Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 49

Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 ✝ Kristín Jóns- dóttir fæddist á Akureyri 28. maí 1942. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 16. sept- ember 2021. Foreldrar henn- ar voru Birna Kristín Finns- dóttir, f. 18. ágúst 1917, d. 11. ágúst 1990 og Jón Gunn- laugur Sigurjónsson, f. 14. október 1909, d. 22. mars 1986. Systir Kristínar er Helga Jóns- dóttir, f. 17. október 1937 og bróðir hennar er Sigurjón Hilmar Jónsson, f. 11. júlí 1947. Eiginmaður Kristínar er Rafn Sveinsson, f. 3. október 1941. Foreldrar hans voru Sveinn Kristjánsson, f. 21. nóv- ember 1922, d. 13. apríl 1994 og Úndína Árnadóttir, f. 12. október 1923, d. 23. júlí 2010. 1985, maki Ásgeir Halldórsson, þau eiga 3 börn. 3) Ingvar, f. 27. mars 1970, maki hans er Ír- is Dröfn Jónsdóttir, f. 5. maí 1977, börn þeirra eru Sveinn Rúnar, f. 1998 og Dagný Fjóla, f. 2004. Kristín ólst upp á Brekkunni á Akureyri. Hún gekk í Gang- fræðaskóla Akureyrar og hóf störf í Súkkulaðiverksmiðjunni Lindu og síðar við ýmis versl- unarstörf hjá KEA. Kristín og Rafn hófu búskap árið 1960 og giftu sig 3. október 1962. Þau bjuggu alla sína tíð á Akureyri fyrir utan eitt ár þegar þau bjuggu í Danmörku. Kristín hóf síðan störf hjá Pósti og síma á Akureyri og lauk prófi í Póst- og símaskólanum sem tal- símavörður. Hún starfaði hjá Pósti og síma til starfsloka. Útför Kristínar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 30. september 2021, kl. 13. Streymt verður frá útförinni á vefsíðu Akureyrarkirkju. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Börn Kristínar og Rafns eru: 1) Sveinn, f. 15. júlí 1961, maki hans er Berghildur Þór- oddsdóttir, f. 15. nóvember 1966. Börn þeirra eru Al- dís, f. 1997 og Hulda Margrét, f. 2000. 2) Jón Rúnar, f. 10. apríl 1965, maki hans er Jón- ína Vilborg Karlsdóttir, f. 30. apríl 1964. Börn þeirra eru Ei- ríkur Rafn, f. 1991, maki Eyrún Lára Hansen, og Kristín Björg, f. 1996, maki Bjarki Sím- onarson. Barn Jóns er Birkir Örn, f. 1987, maki Helga Sif Pétursdóttir, þau eiga eitt barn. Börn Vilborgar eru Bjarni Gunnar Bjarnarson, f. 1979, maki Jóhanna Gunn- arsdóttir, þau eiga 3 börn og Ásta Dröfn Björgvinsdóttir, f. Elsku amma Stína okkar. Það er erfitt að koma því í orð hvað okkur þykir vænt um þig og hversu mikið við söknum þín. Við erum ótrúlega heppnar og þakklátar fyrir að hafa átt þig sem ömmu. Þú varst alveg ein- staklega ljúf og góð. Það geislaði af þér gleðin og þú varst alltaf í góðu skapi sama hvað á gekk. Það var alltaf svo gott að koma í heim- sókn til ykkar afa, þið tókuð á móti okkur með hlýju og kærleik. Við töluðum um lífið og tilveruna og alltaf komstu fram með dýr- indis bakkelsi. Við eigum ótal minningar með þér, elsku amma, og munu þær lifa með okkur alla tíð. Það sem einkennir allar okkar minningar eru gleði, hlátur og væntum- þykja. Á okkar yngri árum vorum við systur miklir heimþrárpésar en aldrei fengum við heimþrá þegar við gistum hjá ykkur afa. Þið buð- uð alltaf upp á nóg af góðgæti sem gerði kvöldið ennþá betra. Það tók oft langan tíma að velja mynd sem átti að horfa á, svo langan að Hulda og afi voru yf- irleitt sofnuð í sófanum áður en valinu lauk. Það var svo notalegt að geta skriðið upp í til ykkar á miðri nóttu, vakna við morgunút- varpið sem afi kveikti á og fá okk- ur svo te og hrökkbrauð með marmelaði í morgunmat. Þú vildir allt fyrir barnabörnin þín gera. Þú hrósaðir okkur út og inn og studdir okkur í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Nú í seinni tíð hefur þú barist eins og hetja. Þrátt fyrir öll veik- indin sem þú gekkst í gegnum skein alltaf af þér mikil lífsgleði. Þú varst einstök og engum lík. Við