Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
✝
Fríða Krist-
björg Hjálm-
arsdóttir fæddist í
Vestmannaeyjum
4. febrúar 1935.
Hún lést á Landa-
koti í Reykjavík 23.
september 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Jóna Krist-
insdóttir ljósmóðir
frá Árskógsströnd í
Eyjafirði, f. 21. des-
ember 1895, d. 27. október 1975,
og Hjálmar Eiríksson versl-
unarstjóri frá Vestmannaeyjum,
f. 25. janúar 1900, d. 18. ágúst
1940. Fríða var yngst sex systk-
ina: Sigurbjörg Rannveig, f.
1923, d. 2010; Eiríkur, f. 1924, d.
1971; Helga Ágústa, f. 1927, d.
2004; Anna, f. 1929; og Ása, f.
1931, d. 2011.
Fríða ólst upp í Vestmanna-
eyjum til 14 ára aldurs og flutti
þá til Reykjavíkur ásamt móður
sinni og systkinum.
Hún giftist Birgi Matthíasi
Indriðasyni, f. 31. mars 1936, d.
dóttur. Börn þeirra eru Sæþór
Aron, Darri Viktor og Súsanna
Karen.
Fríða og Birgir skildu árið
1980 og árið 1991 hóf Fríða
sambúð með Jakobi Gísla Þór-
hallssyni, f. 26. október 1928, d.
4. júní 2019, og bjuggu þau sam-
an allt þar til Jakob lést. Jakob á
þrjá syni, átta barnabörn og
þrjú barnabarnabörn.
Fríða var fjölhæf kona og
starfaði við umönnun á yngri ár-
um, vann á skrifstofu Vest-
mannaeyjakaupstaðar og á
rannsóknarstofunni á sjúkra-
húsinu í Vestmannaeyjum. Eftir
að hún flutti til Reykjavíkur
1979 vann hún sem læknaritari
á barnadeild Landspítalans og
svo á röntgendeildinni allt þar
til hún lét af störfum vegna ald-
urs. Fríða var mikil félagsvera
og m.a. virk í félagsstarfi hjá
Ferðafélaginu Útivist, var í
stjórn kvenfélags Heimaeyjar í
Reykjavík og í stjórn eldri borg-
ara hjá Korpúlfum. Að auki var
hún leiðsögumaður og skála-
vörður á vegum Útivistar í Bás-
um á Goðalandi ásamt því að
ferðast víða um land sem farar-
stjóri.
Útför Fríðu Kristbjargar fór
fram frá Seljakirkju 8. október
2021.
12. maí 2020, hinn
11. júní 1955. Börn
þeirra eru fjögur:
1) Indriði, f. 16.
október 1955,
kvæntur Elínu
Ernu Steinars-
dóttur og synir
þeirra eru Steinar,
Birgir, í sambúð
með Ekaterinu
Portnyaga, og
Árni. 2) Steinar, f.
20. apríl 1957, kvæntur Guð-
rúnu Geirsdóttur. Dóttir þeirra
er Fríða Kristbjörg, gift Bald-
vini Má Baldvinssyni og eiga
þau Hörpu Guðrúnu og Jóhann
Kára. 3) Ragna, f. 14. apríl 1961,
gift Jóhanni Brandi Georgssyni.
Synir þeirra eru Atli, í sambúð
með Írisi Elíasdóttur og eiga
þau Söru og Rakel. Egill, í sam-
búð með Selmu Dögg Vigfús-
dóttur og eiga þau Emblu og
Arnór Smára. Hjalti, í sambúð
með Lindu Dögg Rúnarsdóttur.
4) Gylfi, f. 13. febrúar 1965,
kvæntur Rósu Hrönn Ögmunds-
Elsku amma. Þessu áttum við
nú ekki von á alveg strax. Við
áttum ennþá eftir að gera ým-
islegt saman. Þó svo að við gerð-
um helling saman og þú orðin 86
ára, þá var samt slatti eftir hjá
okkur. Ég mun alltaf muna þol-
inmæði þína að taka okkur
frændsystkinin með inn í Bása.
