Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Tjarnarbíó er hús þar sem sjálf-
stæðar sviðslistir eiga aðsetur.
Reynsla okkar úr kófinu hefur
verið að verkefni detta inn og út
og því er sveigjanleiki lykillinn. Af
þeim sökum munum við hvorki
gefa út formlegan bækling fyrir
leikárið né vera með kortasölu. Við
munum vera opið hús sem hýsir þá
viðburði sem þarf að hýsa,“ segir
Friðrik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Tjarnarbíós, um
komandi starfsár. Aðspurður seg-
ist hann engu að síður geta gefið
innsýn í nokkur þeirra verkefna
sem þegar er búið að bóka inn í
húsið í vetur. „Sýningar eru hafn-
ar á samtímaóperunni og verð-
launasýningunni Ekkert er sorg-
legra en manneskjan eftir Friðrik
Margrétar-Guðmundsson í leik-
stjórn Adolfs Smára Unnarssonar
sem frumsýnd var í vor við miklar
samkomutakmarkanir. Sýningar
hefjast brátt á sirkussýningunni
Allra veðra von eftir sviðslistahóp-
inn Hringleik. Auk þess verður
hér sýndur söngleikurinn Fimm ár
eftir Jason Robert Brown í leik-
stjórn Völu Kristínar Eiríksdóttur
sem sýndur var í Hörpu síðasta
vor.“
Dansinn dunar þetta haustið
Fyrsta frumsýningin á nýrri
sýningu verður annað kvöld á
VHS krefst virðingar frá uppi-
standshópnum VHS,“ segir Frið-
rik, en hópinn skipa Vigdís Haf-
liðadóttir, Vilhelm Neto, Hákon
Örn Helgason og Stefán Ingvar
Vigfússon.
„Í október frumsýnum við Neind
Thing – In the Garden of Everyt-
hing eftir Ingu Huld
Hákonardóttur sem ekki náðist að
frumsýna í vor vegna kófsins. Hér
er um að ræða verk sem Inga
Huld semur í samvinnu við sviðs-
listakonurnar Salvöru Gullbrá Þór-
arinsdóttur og Védísi Kjart-
ansdóttur og trommarann Ægi
Sindra Bjarnason. Í verkinu er
leitast við að umbreyta ástandi
óreiðu og ömurleika í rými til að
tengjast, dreyma, íhuga, dansa og
leika.
Sólóverkið Rof eftir Sveinbjörgu
Þórhallsdóttur verður síðan frum-
sýnt á Reykjavík Dance Festival í
nóvember. Verkið verður fyrsti
afrakstur dansrannsóknar sem
höfundur vinnur að sem felst í því
að þróa nýja aðferð í kóreógrafíu,“
segir Friðrik. Dansari verksins er
Halla Þórðardóttir, tónlist semur
Valgeir Sigurðsson og sjónræna
umgjörð hannar Eva Signý
Berger. Líkt og síðustu ár verður
á aðventunni boðið upp á
Jólaævintýri Þorra og Þuru úr
smiðju Agnesar Wild og Sigrúnar
Harðardóttur sem Sara Martí
Guðmundsdóttir leikstýrir. Þetta
er hugljúf saga sem minnir okkur
á að kærleikurinn er sterkasta afl-
ið í heiminum,“ segir Friðrik.
Ljóðrænt, beinskeytt og hrátt
„Í desember verður frumsýndur
einleikurinn Það sem er eftir
danska verðlaunaleikskáldið Peter
Asmussen í leikstjórn Ólafs Egils
Egilssonar, en María Ellingsen
leikur í verkinu,“ segir Friðrik og
rifjar upp að María hafi áður leikið
í verkinu Enginn hittir einhvern
eftir sama leikskáld í Norræna
húsinu 2016. „Einleiknum má lýsa
sem fallegu, miskunnarlausu og
hráu verki. Það fjallar um ást, svik
og eftirsjá, múrinn á milli fólk og
biðina eftir því að lífið geti hafist.
Þetta er verk þar sem ekkert ger-
ist og allt gerist.“
Fyrsta frumsýning á nýju ári er
uppfærsla sviðslistahópsins
Fimbulveturs á Blóðugu kanínunni
eftir Elísabetu Kristínu Jökuls-
dóttur í leikstjórn Guðmundar
Inga Þorvaldssonar. „Þetta mun
vera ævintýra-sviðsverk um
áfallastreituröskun ætlað fyrir sex
leikara. Hér er á ferðinni ljóðrænt,
beinskeytt og súrrealískt verk.
Fíflið nefnist nýr og persónu-
legur einleikur eftir Karl Ágúst
Úlfsson í leikstjórn Ágústu Skúla-
dóttur sem frumsýndur verður í
febrúar í tilefni af 40 ára leik-
afmæli höfundar. Í verkinu fer
Karl Ágúst yfir feril sinn þar sem
hann líkir sjálfum sér við hirðfífl
eins og þau birtast í verkum
Shakespeares og víðar og veltir
fyrir sér því hlutverki sem hann
hefur gegnt á ferli sínum sem höf-
undur og flytjandi þjóðfélags-
ádeilu, sem oft hefur komið við
kaunin á valdhöfum í samfélaginu.
