Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 64
HEIM 2,5 SÆTA SÓFI
Kaldpressaður svampur í sessum Silikontrefjar í baki.
Svartlakkaðir fætur. H86xB120xL200cm.
249.900 kr. Nú 199.920 kr.
LISSABON NY HORNTUNGUSÓFI
B137xD363xL257cm
319.900 kr. Nú 255.920 kr.
LOKE HÆGINDASTÓLL
Hvíttuð gegnheil eik, koníakslitað leður.
99.900 kr. Nú 79.920 kr.
AMBLE SÓFABORÐ Ø77cm
29.900 kr. Nú 23.920 kr.
ORTO TUNGUSÓFI
H66xB164xL292cm
279.900 kr. Nú 164.900 kr.
20%
af öllum svefnsófum
Sparadu-
20%
af öllum sófaborðum
Sparadu-
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
20%
40%
Sófadagar
26. ágúst - 13. sept.
20%
20%
20%
MINI LOUNGE
Gólflampi H197cm
29.900 kr.
Nú 23.920 kr.
Boðið verður upp
á freyðandi ljóð
og léttar veit-
ingar, ef sótt-
varnareglur leyfa,
í Borgarbóksafn-
inu í Kringlunni í
dag milli kl.
17.30-18.30. Júlía
Margrét Ein-
arsdóttir sér um
ljóðakaffið þar
sem þrjú skáld í yngri kantinum flytja ljóð sín. Fram
koma Arndís Lóa Magnúsdóttir, sem fékk Nýrækt-
arstyrk til að gefa út ljóðabókina Taugaboð á há-
spennulínu, Brynja Hjálmsdóttir, sem hefur gefið út
ljóðabókina Okfruman og birt ljóð í tímaritum, og
Dagur Hjartarson, sem meðal annars hefur gefið út
ljóðabækurnar Fjölskyldulíf á jörðinni, Því miður og
Heilaskurðaðgerðin. Júlía Margrét Einarsdóttir hefur
gefið út skáldsöguna Drottningin á Júpíter og ljóða-
bókina Jarðarberjatungl.
Freyðandi ljóð í Borgarbókasafninu
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 245. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu verður án
margra lykilmanna þegar liðið mætir Rúmeníu í J-riðli
undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í kvöld.
Ísland er í fimmta og næstneðsta sæti J-riðils und-
ankeppninnar með 3 stig, líkt og Rúmenar sem eru í
fjórða sætinu, en liðin mættust í undanúrslitum um-
spils um laust sæti á EM 2021 á Laugardalsvelli í októ-
ber á síðasta ári þar sem íslenska liðið vann 2:1-sigur.
Rúmenar sitja sem stendur í 45. sæti styrkleikalista
FIFA en íslenska liðið er í 53. sæti. »55
Þurfa að treysta á unga og reynslu-
minni leikmenn gegn Rúmeníu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Annað árið í röð geta nemendur í
Framhaldsskólanum á Laugum tek-
ið áfanga í íslensku um vesturferðir
Íslendinga. „Í fyrra ákvað ég að búa
til áfanga með áherslu á vestur-
íslensku, menningu og hefðir með
stuðningi frá
Þjóðræknisfélagi
Íslendinga, í
stuttu máli var
þetta ótrúlega
skemmtilegt og
nú held ég áfram
á sömu braut,“
segir Ragna
Heiðbjört Ing-
unnardóttir ís-
lenskukennari.
Málefnið er
Rögnu mjög kært, en Kristján Guð-
mundsson, eiginmaður hennar og
matargerðarmaður í skólanum, á
náið skyldfólk vestra. Fyrir nokkr-
um árum ferðuðust þau um slóðir
vesturfara og heimsóttu meðal ann-
ars frændfólk Kristjáns á Gimli í
Manitoba í Kanada. „Þegar ég byrj-
aði að skipuleggja áfangann í fyrra
hugsaði ég með mér hvað ég ætti að
gera eftir sex vikur en þegar til kom
var af nógu að taka, mun meira efni
en við komumst yfir,“ segir Ragna.
„Í fyrsta tímanum spurði ég
krakkana hvort þeir vissu hvað
vesturferðir væru. „Eru það ekki
ferðir vestur á firði,“ svaraði einn og
þá var mér ljóst að ég yrði að byrja
á byrjuninni.“
Fjölbreytt verkefni
Miðað var við að vinna nemenda
samsvaraði að jafnaði fimm
kennslustundum vikulega á önninni,
en Ragna segir að nemendur hafi
lagt mun meiri vinnu í verkefnin,
sem þeir hafi valið sér sjálfir. Meðal
annars hafi drengir á íþróttabraut
kynnt sér sögu íshokkíliðsins Fálk-
anna, sem varð ólympíumeistari
1920, en allir leikmennirnir nema
einn voru af íslenskum ættum.
„Þannig nálguðust þeir sitt áhuga-
svið og svo var um fleiri.“ Í því sam-
bandi nefnir hún að einn nemandi
hafi komið með gamalt sendibréf og
teikningar af skriðli (e. jigger), sem
notaður er við fiskveiðar á ísi lögð-
um vötnum vestra, sem höfðu borist
ættmennum á Íslandi í þeirri von að
þau gætu nýtt sér upplýsingarnar.
Haft var samband við Juliönnu Ro-
berts, framkvæmdastjóra Safns ís-
lenskrar menningararfleifðar á
Nýja-Íslandi, The New Iceland
Heritage Museum, og fræddi hún
nemendur um safnið á Gimli og ým-
islegt því tengt á netfundi, þar sem
nemendur gátu spurt spurninga.
„Systkinin Sigurlína „Dilla“ og Óli
Narfason, frændfólk Kristjáns,
sendu okkur segulbandsspólur, þar
sem þau sögðu okkur meðal annars
frá íslensku jólahaldi vestra og Dilla
hefur reyndar haldið áfram að
senda mér efni, sem nýtist á þessari
haustönn.“
Í fyrra voru 20 nemendur í áfang-
anum en nú eru 27 skráðir í hann. Í
næstu viku er áætlað að hópurinn
heimsæki Vesturfarasetrið á Hofs-
ósi, stefnt er að sérstakri vestur-
íslenskri dagskrá í skólanum á degi
íslenskrar tungu 16. nóvember nk.
og til stendur að setja upp leikrit
eftir vesturíslenska skáldið Guttorm
J. Guttormsson. „Kórónuveiruf-
araldurinn kom í veg fyrir það í
fyrra en vonandi tekst það núna.“
Áfanginn hefur skilað miklu og
Ragna er alsæl. „„Þetta er merki-
legasta saga Íslendinga,“ sagði einn
nemandinn í lok annar í fyrra. Þessi
saga virðist vera að týnast og við
verðum að passa upp á hana.“
Vegna þessarar góðu reynslu hef-
ur stjórn Þjóðræknisfélagsins
ákveðið að veita fjóra 200.000 kr.
styrki til skólaverkefna sem tengj-
ast vesturferðum, Vestur-Íslend-
ingum og afkomendum þeirra, að
sögn Gísla Sigurðssonar stjórn-
armanns. Umsóknir með lýsingu á
fyrirhuguðum verkefnum og kostn-
aðaráætlun þurfa að berast fyrir 27.
september nk., en forseti félagsins,
Hulda Karen Daníelsdóttir
(hulda.karen.danielsdottir@gma-
il.com), veitir nánari upplýsingar.
„Merkilegasta sagan“
- Áfangi um vesturferðir vinsæll í Framhaldsskólanum á
Laugum - Þjóðræknisfélagið styrkir fjögur slík verkefni
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Tenging Kristbjörg Heiður Kristjánsdóttir, Lísbet Óla Jörgensen Steins-
dóttir, Einar Örn Sigurðsson og Stefán Óli Hallgrímsson bökuðu vínartertu.
Ragna Heiðbjört
Ingunnardóttir
Verkefni um Fálkana frá Winnipeg.