Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 51

Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Þegar ég hugsa um Dísu fyllist ég stolti og lít á það sem heppni að hafa átt svona einstaka systur. Ég er eiginlega montinn. Mannkostirn- ir sem hún bjó yfir voru miklir. Yfirvegun og innri ró sem fæst ekki útskýrð. Eftirtektarverð hlýja og virðing fyrir fólki. Gest- risni og gjafmildi sem lyfti þeim sem þáðu upp á hærra plan. Dísa hafði einstaka nærveru. Hún veitti mér og minni fjöl- skyldu ávallt óskerta athygli og í henni fann ég mikinn styrk og réttsýni. Ég mat orð hennar og ráð mikils. Ég kom sem stundakennari í Borgarhólsskóla síðastliðinn vet- ur. Ég lenti í tölvuvandræðum og Dísa kom til hjálpar. Þegar Dísa var farin kom spurning frá nemendum hvort við Dísa vær- um systkini. Ég var svo stoltur að segja þeim að svo væri. Dísa var tveimur árum eldri en ég. Við áttum góða æsku saman, vorum samrýnd sem krakkar og áttum gott systkina- samband. Við vorum þó um margt ólík. Hún var listfeng, skrifaði sögur, teiknaði fallegar myndir og hafði alltaf mjög fínt í kringum sig. Ég var meira úti að hjóla eða í fótbolta. Dísa var sjálfstæð og sjálfri sér næg, fann enga þörf til að vera önnur en hún var til að falla í hópinn. Ég sóttist meira eftir félagslegri viðurkenningu með alls konar stælum. Ég sé það auðvitað núna að ég var bara að leika töffara, Dísa var hins vegar ekta töffari. Það var mikil gæfa fyrir Dísu þegar Óli fjárfesti í henni þegar hún var nýnemi í Framhalds- skólanum á Húsavík. Þau fóru að venja komur sínar heim á Stór- hólinn og ég man hvað það var gaman að verja með þeim kvöld- stundum. Alltaf var nóg af nammi og yfirleitt góð vídeó- spóla í tækinu. Það skein í gegn frá fyrsta degi hve samband þeirra var gott og heilbrigt. Þau fluttust saman til Reykjavíkur í háskólanám. Á skólaárum mín- um í Reykjavík kom ég oft til þeirra og alltaf var komið fram við mig eins og höfðingja. Eftir háskólanám hjá Dísu og Óla vorum við stórfjölskyldan svo heppin að þau fluttust aftur til Húsavíkur með litlu börnin sín tvö, Halldór Tuma og Elínu Önnu. Síðar komu Sigurður Búi og Brynjúlfur Nóri til skjalanna. Auðséð var hve Dísa unni börn- unum sínum heitt, var þeim góð fyrirmynd og örugg festa í róti lífsins. Heimili Dísu, bæði á Uppsala- vegi og í Formannshúsi, báru smekkvísi hennar gott vitni. Það var svo gott að koma inn á þessi heimili, góður andi, hlýleiki og einhver einstök næmni á fegurð. Einstakt kaffi, borið fram í ein- stökum bollum með einstöku meðlæti. Öllum var gríðarlega brugðið þegar Dísa greindist með krabbamein fyrir um tveimur ár- um. Aðdáunarvert var að sjá hve Dísa tók veikindum sínum og harkalegri meðferðinni af miklu æðruleysi og staðfestu í að sigr- ast á þeim. Núna síðsumars var ljóst að þessi óværa ætlaði ekki að sleppa tökunum, hún vék sér undan öllum mögulegum úrræð- um sem mannleg þekking býr yfir. Í gegnum allt ferlið var Dísa einstaklega dugleg og gerði allt sem í hennar valdi stóð til að Herdís Þuríður Sigurðardóttir ✝ Herdís Þuríður Sigurðardóttir fæddist 7. júlí 1976. Hún lést 18. sept- ember 2021. Útför Herdísar fór fram 29. sept- ember 2021. ná bata. Hún vildi ekki yfirgefa fólkið sitt og barðist af þvílíkri hetjudáð þar til síðustu kraftar hennar þurru. Elsku Dísa, hvíldu