Með metnaðinn að vopni
Hetja nefnist grímuleikur í leik-
stjórn Ágústu Skúladóttur sem
leikhópurinn Skýjasmiðjan frum-
sýnir í apríl. „Leikhópinn skipa
Orri Huginn Ágústsson, Stefán
Benedikt Vilhelmsson og Aldís
Davíðsdóttir, sem hannar heil-
grímur sem notaðar eru í sýning-
unni,“ segir Friðrik og rifjar upp
að sami hópur hafi sett upp
Hjartaspaða 2012 við góðar við-
tökur. „Hetja fjallar um unglækni
sem mætir fyrsta dag sinn til
vinnu á spítala með miklar vænt-
ingar og metnaðinn að vopni. Lífið
á spítalanum reynist hins vegar
flóknara en nokkur gat búist við,“
segir Friðrik og tekur fram að hér
sé á ferðinni rannsóknarverkefni
sem leikhópurinn vinni í sam-
sköpun.
„Í vor verður frumsýnt Verk 2.0
eftir Steinunni Ketilsdóttur. Þar
er um að ræða þriðja verkið í röð
verka sem spretta upp af rann-
sóknarverkefninu Expressions,
sem Steinunn leiðir í samstarfi við
hóp lista- og fræðimanna. Dans-
arar eru Lovísa Ósk Gunnars-
dóttir, Snædís Lilja Ingadóttir og
Védís Kjartansdóttir með tónlist
eftir Áskel Harðarson.“
Af öðrum verkefnum starfsárs-
ins nefnir Friðrik að sviðslistahóp-
urinn Sómi þjóðar sé með tvö
verkefni í vinnslu um áleitin sam-
félagsmál sem sennilega verða
frumsýnd í haust. „Svo má nefna
að í október mun Þór Breiðfjörð
vera með opna kynningu á söng-
leik sem hann er með í smíðum.
Við munum að vanda einnig hýsa
að hluta eða í heild sviðslistahá-
tíðir eins og UNGI sem samtökin
ASSITEJ standa fyrir, Reykjavík
Dance Festival og Lókal auk þess
sem við hýsum vinnustofu fyrir
Spindrift,“ segir Friðrik og tekur
fram að í kortunum séu líka
spennandi verkefni úr smiðju Rún-
ars Guðbrandssonar, sem of
snemmt sé að segja frá, og Eddu
Bjargar Eyjólfsdóttur sem senni-
lega frestist til haustsins 2022
vegna anna hennar.
Komin yfir erfiðasta hjallann
„Við finnum það hjá gestum
okkar að þeir líta á Tjarnarbíó
sem spennandi viðburðahús þar
sem hægt er að sækja áhugaverð-
ar sýningar. Eins og venjulega
verðum við með mjög fjölbreyttar
sýningar, s.s. barnasýningar, sirk-
ussýningar, danssýningar, leiksýn-
ingar og uppistand,“ segir Friðrik
og tekur fram að lærdómurinn af
kófinu sé að enginn þori að gera
langtímaspár.
Spurður hvernig Tjarnarbíó hafi
staðið af sér kófið fjárhagslega
segir Friðrik að þar á bæ hafi ver-
ið brugðist við með samdrætti,
uppsögnum og niðurskurði.
„Reykjavíkurborg, sem er helsti
styrktaraðili þessa húss, kom okk-
ur til bjargar með fimm milljóna
króna viðbótarframlagi. Ég tel því
að við séum komin yfir erfiðasta
hjallann,“ segir Friðrik og gagn-
rýnir að íslenska ríkið hafi ekki
staðið sig gagnvart sjálfstæðum
leikhópum. „Tjarnarbíó, líkt og
sjálfstæðir leikhópar, er rekið sem
menningarstarfsemi sem ber tak-
markaða skattskyldu. Lög og
reglugerðir um tekjufallsstyrki og
lokunarstyrki gerðu slíkum
félögum kleift að sækja í slíka
styrki í byrjun þegar ljóst var að
loka þyrfti öllu vegna samkomu-
takmarkana og -banns. Stuttu
síðar var regluverkinu breytt á þá
leið að slíkir styrkir stóðu menn-
ingarfélögum ekki lengur til boða
heldur aðeins fyrirtækjum sem
bera ótakmarkaða skattskyldu.
Þar með höfðu rekstraraðilar í
menningarstarfsemi engin úrræði
þegar þeim var gert að loka að
kröfu stjórnvalda,“ segir Friðrik
og rifjar upp að í ræðu á þingi í
apríl 2020 hafi fjármálaráðherra
sagt að ekki væri nema eðlilegt að
öllum þeim sem gert væri að loka
að kröfu stjórnvalda væri bættur
sá skaði.
