Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 32
32 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég kláraði kennslufræðina þarna vorið ’91 og fór svo bara að leita mér að vinnu og sá þá að það var auglýst staða í Garðabænum,“ seg- ir Kristinn Þorsteinsson, skóla- meistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ, en um þessar mundir eru 30 ár liðin síðan hann hóf fyrst störf við skólann sem hann nú stjórnar og brást Kristinn vel við þeirri beiðni að segja frá ferl- inum og hvernig FG hefur dafnað í hans höndum. „Ég var ráðinn í fulla stöðu þarna um haustið við kennslu fé- lagsgreina, kenndi félagsfræði, stjórnmálafræði, sálfræði og ein- hverja fjölmiðlafræði, sem var nú alveg á mörkunum kannski þar sem ég var bara búinn að læra fræðilega fjölmiðlafræði og hafði ekki mikla menntun í henni,“ segir Kristinn, sem í einum námsáfang- anum rak þann sem hér skrifar út úr tíma í Fjölmiðlafræði-203 á vor- önn 1992 fyrir að trufla kennslu, en bauð sama nemanda frí eina kennslustund önnina á undan til að fara í klippingu á þeim tíma sem ritari skartaði síðu hári hvers nú sjást fá merki. „En ég var ungur maður þarna og treysti mér í hvað sem var,“ segir Kristinn og á þar ekki við hárprýði nemanda síns heldur eig- ið hæfi til að kenna fjölmiðlafræði. „Við höfðum kennslubók í fjöl- miðlafræðinni, nokkuð sem ekki var alltaf hægt að ganga að í fé- lagsgreinum,“ segir Kristinn frá. Endurvarpsstöð fyrir Rás 2? Hann lagði stund á stjórn- málafræði sem meginfag og fjöl- miðlafræði aukalega í háskólanum á sínum tíma. „Svo ákváðum við Doddi vinur minn í einhverjum flýti að fara í kennslufræði, vorum bara með BA-próf og skelltum okkur bara í þetta í HÍ, það var nánast eini háskólinn á þeim tíma,“ segir Kristinn af námi sínu. Hann naut þegar nokkurra vin- sælda fyrsta veturinn í FG, en sá er hér skrifar var nemandi Krist- ins frá fyrstu byrjun í Fjölmiðla- fræði-103 í fjölbrautaskólanum, sem þá var í húsi með sál við Lyngás í Garðabæ. Fór kennarinn hafnfirski ekki í grafgötur með drjúgt álit sitt á Rás 2 og er við bættist að hann kom jafnan hjól- andi til kennslu úr nágrannabæn- um leið ekki á löngu uns út kvis- aðist meðal gárunga skólans að Kristinn og hjólið væru í raun endurvarpsstöð fyrir Rás 2. Kristinn hlær dátt. „Sko, málið er það að ég hef aldrei verið mikill útvarpsmaður, ég hlustaði aldrei mikið á útvarp enda ekki eftir miklu að slægjast, Lög unga fólksins og eitthvað svona. Svo kemur Rás 2 og það var þó alla vega eitthvað sem hægt var að hlusta á og ég hlust- aði svolítið á hana, en ekkert mik- ið, ég hef ábyggilega bara verið að stríða ykkur, en ég var alltaf á hjóli, það er rétt, enda stutt úr Hafnarfirðinum yfir til ykkar,“ rifjar Kristinn upp. Á hann góðar minningar frá þessum fyrstu árum sínum í FG þá? „Já, þetta var mjög gaman,“ svarar skólameistarinn án um- hugsunar, „kannski var ekki allt jafn skemmtilegt, þetta var mikil vinna, ég kenndi mjög mikið, samt var ég ekkert búinn að ákveða það á þessum tíma að verða kennari beint, ég fór í framhaldsnám til Hollands veturinn eftir og var ekki búinn að marka mér framtíð á þessum tíma. Konan mín er læknir og hún þurfti að fara í framhaldsnám og við þurftum að taka umræðu um hvert við ætl- uðum að fara og þetta átti bara að vera svona millibilsstopp í Garða- bænum veturinn ’91 til ’92,“ játar Kristinn, en sjaldan verður ósinn eins og uppsprettuna dreymir. Sá að ég yrði bara í þessu Úr varð að Kristinn dvaldi í Hollandi í fjögur ár og lauk þar meistaraprófi í alþjóðastjórn- málum. „Svo er ég að koma heim og var á leið til Flórída og hitti þá Aðal- björgu [Helgadóttur, fagstjóra fé- lagsgreina í FG] á flugvellinum og hún sagði mér að aftur væri verið að auglýsa eftir kennara í félags- greinum í skólanum. Þá fer ég og hitti Þorstein [Þorsteinsson, þá- verandi skólameistara] bara nán- ast samdægurs eða daginn eftir, þetta er 1996, og ég fékk starfið strax,“ segir Kristinn. Þá um vet- urinn hafi hann svo áttað sig á að örlög hans væru ráðin. „Ég sá að ég yrði bara í þessu, ég er ágætur í þessu og ég ætlaði bara að vera í þessu það sem eftir er,“ játar hann. Kristinn kveðst hafa náð góðu sambandi við Þorstein Þor- steinsson skólameistara sem hafi falið honum ýmis störf, „og ég var fljótlega farinn að gera mig þykk- an þarna innan skólans,“ játar Kristinn og brosir út að eyrum á skjánum, en örlögin höguðu því svo að þótt blaðamaður hefði ein- mitt verið í heimsókn á Íslandi brást engu að síður heimsókn til Kristins í FG þar sem hann sat heima í sóttkví. Kennslan mikilvægt starf Kristinn hefur upplifað verkföll kennara frá fleiri hliðum en