í friði. Þinn bróðir, Brynjúlfur. Herdís Þ. Sigurðardóttir er látin. Fagmennsku hennar og góðum störfum kynntist ég þeg- ar ég kom til kennslu við Fram- haldsskólann á Húsavík haustið 2015 þar sem hún var þá áfanga- stjóri og aðstoðarskólameistari. Frá fyrsta degi var mér ljóst að Herdís var hæfileikarík mann- kostakona. Hún var skarp- greind, fljót að hugsa og sjá lausnir, vandvirk og ósérhlífin. Herdís hafði góða nærveru, sýndi samferðafólki sínu athygli og virðingu og bar hag nemenda og skólans fyrir brjósti. Það var gaman að vinna með Herdísi því hún var glaðsinna, hláturmild og kát og hafði ríka kímnigáfu. Herdís var stoð mín og stytta þegar ég tók að mér að vera skólameistari skólaárið 2016- 2017. Áður en ég játaði beiðninni um að taka starfið að mér hringdi ég í Herdísi sem sagðist myndi styðja mig. Eins og vænta mátti stóð hún við orð sín og stóð ráðagóð og traust við hlið mér. Ýmis flókin mál mættu okkur en Herdís var alltaf bjart- sýn og missti aldrei trú á verk- efninu. Þennan vetur kenndi Herdís mér svo margt með framkomu sinni, umhyggju, glaðværð og ekki síst þeirri sýn sem hún hafði á skóla og nám. Hún gerði bæði kröfur til sín og annarra en var sanngjörn og réttsýn og hafði styrk til að ganga í erfið verk og hugrekki til að fylgja sannfæringu sinni. Herdís var mjög skemmtileg- ur persónuleiki, eins konar hús- vískur heimsborgari. Húsvíking- ur með sterkar rætur og mikinn metnað fyrir samfélaginu og staðnum og heimsborgari sem naut ferðalaga innanlands og ut- an, lýsti dvöl sinni á Ítalíu og í Vestmannaeyjum, tedrykkju í Bretlandi eða heimsókn á safn þannig að mér fannst stundum eins og ég hefði upplifað at- burðina með henni. Herdís var fyrst og síðast fjöl- skyldumanneskja þar sem hún notaði sömu eiginleika og í starf- inu, samviskusemi, mildi, húmor og gleði. Ómælt stolt, umhyggja og ást sem hún bar til Óla og barnanna fjögurra duldist eng- um. Áslaugu Mundu, dóttur minni, tók Herdís opnum örmum og sýndi innileika og gæsku þeg- ar hún varð vinkona Halldórs Tuma, elsta sonar hennar. Skila- boð sem fóru á milli okkar síð- ustu misseri bera vitni um að Herdís hafði trú á verkefninu sem hún þurfti að glíma við og að hún bjó enn yfir styrk og hug- rekki. Og hún hélt áfram að kenna mér svo margt með við- horfi sínu og þakklæti. Ég minnist Herdísar með þakklæti og hlýju. Minningin um heilsteypta og góða manneskju gleymist ekki. Óla, börnunum og allri fjölskyldu Herdísar sendum við Gunnlaugur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Jóney Jónsdóttir. Elsku Dísa! Mikið var það hræðilega sárt að heyra að þú hefðir kvatt þennan heim. Um ókomna tíð munum við geyma góðar minningar um þig í okkar hjörtum, sem ylja munu okkur á góðum stundum jafnt sem erfiðum. Dísa vinkona okkar með hnyttinn húmor, sem alltaf varst til í eitthvert glens og gaman. Þú varst svo einstaklega hlý og traust, hæglát en samt með ákveðnar skoðanir, réttlát og nærgætin. Þú varst alveg ein- stök fyrirmynd fyrir alla í kring- um þig með góðvilja þínum, heiðarleika og þeirri virðingu sem þú sýndir öllu þínu sam- ferðafólki. Kæra fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og með harm í hjörtum þökkum við Dísu fyrir einstakan vinskap. Skarðið sem hún skilur eftir verður aldrei fyllt en ljóslifandi minningin um glæsilega konu með leiftrandi augun og fallegu spékoppana lifir áfram í hugum okkar. Að eiga vin er vandmeðfarið, að eiga vin er dýrmæt gjöf. Vin, sem hlustar, huggar, styður, hughreystir og gefur von. Vin sem biður bænir þínar, brosandi þér gefur ráð. Eflir þig í hversdagsleika, til að drýgja nýja dáð. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíldu í friði, kæra vinkona. Guðrún Björg, Agnes Ýr og Olga Hrund. Við sitjum hljóð og reynum að skilja hvers vegna, hvers vegna þessi dýrmæta kona í lífi okkar er kölluð á brott. Enginn lofaði okkur að lífið yrði auðvelt eða sanngjarnt en við áttum ekki von á að það yrði svona ósann- gjarnt. Herdís byrjaði að vinna sem íslenskukennari við Framhalds- skólann á Húsavík haustið 2006. Strax kom í ljós hversu vandvirk og dugleg hún var. Hún var vin- sæl meðan nemenda og sam- starfsmanna. Þessi undurfagra fíngerða og ljúfa kona leið um gangana eins og hefðarkona frá London. Enda var Dísa mikill aðdáandi drottningarinnar þar og á tyllidögum drakk hún enskt te úr fallegum bolla frá London. Herdís hafði mikinn metnað fyrir starfi sínu og skólanum og til gamans má geta þess að glós- urnar hennar hafa verið notaðar af fjölmörgum nemendum og kennurum um allt land, því þær þóttu svo góðar, skýrar og skil- merkilegar. Herdís tók við sem aðstoðarskólameistari árið 2012 og gegndi því starfi til ársins 2017. Það beið hennar gríðarlega mikil vinna við að móta nýja námskrá skólans fyrir utan allt annað sem starfinu fylgdi. Her- dís var mjög afkastasöm og vandvirk og vann við þetta verk- efni myrkranna á milli. Aldrei kvartaði hún eða barmaði sér og aldrei sagði hún frá því hvað hún var dugleg eða hversu mikil vinna þetta væri. Hún bara gerði allt sitt ofboðslega vel. Dísa varð skólameistari skólaárið 2017- 2018 og var skilningsríkur og þrautseigur skólameistari. Hún reyndist starfsfólki hér einstak- lega vel og var vinsæl meðal nemenda. Dísa var fyrst til að hugga, styðja og styrkja okkur starfsmennina ef eitthvað bjátaði á í okkar einkalífi. Hún var sterk og ákveðin og hún hafði sann- arlega hjarta úr gulli. Dísa var mikill húmoristi og alltaf til í sprell og tók alltaf þátt í skemmtiatriðum sem starfsfólk skólans stóð fyrir. Hún hafði mjög fágaðan smekk í gríninu og var alls ekkert fyrir ódýra aula- brandara. En þegar hún sagði eitthvað skemmtilegt eða fyndið kom þessi óborganlegi glampi í augun á henni og sá glampi er ein af sterkustu minningum okk- ar um Dísu. Herdís átti tvö börn þegar hún kom til okkar og á meðan hún vann hér komu tvö til við- bótar. Það var því meira en nóg að gera á stóru heimili, en með honum Óla sínum bjó hún börn- um sínum ástríkt og fallegt heimili. Í gegnum tíðina bauð Herdís okkur nokkrum sinnum heim og þá sá maður hvað allt var smekklegt því Dísa hafði mikinn áhuga á hönnun og heimili henn- ar bar þess skýr merki og var einstaklega fallegt en samt not- hæft. Börnin hennar og vinir þeirra voru alltaf velkomin og þar mátti leika og það sást að þau voru í forgangi og þau báru virðingu fyrir fallegu hlutunum sem mamma þeirra átti. Til þess að rækta sjálfa sig lagði hún það á sig að vakna klukkan sex á morgnana og njóta kyrrðarinnar í upphafi hvers dags með góðan kaffibolla og hönnunarblað að glugga í. Elsku Óli, Halldór Tumi, Elín Anna, Búi