Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 44

Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Gelísprautun Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. Náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar sem framkvæmdermeð náttúrulegu fjölsykrunum NeauviaOrganic.Neauvia er hreint kristalsgel sem inniheldur fjölsykrusýrur semer að finna í öllum vefjum líkamans. 20% afsláttur af GELÍSPRAUTUN NÝTTU TÆKIFÆRIÐ Náttúrulegmótun og fylling í varir Svæði: •Varir •Nef •Kjálkalína •Milli augna • Enni Hreinasta fylliefnið ámarkaðnum. 08. - 15. SEPTEMBER INNIFALIÐ Í VERÐI: FLUG, GISTING OG INNRITAÐUR FARANGUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á UU.IS | INFO@UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. SEPTEMBER SÓL Á TENERIFE FRAMLENGDU SUMARIÐ VERÐ FRÁ 59.900 KR.Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Kamila Dabrowska, 27 ára, Eva Mar- grét Guðnadóttir, 26 ára, Högna Kristbjörg Knútsdóttir, 26 ára, og Alma Guðrún Guðnadóttir, 26 ára, eru fjórar skvísur og nánar vinkonur sem deila ákveðnu áhugamáli sem margir myndu kannski ekki giska á að væri þeirra tebolli en það er að spila skottölvuleikinn Call of Duty: Warzone. Þessa iðju byrjuðu þær í samkomubanni vegna Covid- heimsfaraldurs enda er ein leið til að skemmta sér með fólki án þess að hitta það – að hittast í eins konar sýndarveruleika. Úr varð tölvu- leikjateymið The Babe Patrol. Vinkonurnar mættu í morgunþátt- inn Ísland vaknar og ræddu við Krist- ínu Sif, Einar Bárðar og Yngva Ei- steins um tölvuleikjalífið. Hópurinn eru annar af tveimur kvennahópum sem streyma í beinni á sjónvarpsstöðinni Game Tíví en allar eru þær með sér nöfn á Twitch, streymisveitunni, þar sem tölvu- leikjaaðdáendur geta fylgst með þeim spila Call of Duty, eða COD, eins og hann er jafnan kallaður í tölvuleikja- heiminum. Stelpunum fjölgar Aðspurðar jánka þær því að sífellt fleiri stelpur séu að bætast í hóp tölvu- leikjaspilara, sérstaklega þeirra sem spila skotleiki en þeir hafa lengi vel nán- ast einungis verið tengdir við karlkynið. „Þetta er allt annað held ég. Það eru mun fleiri stelpur núna og mun fleiri stelpur að koma inn,“ sagði Eva Mar- grét í viðtalinu en vinkonurnar vilja hvetja stelpur til að prófa að spila tölvuleiki af þessu tagi. Stelpurnar taka allar undir það að það sé félagsskapurinn sem sé það sem sé mest heillandi við tölvuleikjaspil- unina. „Fyrst og fremst er það bara fé- lagskapurinn. Það er mjög gaman. Fólk er í raun bara að hittast og vera saman. Það er langskemmtilegast,“ sagði Eva Margrét. „Við tölum saman þegar við erum inni í leiknum og erum að spjalla um alls konar. Þannig byrjaði það eig- inlega svolítið,“ bætti Högna við. „Við byrjuðum í Covid. Okkur leiddist heima og gátum ekki hitt neinn,“ útskýrði Eva og Högna bætti við að þær hefðu verið alveg öm- urlega lélegar þegar þær prófuðu að spila fyrst. Allar hafa vinkonurnar sérstakt tölvuleikjanafn, sem flest eru með ákveðna merkingu. Kamila er Kim- carrier, en hún er eins konar leiðtogi í hópnum og besti leikmaðurinn og ber þannig teymið nokkurn veginn á herðum sér. Högna er Hoggattack en hún segir að mikil hugsun hafi farið í að ákveða nafnið. „Það er svona blanda af nafninu, hugga og svo „Attack“.“ Alma er Almazing en hún segir að ef hún myndi velja nýtt tölvuleikja- nafn myndi hún velja nafnið Mala- koffið. Sú eina sem valdi nafnið sitt í miklum flýti var Eva en hún heitir einfaldlega Evasniper69. „Það varð líka svolítið óvart til. Ég var bara í flýti að búa nafnið til. Svo þurfti ég að bæta einhverri tölu þarna við: 69. Mjög góð tala,“ sagði Eva glettnis- lega. Hægt er að fylgjast með The Babe Patrol á instagram undir sama nafni og á Game Tíví. Leiddist í faraldr- inum og byrjuðu að spila skotleiki Vinkonurnar Kamila Dabrowska, Eva Margrét, Högna Kristbjörg og Alma Guðrún mynda tölvu- leikjateymið The Babe Patrol en þær mættu í Ís- land vaknar í gær og ræddu um tölvuleiki. Vinkonur Eva, Högna, Kamila og Alma á góðri stundu í raunheimum. Flottar The Babe Patrol eru harðar í horn að taka á vellinum í skottölvu- leiknum Call of Duty. Teikning/Addinabblakusk Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Átján Plús er nýtt hlaðvarp sem fjallar um kynlíf, klám, sambönd og alls konar fullorðinsmálefni. Við fáum til okkar gesti úr alls konar áttum. Við erum nokkuð hispurslaus í þáttunum og opnum sjálfa okkur og viðmælendur okkar upp á gátt, helst,“ segir Kara sem heldur úti fyrrnefndu hlaðvarpi með unnusta sínum Viktori. Hlaðvarpið er nú í topp þremur á helstu hlaðvarpsveitum. Hún hefur þó áhuga á alls kyns málefnum og deildi með K100 sínum uppáhalds- hlaðvörpum: Ástríðukastið „Þetta er svo gott hlaðvarp. Auðveld hlustun og áhugaverð umfjöllunarefni hjá Gerði og Rakel.“ Pitturinn „Sem nýr Formúlu 1 aðdáandi er Pitturinn með Kristjáni og Braga möst fyrir mig. Ég er einmitt í Hollandi núna á leið á F1 keppni um helgina. Áfram Max!“ Snorri Björns „Ef ég ætti að nefna einn viðtalsþátt, þá er Snorri Björns efstur á blaði. Alltaf áhugaverðir ein- staklingar sem fá að njóta sín til fulls hjá Snorra.“ Eigin konur „Þarna gerast hlutirnir. Onlyfans-umræðan kom öllu af stað, bókstaflega.“ Sleep Meditation for Women „Með Katie Krimitsos. Fyrir manneskju sem á erfitt með svefn þá hefur þetta hjálpað mér rosalega við að róa hug- ann fyrir svefninn.“ Kara Rut í Átján Plús gefur álit Áhugaverð hlaðvörp Opin Kara er með hlaðvarpið Átján Plús. Kara Rut Hanssen stjórnandi í geysi- vinsæla nýja hlað- varpinu Átján Plús deilir sínum uppá- haldshlaðvörpum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.