Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Auðvelt var að samgleðjast
landsliðskonunum í handknattleik
þegar sigurinn gegn Serbíu í und-
ankeppni EM var í höfn á Ásvöll-
um á sunnudaginn. Þær brostu
nánast á milli húsa í Hafnarfirði
þegar hljóðið heyrðist sem gefur
til kynna að 60 mínútur séu liðnar
á leikklukkunni í húsinu.
Auðvitað sparar íþróttafólk
ekki brosið þegar sigrar vinnast,
hvað þá í keppni við aðrar þjóðir.
En maður fékk á tilfinninguna að
þessi fremur óvænti sigur hafi
verið sérlega sætur fyrir lands-
liðskonurnar. Liðið hefur farið í
gegnum erfiða tíma á síðustu ár-
um. Af og til hefur það fengið
slæma skelli gegn sterkum and-
stæðingum á útivelli. Nú síðast
þrettán marka tap í Svíþjóð
nokkrum dögum fyrir leikinn gegn
Serbíu.
Við aðstæður sem þessar getur
verið erfitt að rífa liðið upp. Sjálfs-
traustið verður væntanlega mjög
takmarkað eftir mörg stór töp.
Alla vega brothætt. Landsliðskon-
urnar fara ef til vill ómeðvitað að
tengja landsliðsverkefni við nei-
kvæða upplifun. Sigurinn gegn
Serbíu gæti því reynst mikilvægur
af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi
gæti hann gert það að verkum að
liðið yrði í baráttunni um sæti á
EM. Í öðru lagi gæti sjálfstraustið
stóraukist í liðinu. Í þriðja lagi gef-
ur það góð fyrirheit að geta lagt
öflugan andstæðing að velli þegar
talsverð forföll eru í liðinu.
Reynt hefur verið að minnka
pressuna á liðið með því að leggja
áherslu á langtímamarkmið. Til
skemmri tíma sé aðalatriðið að
frammistaðan batni jafnt og þétt.
Eftir þrjú ár eða svo, þegar leik-
menn eins og Lovísa, Thea,
Sandra og fleiri verða á fínum
aldri, þá eigi liðið að vera nær
bestu liðunum.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur
komist að samkomulagi við Gunnar
Magnús Jónsson um að hann haldi
áfram sem þjálfari kvennaliðs fé-
lagsins. Gerir hann samning út
næsta tímabil en hann hefur stýrt
liðinu samfleytt frá árinu 2016.
Undir stjórn Gunnars Magnúsar
tókst nýliðum Keflvíkinga að
bjarga sér frá falli úr úrvalsdeild
kvenna, Pepsi Max-deildinni, á ný-
afstöðnu tímabili. Liðið hafnaði í
áttunda sæti af tíu liðum, fjórum
stigum fyrir ofan Tindastól og
fimm stigum fyrir ofan Fylki.
Á leið inn í sitt
sjöunda tímabil
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Keflavík Gunnar Magnús hefur
stýrt Keflvíkingum frá 2016.
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari
HK, verður áfram við stjórnvölinn
hjá meistaraflokki karla í knatt-
spyrnu á næsta tímabili. HK leikur í
1. deild að ári eftir að hafa fallið úr
úrvalsdeildinni, Pepsi Max-
deildinni, í lokaumferð hennar í síð-
asta mánuði. Á sama tíma bjargaði
ÍA sæti sínu á ævintýralegan hátt.
Viktor Bjarki Arnarsson, sem
var aðstoðarþjálfari Brynjars
Björns undanfarin tímabil, söðlaði
um og tók við stöðu yfirþjálfara KR
í síðasta mánuði og eru HK-ingar
því í leit að nýjum aðstoðarþjálfara.
Morgunblaðið/Eggert
Kópavogur Brynjar Björn hefur
stýrt HK-ingum frá árinu 2018.
Áfram við
stjórnvölinn
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslandsmeistarar kvenna í körfu-
knattleik í Val unnu Breiðablik á
Hlíðarenda í Subway-deildinni í
gær. Valur sigraði 73:70 og hefur
farið ljómandi vel af stað í deildinni
því Valskonur hafa unnið fyrstu þrjá
leikina. Blikar hafa hins vegar tapað
fyrstu þremur. Að loknum fyrri hálf-
leik var staðan 33:33 og Blikar voru
tveimur stigum yfir fyrir síðasta
leikhlutann.
Leikstjórnandinn Dagbjört Dögg
Karlsdóttir átti stórleik og skoraði
26 stig fyrir Val. Hún er þekktari
fyrir að vera mikilvæg í vörn Vals og
stjórna sókninni en að skora. Hún
sýndi í gær að hún getur einnig
skorað mikið á góðum degi. Chelsey
Shumpert var stigahæst hjá Breiða-
bliki með 20 stig og Þórdís Jóna
Kristjánsdóttir skoraði 17 stig.
Sé mið tekið af þessum leik stytt-
ist í fyrsta sigur Blika í deildinni í
vetur.
Góður útisigur Keflvíkinga
Keflvíkingar heimsóttu Fjölni í
Grafarvoginn og náðu í tvö stig með
tólf stiga sigri 89:77. Staðan var
45:48 að loknum fyrri hálfleik en
leiðir skildi í síðasta leikhlutanum.
Daniela Morillo var stigahæst
með 34 stig hjá Keflavík og tók 18
fráköst. Anna Ingunn Svansdóttir
skoraði 23 stig og hefur skorað 21
stig að meðaltali í þremur fyrstu
leikjum Keflavíkur.
