Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
✝
Albert Valdi-
marsson
bifvéla-
virkjameistari
fæddist á Eskifirði
31.október 1934.
Hann lést á Dval-
arheimilinu Grund í
Reykjavík 17. ágúst
2021.
Foreldrar hans
voru Valdimar Ás-
mundsson, vélstjóri
á Eskifirði, f. 29.3. 1901, d. 24.5.
1970, og kona hans Eva Péturs-
dóttir, f. 22.10. 1908, d. 21.3.
2009. Systkini Alberts eru Að-
alsteinn, f. 24.5 1931, d. 14.10.
2012, maki Elínborg Þorsteins-
dóttir, d. 6.10. 2020, þau eiga
fimm börn; Pétur, f. 22.7. 1932,
maki Fjóla Gunnarsdóttir, d.
14.4. 2020, þau eiga sjö börn:
Auður, f. 9.2. 1936, maki Guðjón
Valur Björnsson, d. 25.5. 2019,
þau eiga þrjár dætur: Ástdís, f.
28.6. 1941, maki Guðni Helgason,
d. 18.6. 2016, þau eiga þrjú börn;
Hildur, f. 3.8. 1944, maki Tove
Engebretsen, Hildur á einn son;
Sólveig, f. 16.9. 1949, maki Bjarni
Pétursson, þau eiga tvo syni.
Albert kvæntist 1.9. 1957
hans er Jóna Karen Wedholm
Björnsdóttir, þau eiga dótturina
Stellu Wedholm og soninn Erik
Ása, c) Valdimar, sambýliskona
hans er Inga Rán Ármann, d)
Guðmundur Þórir, sambýliskona
hans er Lára Leifsdóttir og e)
Friðrik Sindri.
3) Valdís, f. 23.7. 1960, eigin-
maður hennar er Karl Ólafsson,
þau eiga einn son, Kristjàn Inga,
Karl á þrjú börn.
4) Dóra Þórdís, f. 30.9. 1965,
eiginmaður hennar er Jón Páll
Vilhelmsson. Þau eiga soninn
Daníel, hann á tvö börn, Krist-
ófer Dan og Emelíu.
Albert gekk í Barnaskóla
Eskifjarðar og Iðnskólann á Ak-
ureyri og útskrifaðist sem bif-
vélavirkjameistari 1963. Hann
byrjaði 12 ára til sjós á trillu og
stundaði sjómennsku þar til hann
var 21 árs. Hann útskrifaðist sem
bifvélavirkjameistari 1963, rak
eigið bifreiðaverkstæði í áratugi
og var með umboð fyrir Renault
og BMW. Hann var ráðgjafi hjá
SÁÁ í mörg ár, fór síðan aftur til
sjós á eigin trillu. Eftir það starf-
aði hann í áratugi sem leigubíl-
stjóri á Akureyri.
Albert verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju 2. september
2021 klukkan 13.
Streymt verður frá Facebook-
síðu Akureyrarkirkju, stytt slóð:
https://tinyurl.com/4h3rgmzr
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Svanhildi Þór-
isdóttur frá Hólkoti
í Reykjadal í
Þingeyjarsveit, f.
4.7. 1929, d. 7.7.
2014.
Hún er dóttir
Þóris Stefánssonar
bónda og Ásrúnar
Jónsdóttur hús-
freyju á Hólkoti í
Reykjadal.
Börn Alberts og
Svanhildar eru:
1) Guðrún, f. 24.4.1956, hún á
fjögur börn, a) Ásrúnu Lilju, f.
19.1. 1981, börn hennar eru
Katrín Eva og William, b) Magn-
ús, f. 18.2. 1987, sambýliskona
hans er Edda Hilmarsdóttir, c)
Ásgeir, f. 23.7. 1988, sambýlis-
kona hans er Michelle Vernon.
