Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 58

Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Algeng einkenni B-12 skorts: • Nálardofi í hand- og fótleggjum • Erfiðleikar með gang • Skapsveiflur • Minnisleysi Munnúði tryggir hraða og góða upptöku þar sem vítamínið frásogast auðveldlega í gegnum slímhúðina í munninum og beint út í blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til a tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12 vítamíni og til að verja okkur gegn skorti. Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. B12 - MUNNÚÐI SEM VIRKAR Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Blásið verður til mikillar bók- menntaveislu miðvikudaginn 8. sept- ember þegar Alþjóðlega bókmennta- hátíðin í Reykjavík hefst. Hún stendur fram á laugardag 11. september. Hátíðin hefur verið haldin að jafnaði annað hvert ár frá árinu 1985 og er því haldin í fimm- tánda sinn. Von er á fjölda höf- unda, auk útgef- enda og blaða- fólks, sem koma víðs vegar að til þess að taka þátt, hitta lesendur, fylgjast með nýjum vendingum í bókaheiminum og kynnast íslensk- um höfundum. „Það sem einkennir hátíðina í ár er að við fáum höfunda frá svo mörg- um mismunandi löndum,“ segir Stella Soffía Jóhannesdóttir, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. „Við eigum von á fjölda erlendra gesta og við erum vel sett í ár að því leyti að margar bóka þessara höfunda eru til í íslenskum þýðingum. Svo verða aðrir höfundar sem eru kannski minna þekktir hér á landi og hafa ekki verið þýddir á íslensku en við teljum engu að síður eiga erindi við lesendur á Íslandi.“ Alla leið frá Damaskus Einn af þessum erlendu gestum er sýrlenski höfundurinn Khaled Khalifa. Verk hans Dauðinn er barn- ingur hefur komið út í íslenskri þýð- ingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Khalifa er búsettur í Damaskus. „Það er eitthvað svo sérstakt að fá hann hingað til lands, í öryggið, en hann kýs sjálfur að yfirgefa ekki heimaland sitt. Hann mun þurfa að leggja á sig langt ferðalag til að kom- ast hingað.“ Annar höfundur sem á verk sem hefur komið út hjá Angústúru er blaðamaðurinn Barbara Demick. „Hún skrifar þessar ótrúlega áhuga- verðu bækur um málefni líðandi stundar, frábær penni og á mjög flottan starfsferil sem blaðamaður að baki. Hún einblínir á lokuð sam- félög, Norður-Kóreu fyrst og svo var að koma út bók um Tíbet og ítök Kínverja þar. Það verður algjörlega brilljant að heyra hana fjalla um þessi verk,“ segir Stella. „Svo er Saša Stanišic annar höf- undur sem er mjög merkilegur. Hann er upprunalega frá Bosníu en flúði Bosníustríðið sem unglingur og flutti til Þýskalands. Þýska, tungu- málið sem hann skrifar á, er ekki hans móðurmál.“ Hann hlaut þýsku bókmenntaverðlaunin árið 2019 fyrir bók sína Herkunft sem kom út í íslenskri þýðingu Elísu Bjargar Þor- steinsdóttur undir heitinu Uppruni. Stella nefnir einnig höfund verks- ins Álabókin: Sagan um heimsins furðulegasta fisk, hinn sænska Pat- rik Svensson. „Það er svo ótrúlega fallegt hvernig höfundurinn blandar saman minningum og vísindum. Þetta er fyrst og fremst bók um sorg auk þess sem þetta er óheyrilega áhugaverð bók um lífshlaup ála.“ Tyrkneski rithöfundurinn Elif Shafak mun einnig koma fram á hátíðinni. Bók hennar 10 mínútur og 38 sekúndur í þessari undarlegu ver- öld kom nýverið út í íslenskri þýð- ingu Nönnu Þórsdóttur. Þá koma til landsins Nina Wähä, höfundur Ættarfylgjunnar, Leila Slimani, höfundur Í landi annarra, og Helene Flood, höfundur Þerapist- ans. Aðrir gestir verða Vigdis Hjorth, Joachim B. Schmidt, Kristof Magnusson og Nadja Spiegelman. Nýtt í íslenskum bókmenntum Íslenskir höfundar eru að sjálf- sögðu líka í stóru hlutverki á hátíð- inni. „Það er líka hlutverk hátíðar- innar að setja íslenska höfunda í samhengi við erlenda höfunda og það sem er að gerast úti í heimi. Sumir þeirra hafa verið að í áratugi, eins og Þórarinn Eldjárn. Það er alltaf gaman að hlusta á hann,“ segir Stella. Auk þess koma ýmsir af yngri höfundum landsins fram. Nokkrir gestir hátíðarinnar vinna á mörkum ólíkra landa og ólíkra tungumála og Stella nefnir sem dæmi Mao Alheimsdóttur. „Hún er pólsk en skrifar á íslensku. Það er eitthvað alveg nýtt sem er að gerast í íslenskum bókmenntum og mér þyk- ir það mjög spennandi.“ Aðrir íslenskir gestir verða María Elísabet Bragadóttir, Sigrún Páls- dóttir, Alexander Dan, Halla Þór- laug Óskarsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Bergþóra Snæbjörns- dóttir, Ingólfur Eiríksson, Gerður Kristný, Sverrir Norland og Egill Bjarnason. Eliza Reid verður einnig með á hátíðinni en hún hefur, auk þess sem hún sinnir hlutverki sínu sem for- setafrú, skrifað bókina Secrets of the Sprakkar: Iceland’s Extraordinary Women and How They Are Chang- ing the World sem væntanleg er til útgáfu á íslensku seinna í haust í þýðingu Magneu Matthíasdóttur. „Við reynum að raða saman ólík- um höfundum, bæði íslenskum og erlendum, í prógrömm sem hverfast um eitthvert ákveðið þema. Höfund- arnir munu að sjálfsögðu líka lesa upp úr verkum sínum á sínu eigin tungumáli og við vörpum upp þýð- ingum. Við fáum að heyra fjölbreytt tungumál, alls konar bókmenntir og alls konar þemu. Ég er mjög ánægð að sjá hvað það ætla margir gestir að koma. Þetta verður alveg æðislega gaman. Ég finn líka fyrir því hvað fólk er orðið þyrst í svona hátíð.“ Stella vekur einnig athygli á dag- skrá í Norræna húsinu sem tengist Múmínálfunum. Það verður vinnu- stofa sem hverfist um lestur og er ætluð börnum og fjölskyldum þeirra. Dagskrá Bókmenntahátíðar fer fram í Norræna húsinu á daginn og í Iðnó á kvöldin. Aðgangur er nú sem áður ókeypis auk þess sem hægt verður að fylgjast með í streymi. Bókmenntaverðlaun Halldórs Lax- ness verða síðan veitt í annað sinn í Veröld 11. september kl. 16. Íslensk-norski djasskvartettinn Astra heldur út- gáfutónleika vegna plötunnar In orbit á Jazz- hátíð Reykjavík- ur í kvöld kl. 21.15 í Flóa í Hörpu. Platan kom út hjá AMP- útgáfunni í Nor- egi snemma á þessu ári. Hljómsveit- ina skipa Sigurður Flosason á saxó- fón og Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Norðmennirnir Andreas Dreier á kontrabassa og Anders Thoren á trommur. Í stað þess síðarnefnda leikur Frederik Vill- mow á trommur á þessum tón- leikum. Hljómsveitin flytur tónlist eftir þá Andrés og Sigurð á tónleik- unum í kvöld og er tónlistin sögð innblásin af