Dagný Lísa Davíðsdóttir skoraði
26 stig fyrir Fjölni og verður Graf-
arvogsliðinu greinilega góður lið-
styrkur en Dagný dvaldi í Banda-
ríkjunum í mörg ár. Emma Sóldís
Hjördísardóttir skoraði 17 stig og
vert er að nefna að Ciani Cryor gaf
þrettán stoðsendingar hjá Fjölni.
Keflavík er með fjögur stig í deild-
inni en Fjölnir með tvö. Grannaslag
Grindavíkur og Njarðvíkur var ekki
lokið þegar Morgunblaðið fór í
prentun í gær.
Árni Sæberg
Grafarvogur Salbjörg Ragna Sævarsdóttir tekur eitt fimm frákasta sinna fyrir Keflavík. Dagný (33) fylgist með.
- Dagbjört Dögg átti stórleik hjá Val - Anna með 21 stig að meðaltali
Meistararnir með fullt hús
stiga í upphafi tímabilsins
KSÍ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Líkt og Morgunblaðið greindi frá í
gær eru meint ofbeldis- og kynferð-
isbrot sex leikmanna karlalandsliðs-
ins í knattspyrnu nú til skoðunar hjá
Sigurbjörgu Sigurpálsdóttur, sam-
skiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðs-
starfs.
Aron Einar Gunarsson, Kolbeinn
Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson
hafa allir verið nafngreindir í fjöl-
miðlum fyrir meint brot en hinir þrír
hafa ekki verið nafngreindir.
Á meðan mál þeirra er til skoðunar
hjá samskiptaráðgjafanum eru þeir
ekki gjaldgengir í íslenska karla-
landsliðið, að því er heimildir Morg-
unblaðsins herma.
„Ef við fáum ábendingar um ein-
hver meint ofbeldis- eða kynferð-
isbrot er það strax sett í ferli og vísað
til samskiptaráðgjafa íþrótta- og
æskulýðsstarfs,“ sagði Ómar Smára-
son, deildarstjóri samskiptadeildar
KSÍ, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„KSÍ reynir að blanda sér sem
minnst í málið og það er ekki okkar
hlutverk að meta alvarleika brotanna.
Til að halda algjöru hlutleysi er mik-
ilvægt að senda málið strax áfram á
framkvæmdastjóra sambandsins sem
tekur við því og sendir það svo beint
áfram,“ bætti Ómar við.
– Getur þá hver sem er sent eða
hringt inn með ábendingu og það fer
strax í ferli?
„Já eins og staðan er í dag þá virk-
ar þetta þannig,“ bætti Ómar Smára-
son.
„Lögum samkvæmt ber sam-
skiptaráðgjafa að gæta trúnaðar í sín-
um störfum og því get ég ekki stað-
fest neitt varðandi þessi tilteknu mál,“
sagði Sigurbjörg Sigurpálsdóttir,
samskiptaráðgjafi íþrótta- og æsku-
lýðsstarfs, í samtali við Morgunblaðið.
– Mun Knattspyrnusamband Ís-
lands fá bein svör frá þér varðandi
þau mál sem sambandið hefur sent
inn á borð til þín og hversu langan
tíma mun það taka að vinna úr þeim?
„Að sjálfsögðu vinn ég öll mál í
samstarfi við þá sem að málinu koma.
Þegar við á fá aðilar upplýsingar um
framvindu mála, næstu skref og nið-
urstöður.
Varðandi tímarammann þá er hann
mjög misjafn og fer eftir eðli mála,“
bætti Sigurbjörg við.
Vísa öllu til samskiptaráðgjafa
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugardalur Ómar Smárason ásamt landsliðsþjálfurunum Arnari Þór
Viðarssyni og Eiði Smára Guðjohnsen á blaðamannafundi í september.
- Ekki í verkahring KSÍ að meta alvarleika meintra brota landsliðsmanna
Hjólreiðamað-
urinn Ingvar Óm-
arsson komst aft-
ur inn á topp 100
á heimslista Al-
þjóðahjólreiða-
sambandsins um
helgina eftir frá-
bæran árangur í
tveimur keppn-
um í Frakklandi
og á Spáni. Mótin
tvö voru hluti af maraþonmótaröð-
inni hjá Alþjóða-
hjólreiðasambandinu. Fyrri keppnin,
Roc d’Azur, fór fram á föstudaginn í
Fréjus í Frakklandi, en Ingvar gerði
sér lítið fyrir og hafnaði í 33. sæti af
142 hjólurum í meistaraflokki. Eftir
það hélt hann til Spánar þar sem
hann keppti í Girona á sunnudeg-
inum en þar hafnaði hann í 32. sæti
af 190 hjólurum sem kláruðu í meist-
araflokki. Ingvar náði í vor inn á
topp 100 á heimslistanum sem er
besti árangur sem Íslendingur hefur
náð í hjólreiðum en hann tók að fær-
ast niður listann eftir því sem fleiri
keppnir voru haldnar erlendis sem
Ingvar komst ekki í. Ingvar er sem
stendur í 45. sæti á heimslistanum
fyrir maraþonfjallahjólreiðar, í 63.
sæti á MTB „world series“-
maraþonlistanum og svo í 99. sæti í
ólympískum fjallahjólreiðum. Næstu
keppnir Ingvars verða í Transvé-
subienne-Transriviera í Frakklandi
24. október og svo Costa Blanca Bike
Race á Spáni dagana 4.-7. nóvember.
Aftur á meðal
þeirra bestu
í heiminum
Ingvar
Ómarsson