Börn Ásgeirs eru Erla Ásrún og
Breki Þór, d) Sólveig Svanhildur,
f. 18.3. 1990, sambýlismaður
hennar er Davíð Már Jóhanns-
son.
2) Eva Ásrún, f. 22.5. 1959,
hún á fimm syni, a) Magnús, f.
8.10. 1977, börn hans eru Júlíana,
Eva Guðrún, Matthildur og stjúp-
dóttirin Hildur Karitas, b) Al-
bert, f. 9.9.1982, sambýliskona
Síminn hringdi í hádeginu á
sunnudegi. „Sæll pabbi minn,
hvað segirðu gott í dag?“ spurði
ég, hann svaraði: „Eva mín, ég
held að ég eigi ekki langan tíma
eftir af þessu lífi.“ „Allt í lagi pabbi
minn, ég kem.“ Hann vissi að
hann væri á förum. Nokkrum dög-
um áður vorum við Erna vinkona
að velta fyrir okkur hvað það væri
sem hann ætti eftir að gera. „Bíll-
inn,“ sagði ég, „það er það eina
sem hann á eftir, auðvitað!“ Pabbi
hafði látið sækja gamla bílinn sinn
í Ystafell, flytja hann í Bílaprýði til
að láta gera við hann en það hafði
dregist. Ég hringdi í Eirík í Bíla-
prýði og sagði honum frá þessu.
Daginn eftir fékk ég sent vídeó frá
honum sem var til pabba, af bíln-
um, sem kom keyrandi: „Jæja
Berti minn, þarna kemur Re-
naultinn, kominn í gang og
bremsur í lagi, við erum bara að
bíða eftir númerunum, við geym-
um hann hérna á öruggum stað.“
Það lifnaði yfir pabba og hann
sendi Eiríki strax kveðju í vídeói,
þakkaði fyrir og sagði: „Mikið var
ég glaður og það bjargaði degin-
um að fá þetta vídeó, þetta var
eitthvað það besta sem gat skeð,
því ég átti þetta eina verkefni eft-
ir, að koma bílnum í gegnum skoð-
un.“ Þetta var 13. ágúst. Pabbi
minn kláraði það sem hann byrj-
aði á og þetta var síðasta verk-
efnið.
Hann byrjaði ungur að vinna
og féll aldrei verk úr hendi, hvort
sem það var að gera við bíla,
smíða, steypa, leggja rafmagn,
pípulagnir, gera upp húsgögn eða
spila og syngja. Hann var lausna-
miðaður, ef það vantaði varahluti
bjó hann þá bara til.
Pabbi lét ekkert stoppa sig og
kom ekki við hvað öðrum fannst.
Hann fylgdist vel með þjóðmálum
og hringdi í fjölskylduna á mes-
senger fram á síðasta dag. Hann
las mikið, hafði dálæti á ljóðum og
var með stálminni. Skellti fram
vísum í miðju samtali eða setningu
sem kallaði fram bros.
Pabbi var lífsglaður, hjarta-
hlýr, hjálpsamur og vinmargur.
Faðmurinn var hlýr, við systur
skriðum gjarnan upp í fangið á
honum allar í einu. Pabbi og
mamma nutu þess að hlusta á tón-
list, ferðast og skoða náttúruna.
Tjaldútilegurnar voru ótalmargar
og maður hélt að Renault væri
torfærubíll.
Það reyndist pabba erfitt þegar
mamma fékk heilabilun og hvarf
inn í óminnið. Nú eru þau sam-
einuð í Sumarlandinu.
Kærar þakkir til allra sem hafa
annast hann í öllum hans veikind-
um. Sérstakar þakkir til Jóns
Þórs Sverrissonar hjartalæknis
og Friðriks Yngvasonar lungna-
læknis fyrir að vera til staðar fyrir
pabba í áratugi, takk fyrir fag-
mennskuna, virðinguna og vænt-
umþykjuna. Hún var gagnkvæm.