Þú sást um farastjórn í flestum
ferðunum en alltaf var tími til að
leyfa okkur að koma með. Þegar
við vorum komin á unglingsaldur
gátum við nú aðeins hjálpað til
en þá bættust bara yngri frænd-
systkini við líka. Ég man hvað ég
var stolt að vera barnabarnið
þitt. Ég fékk að sitja með þér
fremst í rútunni og saman töld-
um við allar ár og lækjarspræn-
ur sem við fórum yfir. Þú vissir
líka allt og gast sagt endalaust af
sögum á leiðinni. Þegar ég var
orðin eldri fetaði ég nokkurn
veginn í þín fótspor þegar ég fór
að vinna sem ritari á Barnaspít-
alanum. Þér fannst svo gaman að
ég væri núna farin að vinna með
fólki sem þú varst að vinna með
á sínum tíma. Þú hafðir ofurtrú á
mér í öllu sem ég tók mér fyrir
hendur og varst minn helsti
stuðningsaðili þegar ég dreif mig
loksins í sjúkraliðanámið. Það
kom því ekki annað til greina en
að ég ætti að fylgja þér í flesta
læknatíma af því að saman skild-
um við læknana svo vel. Þetta
var stundum kostulegt af því að
þú kynntir þig og svo kynnti ég
mig og læknarnir horfðu til
skiptis á okkur frekar undrandi
þar til þú sagðir stolt að ég væri
nafna þín. Stoltið var samt allt
mín megin, elsku amma. Það
sem ég var alltaf stolt að eiga þig
sem ömmu. Alltaf að, hress og
kát með miklar skoðanir. Síðustu
20 ár fórum við alltaf saman,
fyrsta mánudag í desember á
jólafund Kvenfélagsins Heimaey
ásamt fleiri frænkum og skáf-
rænkum. Við skemmtum okkur
konunglega, borðuðum góðan
mat og þú sofnaðir svo yfir
skemmtiatriði kvöldsins. Þú
sofnaðir ekkert bara stundum
yfir skemmtiatriðinu heldur allt-
af, hvert einasta ár. Það sem við
gátum hlegið að þessu hjá þér.
Elsku amma, það verður skrítið
að halda lífinu áfram án þín. Þú
varst svo stór og mikilvægur
hluti af lífinu okkar allra. Ég
mun alltaf sakna þín.
Þín nafna,
Fríða Kristbjörg
Steinarsdóttir.
Elsku langamma.
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar fyrir okkur.
Mamma segir að þú hafir ver-
ið dugleg að fara í fjallgöngur.
Vel gert!
Þú varst best í heimi.
Langamma var alltaf að
hjálpa öðrum og gaf mér alltaf
plástur ef ég meiddi mig.
Það var mjög gott að knúsa
langömmu.
Harpa Guðrún
Baldvinsdóttir og
Jóhann Kári Baldvinsson.
Þegar hugurinn leitar til baka
þá er oft eins og margt sé skrifað
í skýin. Það er svo margt sem
maður velur ekki í lífinu, en er
eins og sé valið fyrir mann.
Þannig var það með Fríðu
tengdamóður mína, hún fylgdi
með þegar ég kynntist mannin-
um mínum og hefur fylgt mér
síðan. Ef ég hefði hins vegar
fengið að ráða því beint hver yrði
tengdamóðir mín hefði valið allt-
af orðið það sama. Með mér og
Fríðu skapaðist djúp vinátta og
gagnkvæmt traust sem er ekki
sjálfgefið. Fríða heillaði mig
strax við fyrstu kynni. Hún var
geislandi persónuleiki og full af
lífskrafti þrátt fyrir að lífið hefði
boðið henni upp á margar áskor-
anir þá þegar. Við vorum ekki
beint líkar en áttum svo margt
sameiginlegt sem tengir. Við
elskuðum báðar tilbreytingu og
Fríða kunni manna best að
skapa eftirminnilegar stundir.
Um árabil var hún driffjöður í
fjölskylduferðum sem voru
ógleymanleg ævintýr. Þá var
gjarnan farið í Bása í Goðalandi.
Þangað fór hún líka með barna-
börnin í fjölskylduferðir á veg-
um Útivistar. Þá var hún sjálf
fararstjóri ásamt því að hugsa
um gullin sín, gjarnan tvö og tvö
á svipuðum aldri. Þarna var
Fríða á heimavelli og töfraði
fram ógleymanlegar stundir
enda átti þessi fallegi staður
djúpar rætur í hjarta hennar.
Hún og Jakob seinni maður
hennar fóru þangað í ófáar
vinnuferðirnar og dvöldu
löngum stundum sem skálaverð-
ir eftir að þau komust á eftir-
laun.
Fríða var skemmtileg kona
sem átti auðvelt með að sjá
spaugilegar hliðar á málum og
tók sjálfa sig ekki hátíðlega. Við
gátum endalaust hlegið að vit-
leysunni í okkur báðum og oftar
en ekki létt okkur lífið með
hlátri út af engu og öllu. Fríða
kom til dyranna eins og hún var
klædd. Hún vildi ekki vera af-
skiptasöm en það fór samt ekki
á milli mála hvort hún var sátt
við tengdadóttur sína. Henni
fannst ég t.d. ekki alltaf standa
nóg með sjálfri mér og brýndi
mig í þeim efnum. Samt var það
hún sjálf sem setti sig alltaf í
þjónustuhlutverkið og gaf enda-
laust af sínum ríka brunni.
Þannig hjúkraði hún Jakobi þeg-
ar heilsa hans þvarr. Síðustu ár-
in bjó hún ein allt þar til hún
datt um mitt sumar. Það mátti
sjá að heilsu hennar fór aftur, en
engan grunaði þá að hún væri
svo langt leidd af krabbameini,
sem raunin var. Eins og alltaf
sýndi hún þá hvað í henni bjó
með þeirri þrautseigju og dugn-
aði sem einkenndi hana alltaf.
Auðvelt væri að skrifa langa rit-
gerð um Fríðu, lífshlaup hennar
og hæfileika, en í anda hennar
sjálfrar sem vildi aldrei mikla
sig af neinu, læt ég þessi fátæk-
legu orð nægja og kveð mína
ástkæru vinkonu og tengdamóð-
ur með þakklæti og söknuði.
Hún lifir í yndislegum afkom-
endum sínum og í minningu okk-
ar hinna.
Elín Erna Steinarsdóttir.
Fríða Kristbjörg
Hjálmarsdóttir
Fljótlega eftir að
ég hóf störf hjá
Búnaðarsambandi
Suðurlands kynntist ég Jóhann-
esi Helgasyni garðyrkjubónda í
Hvammi. Jói eins og hann var
kallaður af þeim sem þekktu
hann vel var mikill og farsæll
félagsmálamaður. Á þeim vett-
vangi kynntist ég honum best.
Aðkoma okkar var varðandi
Sölufélag garðyrkjumanna og
Samband garðyrkjubænda.
Þessi félög voru helstu hags-
munafélög garðyrkjunnar. Þá
áttum við Jói sameiginlegt
áhugamál sem var skógrækt.
Jói sat tuttugu og eitt ár í
stjórn Skógræktarfélags Árnes-
inga. Faðir Jóa hafði setið í
þeirri stjórn frá stofnun félags-
ins, alls tuttugu og sex ár.
Þannig að þeir feðgar hafa haft
veruleg áhrif á skógræktar-
starfsemi hér í Árnessýslu. Á
Jóhannes Helgason
✝
Jóhannes
Helgason var
fæddur í Hruna 26.
ágúst 1929. Hann
lést 28. september
2021.
Útför Jóhann-
esar fór fram 8.
október 2021.
fundum var Jói
góður hlustandi,
hafði sig ekki mikið
í frammi, en þegar
leið að niðurstöðu
og umræðan hafði
þroskast tók Jói til
máls og var mjög
tillögugóður um af-
greiðslu mála. Nið-
urstöður hans ein-
kenndust af rökvísi
og sanngirni.
Á vettvangi Skógræktar-
félagsins sátum við marga
stjórnarfundi ár hvert. Mikil
uppbygging var á þessum árum
á Snæfoksstöðum. Ár hvert
sóttum við aðalfundi Skógrækt-
arfélags Íslands. Þar sem þessir
fundir eru haldnir víðsvegar á
landinu tengdust mikil ferðalög
þessum fundum. Oftar en ekki
ferðuðumst við fulltrúar Árnes-
inga saman í lítilli rútu sem við
leigðum. Fórum við hringveg-
inn, Kjöl, Sprengisand o.fl. Jói
sagði að hann hefði svo gamalt
bílpróf að hann hefði réttindi til
að aka bíl sem þessum sem og
hann gerði. Á þessum fundum
var hann virkur í nefndarstörf-
um og tillöguflutningi sem hann
bar upp fyrir okkar félag. Jói
var mikill selskapsmaður og oft
var glatt á hjalla og húmorinn
ætíð með í för. Hann sagði
gjarnan sögur af líðandi stundu
sem hann setti í góðan búning
en best tókst honum upp þegar
hann sagði sögur af sjálfum sér.
Einhverju sinni vorum við að
fara á hátíðarkvöldverð í Stykk-
ishólmi og þar sem Jói var alla
tíð mikið snyrtimenni og vel til
fara vildi hann að félagarnir
væru það einnig. Eitthvað þótti
honum bindishnúturinn hjá mér
vera ólögulegur þannig að ég
fékk námskeið í því hvernig
fullkomin bindishnútur átti að
vera. Ævinlega þegar ég bind
hnút á mitt bindi minnist ég
námskeiðsins sem ég fékk hjá
Jóa. Árið 1999 fórum við ásamt
mökum og öðrum sem tengdust
garðyrkju á heimssýningu garð-
yrkjunnar sem haldin var í
Kunming í Kína. Það má sjá í
myndaalbúmi okkar Örnu frá
þessari ferð að fyrsta og síðasta
myndin er af okkur með Jóa og
Kristínu.
Að lokum vil ég fyrir hönd
Skógræktarfélags Árnesinga
þakka alla þá vinnu sem lögð
var fram fyrir félagið og jafn-
framt viljum við Arna þakka af
heilum hug fyrir mikla og góða
vináttu sem við nutum með
þeim hjónum. Við sendum
Kristínu og fjölskyldunni allri
innilegar samúðarkveðjur.
Kjartan Ólafsson.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningargreinar
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RÍKEY GUÐMUNDSDÓTTIR,
Boðaþingi 8, Kópavogi,
lést 7. október.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
22. október klukkan 13.
Oddný Vestmann Kristján Þorvaldsson
Elmar Guðmundsson Kulisara Tonan
Svala Guðmundsdóttir Steindór Karvelsson
Sandra Guðmundsdóttir Magnús Magnússon
og ömmubörn
Elsku eiginmaður minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
SNORRI BALDURSSON
líffræðingur,
Ytri-Tjörnum í Eyjafirði,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar
miðvikudaginn 29. september.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju í Reykjavík föstudaginn
15. október klukkan 13.
Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir
Heimir Snorrason Signý Kolbeinsdóttir
Narfi Þorsteinn Snorrason Svava Þorleifsdóttir
Baldur Helgi Snorrason Sunna Kristín Hannesdóttir
Snorri Eldjárn Snorrason Alda Valentína R. Hafsteinsd.
Snorri, Svava, Þorleifur Kári, Benjamín Eldjárn,
Dagur Snorri, Lovísa Guðrún
Elsku eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma okkar,
GUÐRÚN ÓLAFÍA VIKTORSDÓTTIR
leikskólakennari,
Gerplustræti 21, Mosfellsbæ,
lést á heimili sínu sunnudaginn 10. október.
Hún verður jarðsungin í Háteigskirkju föstudaginn 22. október
klukkan 10.
Einar Ólafur Svavarsson
Guðríður Olga Einarsdóttir Björn Örvar Björnsson
Gunnhildur Einarsdóttir Kristinn Smári Sigurjónsson
Einar Björn Björnsson
Kristinn Örn Björnsson
Hrafnhildur Rún Björnsdóttir
Rakel Sara Kristinsdóttir
Aron Sölvi Kristinsson
og fjölskyldur
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár