Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Raðauglýsingar 569 1100
Tillaga að deiliskipulagi athafnasvæðis
A2 á Höfða á Húsavík
Sveitarstjórn Norðurþings, samþykkti á fundi sínum þann
21. september 2021 að auglýsa til almennrar kynningar
tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði A2 að Höfða
á Húsavík. Deiliskipulagssvæðið er 8,1 ha. að flatarmáli.
Svæðið er að miklu leiti byggt, en hefur breyst talsvert á
undanförnum árum vegna nýrra vegtenginga. Ennfremur
hafa olíudreifingarfyrirtæki fjarlægt sín mannvirki og skilað
inn lóðum. Því þarf að endurskoða lóðarmörk lóða fremst
á höfðanum og endurskilgreina byggingarreiti. Breytingar
á legu gatna fela einnig í sér möguleika á að útbúa tvær
nýjar lóðir syðst á skipulagssvæðinu.
Tillagan er sett fram sem greinargerð í blaðstærð A4 og
uppdráttur í blaðstærð A1.
Tillaga þessi er nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings
(www.nordurthing.is) auk þess sem hún hangir uppi á
skrifstofu Norðurþings á Húsavík. Kynningartími skipu-
lagsins er frá 4. október til 15. nóvember 2021. Þeim sem
kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við tillöguna
er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir
mánudaginn 15. nóvember 2021. Tekið verður á móti
skriflegum ábendingum á skrifstofu Norðurþings að
Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti á
nordurthing@nordurthing.is
Húsavík, 27. september 2021
Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi Norðurþings
Vopnafjarðarhreppur
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
miðhluta hafnarsvæðis á Vopnafirði.
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps auglýsir hér
með tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðhluta
hafnarsvæðis á Vopnafirði, skv. 1.mgr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Brim hf., eigandi fiskvinnslunnar á Vopnafirði, áformar að
reisa nýja uppsjávarvinnslu á hafnarbakka Vopnafjarðarhafnar.
Ekki er gert ráð fyrir þeirri uppbyggingu í núgildandi deili-
skipulagi hafnarsvæðisins. Stækkunin er háð lengingu á
löndunarbryggjunni og landfyllingu en gert er ráð fyrir þeirri
stækkun í deiliskipulaginu.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps
Hamrahlíð 15 á Vopnafirði frá og með fimmtudeginum
30. september nk. til föstudagsins 12. nóvember 2021 og á
heimasíðu Vopnafjarðarhrepps á sama tíma.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila
inn athugasemdum er til föstudagsins 12. nóvember 2021.
Skila skal athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa
Vopnafjarðarhrepps Hafnargötu 4, 710 Seyðisfirði eða á
netfangið sigurdur.jonsson@efla.is til og með 12. nóvember
2021.
Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir
tilskilinn frest, telst samþykkur henni.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn
í Vopnafjarðarhreppi
Sigurður Jónsson.
Tilkynningar
Styrkir
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9-12.30, nóg pláss - Zumba Gold
kl.10.30 – Kraftur í KR kl.10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl.10:., Granda-
vegi 47 kl.10.15 og Aflagranda 40 kl.10.20 - Bíó í miðrými kl.1315,
popp og kók í boði. Myndin verður auglýst á facebooksíðunni okkar -
Kaffi kl.14.30-15.20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir vel-
komnir
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Gönguhópur með
göngustjóra kl. 10. Samvera með presti kl. 10.30. Handavinna kl. 12-
16. Myndlist með Elsu kl. 13-17. Kvennahlaup 2021 kl. 13.15.
Söngstund kl. 14- 14.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.40. Heitt á
könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600.
Boðinn Fimmtudagur: Spilum Bridge og Kanasta kl. 13. Pennasau-
mur kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-15.40.
Föndurhornið kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Sönghópur
Hæðargarðs kl. 13.30-14.30. Myndlistarhópur Selmu kl. 13-15.30.
Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara.
Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13.45 -15.15. Poolhópur í
Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Handavinnuhorn kl.
13. Qi-Gong í Sjál kl. 9. Stólajóga kl. 11. í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði
kl. 12.15. Boccia í Ásgarði kl. 12.55. Málun kl. 9. og 13. í Smiðju Kir-
kjuhv.
Gjábakki kl. 8.30 - 11.30 Opin handavinnustofa og verkstæði, kl.
10.50 Jóga, kl. 13 - 15.30 Bókband, kl. 16 - 18 Vatnslitafélagið, kl. 19 -
22 Bridgefélag Kópavogs.
Gullsmára Handavinna kl. 9. og 13. Bridge kl. 13. Jóga kl. 17.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli
9.-11. Bænastund kl 9:30. Jóga með Sirrí kl 10-11.
