Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 38

Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Grandagarði 13 Glæsibæ, 5. hæð Sími 510 0110 eyesland.is Heimurinn er fallegri í fókus Eftir að í ljós kom að Covid-bóluefnin hindr- uðu ekki smit og „hjarð- ónæmi Þórólfs í júní“ var bara „allt í plati“ er sem örvænting hafi gripið heilbrigðisyfir- völd. Fyrst komu blekk- ingarnar: Sagt var að innlagnartíðni væri orðin lægri en í síðustu bylgju án þess að nefna að há tíðni síðasta haust var vegna Landakotssmits sjúklinga sem smituðust inni á spít- alanum. Næst var því haldið fram að fleiri óbólusettir en bólusettir væru að smitast en ekki var minnst á að raunveruleg ástæða fjölda smita hjá óbólusettum væri að um 2⁄3 smitanna voru meðal yngri aldurshóps sem er minna bólusettur en þeir eldri (https://bit.ly/xy-h1). Frásagnir af inn- lögnum fóru svo í nýjar orwellskar hæðir þegar Landspítalinn breytti tungumálinu og endurskilgreindi ný- bólusett fólk sem óbólusett (https:// bit.ly/xy-h2). Þrátt fyrir að útbreidd smit meðal bólusettra hafi sýnt gagnsleysi til- raunalyfjanna voru skyndilega allar barnshafandi konur á Íslandi boð- aðar í bólusetningu. Í umfjöllun (https://bit.ly/xy-h3) um rannsóknir á fósturlátum í kjölfar Covid- bólusetninga kemur fram að af 127 konum sem tóku þátt í rannsókninni og voru komnar 20 vikur eða skemur á leið urðu 104 þeirra fyrir fóst- urmissi eða 82%, sem er áttföld aukning. Þar sem þungaðar konur á Íslandi voru nær allar bólusettar á sama degi ætti að vera einfalt að meta hvort slíkt stórslys hafi líka átt sér stað hér á landi. Ekkert slíkt mat hefur farið fram. Örvunarbólusetning þeirra sem fengu Janssen með mRNA-efnunum er annað dæmi um óðagot. Hún hófst fyrsta virka dag eftir að yfirvöld ósk- uðu eftir tölfræðiaðstoð til að meta hvort bóluefnið væri að virka verr enn önnur (https://bit.ly/ xy-h4). Vegna skorts á rannsóknum á slíkri blöndun telur CDC í BNA þetta alls ekki ráðlegt (https://bit.ly/xy- h9). Athygli vekur að þessar skyndibólusetn- ingar fóru af stað eftir að landlæknir ákvað að hefja rannsókn á skaða bóluefnanna á æxl- unarfæri kvenna. Hátt í 2.000 konur sem hafa orðið fyrir slíkum skaða og mynda hóp um málefnið sem sýnir að málið er mun stærra en skrán- ingar Lyfjastofnunar gefa til kynna. Tilkynntar aukaverkanir af Covid- bóluefnunum eru rúmlega 3.000. Nánast 200 alvarlegar, þar af 30 and- lát. Þar sem aðeins lítið brot af auka- verkunum er tilkynnt gæti raunveru- legur fjöldi verið margfalt meiri. Þetta er fíllinn í stofunni sem enginn þorir að nefna og þögn heilbrigðisyfirvalda og læknastétt- arinnar yfir aukaverkunum er orðin ærandi. Þrátt fyrir að hættan á hjarta- vöðvabólgu hafi legið fyrir frá því í febrúar (https://bit.ly/xy-h5) komu eng- ar aðvaranir frá íslenskum yfirvöld- um um hættuna fyrr en um miðjan júlí, eftir að bólusetningarátakinu var lokið. Lyfjastofnun tilkynnti fyrst að engin slík tilfelli hefðu komið upp hér á landi (https://bit.ly/xy-h6). Þetta þurfti landlæknir að leiðrétta tveimur dögum síðar (https://bit.ly/xy- h7). Nú hafa níu tilfelli gollurshúss- bólgu og sjö tilfelli hjartavöðvabólgu verið tilkynnt, þar af voru a.m.k. tvö hjá börnum. Tveimur dögum áður en 57% ís- lenskra barna, 12-15 ára, voru bólu- sett sendu loks tveir hjartalæknar frá sér blaðagrein þar sem þeir mæltu gegn tilraunabólusetningu barna. Í greininni kom fram að þótt hjartavöðvabólga gæti virst mild í fyrstu tekur mörg ár fyrir áhrif skemmda að koma fram sem oft reynast lífshættulegar. Hvað skyldi hafa valdið því að þessir læknar stigu fyrst fram núna? Það skyldi þó aldrei vera vegna þess að eitt af börnunum sem greinst hafa með þennan alvar- lega kvilla hafi verið barn hjarta- sérfræðings sem þekkti einkennin. Ef svo væri, lægi í raun siðferðisleg skylda á öllum sem vissu af að stíga fram og vara fólk við. Aðeins örfá börn eiga foreldra með þekkingu í að greina slíkan sjúkdóm og því gæti slík uppljóstrun gefið ástæðu til að ætla að þessi jafnvel banvæna og langvinna aukaverkun væri mun al- gengari en nokkurn hefði órað fyrir. Hundruð barna gætu því hafa skað- ast án þess að vitað sé af því, en skað- inn mun ekki koma fram fyrr en eftir einhver ár. Enn er tími fyrir fleiri til að stíga fram sem vilja vernda börn- in, því seinni bólusetningin sem enn er eftir er áhættumeiri hvað þetta varðar. Ástandið á ekki eftir að batna því nýleg rannsókn (https://bit.ly/xy-h8) sýndi að ADE-áhrif (Antibody De- pendent Enhancement) gera ný veiruafbrigði hættulegri bólusettum en óbólusettum. Finnst mönnum virkilega í lagi að óðagot ráði för við slíkar aðstæður? Er það virkilega í lagi að bólusetn- ingaherferð með lyfjum sé keyrð áfram á meðan yfirvöld eru enn að rannsaka hvort þau geti valdið ófrjó- semi? Er það virkilega í lagi að heilsu og lífi hundraða barna sé stefnt í hættu með lífshættulegum hjarta- sjúkdómum? Er það virkilega í lagi að enginn beri ábyrgð ef illa fer nema barnið sjálft? Skaðinn af stærstu lyfjatilraun á Íslendingum er þegar orðinn of mik- ill. Það er kominn tími til að fólk sem veit betur stigi fram og gagnrýni þessa óheillavegferð. Þeir sem vita betur og þegja geta vart firrt sig ábyrgð mikið lengur. Eina stjórnmálaaflið sem stendur í lappirnar og þorir að hafa stefnu gegn þessum öfgum er Ábyrg fram- tíð. Með ábyrgð skal land byggja. Ærandi þögn Eftir Jóhannes Loftsson, Helga Örn Viggósson, Mörthu Ernstsdóttur og Þórdísi B. Sig- urþórsdóttur »Ef barn hjartalæknis var eitt þeirra sem fengu hjartavöðvabólgu gæti þessi lífshættulegi sjúkdómur verið mun algengari en nokkurt foreldri órar fyrir. Jóhannes Loftsson Höfundar eru meðlimir í Ábyrgri framtíð. abyrgframtid@gmail.com Helgi Örn Viggósson Martha Ernstsdóttir Þórdís B. Sigurþórsdóttir Matur SMARTLAND MÖRTUMARÍU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.