Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 8

Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Föst. 10—17 Laugardaga 11—15 HAUSTTILBOÐ 20% afsláttur af öllum innréttingum út október Í gær greindi Fréttablaðið frá því að Alþýðusamband Íslands hefði eytt 40 milljónum króna í áróður fyrir nýafstaðnar kosningar. Fram- kvæmdastjóri ASÍ sagði ekkert óeðlilegt við þetta og upplýsti raun- ar að ákveðið hefði verið að þessu sinni að bæta í frá því sem áður hefði verið, en það er engin nýlunda að ASÍ beiti sér með þess- um hætti. - - - Samtök at- vinnulífsins, sem ólíkt verka- lýðsfélögum eru ekki rekin fyrir nauðungar- greiðslur, gengu samt fram af mun meiri hófsemd og eyddu innan við einni milljón króna vegna kosning- anna. - - - Verkalýðsfélagið Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, var með auglýsingaherferð líkt og ASÍ en neitar að upplýsa um kostnaðinn. Þeir launamenn sem halda úti starfsemi BSRB geta þá væntanlega gefið sér að kostnaður- inn þoli ekki dagsljósið. Það er sennilega rétt mat hjá forystu BSRB en gerir misnotkunina á sjóð- um félagsins síst betri. - - - Verkalýðsfélög verða vitaskuld að hafa í huga að þau taka fé af launamönnum sem eiga sjaldnast aðra kosti en að greiða til þeirra. Margir þeirra styðja aðra flokka en þá sem áróður forystunnar ýtir undir. - - - Þessir launamenn hljóta að fá af- slátt af félagsgjöldunum sem svo freklega eru nýtt gegn hags- munum þeirra. Það ætti að vera auðsótt. ASÍ hefur nú sýnt í verki að þar er nóg til. Það er nóg til STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Grisjað er í listaverkasafni Bændasamtaka Ís- lands þessa dagana. Á fjórða hundrað verk úr þess eigu eru á uppboðum sem Gallerí Fold stendur fyrir. „Þetta er eitt af stærri söfnum sem komið hafa í sölu síðustu ár,“ segir Jóhann Ágúst Hansen uppboðshaldari. Fyrsti hluti uppboðsins á verkum úr safni bænda fór fram um síðustu helgi. Þá voru sett á sölusýningu á netinu á annað hundrað verk eftir ýmsa þekkta listamenn. Annar hluti uppboðsins stendur nú yfir þar sem kynnt eru og seld um 70 grafíkverk. Stórt safn ol- íu- og vatnslitamynda fer svo á uppboð síðar í haust. Þrjú sérvalin verk úr þessu safni verða síð- an á perluuppboði Gallerí Foldar sem fer í loftið á föstudag og stendur fram yfir helgi. „Listaverka- markaðurinn er líflegur nú. Verðhækkanir á sl. tveimur árum eru 25-30%,“ segir Jóhann Ágúst. „Ég hafði ekki hugmyndaflug til að láta mér detta í hug að þetta listaverkasafn væri í eigu sam- taka okkar bænda,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. „Verkin hafa verið geymd í kjallara Hótels Sögu og nú lá bein- ast við að selja þau.“ sbs@mbl.is Bændurnir grisja málverkasafnið - Uppboð í gangi - Til- tekt í kjallara Hótels Sögu Stjórnandinn Verk eftir Magnús Kjartansson sem Bændasamtökin eru með á listaverkauppboði. Samfara hinni miklu uppbyggingu á Hafnartorgi og við Austurhöfn í Reykjavík urðu til tvær nýjar göngugötur á svæðinu, Kolagata og Reykjastræti. Kolagatan var fullkláruð 2019 en nyrsti hluti Reykjastrætis hefur verið lokaður til þessa vegna upp- byggingar lúxushótelsins The Reykjavík Edition. En nú er þeim framkvæmdum að ljúka og búið að opna strætið til fulls. Við það hefur opnast spennandi gönguleið frá Hafnarstræti alla leið að Hörpu. Hins vegar er ólokið við að setja upp gönguljós við Geirsgöt- una, svo fólk þarf að hafa varann á vegna bílaumferðar. Unnið er af fullum krafti við byggingu höfuð- stöðva Landsbankans og því hafa vinnupallar tekið yfir hluta af Reykjastrætinu. Nafnanefnd Reykjavíkur kom með tillögur um nöfnin. Þar sem Kolagata liggur var kolum skipað á land á árum áður. Nafnið Reykja- stræti vísar til heitis höfuðborgar Íslands. sisi@mbl.is Ný gönguleið hefur opnast í miðbænum Morgunblaðið/sisi Reykjastræti Horft frá Geirsgötu í áttina að Hörpu. Fjölbýlishús við Austur- höfn og nýja hótelið á vinstri hönd og nýja Landsbankabyggingin til hægri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.