Morgunblaðið - 02.09.2021, Qupperneq 50
50 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
✝
Sigurður
Magnússon
fæddist í Vest-
mannaeyjum 19.
apríl 1965. Hann
lést í vinnuslysi á
Eyrarbakka 24.
ágúst 2021.
Sigurður var
sonur hjónanna
Magnúsar Stefáns
Sigurðssonar, f. 14.
sept. 1938, dáinn
23. júní 1996 og Guðrúnar Þ.
Campbell, f. 17. maí 1943, seinni
maður Guðrúnar er Richard
Campbell og eru þau búsett í Flo-
rida.
Systir Sigurðar er María
Magnúsdóttir, f. 15. des. 1959,
eiginmaður hennar er Viðar Erl-
ingsson.
Eftirlifandi eiginkona Sig-
urðar er Björk Reynisdóttir, f.
31. mars 1968.
Sigurður og Björk trúlofuðu
sig árið 1983 og giftu sig 23. apríl
1997, foreldrar Bjarkar voru
hjónin Guðlaug Bjarney Elías-
dóttir og Reynir Geirsson.
Börn Sigurðar og Bjarkar eru:
1) Magnús Stefán, f. 10. nóv-
ember 1990, eiginkona Elísabet
Jónsdóttir, börn þeirra Kári
Freyr, fæddur 2018 og Katrín
Sara, f. 2021.
2) Elías Arnþór, f. 28. nóv-
ember 1994, unnusta Theodóra
Jóna Guðnadóttir.
3) Aníta Guðrún,
f. 19. mars 2000,
unnusti Bergsveinn
V. Ásmundsson.
4) Dagbjört Sara,
f. 1. september
2006.
Sigurður bjó með
foreldrum og systur
í Eyjum þegar gosið
mikla varð árið
1973 og flutti fjöl-
skyldan þá til Keflavíkur. Sig-
urður var snemma heillaður af
björgunarstörfum og áttu þær
björgunarsveitir sem hann starf-
aði með hverju sinni hug hans
allan. Fjölskyldan flutti á Selfoss
árið 2004 og hóf Siggi þá að
starfa með Björgunarfélagi Ár-
borgar og einnig börn hans þeg-
ar þau höfðu aldur til. Sigurður
vann fjölbreytt störf, en mest
tengt stórum vinnuvélum og
tækjum. Einnig keyrði hann
ferðabíl fatlaðra um tíma hér í
bæ og farþegarútur um allt land.
Útför Sigurðar verður gerð
frá Selfosskirkju 2. september
kl. 15. Streymt verður frá útför:
https://selfosskirkja.is/
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
Fjöldatakmarkanir í kirkju
eru 200 manns og verða kirkju-
gestir að skila inn miða með
nafni, kennit. og símanúmeri.
Elsku afi Siggi minn.
Þvílíkt dekur að fá að komast til
þín, tókst alltaf á móti mér tilbú-
inn í prakkaraskap og dund með
verkfærin í skúrnum eða jafnvel
inni á stofugólfi. Hjá afa Sigga
skipti engu máli hvað klukkan var
eða hvaða dagur var, það var alltaf
tilefni fyrir snakk eða ís og þá að
lágmarki tvo. Hjá afa Sigga lifði
ég alltaf eins og kóngur, hann var
alltaf svo góður við mig. Ég mun
sakna þín og elska þig að eilífu.
Þinn afastrákur,
Kári Freyr.
Kæri mágur.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Að setjast niður og skrifa minn-
ingargrein um þig er eitthvað sem
ég bjóst aldrei við að gera. En
slysin gera ekki boð á undan sér
og nú ert þú fallinn frá, allt of
snemma. Þú hefur verið hluti af
lífi mínu síðan 1983 þegar þú
kynntist litlu systir og heillaðir
hana upp úr skónum. Þegar þið
fjölskyldan fluttuð á Selfoss árið
2004 var stutt á milli okkar og ófá-
ar stundirnar sem þú leist við í
skúrnum hjá mér, bara í spjall og
kaffi. Þú varst svo duglegur að
segja fréttir og gleðitíðindi af
börnum þínum, nú síðast fyrir
nokkrum vikum sagðir þú mér að
nú ættu Elías og Theodora Jóna
von á barni í nóvember og var
gleði þín mikil. Það hefur verið
ljúft að fylgjast með börnum ykk-
ar Bjarkar fullorðnast, þeim geng-
ur svo vel og tengdabörnin þín og
barnabörnin eru yndislegt fólk,
missir þeirra er mikill og ekki síst
litlu systur minnar sem hefur ver-
ið með þér meirihluta ævi sinnar.
