Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 39

Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Haustdagar nálgast og með þeim alþing- iskosningar. Kjós- endur velta því fyrir sér hverjum þeir ætla að treysta fyrir at- kvæði sínu í von um betra Ísland. Það skiptir máli að veita þeim atkvæði okkar sem hafa ákveð- inn vilja, þekkingu og pólitíska getu til að geta einhent sér í verkið. Hvað brennur á þér? Við höfum árum og áratugum saman hlustað á fögur fyrirheit sem sjaldan rætast og rétt eins og allir flokkar hafa ráð og „lausnir“ allra vandamála á reiðum höndum þá geta þeir líka – eftir kosningar – útskýrt nákvæmlega af hverju ekki er hægt að standa við kosningaloforðin: Slæmur viðskilnaður síðustu stjórn- valda, alþjóðlegar skuldbindingar hindra, atvinnugreinar sem eru okk- ar aðaltekjulind þarfnast stuðnings ríkisins, erlendar kreppur, o.s.frv. – Eða háfleygu fyrirheitin eru ein- faldlega þöguð í hel. Hvað varð t.d. um „opið stjórnarfar“, „réttlát lífs- kjör fyrir aldraða og öryrkja“ og að „lækka rekstrarkostnað ríkisins“? Segjum svona vinnubrögðum lok- ið – ekki í boði lengur. Alþingi heim í stofu. Í sjónvarpi Alþingis sjáum við stundum og heyrum hvernig sumir þingmenn þekkja ekki nógu vel til mála en eru tilbúnir að segja já eða nei eftir fyrirmælum flokksfor- ustunnar. Þetta var t.d. hróplega áberandi í af- greiðslu þingsins á þriðja orkupakkanum sem lesendur muna flestir eftir. Þar gekk utanríkisráðherra fremstur með óbeinum hræðsluáróðri í því að ná fram stuðningi þing- manna og almennings við samþykkt pakkans. Orkupakki þrjú, eins og flestir vita, er ekkert annað en aðferð Evrópu- sambandsins við að sölsa undir sig Ísland og auðlindir þess – í mörgum smáum skrefum fyrst þeir náðu ekki að gleypa okkur í einum bita fyrir u.þ.b. tíu árum. Þarna glötuðust yf- irráð okkar yfir rafnagninu – sjálf- um lífgjafanum. Í umræðum um daginn vakti einn þingmaður sérstaka athygli mína – jákvætt. Rætt var á þinginu um fíkniefnamál; árangur, hvað væri refsivert og tilslakanir sem sumir vilja sjá, s.s. að ekki verði refsivert að ganga með og eiga fíkniefni í ákveðnum skammtastærðum til eig- in nota. Talað hefur verið um að neytendur geti fengið aðstoð við inn- töku fíkniefnanna í þjónustubifreið þar sem hreinlætis er gætt. Það er ekkert nýtt að stjórn- málamenn „leysi“ vandamál með pólitískri eftirgjöf – og peningunum okkar. Fróðlegt var að fylgjast með umræðum; ýmsir lýstu velvilja í mál- inu en virtust lítið hafa kynnt sér það eða velt framkvæmd og afleið- ingum fyrir sér. Þá talaði Karl Gauti Hjaltason, Miðflokksþingmaður, af ábyrgð og þekkingu svo af bar. Hann útskýrði hvaða erfiðleikar yrðu við þessa framkvæmd m.a. við eftirlit lögregl- unnar. Hvernig á hún t.d. að sjá hverjir eru með fíkniefni á sér, hve stóran skammt – og hvort viðkom- andi ætlar að neyta þess sjálfur eða er í raun að leita að einhverjum sak- leysingja til að selja? Nýju lögin munu einfaldlega styðja við aukna dreifingu eitursins. Að þetta séu viðbrögð stjórnvalda eftir fréttir undanfarinna ára af auk- inni neyslu, vaxandi ofbeldi og fjölg- un geðtruflana og sjálfsmorða er beinlínis grátlegt. Svona umhyggju- skort má ekki við