Starfsfólk staðið með húsinu
„Ef við hefðum getað nýtt okkur
lokunarstyrki og hlutabótaleiðina
hefðum við ekki þurft að segja upp
starfsfólki hússins með tilheyrandi
hættu á spekileka, því Tjarnarbíó
er ekki neitt án starfsfólksins.
Sem betur fer hefur starfsfólkið
staðið með húsinu, en það þýðir í
raun að það hefur tekið á sig fjár-
hagshöggið fyrir húsið,“ segir
Friðrik og undirstrikar að ríkið
hafi ekki staðið sig gagnvart sjálf-
stæðum leikhópum.
Friðrik rifjar upp að ríkið hafi
sett auka 90 milljónir í Sviðs-
listasjóð sumarið 2020. „En sú
styrkveiting gagnaðist aðeins nýj-
um verkum. Þá þegar var ljóst að
það væri ekki pláss fyrir þau verk-
efni í þeim sýningarrýmum sem
fyrir eru og er sá vandi óleystur.
Einnig er gagnrýnivert að ekkert
hafi verið brugðist við vanda
þeirra sem voru með sýningar í
framleiðslu þegar kófið skall á,“
segir Friðrik og nefnir sem dæmi
að ítrekað hafi þurft að fresta
frumsýningu á Verki 2.0 eftir
Steinunni frá vori 2020. „Þessi
sýning hefur lent sérstaklega illa í
kófinu vegna samkomutakmarkana
með tilheyrandi kostnaði við að
æfa verkið ítrekað upp án þess að
geta sýnt,“ segir Friðrik og tekur
fram að dæmin séu fleiri. Nefnir
hann í því samhengi erfiða stöðu
Leikhópsins Lottu sem neyðist
annað árið í röð til að fresta upp-
færslu á Rauðhettu, enda starf-
semi hópsins að mestu rekin án
styrkja.
Skapandi greinar framtíðin
„Sjálfstæðir sviðslistahópar eiga
enga digra sjóði til að sækja í til
að mæta svona áfalli,“ segir Frið-
rik, sem hefur ásamt Orra Hugin
Ágústssyni, formanni Sjálfstæðu
leikhúsanna, veitt umsagnir um
ýmis þau úrræði stjórnvalda sem
kynnt hafa verið til handa atvinnu-
lífinu án þess að tillit hafi verið
tekið til ábendinga þeirra.
„Það sem ég óttast mest í fram-
haldinu er að menningin í heild
lendi undir niðurskurðarhníf hjá
ríkinu þegar ríkið er búið að grípa
alla atvinnustarfsemina í landinu.
Ég óttast að litið verði svo á að
menningin sé einhver fita sem
megi skera af. Það má ekki verða
enda eru skapandi greinar framtíð
hverrar þjóðar, því þar leynast
framtíðartækifærin,“ segir Friðrik
og bendir á að hann og fleiri hafi
lengi bent á að sjálfstæðar sviðs-
listir fá aðeins brot af þeirri köku
sem veitt er til sviðslista í landinu.
„Að meðaltali renna 8% af opin-
beru fé, bæði frá ríki og sveitar-
félögum, til sjálfstæðra sviðslista á
sama tíma og 95% þeirra verka
sem sýnd eru hjá sjálfstæðu sen-
unni eru ný verk. Við erum yfir-
leitt að fást við óþekktar stærðir
og nýsköpun, en ekki vinsæla
söngleiki, klassísk verk eða epísk-
ar bókmenntir sem draga að
áhorfendur. Auk þess sem við höf-
um ekki fjárhagslegt bolmagn til
að auglýsa og draga þannig að
gesti í stórum stíl,“ segir Friðrik
og bendir á að sjálfstæða sviðs-
listasenan rúmi spennandi form-
tilraunir.
„Auðvitað viljum við hafa sterkt
og gott Þjóðleikhús og Borgarleik-
hús, en það þarf líka að hlúa að
sjálfstæðu senunni og huga að því
að jafna tækifærin í greininni,“
segir Friðrik og tekur fram að í
aðdraganda alþingiskosninga vilji
listafólk setja menningarmálin á
dagskrá. „Ég veit að Bandalag
íslenska listamanna var að gefa út
podkast með fulltrúum stjórn-
málaflokkanna. Þann 11. sept-
ember munum við kalla að borðinu
fulltrúa allra flokkanna til að
leggja fyrir þá spurningar um
stefnu flokkanna þegar kemur að
menningunni. Sumir flokkar hafa
þegar birt menningaráætlun sína
meðan enn skortir svör hjá öðrum
flokkum. Þetta langar okkur til að
draga fram og eiga samtal um.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stuðningur „Sjálfstæðir sviðslistahópar eiga enga digra sjóði til að sækja í til að mæta svona áfalli,“ segir Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri.
„Spennandi viðburðahús“
- Tjarnarbíó viðburðahús þar sem hægt er að sækja áhugaverðar sýningar - Boðið upp á barna-
sýningar, sirkus, dans, leiksýningar og uppistand - Styðja þarf betur við sjálfstæða sviðslistahópa