Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Góðs má vænta næstkomandi laug-
ardagskvöld þegar hljómsveitin
Todmobile kemur saman að nýju eftir
langt hlé og heldur tónleika í Hörpu.
Fyrir um 30 árum var þetta eitt vin-
sælasta band landsins, sem átti vin-
sælustu popplögin og gaf út plötur
sem seldust í hlössum. Spilaði á böll-
um og tónleikum um allt land og lög
sveitarinnar voru í kvikmyndum, það
er á tíma þegar mikil gróska var í ís-
lenskri bíómenningu.
Kröftugur tónn á fyrstu plötu
Todmobile starfaði frá 1989 til
1993. Sveitina skipuðu Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson gítarleikari,
söngkonan Andrea Gylfadóttir og
Eyþór Arnalds sem lék á selló. Þau
slógu kröftugan tón með hljómplöt-
unni Betra en nokkuð annað sem kom
út síðla hausts 1989. Því var fylgt eftir
með tónleikum í Gamla bíói, og það
var raunin í fyrsta sinn sem sveitin
kom fram. Viðtökurnar voru góðar;
spilverkið var þétt og lögin kröftug.
Lagið Ég heyri raddir var eitt það
vinsælasta þetta árið.
„Já, Todmobile var band sem hafði
töfra,“ segir Eyþór Arnalds. „Við öll
höfðum bakgrunn í klassík. Andrea
var og er góð söngkona og við Þor-
valdur Bjarni menntaðir í tón-
smíðum, auk þess að hafa verið í
hljómsveitum frá unga aldri. Höfðum
því tileinkað okkur agann sem þarf í
verkefni eins og að halda úti tónlist.
Við þrjú náðum vel að vinna saman,
en galdurinn lá annars helst í því að
erum afar ólík. Slíkt er oft uppskrift
að góðum hlutum; tveir plús einn
verða ekki ekki endilega þrír heldur
jafnvel fjórir, fimm eða sex.“
Auk þríeykisins sem fyrr er nefnt
voru í Todmobile sem fylgihnettir
þau Eiður Arnarson bassaleikari,
Kjartan Valdemarsson hljómborðs-
leikari og Ólafur Hólm trommari.
Þetta er mannskapurinn sem spilaði
á plötum Todmobile, er urðu fimm.
Lögin hafa elst vel
„Við vorum djarfhuga með titlinum
Betri en nokkuð annað og svo héldum
við áfram af fullum krafti,“ segir Ey-
þór. Platan Todmobile kom árið 1990,
Ópera 1991, tónleikaplatan 2603 er
frá 1992 og síðust er platan Spillt sem
gefin var út 1993. Á þessum plötum
eru mörg vinsæl lög, svo sem Ég
heyri raddir, Stúlkan, Lof mér að sjá,
Brúðkaupslagið og Stelpurokk og
mætti svo lengi áfram telja. Þorvald-
ur Bjarni var aðallagahöfundur sveit-
arinnar. Þá átti hljómsveitin innkomu
í bíómyndunum Veggfóðri og Stutt-
um frakka.
„Já, ég held að lög Todmobile hafi
elst nokkuð vel. Þar held ég að bæði
komi til meðal annars bakgrunnur
okkar Þorvaldar Bjarna úr námi í sí-
gildri tónlist, þekking og kunnátta í
tónsmíðum. Síðan eru plöturnar líka
þaulunnar. Við gerð einnar vörðum
við 1.000 tímum í hljóðveri, nostr-
uðum við hvert lag og fullt af efni fór í
ruslið,“ segir Eyþór.
Todmobile í sinni upphaflegu gerð
starfaði allt til ársins 1993. Þau Þor-
valdur Bjarni og Andrea héldu starf-
inu áfram, en Eyþór sneri sér að
öðru. Hefur reyndar komið fram með
Todmobile við einstaka tilefni síðan,
síðast árið 2007 á tónleikum á Laug-
ardalsvelli.
„Árin fjögur með Todmobile voru
mikil keyrsla. Hundruð tónleika, túr-
ar um landið og alltaf kraftur,“ segir
Eyþór. „Ég man eftir tónleikaferð
um landið sem byrjaði í Bíóhöllinni á
Akranesi. Þegar ég kom inn á sviðið
missté ég mig illa svo hnéskelin færð-
ist úr stað. Ég kippti hnéskelinni aft-
ur inn án þess að hugsa. Ég stokk-
bólgnaði og gat mig illa hreyft á
tónleikunum. Fór svo á sjúkrahús þar
sem læknar gerðu að eymslunum en
á eftir var ég draghaltur og átti í
þessu lengi á eftir. En fall var farar-
heill; túrinn um landið var frábær,“
segir Eyþór, sem hlakkar til tón-
leikanna í Hörpu nk. laugardags-
kvöld. Þeir verða endurteknir í Hofi á
Akureyri 20. nóvember. – Auk þeirra
sem fyrr eru nefnd kemur Eyþór Ingi
Gunnlaugsson söngvari fram með
sveitinni á þessum tónleikum.
„Að vera í hljómsveit er góður skóli
fyrir félagsþroska og tónlist – lög og
stef – er ekkert annað en hugmyndir.
Og tónlistin er alltaf í blóðinu. Fyrir
tónleikana á laugardagskvöldið erum
við búin að taka þrjár æfingar sem
gengu vel. Talið var í og við náðum
takti og réttum tónum eins og skot.
Tónleikarnir á laugardagskvöldið
hljóta því að verða góðir,“ segir Ey-
þór Arnalds að síðustu.
Ljósmynd/Todmobile
Tónlist Eyþór, Andrea og Þorvaldur Bjarni á fyrstu árum sveitarinnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Todmobile Andrea Gylfadóttir, Eyþór Arnalds og Þorvaldur Bjarni í viðtali á kaffihúsi við blaðamann Morgunblaðsins árið 2000.
Ljósmynd/Einar Bárðarson
Sveitaball Eyþór með sellóið á balli í Njálsbúð 1992.
Todmobile með töfra og tónleika
- Endurkoma eftir langt hlé - Harpa á laugardagskvöldið - Eitt vinsælasta bandið fyrir 30 árum
- Fimm plötur og mörg vinsæl lög - Ég heyri raddir, Stúlkan, Lof mér að sjá - Af fullum krafti
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Sinfó Todmobile og Sinfóníuhljómsveitin fylltu Laugardalshöllina 2003.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Æfing Hljómsveitin kom saman til æfinga í vikunni fyrir tónleikana í Eldborg í Hörpu næsta laugardagskvöld.