. Það er alltaf að aukast og ekki er allt jafn gott. Manni finnst bera á því að eitthvert drasl sé upp- hafið.“ Enn bætist á hlað- borð streymisveitna Efnisveitur sjónvarps Freyr Gígja Gunnarsson Stóru erlendu streymisveit- urnar reyna gjarnan að höfða sérstaklega til nýrra markaðs- svæða þegar þær hasla sér þar völl. Freyr Gígja Gunnarsson segir að víða sé stóru streymis- veitunum sett skilyrði um efnis- tök. „Þær vilja bjóða upp á lókal efni og tengjast hverjum stað,“ segir Freyr. „Netflix hefur lagt ofurkapp á að vera með íslenskt efni, Katla og Brot eru fyrsti vísirinn að því,“ segir hann og vísar til þátta Baltasars Kormáks sem aðeins voru sýndir á Netflix og Brota, eða The Valhalla Mur- ders, sem bæði voru sýndir á RÚV og á Netflix. Freyr bætir við að sú þróun gæti verið jákvæð fyrir sjón- varps- og kvikmyndaframleiðslu hér á landi. „Það kemur kannski aukið fjármagn hingað til lands,“ segir hann. Meira efni á íslensku AUKIN FRAMLEIÐSLA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.