Hraunsel Fimmtudaga: Billjard kl. 9-16. Qi-Gong kl. 10. Pílukast kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Fimmtudagar: Morgunkaffi og spjall frá 8.30-
10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jóga með Carynu kl. 9. Jóga með
Ragnheiði Ýr kl. 12.20, einnig á netinu á sama tíma. Handavinna -
opin vinnustofa 9-16. Félagsvist kl. 13.10. Hádegismatur kl. 11:30 –
12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Morgunleikfmi útvarpsins kl. 9.45. Styrktar og
jafnvægisleikfimi með sjúkraþjálfara kl. 10 í Borgum. Skákhópur
Korpúlfa í Borgum kl. 12.30.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum í umsjón
Davíðs kl. 13. Sundleikfimi Korpúlfa í Grafarvogssundlaug kl. 14 í dag
Brynjólfur leiðbeinir. Minnum á þátttökuskráningar í ýmislegt liggja
frammi í BORGUM, þar sem gleðin býr.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er bókband í smiðju 1. hæðar fyrir
hádegi, milli kl. 9-12.30. Lagt verður af stað í gönguferð úr móttöku 3.
hæðar kl. 10.30. Kvikmyndasýning hefst í setustofu 2. hæðar kl. 12:45.
Þá verður prjónakaffi í handverksstofu 2. hæðar milli kl. 13-16.
Hlökkum til að sjá ykkur á Lindargötu 59!
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.10. Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9.
Bókband Skólabraut kl. 9. Jóga/leikfimi salnum á Skólabraut kl.
11.Kvennaleikfimi í Hryefilandi kl. 11.30. Karlakaffi í safnaðarheimili
kirkjunnar kl. 14. Silfursmíði, námskeið í Valhúsaskóla kl. 14.30. Vatns-
leikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Minnum á gleðistundina/ sönginn í
salnum á Skólabraut á morgun kl. 13. Allir velkomnir.
Samþykkt á breytingu á deiliskipulagi
Hvamms og Hvammsvíkur, Kjósarhreppi
Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti 7. júlí 2021 breytingu á
deiliskipulagi Hvamms og Hvammsvíkur í Kjósarhreppi.
Breytingasvæðið nær yfir um 20 ha svæði í landi Hvammsvíkur
í Hvalfirði, Kjósarhreppi. Fyrirhugað er að skilgreina 30
frístundalóðir, en einnig eru gerðar minniháttar breytingar á
gönguleiðum á svæðinu. Um er að ræða svæði fyrir frístunda-
byggð, sem er í beinu framhaldi af núverandi og eldra svæði,
en hugmyndin er að tengja uppbyggingu við aðra þjónustu á
staðnum, t.d. í hlöðunni og við sjóböðin.
Tillagan var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá
7. maí til 25. júní 2021.
Athugasemdir bárust og hafa umsagnir sveitarstjórnar um þær
verið sendar þeim sem þær gerðu.
Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá
birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingar-
innar í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska frekari upplýsinga geta snúið sér til skipulags-
fulltrúa Kjósarhrepps.
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps
Félagsstarf eldri borgara
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdin
Eldisstöð Húsafelli, Borgarbyggð
skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111 /2021.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykja-
vík og á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Ákvörðunina má kæra til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 1. nóvember 2021.
Tilboð/útboð
Námsstyrkir
til nemenda í verkfræði og
raunvísindum
Stjórn Minnigarsjóðs Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar auglýsir hér með eftir
styrkumsóknum vegna náms á skólaárinu
2021-2022. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í
verkfræði- og raunvísindagreinum og hafa þeir
einkum verið veittir nemendum í framhaldsnámi.
Umsókn og fylgigögnum skal skilað í einu
pdf–skjali á póstfangið
MinningHelguogSigurlida@gmail.com.
Með umsókn skal skila ferilskrá, staðfestingu á
skólavist og námsárangri, meðmælum og öðrum
gögnum sem umsækjandi telur koma að gagni
við mat umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. október 2021.
Stefnt er að úthlutun í lok nóvember.
Sjá nánar á vef sjóðsins http://
MinningHelguogSigurlida.is/
Viðurkenning
Öldrunarráðs Íslands 2021
Árlega veitir Öldrunarráð Íslands
viðurkenningu til einstaklinga, stofnunar
eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið
einstakt starf tengt málefnum aldraðra.
Öldrunarráð Íslands veitir jafnframt
viðurkenningu til fyrirtækja eða stofnana
sem hafa myndað sér framúrskarandi stefnu
varðandi starfslok starfsmanna og fram-
fylgja henni á ábyrgan máta.
Hér með óskar Öldrunarráð eftir tilnefningum
til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands. Öllum
er heimilt að senda inn tilnefningar.
Frestur til að senda inn tilnefningar er til og með
14.október 2021 og skulu tilnefningar sendar
með tölvupósti á oldrunarrad@oldrunarrad.is
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs
Íslands auglýsir eftir umsóknum
um styrk úr sjóðnum
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins:
Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í
öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni
sem stjórn sjóðsins ákveður.
Umsóknarfrestur er til og með 14. október
2021 og skulu umsóknir sendar rafrænt á
oldrunarrad@oldrunarrad.is eða til Öldrunarráðs
Íslands, Snorrabraut 58, 105 Reykjavík.
Frekari upplýsingar veitir Jórunn Frímannsdóttir,
formaður stjórnar Öldrunarráðs. Fyrirspurnir
sendist á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is