Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 42
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Guðrún segir að núna þegar
skólarnir séu að byrja hafi sér
fundist hún þurfa að eiga eitthvað
gott í frystinum. Hún hafi verið
mjög dugleg að gera skinkuhorn
fyrir krakkana til taka með en gott
sé að eiga pístusnúðana líka. Hún
segir það skipta miklu máli hvern-
ig snúðarnir séu. Ekki komi til
greina að hafa snúðana þurra.
Þessir séu hins vegar afar góm-
sætir og hún geti mælt heilshugar
með þeim.
Pítsusnúðar
Dugar í 24 stk.
400 ml mjólk
12 g þurrger ( 1pk. / 2-3 tsk.)
1 msk. sykur
100 ml olía
1 tsk. salt
660 g hveiti (Blár Kornax)
Hitið mjólkina þangað til hún er
ylvolg, í örbylgjuofni eða potti.
Setjið í hrærivélina og bætið þurr-
gerinu saman við, hrærið létt sam-
an. Leyfið því að standa örlítið
meðan þið takið hin hráefnin sam-
an. Bætið þá restinni af hráefn-
unum saman við og hrærið með
krók á lágri stillingu í 3-4 mín.
Takið deigið sem hefur fest við
krókinn af og takið deigið í hend-
urnar á ykkur og hnoðið í kúlu.
Setið deigið aftur í skálina og rakt
viskastykki yfir.
Leyfið deiginu að hvíla í minnst
klst.
Fylling
100 g skinka
200 ml pítsusósa
2-3 msk. pítsukrydd
200 g rifinn mozarella-ostur
Takið deigið og setjið á hveit-
istráð borð og skiptið því upp í tvo
hluta. Takið fyrri hlutann og fletjið
út, reynið að fletja það út í fer-
hyrning sem er u.þ.b. 60×40 cm
(bara gott að hafa sem viðmið).
Skerið skinkuna niður í litla bita.
Dreifið þá helmingnum af pítsu-
sósunni yfir deigið, sáldrið yfir
með kryddinu, skinku og osti.
Rúllið þá deiginu upp eins þétt
og þið getið. Takið beittan hníf og
skerið rúlluna í tvennt, þá er gott
að gera það sama við partana
beggja vegna og síðan hvern bút í
þrennt. Þannig ættu þið að fá 12
snúða úr hvorri rúllu, u.þ.b. einn
cm á breidd. Leggið snúðana á
bökunarpappírsklædda ofnplötu og
leyfið þeim að hefast í 15-20 mín.
Endurtakið með hinn hlutann af
deiginu.
Kveikið á ofninum og stillið á
200°C, blástur. Takið eitt egg og
hrærið létt saman með gaffli,
penslið yfir snúðana og sáldrið svo
restinni af ostinum yfir hvern og
einn snúð.
Bakið snúðana í 5-7 mín. eða
þangað til þau eru orðin gull-
inbrún.
Skinkuhorn
Guðrún Ýr segir að sér finnist best
að baka hornin, leyfa þeim að
kólna lítillega og setja þau beint í
frystinn ef ekki á að borða þau
strax. Það er eitthvað svo gott að
eiga skinkuhorn í frystinum og
taka út og setja í nokkrar mínútur
í ofninn áður en þau eru borin
fram.
Deig dugar í 32 stk.
400 ml mjólk
12 g þurrger (1 pk ./ 2-3 tsk.)
1 msk. sykur
100 ml olía
1 tsk. salt
660 g hveiti (Blár Kornax)
Hitið mjólkina þangað til hún er
ylvolg, í örbylgjuofni eða potti.
Setjið í hrærivélina og bætið þurr-
gerinu saman við, hrærið létt sam-
an. Leyfið því að standa örlítið
meðan þið takið hin hráefnin sam-
an. Bætið þá restinni af hráefn-
unum saman við og hrærið með
krók á lágri stillingu í 3-4 mín.
Takið deigið sem hefur fest við
krókinn af og takið deigið í hend-
urnar á ykkur og hnoðið í kúlu.
Setið deigið aftur í skálina og rakt
viskastykki yfir.
Leyfið deiginu að hvíla í minnst
klst.
Fylling
200 g skinka
250 g (1 pk.) smurostur með svepp-
um
Skerið skinkuna niður í ferninga
og blandið saman við smurostinn.
Takið deigið og setjið á hveit-
istráð borð og skiptið því upp í
fjóra hluta. Takið fyrsta hlutann
og fletjið út, reynið að fletja það út
í hring eftir bestu getu. Gott er að
fletja það vel út eða um 5 mm á
þykkt u.þ.b. Skerið síðan deigið
eins og pítsu í átta einingar.
Setjið u.þ.b. eina teskeið af fyll-
ingu á hvern þríhyrning og setjið á
breiðari endann. Gott að setja smá
rifinn ost til að gera extra djúsí.
Til að rúlla þeim upp, tosið að-
eins í hornin sitthvorumegin við
fyllinguna, lokið fyllinguna inni
með deiginu og rúllið upp. Tosið í
mjóa endann til að fá brotið í þeim
til að enda undir horninu.
Leggið hornin á bökunarpappír
og látið mjóa endann snúa niður og
hafið gott bil á milli þeirra. Passið
að fyllingin sé lokuð inni í deiginu
svo hún renni ekki út um allt þeg-
ar þau fara inn í ofn. Leyfið þeim
að hefast í 20-30 mín.
Endurtakið með hina þrjá hluta
af deiginu.
Kveikið á ofninum og stillið á
200°C, blástur. Takið eitt egg og
hrærið létt saman með gaffli,
penslið yfir hornin til að fá fallega
áferð á þau.
Bakið hornin í 10 mín. eða þang-
að til þau eru orðin gullinbrún.
Hið fullkomna skólanesti
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Það vandast oft málið þegar kemur að því að velja heppilegt skólanesti. Misjafnt er eftir skólum hvað má koma með en ef þörf er á góðum bita
klikka heimabökuð skinkuhorn og pítsusnúðar seint. Það er Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur & Smjör sem á heiðurinn af þessum uppskriftum.
Alltaf nýbakað Með því að frysta hornin þegar þau eru nýbökuð er alltaf hægt að hita þau upp. Sérlega girnilegir Guðrún Ýr segir að það skipti öllu máli að snúðarnir séu ekki þurrir og ólystugir.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
24.995.- / St. 36-42
Vnr.: GAB7165024
19.995.- / St. 36-42
Vnr.: GAB7660557
- Ný sending!
19.995.- / St. 36-42
Vnr.: GAB7660357
19.995.- / St. 36-41
Vnr.: GAB7280431
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE