Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 26
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Útrásin var djörf ákvörðun, en hef-
ur reynst okkur heillaskref. Starf-
semi fyrirtækisins hefur styrkst til
muna og getan til að takast á við
stór verkefni er meiri en áður var.
Einnig höfum við öðlast mikilvæga
þekkingu, sem gerir okkur kleift að
mæta betur kröfum á markaði þar
sem ekkert er gefið eftir,“ segir
Bergsteinn Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sets ehf.
Sagan spannar hálfa öld
Starfsemi Sets ehf. spannar rúma
hálfa öld, en frá 1978 hefur röra-
framleiðsla verið hryggurinn í starf-
seminni. Lengi framan af einbeitti
Set sér að framleiðslu einangraðra
hitaveituröra úr stáli en hóf fram-
leiðslu einangraðra sveigjanlegra
plaströra fyrir 15 árum. Verksmiðja
fyrirtækisins og höfuðstöðvar eru á
Selfossi, söluskrifstofur og vöruhús í
Klettagörðum í Reykjavík og ný-
stofnað dótturfélag, Set Pipes A/S,
starfrækir söluskrifstofu og vöruhús
í Danmörku. Þá er starfrækt stór
framleiðslueining í Þýskalandi. Það
er dótturfélagið Set Pipes GmbH í
bænum Haltern am See í sambands-
ríkinu Norður-Rín Westfalíu, sem
liggur að Hollandi í vestri.
Sáu tækifæri ytra
Framleiðsla á Elipex-plaströrum,
sem eru einangruð og rúllað út af
keflum, er orðin stór þáttur í starf-
semi Sets á alþjóðamarkaði.
„Þetta eru einangruð fjarvarma-
rör sem við höfum góða reynslu og
þekkingu í framleiðslu á. Þau eru
mikið notuð hér heima og sambæri-
leg vara eftirsótt ytra. Við sáum því
tækifæri í því að hefja framleiðslu
erlendis, og byggja þar á reynslu
okkar og þekkingu,“ segir Berg-
steinn. Blaðamaður Morgunblaðsins
kynnti sér starfsemina í Þýskalandi
í síðustu viku.
„Við höfðum lengi haft hug á að
koma upp framleiðslu á þyngri ein-
ingum og stórum hitaveiturörum er-
lendis, meðal annars til að hafa góð-
an aðgang að verkefnum erlendis.
Horfðum í því sambandi til Norður-
landanna eða Eystrasaltsins. Út-
flutningur hafði lengi verið í deiglu
en kostnaður við flutninga kom í veg
fyrir að slíkt væri hægt. Með fjöl-
breyttari framleiðslu og skilyrðum
fyrir hagkvæman rekstur var ein-
boðið að hefja starfsemi ytra.“
„Made in Germany“
Aðstæður í efnahagsmálum og at-
vinnurekstri á Íslandi voru allt ann-
að en hagfelldar þegar Set ehf. hóf
útrásina árið 2009. Allt var í kalda-
koli í kjölfar hrunsins árið áður og á
brattann að sækja. „Við fundum
fljótt að nýja félagið undir íslensku
eignarhaldi fengi hvergi fyrir-
greiðslu og höfum því alfarið byggt
á þjónustu viðskiptabanka okkar
hér heima á Íslandi,“ segir Berg-
steinn.
Þýskir atvinnuráðgjafar beindu
sjónum Sets að Haltern am See,
sem eins og fyrr segir er á Ruhr-
svæðinu í þýska sambandsríkinu
Norður-Rín Westfalíu. Húsnæði á
hagstæðum kjörum var í boði og það
sem meira var; á þessum slóðum er
sterk hefð fyrir stál-, efna- og þung-
aðiðnaði. Bergsteinn segir að ýms-
um hafi hins vegar þótt íslensk útrás
til Þýskalands vera næsta undarleg.
„Þýskaland er eitt helsta iðnveldi
heims og Made in Germany hefur
verið staðfesting um gæðavöru. Að
komast inn á þennan markað er afar
erfitt og útflutningur er í hávegum
hafður meðal Þjóðverja. Margir af
okkar helstu birgjum um hráefni,
svo sem stál og efnavörur, eru hins
vegar í Þýskalandi. Öflun aðfanga
hafði því mikil áhrif á ákvörðun okk-
ar um landnám á þessum slóðum.“
Fimmtungur af veltunni
Þýska hlutafélagið Set Pipes
GmbH veltir árlega um 600 millj-
ónum króna. Það er um fimmtungur
af heildarveltu samstæðu Sets hf.,
þar sem verksmiðjan á Íslandi er og
verður áfram í aðalhlutverki. Ytra
eru um 10 starfsmenn, en verk-
smiðjustjórinn Frank Müller hefur
borið hitann og þungann af starf-
seminni og uppbyggingunni ytra.
