Morgunblaðið - 30.09.2021, Blaðsíða 62
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL:
Bayern München – Dynamo Kiev........... 5:0
Benfica – Barcelona ................................. 3:0
Staðan:
Bayern München 2 2 0 0 8:0 6
Benfica 2 1 1 0 3:0 4
Dynamo Kiev 2 0 1 1 0:5 1
Barcelona 2 0 0 2 0:6 0
F-RIÐILL:
Atalanta – Young Boys ............................ 1:0
Manch. United – Villarreal...................... 2:1
Staðan:
Atalanta 2 1 1 0 3:2 4
Manch. United 2 1 0 1 3:3 3
Young Boys 2 1 0 1 2:2 3
Villarreal 2 0 1 1 3:4 1
G-RIÐILL:
Salzburg – Lille ........................................ 2:1
Wolfsburg – Sevilla .................................. 1:1
Staðan:
Salzburg 2 1 1 0 3:2 4
Sevilla 2 0 2 0 2:2 2
Wolfsburg 2 0 2 0 1:1 2
Lille 2 0 1 1 1:2 1
H-RIÐILL:
Zenit – Malmö........................................... 4:0
Juventus – Chelsea .................................. 1:0
Staðan:
Juventus 2 2 0 0 4:0 6
Zenit 2 1 0 1 4:1 3
Chelsea 2 1 0 1 1:1 3
Malmö 2 0 0 2 0:7 0
England
B-deild:
Millwall ..................................................... 1:0
- Jón Daði Böðvarsson var ekki í leik-
mannahópi Millwall.
Staða efstu liða:
WBA 10 6 4 0 20:8 22
Bournemouth 10 6 4 0 16:7 22
Fulham 10 6 2 2 22:9 20
Coventry 10 6 1 3 12:11 19
Stoke City 10 5 3 2 14:11 18
Blackburn 10 4 4 2 18:12 16
Huddersfield 10 5 1 4 16:14 16
QPR 10 4 3 3 19:14 15
Luton 10 3 4 3 18:16 13
Skotland
Motherwell - Celtic.................................. 0:4
- María Ólafsdóttir Gros kom inn á sem
varamaður á 71. mínútu hjá Celtic.
Danmörk
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Bröndby - Köge........................................ 2:0
- Barbára Sól Gísladóttir lék allan leikinn
með Bröndby.
Lettland
Riga - Riga FS .......................................... 1:1
- Axel ÓskarAndrésson var allan tímann á
varmannabekk Riga.
Svíþjóð
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Brommapojkarna - AIK.......................... 3:2
- Hallbera Guðný Gísladóttir var ekki í
leikmannahópi AIK.
Eskilsminne - Kristianstad..................... 1:6
- Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdótt-
ir voru ekki í leikmannahópi Kristianstad.
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Sätra - Hammarby................................... 0:3
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir var ekki í
leikmannahópi Hammarby.
Morön - Piteå............................................ 0:1
- Hlín Eiríksdóttir kom inn á sem vara-
maður á 86. mínútu hjá Piteå.
Västerås - Örebro .................................... 0:7
- Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía
Rán Rúnarsdóttir léku báðar allan leikinn
með Örebro.
Kalmar - Växjö................................ 2:3 (frl.)
- Andrea Thorisson kom inn á í hálfleik
hjá Kalmar.
- Andrea Mist Pálsdóttir lék allan leikinn
með Växjö.
B-deild:
Norrby - Helsingborg ............................. 2:2
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
Noregur
Stabæk - Strömsgodset........................... 0:0
- Ari Leifsson lék allan leikinn og Valdi-
mar Þór Ingimundarson kom inn á sem
varamaður á 70. mínútu hjá Strömsgodset.
Staðan:
Bodø / Glimt 20 12 5 3 41:19 41
Molde 20 11 5 4 48:25 38
Rosenborg 20 11 4 5 43:26 37
Kristiansund 20 11 2 7 28:25 35
Lillestrøm 20 10 4 6 32:26 34
Viking 20 9 5 6 39:39 32
Strømsgodset 20 8 5 7 31:27 29
Haugesund 20 8 4 8 32:32 28
Vålerenga 20 6 9 5 31:28 27
Odd 20 7 5 8 30:37 26
Sandefjord 20 7 4 9 26:35 25
Sarpsborg 08 20 5 5 10 20:32 20
Tromsø 20 4 7 9 24:36 19
Brann 20 4 5 11 25:39 17
Stabæk 20 4 5 11 26:41 17
Mjøndalen 20 2 8 10 22:31 14
B-deild:
Jerv - Aalesund ........................................ 2:2
- Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn
með Aalesund.
Åsane - Sogndal ....................................... 1:0
- Emil Pálsson var ekki í leikmannahópi
Sogndal.
4.$--3795.$
Undanúrslitaleikur Vestra og Vík-
ings úr Reykjavík í bikarkeppni
karla í knattspyrnu hefur verið
færður frá heimavelli fyrrnefnda
liðsins á Ísafirði til heimavallar KR
sökum gífurlegrar snjókomu á
Vestfjörðum. Olísvöllurinn á Ísa-
firði er snæviþakinn og því hefur
ekki verið hægt að æfa á honum
undanfarna daga. Ekki er útlit fyr-
ir að hann verði tilbúinn fyrir við-
ureign heimamanna í Vestra gegn
nýkrýndum Íslandsmeisturum Vík-
ings á laugardaginn kemur og því
þurfti að færa leikinn í Vesturbæ.
Undanúrslitin á
Meistaravöllum
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Undanúrslit Vestri og Víkingur
mætast í Vesturbænum.
Eygló Fanndal Sturludóttir setti
þrjú Íslandsmet og vann sig inn á
heimsmeistaramót fullorðinna í
ólympískum lyftingum með árangri
sínum á EM U20-ára í Finnlandi í
vikunni. Eygló setti Íslandsmet í
snörun, jafnhendingu og í sam-
anlögðum árangri. Eygló snaraði
89 kílóum og náði 108 kg í jafn-
hendingu. Þar af leiðandi lyfti hún
197 kg samanlagt á mótinu en eins
og áður segir er um Íslandsmet að
ræða í öllum tilfellum. Hafnaði
Eygló í 6. sæti á EM 20 ára og
yngri.
Vann sig inn á
HM fullorðinna
Ljósmynd/Lyftingasambandið
Met Eygló Fanndal setti þrjú Ís-
landsmet í Finnlandi á EM U20-ára.
tímann frá því keppni í deildinni
lauk segir Álfhildur hann hafa verið
vel nýttan.
„Við höfum nýtt tímann mjög vel.
Við fengum leikmenn aftur sem
voru í landsliðverkefnum eins og
með U19 ára liðinu. Við höfum því
undirbúið okkur mjög vel. Bæði
haldið okkur á tánum með góðu
spili en einnig farið yfir hvað við
viljum gera í leiknum. Auðvitað höf-
um við stúderað Breiðabliksliðið og
Nik hefur farið vel yfir það,“ sagði
Álfhildur.
Hafa beðið lengi
Þróttur sló út Fjarðabyggð/Hött/
Leikni, Selfoss og FH á leið sinni í
úrslitaleikinn. Úrslitin hjá Þrótti í
bikarleikjunum til þessa hafa verið
afskaplega sannfærandi. Leikina
vann liðið 7:1, 4:1 og 4.0. Breiðablik
spilaði jafnari leiki á leið sinni í úr-
slitin. Breiðablik vann Tindastól 2:1,
Aftureldingu reyndar 5:0 en Val 4.3.
Undanúrslitaleikirnir voru spilaðir
16. júlí og er því nokkuð langt síð-
an.
„Mér líst mjög vel á þetta. Við er-
um búnar að bíða lengi eftir úrslita-
leiknum, líklega síðan í júlí. Við er-
um því mjög spenntar,“ sagði Ásta
Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks,
þegar Morgunblaðið ræddi við hana
á fundinum í gær. Í mörg horn er
að líta hjá Blikum á þessu keppn-
istímabili. Liðið átti lengi von um að
verða Íslandsmeistari og auk bik-
arúrslitaleiksins á liðið eftir að leika
sex leiki í riðlakeppni Meist-
aradeildar Evrópu.
„Við tökum bara einn leik í einu.
Gamla klisjan. Öll okkar einbeiting
þessa dagana fer í bikarúrslitaleik-
inn. Við spáum svo bara í framhald-
inu eftir helgi.“
Ásta segist ekki eiga von á öðru
en að Blikar fjölmenni á völlinn
annað kvöld. „Það er farið að
dimma á kvöldin og verður geggjað
að spila í flóðljósunum. Ég held að
markmiðið hjá félögunum sé að slá
áhorfendamet. Vonandi tekst það.
Það yrði gaman að fá fullt af fólki á
leikinn, bæði Blika og Þróttara.
