Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 8
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur veitt Sjálf- stæðisflokknum leyfi til að byggja fjölbýlishús á lóð Valhallar, höfuðstöðva flokksins. Sótt var um leyfi til þess að byggja 4-6 hæða steinsteypt fjölbýlishús, klætt málmklæðningu, með alls 47 íbúðum, atvinnurými á hluta jarðhæð- ar og bílakjallara. Húsið, sem THG arkitektar teiknuðu, verður alls 7.330 fermetrar. Þar verða 23 tveggja herbergja íbúðir, 13 þriggja herbergja íbúðir, 10 fjögurra herbergja íbúðir og ein fimm herbergja íbúð. Byggingin mun standa samsíða Bolholti og stallast niður til norðausturs til sam- ræmis við halla götunnar. Á lóð verða 49 bílastæði og 42 stæði í bílageymslu. Í desember 2019 var auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Háaleitisbraut. Í tillögunni fólst að bætt var við tveimur nýjum byggingarreitum á lóðinni auk þess sem heimilt verður að stækka hús Veitna við Bolholt 5. Næst Kringlumýrarbraut er heimilt að reisa fimm hæða byggingu með bílakjallara. Á horni Skipholts og Bolholts er heimilt að reisa allt að sex hæða íbúð- arhús með bílakjallara ásamt þjónustu- og versl- unarrými á 1. hæð. sisi@mbl.is Fjölbýlishús byggt á lóð Valhallar - Borgin veitir leyfi fyrir sex hæða húsi á lóðinni Tölvumynd/THG arkitektar Vallhallarlóð Nýja húsið mun standa við Bolholt. 8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Föst. 10—17 Laugardaga 11—15 HAUSTTILBOÐ 20% afsláttur af öllum innréttingum út október Gestur Ólafsson, fyrrverandi formaður Skipulagsfræðinga- félags Íslands, ritaði athyglis- verða hugleiðingu um skipulags- mál hér í blaðið á mánudag. Gestur setti meðal annars spurningarmerki við þéttingarstefnu stjórnvalda í Reykjavík. Hann spurði til dæmis hvort þétting minnkaði raunverulegan útblástur gróðurhúsalofttegunda og sagði nýlegar rannsóknir draga það mjög í efa. - - - Þá sagði hann að „í mörg hundruð ár hefur dregið verulega úr þéttleika borga. Fólk hefur unnvörpum flúið þennan þéttleika. Fyrir þessu eru margar ástæður. Fólk vildi meira rými, sólarljós og birtu, græn svæði til útivistar og manneskjulegra um- hverfi til að ala upp börnin sín í og hvílast. Mikið af þessu var ekki fyrir hendi í þéttbyggðum borg- um fortíðarinnar. Þetta kostaði auðvitað eitthvað, en í ljós kom að þetta aukna frelsi og rýmra um- hverfi gerði fólk bæði ánægðara og gerði því kleift að skapa verð- mæti sem gerðu gott betur en að borga þetta allt saman.“ - - - Gestur benti líka á að ferðir fólks í þéttbýli væru „ekki lengur línulegar, eða frá heimili á vinnustað, heldur eru aðrar ferðir víða allt að 85% af heildarfjölda ferða – í allar áttir – og vafasamt verður að telja að kostnaðar- samar „borgarlínur“ hjálpi þar mikið.“ - - - Jafnvel þótt borgaryfirvöld skorti bersýnilega ekki viljann til að þvinga fólk inn í ákveðna hegðun er afar ólíklegt að þeim takist að fá alla til að ferðast aðallega fram og til baka eftir „borgarlínunni“. Gestur Ólafsson Línulegt líf? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Stofnun Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum undirbýr nú sýn- ingu um íslensk handrit og íslenska tungu sem opnuð verður vorið 2023 í Húsi íslenskra fræða sem er í bygg- ingu við Arngrímsgötu. Á útboðsvef ríkisins auglýsir stofnunin eftir upp- lýsingum frá sýningarhönnuðum sem hafa áhuga og getu til að vinna að þessu verkefni. Er frestur til þess veittur til 1. nóvember. Miðlunin verði fjölbreytt „Við erum núna eingöngu að leita upplýsinga um hugsanlega sýning- arhönnuði sem hafa áhuga og reynslu til að vinna að sýningunni með okkur. Fyrirspurnin á útboðs- vefur.is er því eingöngu fyrirspurn til að afla upplýsinga,“ segir Sól- mundur Jónsson, verkefnastjóri flutninga og breytinga á Árna- stofnun, í svari við fyrirspurn Morg- unblaðsins. „Við erum rétt nýbyrjuð í hugmyndavinnunni en viljum hafa vaðið fyrir neðan okkur og kanna núna strax hverjir hafa áhuga. Stefnt er að því að meginhugmyndir varðandi sýninguna verði orðnar skýrari í byrjun næsta árs,“ segir Sólmundur. Fram kemur í auglýsingunni á út- boðsvefnum að mikill áhugi og metn- aður sé til að gera sýninguna sem glæsilegasta fyrir fjölbreyttan hóp gesta. Sýningarsvæðið er alls um 310 fermetrar og kostnaðaráætlun er upp á 200-250 milljónir króna. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri miðlun, svo sem gagnvirkri miðlun, mynd- böndum, grafískri framsetningu sem og sýningu á frumgerðum handrita og ýmsum munum. Auglýsir eftir sýn- ingarhönnuðum - Handritasýning fyrir allt að 250 millj. kr. í undirbúningi Morgunblaðið/Hari Handrit Sýningin hefst þegar nýja húsið kemst í gagnið vorið 2023.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.