una – við eigum betra skilið. Því sting ég niður penna: Þetta brennur á mér. Karl Gauti Hjaltason Karl Gauti er um sextugt. Hann er lögfræðingur að mennt og hefur meirihluta ævinnar starfað með lög- um, löggæslu og stjórnun á því sviði. Hann hóf ungur störf sem fulltrúi sýslumanns og bæjarstjóra á lands- byggðinni, m.a. á Selfossi. Karl starfaði sem lögreglustjóri í Reykja- vík svo og rannsóknarlögreglustjóri ríkisins í einstökum málum. Þá hef- ur hann fjallað um fíkniefnavandann í ræðu og riti. Einnig var hann sýslu- maður í Vestmannaeyjum á annan áratug og síðan skólastjóri Lög- regluskóla ríkisins. Alþingismaður Suðurkjördæmis varð Karl Gauti ár- ið 2017 en fer nú fram í Suðvest- urkjördæmi. Ég er þess fullviss að Karl Gauti Hjaltason stendur öðrum framar að þekkingu og getu á sviði löggæslu og stjórnunar eftir áratuga farsælt starf og reynslu sína á þessu sviði. Löggæsla er hans svið, hans vettvangur. Ég leyfi mér að hvetja alla sem vilja vinna gegn fíkniefnum og of- beldi sem fylgir og fer stöðugt vax- andi á landinu okkar að styðja Karl Gauta Hjaltason, Miðflokki, til áframhaldandi þingsetu. Honum treysti ég best til starfa dóms- málaráðherra í nýjum stjórnarmeiri- hluta. Fíkniefnalaust Ísland 2000 Margir muna eflaust eftir kosn- ingaslagorði fyrir síðustu aldamót: Þetta fyrirheit reyndist jafn ábyrgðarlaust og mörg önnur sem send eru út í hita komandi kosninga. Um það vitna tölur, dauðsföll, of- beldi og hjartasár margra, margra fjölskyldna. Þetta þarf ekki að vera svona en til verksins þarf trausta leiðtoga með þekkingu, reynslu og pólitískan vilja. Ég endurtek og ítreka meðmæli mín um Karl Gauta Hjaltason, Mið- flokki, til forystu gegn fíkniefnum og vaxandi glæpaöldu. Beitum atkvæði okkar skynsamlega Eftir Baldur Ágústsson » Fíkniefnabölið festir sig í sessi og krefst sífellt meiri fórna. Það er mál að láta hart mæta hörðu. Baldur Ágústsson Höfundur er fv. forstjóri, flugumferð- arstjóri og forsetaframbjóðandi 2004. baldur@landsmenn.is Skuldasöfnun vinstri meirihlutans í borgarstjórn hefur verið allt of mikil. Útivistarsvæðum hefur fækk- að. Elliðaárdalurinn hefur vart feng- ið að vera í friði. Meirihluti í borg- arstjórn hefur gengið gegn hagsmunum borgarbúa á flestum sviðum. Eftir ár gefst okkur borg- arbúum tækifæri til að láta vinstra liðið sigla sinn sjó. Kórónuveiran hefur nú lagt rúmar 4 milljónir að velli. Við Íslendingar höfum farið betur út úr veirunni en ýmsir aðrir. Þar kemur til að þjóðin hefur staðið saman í þessu fararldri og þar til bærir aðilar á sviði sótt- varna hafa sinnt sínu hlutverki vel. Öll él birtir upp um síðir. Verum samt þakklát fyrir að búa á þessari eyju úti í Atlantshafi. Sigurður Guðjón Haraldsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Borgarmálin og veiran Morgunblaðið/Hari Elliðaárdalur Útivistarsvæðum hef- ur fækkað á höfuðborgarsvæðinu. Valin undirföt, náttföt, náttkjólar, sloppar, sundföt og strandfatnaður á 50% afslætti og hluti af úrvalinu einnig aðgengilegt í vefverslun www.selena.is ÚTSALAN hefst í dag! Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 50% afsláttur af allri útsöluvöru

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.