Pabbi var eins og góður bíll:
heillandi, fallegur, sterkbyggður,
kraftmikill, öruggur, sérútbúinn
og komst allt. Alveg sama hve oft
hann bilaði, jafnvel alvarlega, það
var alltaf hægt að gera við hann.
Og hann var keyrður þangað til
hann varð ónýtur. Það er vel við
hæfi að fylgja honum síðasta spöl-
inn í dag í grænum Renault 16, A
468, og gista í Hrafnó.
Elsku pabbi, takk fyrir allt.
Sakna þín. Elska þig. Stórt knús
frá Friðriki Sindra.
Og ég segi bara eins og þú:
„Síðast þegar ég sá hann var hann
horfinn.“
„Au revoir“,
Eva Ásrún.
Elsku afi minn, ég á ekki orð yf-
ir hversu þakklátur ég er fyrir allt
sem þú hefur kennt mér og fyrir
allar minningarnar með þér. Ekki
eru mörg eintök eins og þú, ég
elskaði allt brasið með þér og bíla-
stússið með öllu sem því fylgdi.
Það eru ekki margir afar á níræð-
isaldri sem finna bíl á Facebook
og senda barnabarnið út af örk-
inni til að ganga frá kaupunum. Þá
varstu í essinu þínu, hringjandi á
Messenger, já tæknin var engin
fyrirstaða. Snjallsími, tölva, ipad,
þú fannst bara út hvernig ætti að
nota þetta og varst óhræddur að
ýta á alla takkana. Þvílíkur meist-
ari. Það er óhætt að segja að góð-
hjartaðri mann er erfitt að finna,
eða þrjóskari. Þú munt alltaf eiga
stað í mínum hjarta elsku afi. Skil-
aðu kveðju til ömmu. Takk fyrir
allt.
Valdimar.
Elsku afi, takk fyrir allar minn-
ingarnar, skemmtunina, þrjósk-
una, kennsluna, veiðina, vísurnar
og öll þín persónueinkenni sem
gerðu þig einstakan. Margt og
mikið situr eftir í reynslubankan-
um eftir okkar kynni. Þar ber
helst að nefna frumkvæði þitt,
sköpunarhugsjón og framsækni.
Ekki má gleyma minninu sem var
alveg fram á síðustu stundu lyg-
inni líkast. Mikil fyrirmynd
varstu, enda gast þú gert við allt
milli himins og jarðar. Við fyrsta
tækifæri varstu byrjaður að raula
vísur líkt og enginn væri morg-
undagurinn.
Þín er sárt saknað, þó að lang-
þráð hvíld sé loks runnin upp. En
minningin lifir.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Þakka þér fyrir allt saman.
Guðmundur Þórir Sigurðsson.
Elsku afi.
Nú hefurðu loksins öðlast lang-
þráða hvíld. Amma hefur aldeilis
tekið vel á móti þér við komuna í
Sumarlandið. Þær eru óteljandi
minningarnar sem við bræður eig-
um úr Hrafnagilsstræti 12.
Hrafnó var okkar griðarstaður,
þar var svo gott að vera í faðmi
ykkar ömmu. Við munum báðir
eftir því að hafa vaknað marga þá
sumarmorgna sem við vorum hjá
ykkur við hljóðið í sláttuvélinni, þá
voruð þið amma löngu farin á fæt-
ur, amma byrjuð að slá og snyrta
fallega garðinn ykkar og þú í
garðhúsinu þínu að brasa við eitt
af þínum endalausu verkefnum.
Ekki var hjá því komist að þú
segðir okkur aðeins til hér og þar
á lífsleiðinni. Hvort sem það var
garðsláttur, snjómokstur, akstur,
viðgerðir, almennar lífskúnstir, nú
eða hvernig raða ætti í uppþvotta-
vélina, allt skyldi þetta gert rétt.