Ég lofa þér því að ég mun fylgjast
vel með þeim og hjálpa eins og ég
get. Ótal atvik rifjast upp frá fyrri
árum þegar stór-fjölskyldan í
Álftamýri fór í útilegur, þá var
glatt á hjalla. Þú varst einhver
mesti útilegumaður sem ég þekki,
byrjaðir í tjaldi og færðir þig svo
upp á skaftið eftir því sem þróunin
varð og nú síðast voruð þið komin
með hjólhýsi á Flúðum og ég veit
að þar leið þér vel í kyrrðinni með
fólkinu þínu. Takk vinur minn fyr-
ir öll árin okkar saman. Við Ásdís,
okkar börn og fjölskyldan öll
sendum innilegar samúðarkveðj-
ur til ykkar elsku fjölskylda Sigga,
harmur ykkar er mikill og sorgin
er sár, Guð blessi minningu góðs
drengs sem við verðum nú að
kveðja. Við verðum til staðar.
Þinn
Bjarni Ómar.
Hey, ertu ekki Vestmannaey-
ingur? Þannig hljómaðir þú á
Esso/N1 þar sem ég vann og þú
varst tíður gestur í kaffi þar!
Þannig byrjaði okkar vinskapur
árið 2005. Og það var ekki bara
einhver vinátta heldur kærleikur,
traust og gagnkvæm virðing líka.
Að setjast við tölvu 16 árum
seinna og skrifa minningargrein
um þig, Siggi, er einfaldega óraun-
verulegt og eitthvað svo óréttlátt
að ég á bara í vanda með hvernig
ég á að skrifa um þig, aðeins 56
ára gamlan. En hugurinn reikar
til baka og það sem kemur upp í
hugann er hversu mikill gæða-
drengur þú varst. Og við áttum al-
veg óteljandi stundir yfir spjalli
um lífið og tilveruna, bjuggum
báðir í Hagahverfinu á Selfossi og
hittumst fyrir utan heimili okkar
beggja og málin voru rædd, þér
var mikið umhugað um hvernig
mér gengi í lífinu, bæði hvað varð-
ar edrúmennsku mína og að vinna
úr mínum áföllum frá unglingsár-
um mínum. Svo fyrir þremur ár-
um er ég missti vinnuna og átti
erfitt eftir það, sýndir þú hvaða
mannkosti þú hafðir, þú varst
duglegur hjálpa mér að tala um
það atvik þannig að mér gengi
betur að horfa fram á við í lífinu.
Fjölskyldumaður varstu fram í
fingurgóma og það var aðdáunar-
vert að sjá hvað þú og Björk voruð
samtaka í öllu varðandi börnin,
húsið og garðinn og þegar ég sá
ykkur saman í göngutúr eða hjó-
latúr leyndi sér sko ekki hvað þið
voruð hamingjusöm og glöð sam-
an. Missir eiginkonu, barna og
barnabarna er langmestur og þau
sitja eftir ein og syrgja yndislegan
mann sem fór allt of snemma,
mann sem var traustur, duglegur
og með mikla hæfileika. Elsku
Björk og börn, megi góður guð
gefa ykkur styrk í sorginni . Siggi,
takk fyrir að vera vinur minn,
takk fyrir standa með mér í öllu,
ég mun svo sannarlega geyma
okkar stundir í mínu hjarta.
Sjáumst síðar, þinn vinur
Sigurbjörn Snævar
Kjartansson (Sibbi).
Sigurður
Magnússon✝
Leifur Eiríks-
son fæddist á
Siglufirði 23. nóv-
ember 1939. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sunnu-
hlíð 28. ágúst 2021.