höfum alltaf og munum áfram líta upp til þín og vonast til þess að fá að líkjast þér, þó það væri ekki nema bara smá. Þín verður sárt saknað. Þínar ömmustelpur, Aldís og Hulda Margrét. Nú er elsku Stína frænka farin í framtíðarlandið. Hún var mikill gleðigjafi og alltaf gaman að vera með henni. Við systkinadæturnar tuttugu og fimm frá Ytri-Á í Ólafsfirði höfum átt saman helgi á hverju ári síð- astliðin 10 ár sem hefur tengt okkur sérstökum böndum. Við frænkurnar munum sakna hennar mikið á okkar samveru- stundum því hún skemmti okkur með óborganlegum tilsvörum. Hún naut sín vel í Edinborgar- ferðinni þrátt fyrir að hafa ekki fulla heilsu en skemmti sér samt sem áður vel með okkur. Elsku Stína frænka, takk fyrir allar góðu stundirnar. Ytri-Ár frænkurnar, Kristín Björk Guðmundsdóttir. Í dag kveð ég kæra vinkonu, Kristínu Jónsdóttur, en við þekktumst frá unga aldri, ólumst upp í sama hverfi á norðurbrekk- unni á Akureyri. Foreldrum okk- ar beggja var mjög vel til vina og samskipti fjölskyldnanna mikil. Fyrir stuttu rifjuðum við upp gamlar minningar frá jólakvöldi í Hlíðargötunni þegar við dönsuð- um kringum jólatréð og jóla- sveinninn kom og dansaði með okkur og gaf okkur epli og app- elsínur úr pokanum sínum. Eða þegar við sátum uppi á eldhús- bekk í Hlíðargötunni og biðum spenntar eftir því að barnið fædd- ist, það var þegar Guðrún systir mín var að fæðast. Það eru forréttindi að hafa átt vinkonu eins og Stínu, eðliskostir hennar einkenndust af ljúf- mennsku, gleði og kærleika til samferðamanna sinna. Stínu fylgdi alltaf léttleiki og gleði enda var kímnigáfan hennar einstök, hún átti svo auðvelt með að sjá það spaugilega í tilverunni, var glettin og skemmtileg í tilsvörum. Hún kunni þá list að skapa gott andrúmsloft í kringum sig, sem sannaði sig vel í saumaklúbbnum sem við vorum sex vinkonur sam- an í um árabil. Þá var oft glatt á hjalla. Eins voru það dýrmætar stundir sem vinkvennahópur átti saman á hverjum miðvikudags- morgni yfir kaffibolla og góðu spjalli. Stína kom úr skapandi um- hverfi þar sem handverk var í há- vegum haft. Hún var afkastamikil hannyrðakona, útsaumur var hennar fag og litavalið vafðist ekki fyrir henni. Ég er henni afar þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman í saumunum og fyr- ir allt það sem hún kenndi mér. Stína var afar hreykin af sínum stóra ættboga, en hún var af Ytri- Ár-ætt á Kleifum í Ólafsfirði. Frænkurnar úr þeirri ætt hafa þann skemmtilega sið að hittast reglulega í sumarhúsi, hafa ákveðið þema í handavinnu og klæða sig í síða kjóla og hatta. Frænkurnar eru orðlagðar fyrir dugnað og handlagni. Þetta voru Stínu miklar yndisstundir sem hún kunni vel að meta. Fjölskyldan skipaði heiðurs- sess í lífi Stínu, hún hugsaði ein- staklega vel um sitt fólk, ræktaði vináttuna af mikilli kostgæfni og sýndi náungakærleik í verki. Heimili þeirra hjóna er gest- kvæmt og þau einstaklega gest- risin og tekið á móti öllum með hlýju og kærleik. Englar eins og þú. Þú tekur þig svo vel út hvar sem þú ert. Ótrúlega dýrmætt eintak, sólin sem yljar og umhverfið vermir. Þú glæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir til í sálinni. Sólin sem bræðir hjörtun. Í mannhafinu er gott að vita af englum eins og þér. Því þú ert sólin mín sem aldrei dregur fyrir. (Þorkell Sigurbjörnsson) Rabba, börnum og fjölskyldum þeirra vottum við okkar dýpstu samúð og megi kærleikurinn leiða ykkur áfram í lífinu. Margrét Guðmundsdóttir og Kristinn Hólm. Mig langar að minnast góðrar vinkonu minnar Kristínar Jóns- dóttur eða Stínu eins og hún var ætíð kölluð. Ég sé fyrir mér perluband fal- legra minninga sem ná allt aftur til 12 ára aldurs okkar. Við vorum saman í skátunum og þar fæddist sú hugmynd að