og Nóri, við sendum ykkur okkar innilegustu samúð- arkveðjur og megi allar góðar vættir styrkja ykkur á komandi árum. Fyrir hönd fyrrverandi sam- starfsfólks við Framhaldsskól- ann á Húsavík, Auður Jónasdóttir. Í dag minnumst við bekkjar- systkinin á Húsavík elsku Her- dísar sem hefur nú kvatt allt of snemma og eftir sitjum við í sorg en með allar þær fallegu minn- ingar sem við eigum um hana frá skólagöngunni. Hógværu, bráð- greindu og brosmildu stúlkuna sem öllum líkaði einstaklega vel við hvort sem um var að ræða skólasystkini eða kennara. Það kom okkur ekkert á óvart þegar þau Óli Halldórs rugluðu ung saman reytum og með hon- um eignaðist hún einstaklega fallega fjölskyldu og heimili á Húsavík. Það er ofboðslega þungbært að hugsa til þess að hún sé horf- in á braut og við sendum fjöl- skyldu og vinum innilegar sam- úðarkveðjur. Við munum halda minningu og heiðri Dísu í okkar bekk á lofti um ókomna framtíð. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Fyrir hönd árgangs 1976 frá Húsavík, Arnar Þorvarðarson. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Þökkum af alhug hlýjar kveðjur og samhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ÓLAFSDÓTTUR leikskólakennara, Þorrasölum 5-7. Vinum og vandamönnum þökkum við umhyggju og stuðning á meðan á veikindum hennar stóð. Starfsfólki LHS, blóð- og krabbameinslækningadeildar, líknardeildar og Heru er þakkað sérstaklega fyrir meðferð og umönnun. Magnús Halldórsson Unnur Gyða Magnúsdóttir Maron Kristófersson Ólafur Magnússon Rakel Ýr Sigurðardóttir Halldór G. Magnússon Erna Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og tengdaafi, VALDIMAR ÓLAFSSON, lögg. endurskoðandi, lést á Landspítalanum 16. september. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 7. október klukkan 13. Gígja Jóhannsdóttir Jóhann Friðgeir Valdimarsson Íris Björk Viðarsdóttir Valdimar Viktor Jóhannsson Ragnhildur Hauksdóttir Viðar Snær Jóhannsson Gígja Björk Jóhannsdóttir Ástkær móðir mín, systir okkar og mágkona, ÁLFRÚN GUNNLAUGSDÓTTIR, prófessor og rithöfundur, sem lést á líknardeild Landspítalans 15. september, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 4. október klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni, sjá https://www.youtube.com/watch?v=Xur7AuoYIwQ Bjarki Kaikumo Gylfi Gunnlaugsson Ragnhildur Hannesdóttir Ólafur Gunnlaugsson Margrét Ingimarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, JÓHANN SÆVARSSON, Sléttahrauni 26, Hafnarfirði, sem lést á krabbameinsdeild LSH fimmtudaginn 23. september, verður jarðsunginn frá Kirkju Óháða safnaðarins mánudaginn 4.október klukkan 14. Ingibjörg G. Björnsdóttir Sævar Björnsson Dóra Ágústsdóttir Magnús Magnússon Hanna Karen Atli Viðar Gyða Rós Gunnþóra Rut Gígja Rebekka Gunnar Valur tengdabörn, barnabörn og systkini Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÉTAR JÓNSSON frá Hóli í Sæmundarhlíð, Jöklatúni 14, Sauðárkróki, lést á heimili sínu 24. september. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 6. október klukkan 14. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlát Ingibjörg Árnadóttir Petrea Grétarsdóttir Margrét Grétarsdóttir Páll Sighvatsson Jóhanna Grétarsdóttir Jón Grétarsson Hrefna Hafsteinsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.