Foreldrar hans
voru Eiríkur Guð-
mundsson, verk-
stjóri og trésmiður,
f. 28. júní 1908, d.
9. maí 1980 og
Herdís Ólöf Jónsdóttir hús-
freyja, f. 11. ágúst 1912, d. 1.
september 1996. Systkini Leifs:
Sigurlína, f. 30. ágúst 1932, d.
28. ágúst 2016. Friðrik, f. 5.
október 1934, d. 15. nóvember
2017. Jón, f. 30. apríl 1937, d.
15. febrúar 2005. Gylfi, f. 11.
maí 1945. Jóhanna, f. 9. sept-
ember 1946. Bergur, f. 22. jan-
úar 1949, d. 16. maí 2004.
Guðný, f. 9. maí 1951. Ása, f. 1.
júní 1954, d. 24. febrúar 2019.
Kristín, f. 4. júlí 1955.
Leifur kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Guðrúnu Öldu
Jónsdóttur, 9. september 1967 á
Ísafirði, f. 11. janúar 1942. For-
eldrar hennar voru Jón Jóhann-
esson, f. 7. nóvember 1900, d. 2.
júlí 1973 og Guðrún Guðmunds-
dóttir, f. 1. júlí 1906, d. 24. jan-
úar 1974. Börn Leifs og Öldu
eru: Eiríkur, f. 29. maí 1966,
maki Laufey Vilmundardóttir.
Börn Eiríks eru: Leifur, f. 11.
desember 1989, maki Erla
Björnsdóttir, barn
þeirra Eiríkur
Björn, f. 29. októ-
ber 2010. Eva Rut,
f. 13. febrúar 1992,
maki Emil Freyr
Guðmundsson,
börn þeirra Ævar
Nói, f. 18. sept-
ember 2018 og
Brynjar Áki, f. 27.
september 2020.
Börn Eiríks og
Laufeyjar: Brynjar, f. 10. júlí
2004, d. 10. júlí 2004, Birta, f.
20. febrúar 2007. Börn Lauf-
eyjar eru Sævar og Andri. Jón,
f. 6. apríl 1971, maki Gígja
Gylfadóttir, f. 28. júlí 1965.
Börn Jóns eru Dagný Alda, f.
19. ágúst 2001 og Jón Bjartur,
f. 11. júlí 2010. Börn Gígju eru
Styrmir og Sölvi. Gunnhildur, f.
3. október 1974, börn Aron
Ingi, f. 5. apríl 2001 og Daníel
Orri, f. 2. apríl 2005. Linda, f.
15. apríl 1978, börn Davíð Már,
f. 6. október 2006 og Logi
Freyr, f. 29. september 2009.
Leifur ólst upp á Siglufirði.
Hann sinnti ýmsum störfum til
sjós og í landi. Hann lauk
sveinsprófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík í kjötiðn og vann alla
sína starfstíð við þá iðn, lengst
hjá Sláturfélagi Suðurlands.
Leifur verður jarðsunginn
frá Lindakirkju í dag, 2. sept-
ember 2021, og hefst athöfnin
kl. 13.
Við þökkum fyrir ástúð alla,
indæl minning lifir kær.
Nú mátt þú vina höfði halla,
við herrans brjóst er hvíldin vær.
Í sölum himins sólin skín
við sendum kveðju upp til þín.
(H J)
Megi minning um einstakan
eiginmann lifa.
Þín
Alda.
Okkur systur langar að minn-
ast pabba með nokkrum orðum.
Það er svo skrítið hvernig hug-
urinn hefur farið á flug eftir að þú
kvaddir, ótal ljúfar og skemmti-
legar minningar sprottið fram.