gaman væri að stofna saumaklúbb. Við vorum fimm í þessum klúbbi sem entist öll unglingsárin okkar og þau voru ógleymanleg. Um 17 ára ald- urinn breyttist allt eins og geng- ur. Ein flutti til Lúxemborgar, önnur gifti sig með stærðarinnar kirkjubrúðkaupi og ég og ein önn- ur fórum í skóla til Reykjavíkur. Stína mín fór að búa með Rabba sínum og átti sitt fyrsta barn. Þegar ég svo giftist og eignaðist mitt elsta barn þá tókum við upp þráðinn að nýju og stofnuðum nýjan saumaklúbb. Þar vorum við sex allar ungar mæður með lítil börn. Þessi klúbbur hefur enst síðan. Það eru ótal minningabrot tengd þessum klúbbi sem eru ógleymanleg, mikið hlegið og haft gaman. Ein í hópnum var mikil sagnamanneskja sem kom okkur oft til að hlæja dátt. Stína átti gott með að sjá það spaugilega í tilverunni. Hún var alltaf tilbúin að létta undir með öðrum. Ég minnist atviks þegar maðurinn minn slasaðist illa og þurfti að liggja á sjúkrahúsi lengi. Þá kom hún færandi hendi með sjónvarp handa honum. Því í þá daga var ekki sjónvarp á stofum sjúkrahússins. Oft þegar hún fór í ferðir til útlanda átti hún það til að koma með eitthvað fallegt handa dætrum okkar sem voru mikið veikar. Það gladdi þær mjög. Hún var líka sú sem heim- sótti þær reglulega þegar þær lágu á sjúkrahúsi. Þeim þótti svo óendanlega vænt um hana og mátu hana mikils. Stína var mikil hannyrðakona, saumaði svo fallega dúka og prjónaði fallegar flíkur. Hún átti líka auðvelt með að leiðbeina öðr- um með handavinnuna og kenndi mér meðal annars kaðlaprjón á mínum fyrstu búskaparárum. Hún hefði sómt sér vel sem handavinnukennari. Ég er svo þakklát fyrir vináttu okkar Stínu á okkar langa ævi- vegi. Hún gerði tilveruna fallega og betri. Það er svo gott að hafa upplifað þessa tíma þar sem allir gáfu sér stund hver með öðrum eins og var í okkar uppvexti. Nú eru tvær farnar úr hópnum og ég trúi því að þær hittist í sumar- landinu og geti hlegið saman. Stína átti og á góða fjölskyldu, yndislega og umhyggjusama syni og tengdadætur og öll barna- börnin. Eiginmaður hennar, Rafn Sveinsson, hefur stutt hana á aðdáunarverðan hátt í gegnum hennar löngu veikindi og gert allt sem hægt var henni til hjálpar. Við Ingvi vottum þeim öllum okkar dýpstu samúð. Ásgerður og Ingvi. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Fallin er frá yndisleg og afar kær vinkona sem lést eftir erfið veikindi. Ég finn fyrir miklum söknuði og sorg í hjarta, en um leið þakklæti fyrir okkar traustu og góðu vináttu sem við höfum átt í gegnum árin. Vinátta okkar hófst fyrir rúmri hálfri öld þegar ég fluttist til Akureyrar með til- vonandi eiginmanni mínum. Stína var fyrsta manneskjan sem ég kynntist þar en hennar maður og minn tilvonandi voru vinir. Sá vinskapur hefur haldist alla tíð. Stína kynnti mig fyrir vinkonum sínum, sem eru elskulegar vin- konur mínar í dag. Stína var ein- stök kona og það fylgdi henni ávallt mikil gleði, hún átti oft hnyttin tilsvör og húmorinn var alltaf til staðar. Hún var mikil hannyrðakona og eftir hana liggja afar falleg verk. Kærleikur Stínu til barna minna hefur verið þeim mikil- vægur. Hún fylgdist með þeim alla tíð bæði í leik og starfi. Í dag hugsa þau til hennar með mikilli hlýju og þakklæti. Minningin um elskulega vinkonu lifir með mér og fjölskyldu minni. Ég votta Rabba og fjölskyld- unni allri mína dýpstu samúð. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Guðbjörg. Elsku besta Stína mín. Þú varst alltaf svo ótrúlega góð við mig og þú hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Við eig- um margar góðar minningar sem ég mun varðveita að eilífu. Ein góð minning var þegar ég kom norður til ykkar Rabba og gisti hjá ykkur í nokkra daga, við fór- um meðal annars að tína rabar- bara og gerðum sultu, þið keyrð- uð með mig alla firðina fyrir norðan og sögðuð mér allskonar sögur, þegar ég ætlaði svo að fara að keyra ein heim til Reykjavíkur varstu búin að smyrja nesti og sagðist ekki geta hugsað þér að ég myndi keyra alein suður, þú varst búin að ákveða að keyra með mér og taka svo strætó aftur til Akureyrar daginn eftir. Við keyrðum til skiptis alla leiðina suður, stoppuðum í Ólafslundi og borðuðum nestið og svo sungum við og hlógum alla leiðina, við vor- um örugglega í svona sjö tíma að keyra því okkur lá ekkert á. Þetta er ein af mínum uppáhaldsminn- ingum sem við áttum saman og sýnir hversu góðhjörtuð þú varst alltaf. Fyrir tveimur árum þegar ég var í bústað fyrir norðan hringdi ég í þig og var að útskýra hvar bústaðurinn var og þú áttir ekki til orð þegar ég sagðist vera hin- um megin við vatnið, þú hlóst og hlóst og sagðir mér að þetta væri sjór en ekki vatn, svo hlógum við dátt í símann og síðan þá höfðum við oft hlegið að þessu. Ég mun sérstaklega sakna þess að hringja í þig á afmælis- daginn þinn og syngja fyrir þig og að fá hringingu frá þér á mín- um afmælisdegi og fá söng, það var besti parturinn af afmælis- deginum. Ég sakna þín og elska þig, besta og uppáhalds Stína mín. Þín uppáhalds, Hjördís. Látin er góð vinkona mín og vinnufélagi til margra ára. Stína var okkur öllum sem með henni unnu yndisleg og öllum þótti vænt um hana. Stína var ráðagóð og leitaði ég oft til hennar og hún sá hlutina alltaf í réttu ljósi. Þeg- ar ég sagði Hörpu dóttur minni að Stína væri látin þá hugsaði hún sig um og spurði svo Stína fína, þannig var hún, alltaf flott og fín og brosmild. Hún var fag- urkeri fram í fingurgóma, alltaf glæsileg og fallegt hennar heim- ili. Ógleymanlegt er þegar hún hélt upp á fimmtugsafmælið sitt og tók þá á móti okkur í bláum fallegum kjól, þar var hún eins og drottning sem geislaði af, eins og hún var reyndar alltaf. Stína bjó yfir svo mörgum góðum eigin- leikum, alltaf með bjarta brosið sitt og gleði og jákvæðni að leið- arljósi. Það var alltaf hægt að stóla á skemmtilegar stundir þegar Stína var með í för, hvort sem það var í vinnunni eða á öðr- um vettvangi. Það er ekki hægt að minnast Stínu án þess að nefna Rabba hennar, sem alltaf stóð henni við hlið og var hennar mesti félagi. Samheldnin á milli þeirra var áþreifanleg og samband þeirra einstakt. Elsku Stína, ég mun alltaf sakna þín, gleðinnar sem þú gafst af þér og fallega hlátursins, með kærri þökk fyrir allt. Guðdómlegur geisli blíður greiðir skuggamyrkan geim; á undra vængjum andinn líður inn í bjartan friðarheim. (Hugrún) Ég sendi Rabba og fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur. Helga Ingólfsdóttir. Kristín Jónsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær bróðir okkar, GUÐMUNDUR MARINÓ ÞORGEIRSSON, lést á sjúkrahúsinu á Siglufirði þriðjudaginn 21. september. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. október klukkan 14. Hlekk á streymi má nálgast á: https://youtu.be/iaNEeTDLEJE Bjarni Þorgeirsson Kristín Þorgeirsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR, Hraunvangi 3, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 23. september. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 6. október klukkan 13. Guðrún Jónsdóttir Rannveig Jónsdóttir Þórður Óskarsson Ragnar Jóhann Jónsson Anna María Þórðardóttir ömmu- og langömmubörn Elskuleg sambýliskona mín og systir okkar, HILDUR JÓNASDÓTTIR, Árhvammi, Laxárdal, lést á Dvalarheimilinu Hvammi 22. september. Jarðsungið verður frá Þverárkirkju laugardaginn 2. október klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hvamm. Jón Pétursson og systkini hinnar látnu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.