himingeimnum og óra- víddum hans. Astra heldur útgáfutónleika Andrés Þór Gunnlaugsson Í lofti, á láði og legi nefnist sýn- ing Þorgerðar Jörundsdóttur sem opnuð verð- ur í Borgar- bókasafninu í Spönginni í dag kl. 17. Þorgerð- ur sýnir blek-, tússteikningar og blýantsverk sem sýna líf- fræðilegan fjölbreytileika og tengsl mannsins við náttúruna, að því er fram kemur í tilkynningu og er viðfangsefni sýningarinnar sagt lífræðilegur fjölbreytileiki og tengsl mannsins við náttúru og umhverfi. „Á þessum þverstæðu- kenndu tímum sem við lifum ríkir annarsvegar sú hugmynd að mað- urinn hafi náð fullu valdi yfir nátt- úrunni en á sama tíma stefnir allt í óafturkræfar breytingar og eyð- ingu lífríkisins,“ segir í tilkynn- ingu. Verkin séu unnin í miklum smáatriðum og undir stækkunar- gleri og að auki séu ljósmyndir af náttúru og hálfmennskri furðu- veru á ferðalagi. Búningur ver- unnar er til sýnis og mun gestum gefast kostur á að máta hann og taka af sér mynd. Í lofti, á láði og legi Verk eftir Þorgerði Danski kvikmyndaleikstjórinn Bille August leikstýrir nýrri kvikmynd fyrir Netflix sem byggir á smásög- unni Ehrengard eftir Karen Blixen og Margrét Danadrottning hannar leikmyndina. Þessu var greint frá á Facebook-síðu danska konungshúss- ins fyrr í vikunni. „Ég hef reynt að túlka ævintýralegan sagnaheim Blixen með klippimyndum og bún- ingum. Ég hlakka til að sjá söguna um Ehrengard lifna við í kvikmynd- inni,“ er þar haft eftir Margréti Danadrottningu. Ehrengard var meðal síðustu smásagna Blixen og kom út á prenti ári eftir andlát henn- ar 1962. Sagan fjallar um unga manninn Cazotte sem í ævintýrarík- inu Babenhausen er ráðin af her- togaynju til að hjálpa til við að tryggja ríkinu erfingja að krúnunni. „Það að Ehrengard verði vakin til lífs sem Netflix-kvikmynd er stór- kostlegt tækifæri. Ég hlakka mjög mikið til að leikstýra þessari heillandi sögu um tilfinningar og girnd til handa alþjóðlegum áhorf- endum,“ er haft eftir Bille August í fréttatilkynningu frá Netflix. Um samstarf sitt við Danadrottn- ingu segir August að hún hafi skap- að ævintýralegar klippimyndir sem munu setja áberandi mark sitt á allt útlit myndarinnar. „Ég er ótrúlega glöð yfir því að fá að taka þátt í þessu verkefni. Sögur Karenar Blixen hafa alltaf heillað mig – með fagurfræði sinni, hugarflugi og heimum sem framkallað hafa mynd- ir í huga mér,“ segir Danadrottning. Samkvæmt frétt Politiken er ekki enn búið að velja leikarana í aðal- hlutverkin, en áætlað er að frum- sýna myndina 2023. Handritið skrif- ið Anders August, sonur leik- stjórans. SF Studios framleiðir myndina sem unnin er í samvinnu við Jacob Jørgensen og JJ Film. August leikstýrir smásögu Blixen - Margrét Danadrottning hannar leik- mynd fyrir væntanlega Netflix-mynd Ljósmynd/Jacob Jørgensen, JJ Film Samstarf Bille August og Margrét Danadrottning vinna saman. Fjölbreyttar bókmenntir frá ýmsum löndum - Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík hefst næstkomandi miðvikudag Stella Soffía Jóhannesdóttir Khaled Khalifa Elif Shafak Barbara Demick Patrik Svensson Sasa Stanisic Mao AlheimsdóttirLeila Slimani Þórarinn Eldjárn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.