„Framleiðslan ytra hefur meðal
annars skilað okkur stórum verk-
efnum á Íslandi, sem við hefðum
ekki ráðið við að framleiða þar. Ný
lögn Norðurorku frá Hjalteyri til
Akureyrar, hitaveita við Hornafjörð
og verkefni fyrir Veitur hafa borið
hátt hjá okkur síðustu árin. Þetta
eru rör í stofnæðar þar sem hefur
þurft 300-800 millimetra stálrör,
með enn víðari hlífðarkápum úr
plasti, einangruð með frauði.“
Flutt með Smyril Line
frá Rotterdam
Rör í mörg stór verkefni hér
heima hafa komið að utan, á flutn-
ingavögnum sem ferjaðir eru yfir
hafið með Smyril Line, sem siglir
frá Rotterdam til Þorlákshafnar.
Frá Haltern am See til skips í Rott-
erdam eru um 250 kílómetrar á
greiðri leið – en þessi flutnings-
möguleiki gerir starfsemina í Þýska-
landi enn betri fyrir Set.
Útrásin hefur reynst heillaskref
- Set hf. með stóra plaströraverksmiðju í Þýskalandi - Framleitt fyrir Ísland og erlenda markaði
- Eftirsótt vara og miklar kröfur - Velta og umsvif - Fengu ekki þjónustu í þýskum bönkum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framleiðsla Starfsmenn Set Pipes GmbH eru 8-10 talsins. Meðal verkefna sem þeir sinna er einangrun á stórum
stálrörum sem plastkápa er sett utan um. Tomasz Bugajski frá Póllandi er einn verkamanna Sets í Þýskalandi.
Þýskaland Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Sets, og Frank Müller, sem hefur borið hitann og þungann af
starfseminni og uppbyggingunni ytra. Verksmiðjubyggingin í Haltern am See er um 6.000 fermetrar að flatarmáli.
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
Ýmsar hindranir hafa verið í veginum í útrás Sets hf. og sæta hefur þurft
lagi til að ná árangri. Stjórnendur Sets hafa verið langdvölum ytra við
störf og að mörgu hefur verið að hyggja svo dæmið gangi upp.
„Við höfum enn sem komið er ekki uppskorið mikla sölu á vörum okkar
í Þýskalandi sjálfu en dæmið hefur gengið betur upp á Norðurlöndunum.
Við vorum kannski svolítið bláeygir að ætla að okkur yrði fagnað sér-
staklega á hinum opna innri markaði Evrópu. Viðskiptavinir okkar eru
hins vegar ánægðir, enda stöndum við vel í gæðamálum. Stærri framleið-
endur eru auðvitað fyrir á markaði en við náum þó smám saman stærri
sneið af kökunni,“ segir Bergsteinn.
Starfseminni í Þýskalandi sl. 12 ár lýsir Bergsteinn sem afar lærdóms-
ríku ferli varðandi innkaup, aðföng, framleiðslu, tækniþróun og markaðs-
mál. „Þetta hefur verið lærdómsrík og krefjandi vegferð sem við höfum
farið í gegnum á síðastliðnum tólf árum. Nú eru ný tækifæri handan við
hornið. Okkur hefur gengið vel að stýra félaginu ytra heiman frá Íslandi,
það er innkaupum og framleiðslu, þannig að allt virki sem ein heild. Fjar-
lægðir geta verið hindrun og eins var heimsfaraldrinum, sem tók fyrir all-
ar ferðir okkar að heiman og hingað út í tæp tvö ár,“ segir framkvæmda-
stjóri Sets að lokum.
Við erum að ná stærri sneið
HÖRÐ SAMKEPPNI VIÐ STÓRFYRIRTÆKIN Í ÞÝSKALANDI
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Handavinna Vel hefur gengið að fá góðan mannskap til starfa í smiðjunni ytra.
LÝSTU UPP
skammdegið með
GE‘ loftljósinu frá
Skeifan 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Ø: 37 cm
Skermur: 26 cm
Lengd snúru: 45-230 cm
Perustæði E27
12W LED pera
fylgir ljósinu
Glær: Verð 39.900,-
Metallitir: Verð 49.900,-