Þú varst mjög stoltur af því að
vera Siglfirðingur og þegar við
ólumst upp var farið að minnsta
kosti einu sinni á hverju sumri
þangað. Þú hafðir áhuga á dýrum
og náttúrunni og við munum vel
eftir öllum ferðalögunum innan-
lands þegar fræddir þú okkur um
landið. Okkur er það alltaf minn-
isstætt þegar við keyrðum
Skagafjörðinn, þá vorum við allt-
af spurðar um eyjarnar, Drang-
ey, Málmey og Þórðarhöfða. Eins
þegar við keyrðum Kjalarnesið
sagðir þú okkur alltaf frá súr-
heysturnunum þremur sem þú
byggðir. Við segjum sonum okk-
ar líka frá þessu í hvert skipti
sem við keyrum þarna fram hjá.
Þú varst mikill skákmaður,
tefldir mikið og kenndir bæði
börnum og barnabörnum mann-
ganginn.
Þú varst mikill barnakarl og
hafðir unun af barnabörnunum.
Þú áttir alltaf Prins Póló til þess
að lauma að okkur. Þegar krakk-
arnir voru minni var oft ansi fjöl-
mennt í heimsókn, þá áttir þú það
til að segja þegar við vorum að
fara komið endilega fljótt aftur,
það er svo notalegt þegar þið far-
ið.
Þrátt fyrir að minnið hafi verið
farið að bresta þá mátti samt allt-
af sjá glitta í þig. Eins og þegar
þú hermdir eftir fólki, því þú
varst ágætiseftirherma eða þeg-
ar þú sagðir við mömmu það er
alltaf sama forvitnin í henni.
Við vitum að þú ert hjá okkur
og heldur áfram að leiða okkur í
gegnum lífið. Við viljum þakka
fyrir allar góðu stundirnar sem
við áttum með þér.
Þínar dætur
Gunnhildur og Linda.
Elsku pabbi,
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís H. Jónsdóttir)
Við kveðjum pabba með sökn-
uði og biðjum góðan Guð um að
vernda þig. Þín verður sárt sakn-
að, minning þín lifir.
Eiríkur, Jón, Gunnhildur
og Linda.
Endar nú dagur, nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Vertu yfir um og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku afi, við þökkum fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
með þér. Þín verður sárt saknað.
Þín barnabörn,
Aron Ingi, Daníel Orri,
Davíð Már, Logi Freyr,
Dagný Alda, Jón Bjartur,
Birta, Leifur og Eva Rut.
Leifur Eiríksson
Okkar ástkæri
SIGURÐUR EGGERTSSON,
fyrrum hljóðmeistari Þjóðleikhússins,
Hvassaleiti 58,
sem lést 29. ágúst, verður jarðsunginn
föstudaginn 3. september frá Grensáskirkju
klukkan 15.
Elín Sigurvinsdóttir
Jónína Sigurðardóttir Rafn Ingólfsson
Sigrún Sigurðardóttir Helgi Daníelsson
Sigurður Sigurðsson Elín Ólafsdóttir
Sigurvin Sigurðsson Kristrún Daníelsdóttir
barnabörn, langafabörn og langalangafabörn
Elskulega móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA G. SVEINSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 22. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 6. september klukkan 11.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Eir fyrir góða
umönnun.
Margrét Gunnarsdóttir Baldvin Reynisson
Lára Ingibjörg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR AÐALSTEINSSONAR.
Steinunn Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Guðmundsson Ásta S. Aðalsteinsdóttir
Birgir Örn Guðmundsson Gunnlaug Guðmundsdóttir
Guðm. Gylfi Guðmundsson Helga Aspelund
barnabörn og barnabarnabörn
Konan mín,
AÐALHEIÐUR SVANSDÓTTIR,
Vesturhólum 23,
sem andaðist á Hrafnistu, Reykjavík,
laugardaginn 21. ágúst, verður jarðsungin
frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn
3. september klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hilmar Hlíðberg Gunnarsson
Hlíf Bjarnadóttir og börn
Viktor Bjarnason
Ástkær faðir og fósturfaðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
SVEINN GUNNLAUGSSON,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
17. ágúst. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn
6. september klukkan 13.
Jenný Sveinsdóttir Þorvaldur Böðvarsson
Sigríður Sigtryggsdóttir Pétur Pétursson
Agnes Sigtryggsdóttir Siamack Atiabi
barnabörn, barnabarnabörn og systur