marg- ir, sem nemandi, kennari og skóla- meistari, og spjallið berst að lang- vinnu og erfiðu kennaraverkfalli á haustdögum árið 2000. „Þá voru launin mín það lág að ég skamm- aðist mín fyrir að segja hvað ég væri með í laun,“ segir skólameist- arinn og rifjar upp verkfall árið 2014 þegar gríðarlegt bil var að hans sögn milli kennara og ann- arra opinberra starfsmanna. „Kennslan er gríðarlega mik- ilvægt starf en samt er sjálfs- traust kennarastéttarinnar ákveð- ið vandamál auk þess sem virðingu skortir fyrir starfinu. Við fengum ágæta hækkun 2014, en nú er svo komið að maður spyr sig hvort við séum enn að sigla í sama farið eða hvort okkur takist að halda í við launaþróun annarra stétta,“ segir Kristinn. Hann telur nýliðun í stéttinni ágæta og nefnir sem dæmi að blaðamaður þekkti líklega ekki marga kennara í FG nú á tímum. „Þú ert náttúrulega orðinn hund- gamall,“ segir Kristinn og glottir við tönn áður en hann víkur talinu yfir í að hann telji mikilvægt að fjölga karlmönnum í kennarastétt sem sé ærið verkefni næstu ára, jafnvel næstu kynslóða. Kristinn tók við stöðu aðstoð- arskólameistara af Gísla Ragn- arssyni árið 2005 þegar Gísli varð skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla. „Svo hættir Þorsteinn árið 2010 og ég sæki um starfið, er einn margra umsækjenda, ég bjóst alls ekki við að ég fengi stöð- una, en ég fékk hana, enda bjó ég þarna yfir gríðarlegri reynslu, ég þekkti skólann gjörsamlega í ræmur þá eins og nú, ég hef gegnt flestum störfum innan skólans fyr- ir utan að vera húsvörður eða matráður,“ segir Kristinn kíminn. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ hefur löngum þótt vinsæll meðal nemenda úr nágrannabæjunum Hafnarfirði og Kópavogi, svo lengi að blaðamaður kynntist þaðan mörgum öðlingnum á sinni tíð fyr- ir þremur áratugum og þekkir enn. „Já, það er nú einu sinni þannig að Hafnfirðingum finnst allt í lagi að fara í Garðabæ og Kópavogsbú- um í Hafnarfjörð, en Garðbæingar hafa frekar viljað fara inn í Reykjavík ef þeir fara ekki í sinn heimaskóla. Við vorum nátt- úrulega alltaf í ströggli með hús- næði, skólinn var í þremur húsum við Lyngás, en árið 1997 flytjum við í nýtt húsnæði við Skólabraut og þá fer að fjölga í skólanum, í dag erum við með 740 nemendur og einhverja 70 eða 80 í fjarnámi sem er heldur meira en við ráðum við, skólinn er byggður fyrir fimm til 600 nemendur og við erum að biðja um að fá viðbyggingu, það mál er bara statt einhvers staðar í ráðuneytinu, en Garðabær styður okkur mjög í því að fá þessa við- byggingu og við þurfum bara að fylgja því vel eftir,“ segir Kristinn. Ungt fólk heilbrigðara Hann telur stemmninguna hafa aukist í skólanum við að flytja úr þremur húsum í eitt 1997 auk þess sem áfengisneysla nemenda sé nú orðið mun minna vandamál en áð- ur. „Hún er miklu minna mál núna en fyrir 20 og 30 árum, því er varla saman að jafna, ungt fólk í dag er að flestu leyti miklu heil- brigðara en bæði mín kynslóð og þín kynslóð,“ segir Kristinn, sem er fæddur árið 1962 svo því sé haldið til haga. Hann telur forvarnastarf þar hafa margt að segja auk þess sem viðhorf foreldra gagnvart áfengis- og vímuefnaneyslu sé breytt. „Nú er orðið mjög algengt að krakkar byrji ekki að drekka fyrr en um 18 ára aldur, Ísland stendur mjög vel þegar kemur að áfengis- og vímuefnaneyslu ungs fólks, ég man þegar maður var að halda ut- an um skólaböllin fyrir aldamót, það voru ekki fagrar samkomur get ég sagt þér,“ rifjar Kristinn upp. „Þegar ég var nýnemi í Flens- borgarskólanum í Hafnarfirði 1977 – ’78 var ballið í Festi svo rosalegt að það var ekki haldið ball í skól- anum í hálft ár á eftir, fyrirsögnin í Morgunblaðinu var „Allt brotið og bramlað í Festi“. Þetta var 1977 og ástandið er mun betra í dag, fólk hegðar sér mun betur núna,“ segir Kristinn. Mál Páls flókið Skrif Páls Vilhjálmssonar, kenn- ara við skólann, á lýðnetinu vöktu nýlega þjóðarathygli og varla stætt á öðru en að hreyfa við því umræðuefni úr því sem komið er, Erfiðara að ná til nemenda með forns - 30 ár síðan Kristinn Þorsteinsson hóf kennslu við FG - „Fljótlega farinn að gera mig þykkan þarna innan skólans“ - Viðhorf til áfengisneyslu breytt - Skólakerfið tryggi viðgang íslenskunnar Við stjórnvölinn Kristinn Þorsteinsson skólameistari hefur víðtæka reynslu af skólamálum og hefur meðal annars upplifað kennaraverkföll sem nemandi, kennari og skólameistari auk þess að sjá skólaböll breytast til hins betra. Kveðjustund Svavar Bragi Jónsson þýskukennari, Hulda Friðjónsdóttir skrifstofustjóri og Leifur Helgason íslenskukennari láta af störfum. LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.