Þetta eru tvö góð stuðningsmanna-
félög. Mínir menn í Kópacabana
[stuðningsmannakjarna Blika]
mæta og halda uppi stuðinu. Við
vorum á síðasta leiknum hjá strák-
unum um síðustu helgi og ég kann-
aði hvort Kópacabana ætli ekki að
mæta á bikarúrslitaleikinn. Þeir
ætla að gera það að sjálfsögðu enda
hefur stuðningurinn verið mjög
góður í allt sumar. Þeir eru alltaf
mættir og syngja og tralla allan
leikinn. Það skiptir bara máli þegar
kemur að úrslitum og við erum því
þakklátar fyrir það.“
Nokkuð hefur verið rætt og ritað
um leikmannahópinn hjá Breiða-
bliki á þessum árstíma. Tveir leik-
menn fóru til náms í Bandaríkj-
unum og leikmenn sem lánaðir voru
til Augnabliks í sumar eru fé-
lagsbundnir þar fram í miðjan októ-
ber. Leikmannahópurinn hjá
Breiðabliki er því frekar þunnur.
Eru allar tilbúnar í slaginn sem á
annað borð eru löglegar?
„Já við erum allar heilar sem
megum spila. Þessi æfingavika hef-
ur verið góð og andinn er goður. Ég
er svo sem ekki mikið inni í leik-
mannamálum því stjórnin sér um
það en það eru alla vega engin
meiðsli hjá okkur eins og er,“ sagði
Ásta Eir enn fremur við Morg-
unblaðið.
Ólík bikarsaga liðanna
sem leika til úrslita
- Þróttur í úrslitum í fyrsta skipti - Breiðablik hefur unnið tólf sinnum
Morgunblaðið/Kris
Leiðtogar Fyrirliðarnir Ásta Eir Árnadóttir og Álfhildur Rósa Kjartansdóttir voru hressar á fundinum í gær og eru
hér með bikarinn á milli sín. Önnur hvor þeirra mun veita bikarnum viðtöku á Laugardalsvelli annað kvöld.
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Breiðablik og Þróttur Reykjavík
eigast við í úrslitum Mjólkurbik-
arkeppni kvenna í knattspyrnu á
Laugardalsvelli annað kvöld.
Breiðablik hafnaði í 2. sæti í Pepsí
Max-deildinni og Þróttur í 3. sæti.
Liðin hafa því bæði átt ágætt tíma-
bil auk þess sem Blikar leika í riðla-
keppni Meistaradeildar Evrópu
næstu vikurnar.
Saga þessara liða í bikarkeppn-
inni er ólík. Breiðablik hefur tólf
sinnum orðið bikarmeistari kvenna,
síðast árið 2018. Þróttur leikur nú
til úrslita í keppninni í fyrsta skipti.
„Já það er kominn rosalegur
spenningur í mig og allan hópinn en
líka svolítið mikið stress,“ sagði Álf-
hildur Rósa Kjartansdóttir þegar
Morgunblaðið tók hana tali á blaða-
mannafundi í gær. Hvernig reyna
leikmenn að glíma við stressið?
„Við reynum bara að hafa gaman
af þessu. Sama hvernig fer þá er
þetta ótrúlega stór sigur að vera
komin í þennan úrslitaleik. Sér-
staklega fyrir okkur í Þrótti.“
Verður þetta fyrsti bikarúrslita-
leikurinn í sögu Þróttar og Álfhild-
ur segist finna fyrir stemningu í fé-
laginu fyrir leikinn.
„Það er alveg magnað hversu góð
stemning hefur myndast og hversu
vel hefur verið stutt við bakið á
okkur. Sama hvernig fer þá verður
stutt vel við okkur. Ég held að það
verði hörkumæting hjá Þrótturum.
Ég gæti trúað að stúkan verði eld-
rauð. Föstudagskvöld ætti að vera
mjög góður tími fyrir fólk til að fara
á völlinn og kíkja á okkur.“
Hraður uppgangur
Lið Þróttar hefur verið í mikilli
sókn. Liðið kom upp í efstu deild í
fyrra og hélt þá sæti sínu í deild-
inni. Gerði raunar gott betur og
hafnaði í 5. sæti. Uppgangur liðsins
hélt áfram í sumar þegar Þróttarar
fengu bronsverðlaunin á Íslands-
mótinu. Sá áfangi að komast í bik-
arúrslit virðist rökrétt framhald af
góðri frammistöðu Þróttar.
„Jú við erum alltaf að fara einu
skrefi ofar og árangurinn verður
meiri á hverju tímabili sem er frá-
bært. Við erum með rosalega góðan
leikmannakjarna og Nik [Cham-
berlain] hefur þjálfað liðið lengi.
Auk þess er Edda [Garðarsdóttir]
komin inn í þjálfarateymið sem er
virkilega gott. Stöðugleikinn sem
verið hefur síðustu ár er mik-
ilvægur og við höldum áfram að
byggja ofan á það.“
Spurð hvernig Þróttarar hafi nýtt