Samverustundirnar eru ótelj-
andi, á Akureyri, í Reykjavík og
meira að segja í Stokkhólmi.
Hringferðin sem við fórum um
landið er ógleymanleg, sem og
veiðiferðin okkar nið’rá ÚA-
bryggju þar sem við veiddum níu
stóra ufsa, settum í poka og fórum
með heim í Hrafnó, ömmu til
„mikillar“ gleði. Ekki má gleyma
heimsókn þinni til okkar bræðra
þegar við bjuggum báðir í Stokk-
hólmi 2015, þar sem þú lést þig
hafa það að keyra um og hristast
heillengi í hjólastólnum í Gamla
Stan í leit að skrúfu eða pinna í
eldgamlan prímus sem þú áttir.
Ekkert var of mikið vesen í þínum
augum.
Það væri hægt að skrifa marg-
ar síður um þig elsku afi því þú
varst hreinlega óborganlegur kar-
akter með risastórt hjarta. Við
munum sakna ykkar ömmu
óskaplega en hlýjum okkur við all-
ar minningarnar.
Elsku afi, takk fyrir allt.
Kysstu ömmu frá okkur.
Magnús og Albert.
Albert
Valdimarsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri
Elsku mamma, amma og langamma,
ANNA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR
kennari,
lést á hjartadeild Landspítalans
mánudaginn 23. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jón Ragnar Harðarson Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Svanlaug Elín Harðardóttir Theodór Skúli Þórðarson
Jóna Björk Guðmundsdóttir Jóhannes Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma
og systir,
MARGRÉT EIRÍKSDÓTTIR,
Eystra-Geldingaholti,
er látin.
Eiríkur Jónsson
Ólafur Jónsson
Árdís Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir Þorsteinn Guðmundsson
Sigþrúður Jónsdóttir Axel Árnason Njarðvík
Pálína, Jón Karl, Máni Sveinn
og Guðbjörg Eiríksdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÓMHILDUR EIRÍKSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
lést á heimili sínu sunnudaginn 29. ágúst.
Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju
laugardaginn 11. september klukkan 13.
Útförinni verður streymt.
Reynir Örn Finnbogason
Kristín Finnbogadóttir Snæbjörn Gíslason
Sigurey Finnbogadóttir
Hafdís Finnbogadóttir Steinar Sigurðsson
Hafrún Rafnar Finnbogad. Jónas Rafnar Ingimarsson
Steinunn Finnbogadóttir Freyr Héðinsson
Þorvaldur Finnbogason Þórdís Ögn Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN LÁRUS SÆMUNDSSON
frá Teigi í Hvammssveit,
Dalasýslu,
Gerplustræti 17, Mosfellsbæ,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu,
Brúnavegi, Reykjavík, miðvikudaginn 25. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðrún Einarsdóttir
Einar Þórir Kristjánsson Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
Sigrún Kristjánsdóttir Pálmi Bjarnason
Kristján Rúnar Kristjánsson Anna Sigurðardóttir
Gísli Kristjánsson
Guðjón Ingi Kristjánsson Brá Guðmundsdóttir
barnabörn og langafabörn
Móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSA SOFFÍA FRIÐRIKSDÓTTIR,
lést á heimili sínu, Hraunbúðum,
laugardaginn 21. ágúst.
Útförin fer fram frá Landakirkju
föstudaginn 3. september klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á heimasíðu Landakirkju,
www.landakirkja.is.
F.h. vandamanna,
Friðrik Gíslason
Ástkær bróðir okkar og faðir,
SÆMUNDUR KNÚTSSON
hjúkrunarfræðingur,
lést á Landspítalanum 29. ágúst.
Jarðarförin verður haldin í kyrrþey að ósk
hins látna.
Kári Knútsson
Steinunn Knúts Önnudóttir
Björn Knútsson
Sólveig Knútsdóttir
Tómas Sæmundsson
Sandra Sæmundsdóttir