Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hafnarstjórn Þorlákshafnar hefur samþykkt að taka eina tilboðinu sem barst í umfangsmiklar hafn- arbætur í sveitarfélaginu. Það var frá Suðurverki hf. í Kópavogi og hljóðaði upp á tæpar 2.356 milljónir króna og var 102,7% af kostnaðar- áætlun. Stefnt er að því að ganga frá samningnum á næstu vikum. Verkið felst í lengingu Suður- varargarðs um 250 metra, rifi harð- viðartunnu á garðsenda og undir- búningi á færslu og snúningi Suðurvararbryggju með byggingu brimvarnargarðs og niðurbroti Suðurvararbryggju og dýpkun bryggjustæðis. Verkinu er skipt upp í sex áfanga og verði að fullu lokið 1. desember 2023. Hlutur rík- isins í verkinu er fjármagnaður á samgönguáætlun og fjármála- áætlun en hafnarsjóður Þorláks- hafnar greiðir hluta kostnaðar. Fram kemur á vef Vegagerð- arinnar að verkið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Í greinargerð með deiliskipu- lagsbreytingu vegna verksins kem- ur fram að flutningar um höfnina í Þorlákshöfn hafa aukist mjög síð- ustu ár en sökum smæðar eiga stór skip erfitt með að athafna sig innan hennar. Eins er öldulag innan hafnarinnar ekki eins og best verð- ur á kosið við vissar veðurað- stæður. Tilraunir með öldulíkan sýni að úr þessu má bæta með ein- földum aðgerðum, þ.e. Suðurvar- arbryggja endurbyggð og viðlegu- kanti snúið. Landfyllingarefni vegna þess- arar breytingar kemur frá tveimur stöðum. Grjót sem fellur til við landmótun á fiskeldislóð í nágrenn- inu verður notað í framkvæmdina en það sem upp á vantar kemur frá námu á Hafnarsandi. Kjarnafyll- ingar í garða verða 250.000 rúm- metrar og 195.000 rúmmetrum af grjóti verður raðað í garða Landfylling milli stálþils bryggjukants nýrrar Suðurvar- arbryggju og sjóvarnargarðs kem- ur úr sandi sem fellur til við upp- dælingu úr höfninni við eðlilegt viðhald hennar. Tekur við stærri skipum Eftir breytingar verði hægt að taka á móti 180 metra löngum skip- um í Þorlákshöfn en nú er aðeins hægt að taka á móti 130 metra skipum. Sem kunnugt er býður færeyska félagið Smyril Line upp á vikulegar siglingar frá Þorlákshöfn til Evr- ópu. Fleiri skipafélög hafa sýnt áhuga á því að sigla til Þorláks- hafnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þorlákshöfn Höfnin verður öruggari að loknum framkvæmdum og getur tekið við stærri skipum en hingað til. Suðurverk átti eina tilboðið í hafnarbætur - Framkvæmt verður í Þorlákshöfn fyrir 2.356 milljónir Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Hafist var handa við kortlagningu á fjölda íbúa í atvinnuhúsnæði á höf- uðborgar svæðinu í gær. Kortlagn- ingin er fyrsti liður í samstarfsverk- efninu Örugg búseta fyrir alla, sem kynnt var á blaðamannafundi í bíla- sal Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis- ins í Skógarhlíð 14 í gær. Bræðraborgarstígur kveikjan Í kjölfar brunans við Bræðra- borgarstíg í fyrra, þar sem þrjú lét- ust, var Húsnæðis- og mannvirkja- stofnun falið að vinna að tillögum til úrbóta á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu. Í því skyni stofnaði HMS samráðsvett- vang sem lagði fram þrettán úrbóta- tillögur, þar á meðal að kortleggja hversu margir einstaklingar búa í atvinnuhúsnæði, ásamt því að safna upplýsingum um ástand brunavarna og félagslegar aðstæður íbúa. Áætl- að er að kortlagningin muni taka um þrjá mánuði, að því er greint er frá í sameiginlegri tilkynningu. Upplýsa íbúa um réttindi þeirra Halla Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands Ís- lands, segir aðkomu sambandsins að verkefninu snúast um að ná til þess fjölda félagsmanna sem búa í at- vinnuhúsnæði. Tilgangurinn sé þó ekki að sópa þeim út á götu. „Við höfum áhuga á að ná í þetta fólk til að upplýsa það um réttindi sín á vinnumarkaði, réttindi sín sem leigjendur og auðvitað taka þátt í þessu samfélagslega verkefni sem er að binda enda á búsetu í óviðunandi húsnæði og tryggja öryggi fólks þar sem það er.“ Á blaðamannafundinum sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs- stjóri Slökkviliðsins á höfuðborgar- svæðinu, að bankað yrði upp á í öllu atvinnuhúsnæði á höfuðborgar- svæðinu, rætt við bæði eigendur og íbúa og reynt að finna lausnir, þeg- ar það á við. Innt eftir því segir Halla allan gang á því hvernig menn muni bregðast við heimsókn- um af þessu tagi. Því skipti miklu máli hvernig verkefnið er nálgast. „Þetta gengur ekki út á að ganga inn í hús og sópa fólki þaðan út í húsnæðisóöryggi eða að ógna at- vinnuöryggi þess,“ segir hún. „Ég get þó alveg ímyndað mér að það verði ákveðinn hópur sem treystir ekki yfirvöldum og óttast afskipti af þessu tagi.“ Eftirlitsfulltrúar verkefnisins tali þó samanlagt sjö tungumál, auk þess að hafa hlotið þjálfun í menn- ingarlegum samskiptum og því ætti tungumál ekki að vera nein hindr- un, að sögn Höllu. Ósætti um úrlausn á vandanum Óljóst er hve margir búa í at- vinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæð- inu en stöðumynd af umfangi vand- ans var síðast tekin árið 2017, segir Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, að- stoðarforstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, innt eftir því. „Okkar áætlanir gera þó ráð fyr- ir því að þetta sé allt upp í 5-7 þús- und manns og það er rosalega mik- ill fjöldi. Ég vona þó svo sannarlega að það sé minna en það.“ Þá segir hún ýmsar tillögur hafa verið lagðar fram um það hvernig hvetja megi eigendur atvinnuhús- næðis til að gæta betur að bruna- vörnum en að engin sátt hafi náðst um neina þeirra ennþá. Dæmi um tillögur sem ræddar hafa verið er að beita sektar- greiðslum eins og tíðkast við brot á annars konar reglum og að auka fræðslu um mikilvægi góðra bruna- varna og ábyrgð húseigenda. Skrá fjölda íbúa í atvinnuhúsnæði - Áætlað er að íbúar í atvinnuhúsnæði séu um 5-7 þúsund talsins - Eftirlitsfulltrúar heimsækja allt at- vinnuhúsnæði á næstu þremur mánuðum - Skráningin er mikilvægur liður í því að tryggja öryggi íbúa Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Örugg búseta Samstarfsverkefnið Örugg búseta fyrir alla var kynnt á blaðamannafundi í Skógarhlíð 14 í gær. LINDESIGN.IS KÓÐI í VEFVERSLU N “HREKKUR” HREKKJAVÖKUTILBOÐ ÁMORGUN 30% AFÖLLUMVÖRUM Afmælisgjafir Sængurgjafir Skírnagjafir Jólagjafir v v Dimmalimmreykjavik.is DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.